Morgunblaðið - 20.11.1982, Síða 13

Morgunblaðið - 20.11.1982, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1982 13 Mér er ekki sama — þess vegna er ég í kjöri Eftir Geir H. Haarde formann Sambands ungra sjálfstœð- ismanna Tvær meginstefnur takast á í ís- lenzkum stjórnmálum um þessar mundir. Annars vegar stefna for- sjármannanna, sem hafa vilja ráð hvers manns í hendi sér og beita valdi og skattpeningum hins opin- bera til að tryggja sér þau. Hins vegar er stefna frjálslyndra manna, sem draga vilja úr afskipt- um hins opinbera af atvinnulífinu og af daglegu lífi hins almenna borgara, en auka í þess stað at- hafnafrelsi og svigrúm hvers og eins til að stjórna lífshlaupi sinu. Vinstri flokkarnir á íslandi eru forsjárflokkar og hin almenna þjóðmálastefna þeirra einkennist af tilhneigingu til að vilja hafa vit fyrir fólki. Stefna þessara flokka hefur ráðið of miklu á íslandi of lengi. Því þarf að breyta. Aðeins einn stjórnmálaflokkur berst fyrir stefnu aukins atvinnufrelsis og aukins frjálsræðis einstakl- inganna. Það er Sjálfstæðisflokk- urinn. Frjálslyndum mönnum ber því að styrkja Sjálfstæðisflokkinn. Mikið er í húfi varðandi það, hvort frelsið eða forsjárstefnan ráða ferðinni þegar tekizt verður á við þjóðmálaverkefni næstu ára. í skipulagi athafnafrelsis og frjáls framtaks einstaklinganna verður meira úr þeim auðlindum og mögu- leikum, sem landsmenn hafa úr að spila en í skipulagi ríkisforsjár- stefnunnar. Út frá .hreinum hag- kvæmnissjónarmiðum væri því rétt að velja fyrri leiðina. En við bætist einnig að forsjárstefnan er á marga lund ósiðleg og óboðleg í samfélagi frjálsra manna vegna þeirra afskipta af einkahögum borgaranna, sem henni fylgja. ér er ekki sama um það hvor leiðin verður farin hér á Islandi á kom- andi árum og vil ekki standa hjá, þegar tekist verður á um það. Þess vegna er ég í framboði í prófkjöri sjálfstæðismanna vegna alþingis- kosninganna á næsta ári. Valdinu skilað til fólksins Eitt mikilvægasta verkefni næstu ára verður á vettvangi at- vinnumála. Þar bíða landsmanna líka mikil og ónýtt tækifæri. Þessi tækifæri má hagnýta til þess að búa svo í haginn fyrir komandi kynslóðir ungra Islendinga, að hér verði þjóðfélag, sem geti verið öðr- Geir H. Haarde um fyrirmynd varðandi almenna velsæid og réttláta dreifingu lífsins gæða. Þessum tækifærum má líka glata og það er líklegra að þeim verði glatað fái vinstri sinnaðir forsjármenn að ráða ferðinni. Slíkir menn hafa undanfarin ár síaukið afskipti ríkisins af atvinnu- lífi landsmanna og skammtað sér völd til að fjalla um ýmsa veiga- mikla þætti efnahagsmálanna án þess að þeir hafi til þess nokkur efni eða forsendur. Þessu valdi þarf að skila aftur til almennings, það- an sem það er komið. Þessir menn hafa til dæmis tekið sér vald til að ráðkast með stóran hluta af því fé, sem þjóðin ver til fjárfestingar árlega. Árangur er misjafn og oft afleitur, eins og dæmin sanna. Stórfelld mistök hafa orðið á þessu sviði og geta orðið á ný á meðan áhættan og ábyrgðin eru ekki á sömu hendi og ákvarðanirnar. Vinstri sinnaðir stjórnmálamenn hafa einnig tekið sér vald til að ákveða með beinum eða óbeinum hætti, hvert skuli vera verð á ýms- um vörum og þjónustu óháð því, hvort kaupendur og seljendur séu tilbúnir til að semja um annað verð af fúsum og frjálsum vilja. Þetta gildir um ýmsar aðrar veigamiklar ákvarðanir í efnahags- og atvinnu- málum og raunar miklu víðar í daglegu lífi almennings. Það er löngu orðið brýnt að takmarka möguleika stjórnmála- manna til að ráðskast með hags- muni og fjármuni fólks og fyrir- tækja. Margir muna eflaust eftir afturvirkum sköttum vinstri stjórnarinnar 1978, sem komu eins og reiðarslag yfir almenning og komu sérlega illa við þá, sem búnir voru að stofna til fjárhagsskuld- bindinga áður en þessir skattar voru lagðir á. Stjórnmálamenn eiga ekki að hafa heimild til sið- leysis af þessu tagi. Þannig þarf á mörgum sviðum að takmarka vald stjórnmálamanna og færa það frá þeim til uppruna síns þar sem atkvæðahagsmunir einstakra manna geta hvergi komið nærri. Stjórnmálamennirnir eiga að setja rammann um efnahags- og atvinnustarfsemina. Þeir eiga ekki að vera með nefið niðri í hvers manns koppi. Atvinnurekendurnir og starfsfólk þeirra eiga að sjá um atvinnureksturinn. Á íslandi þarf með nýjum vinnu- brögðum og hugmyndum að skapa nýjan ramma