Morgunblaðið - 20.11.1982, Síða 1

Morgunblaðið - 20.11.1982, Síða 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK 260. tbl. 69. árg. LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1982 Prentsmiðja Morgunblaðsins Getur krabbamein stafað af veirum? New York, 19. november. Al*. SAMBANDIÐ milli ákvcðinnar tegundar krabbameins í mönnum og nýfundinnar veiru er svo sterkt, að blóðbankar ættu skilyrðislaust að kanna hvort veiran finnst í því blóði, sem þeir hafa yfir ráða hverju sinni. I'að voru nokkrir bandarískir vísindamenn, sem héldu þessu fram nú í vikunni en þeir fundu veiruna í rannsóknum sínum á krabba- meini. Dr. Robert Gallo, sem starfar við bandarísku krabbameins- stofnunina, sagði, að endanlegar sannanir væru að vísu ekki fram komnar en þrátt fyrir það væri hann og samstarfsmenn hans vissir í sinni sök. Veiran veldur að sögn sérstakri tegund af hvítblæði, sem er krabbamein í hvítu blóðkornunum. Þau hafa því hlutverki að gegna að vinna gegn sýkingu í líkamanum en þegar veiran sest að í þeim fara þau að skipta sér stjórnlaust. Þessi krabbameinstegund er fremur sjaldgæf í Bandaríkjun- um en algeng í Japan og á sum- um eyjum í Karabíska hafinu. Vitað er um margar veirur, sem valda krabbameini í dýrum, en þetta er í fyrsta sinn, að sögn Gallos, sem leidd hafa verið lík- indi að því, að veirur getið valdið krabbameini í mönnum einnig. Fyrrnefnd tegund hvítblæðis og nokkrar aðrar krabbameinsteg- undir virðast stundum koma upp á sérstökum svæðum, sem bend- ir til, að þær geti verið smitandi. Gallo spáði því, að strax á næsta ári yrði farið að kanna allt blóð í bandariskum blóð- bönkum til að koma í veg fyrir hugsaniegt smit. Líbanon: Habib reynir að koma erlendum her á brott Fegurstu konur heims Beirút, 19. nóvember. AP. ÍSRAELSKUR hermaður var skotinn til bana og tveir aðrir særðir þegar ráðist var á þá í hafnarborginni Sídon í Líbanon í dag. Philip C. Habib, sendimaður Bandaríkjaforseta i Miðausturlöndum, kom í dag til Líbanon til að reyna að koma af stað að nýju viðræðum um brottflutning erlendra herja frá landinu. Ungfrú Mariasela Alvarez, 22ja ára gömul stúlka frá Dóminíkanska lýðveldinu, var í fyrrakvöld kjörin fegursta kona heims í Royal Albert Hall í Lundúnum og sést hér skarta kórónunni sem titlinum fylgir. Á hægri hönd henni er Ungfrú Finnland, Sari Kaarna Aspholm, sem varð önnur í keppninni, og á vinstri hönd Mariasela er Ungfrú Bretland, Della Frances Dolan, en hún varð númer þrjú. Sjá nánar bls. 22. Breytingar gerðar á kínversku stjórninni l'eking, 19. nóvember. AP. IFTANRÍKISRÁÐHERRA Kína, Huang Hua, og varnar- I hvað llua varðar, en hann var nýkominn frá Moskvu þar málaráðherrann, viku i dag úr kinversku stjórninni og sem hann átti viðræður við Gromyko, utanríkisráðherra hafa nýir menn verið skipaðir í þeirra stað, að þvi er sagði Sovétríkjanna, um deilumál ríkjanna. í frétt frá Xinhua-fréttastofunni. Er borið við veikindum I Talsmaður ísraelska hersins sagði í dag, að ókunnir menn hefðu ekið með miklum hraða framhjá ísraelskum herjeppa og látið skothríðina dynja á honum með þeim afleiðingum, að einn hermaður hefði látist og tveir særst. Fjórum stundum síðar lýstu samtök, sem kalla sig „Líb- Kærður fyrir að bita hund (ounril Bluffs, lowa, Bandaríkjunum, 19. nóv. AP. „LOKSINS, loksins," sagði í blöðunum í Iowa-ríki i Banda- ríkjunum nú fyrir nokkrum dög- um. „Loksins kom að því að maður beit hund.“ Atburðurinn, sem átt er við, bar að með þeim hætti, að manni að nafni Mark Helzer og vinnufélaga hans, Dennis Morris, sinnaðist eitthvað á heimili þess fyrrnefnda og þeg- ar þeir höfðu látið hendur skipta um stund vísaði Helzer Dennis á dyr. Dennis rauk þá út en skömmu síðar heyrðu Helzer-hjónin hið ámátlegasta ýlfur frá hundinum þeirra úti í garði. „Þegar við komum á vett- vang lá Dennis ofan á hundin- um okkar, honum Critter, með tennurnar á kafi í hálsi hans,“ sagði frú Helzer. „Við máttum hafa okkur öll við, bæði tvö, að losa Critter úr gininu á hon- um.“ Dennis hefur að vonum verið kærður fyrir tiltækið en líðan Critters er sögð vera eftir at- vikum. önsku andspyrnuhreyfinguna", víginu á hendur sér. Habib mun eiga viðræður við líbanska ráðamenn um tilraunir sínar til að tryggja brottflutning erlends herliðs frá landinu en fara svo til ísraels á fund stjórnarinn- ar þar. Ferð hans nú kemur í kjölfar þeirrar yfirlýsingar Shultz, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, á fréttamannafundi í Washington, að Bandaríkjastjórn einbeitti sér nú að því að koma erlendum herjum hið fyrsta á brott frá Líbanon. Talið er, að um 35.000 ísraelskir hermenn séu nú í landinu, svipaður fjöldi sýrlenskra hermanna og 6—10.000 palest- ínskir skæruliðar á yfirráðasvæði Sýrlendinga. Það, sem hefur komið í veg fyrir brottflutning erlends herliðs frá Líbanon hingað til, er sú krafa ísraela, að jafnframt verði samið um pólitísk málefni en Líbanon- stjórn vill aðeins semja um það eitt að útlenskir stríðsmenn verði á brott. Við starfi Hua sem utanríkis- ráðherra hefur tekið Wu Xueqian, en hann er sextugur að aldri og gamalreyndur í kínversku utanrík- isþjónustunni, og Zhang Aiping, 72 ára gamall, leysir af hólmi Geng Biao sem varnarmálaráðherra. Báðir eru nýju ráðherrarnir taldir dyggir stuðningsmenn núverandi valdhafa. Þessar breytingar koma ekki á óvart en búist hafði verið við að þær kæmu ekki til framkvæmda fyrr en síðar í þessum mánuði, þeg- ar alþýðuþingið kemur saman. Huang Hua, fyrrverandi utanrík- isráðherra, er nýkominn frá Moskvu þar sem hann var við útför Brezhnevs, forseta Sovétríkjanna, og átti einnig viðræður við Ándrei Gromyko, utanríkisráðherra, um bætt samskipti þjóðanna. Hann hefur átt við mikið heilsuleysi að stríða og er haft eftir kínverskum heimildum, að hann hafi beðið með afsögn sína þar til lokið væri endur- skipulagningu á starfsemi kín- versku utanríkisþjónustunnar, sem hann hefur séð um. Nýi utanríkisráðherrann, Wu Xueqian var áður næstráðandi þeirrar stofnunar, sem sér um tengsl kínverska kommúnista- flokksins við aðra kommúnista- flokka, en var í maí sl. skipaður fyrsti aðstoðarutanríkisráðherra. Varnarmálaráðherrann nýskipaði, Zhang Aiping, hefur lengi verið"tal- inn líklegur í embættið en hann hefur beitt sér mjög fyrir nútíma- legri endurskipulagningu kínverska hersins. Báðir þessir menn voru ofsóttir í menningarbyltingunni á sínum tíma en forverar þeirra hins vegar ekki. „Ekki kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum nú“ — segir Lennart Bodström, utanríkisráöherra SvíþjóÖar Os\ó, 19. nóvember. AP. LENNART Bodström, utanríkis- ráðhcrra sænsku jafnaðarmanna- stjórnarinnar, sagði í dag á blaða- mannafundi í Osló, að enginn grundvöllur væri nú til að lýsa yfir kjarnorkuvopnalau.su svæði á Norðurlöndum. Bodström er nú í sinni fyrstu opinberu heimsókn í Noregi. Bodström gerði stuttan stans í Noregsför sinni, aðeins átta klukkustundir, en megintilgang- ur hennar var að skýra norskum stjórnvöldum frá stefnu sænsku stjórnarinnar í efnahags-, varn- ar- og utanríkismálum. Frá Nor- egi mun hann fara til Finnlands og Danmerkur í sömu erinda- gjörðum. Á blaðamannafundi, sem Bod- ström hélt í Ósló í dag, sagði hann, að Norðurlandabúar gætu að vísu rætt um það sín á milli hvort komið skyldi upp kjarnorkuvopnalausu svæði á Norðurlöndum, en „samt sem áð- ur er engin ástæða til formlegra viðræðna um það mál nú. Þetta verður að ræða miklu betur í hverju landanna og seinna get- um við séð til hvort ástæða er til að halda því áfram,“ sagði Bod- ström.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.