um efnahagsstarf- semina, sem miðar að endurreisn í atvinnumálum og grundvallast á auknu frjálsræði og minni opinber- um afskiptum. Ég vil gjarnan taka þátt í því verki og hef því boðið mig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokks- ins. Berjumst við raunverulega andstæðinga Sjálfstæðismenn ganga til þess prófkjörs sem framundan er við aðstæður sem um margt eru óvenjulegar i flokknum. A miklu veltur að flokksmenn allir geti sameinast um framboðslista sína í komandi kosningum. Hinir raun- verulegu andstæðingar sjálfstæð- ismanna eru forsjármennirnir í hinum stjórnmálaflokkunum, mennirnir sem ekki treysta al- menningi til að hafa vit fyrir sér. Gegn stefnu þessara manna ber sjálfstæðismönnum sameiginlega að berjast. Þegar tímabundin vandamál inn- an Sjálfstæðisflokksins verða að baki munu flokksmenn einbeita sér að því af fullum krafti að kljást við andstæðinga sína og glíma við að leysa hin raunverulegu vandamál í samfélaginu, sem hvarvetna blasa við. Mér er ekki sama um það hvernig þeirri glímu lyktar og vil leggja fram krafta mína Sjálfstæð- isflokknum til stuðnings. Þess vegna er ég í kjöri í prófkjöri flokksins vegna alþingiskosn- inganna. Félag þingeyskra kvenna heldur jólafund sinn í Átthagasal Hótel Sögu, sunnudaginn 21. nóvember kl. 3. Húsiö opnar kl. 2. Góöir skemmtikraftar og veitingar. Allar þing- eyskar konur velkomnar. Stjórnin. Prófkjör Sjálfstæðis- manna í Reykjavík 28. og 29. nóvember 1982 Stuðningsmenn mínir hafa vinnu- aðstöðu að Brekku- gerði 28, vegna und- J irbúnings fyrir væntanlegt prófkjör. Opið daglega frá kl. 14.00 til 22.30. Sími38770 ' Björg Eimrsdóttir Ég býð mig fram til prófkjörs Sjálf- stæðisflokksins 28.-29. nóvember af einlægum áhuga fyrir málefnum flokks og þjóðar. 1. Nýja stjórnarskrá. 2. Jöfn atkvæöi án tillits til búsetu. 3. Krefst ákvöröunartöku og ábyrgöar stjórnmála- manna. 4. Valdið úr höndum nefnda og þrýstihópa inn á Al- þingi. 5. Frelsi til athafna án skatt- píningar. Guðmundur Hansson, Hæöargarði 2. Sími 85570. ari. Það er í raun enginn hvers- dagsleiki svo ómerkilegur, að það megi ekki finna einhvern skáld- skaparþráð í honum, og því ekki endilega ástæða til að leita langt yfir skammt. Það er þó ekki aug- ljóst mál að slíkt yrkisefni gangi upp eða leiði til einhvers sem skiptir máli, því það er ekkert eins flókið og einfaldleikinn, og mikill vandi að ná út úr hversdagsleikan- um einhverju sem hefur almennt gildi og víðari skírskotun. Þá er einnig í öllum bókunum ljóðaflokkur sem tengist norð- austurhorninu, en þar, eða í Þing- eyjarsýslunni, er ég alinn upp frá fæðingu til 13 ára aldurs, eða að svo miklu leyti sem tókst að ala mig upp.“ — Hefurðu nokkra skýringu á því hvers vegna sumir leggja fyrir sig ljóðlistina en aðrir skrifa í óbundnu máli? „Nei, það hef ég ekki, en þetta form hentar mér hinsvegar mjög vel ásamt því að skrifa leikrit, en skáldsöguformið finnst mér mjög fjarlægt mér. Kannski skrifa ég einhverntíma prósa, en það verður ekki skáldsaga held ég.“ — Nú hafa verið sýnd hér tvö leikrit eftir þig, Undir suðvestur- „... stli maður geti bara ekki sagt að Ijóðlistin sé leit að kjarna máls- ins?“ himni og Hlaupvídd sex, ertu með fleiri leikrit í smíðum? „Já, þessi leikrit voru sýnd hér ’76 og ’77 í Nemendaleikhúsinu. Nú er ég að vinna að leikriti sem sýnt verður í Nemendaleikhúsinu í vor, en krakkarnir báðu mig að skrifa leikrit fyrir sig. Ég er einn- ig að vinna að fleiri leikritum." — Ertu annars að vinna við eitthvað fleira núna? „Ég er aðstoðarleikstjóri hjá Kristínu Jóhannesdóttur í kvik- myndinni „Á hjara veraldar" og það er verið að vinna við hana núna, en myndin verður að öllum líkindum frumsýnd í mars á næsta ári.“ — Má búast við annarri ljóða- bók frá j)ér á næstunni? „Ég gef ekkert upp um það enn á þessu stigi málsins, hér í bókinni er hinsvegar ljóðabálkur sem heit- ir „Hótel Vonarinnar“, það er kannski byrjunin á einhverju öðru. í bili er ég að minnsta kosti að fara í þá átt. Ljóðlistin er stöð- ugt viðfangsefni, bæði í vöku og svefni enda að einhverju leyti sprottin úr dulrænni reynslu, og þar á ég ekki við það að sjá sýnir eða vera skyggn, heldur er þetta einhvers konar „mystísk" upplif- un, þó á engan hátt annarlegt ástand, heldur þvert á móti eitt- hvað sem virkar mjög augljóst. Annars er erfitt að útskýra þetta, en ætli maður geti bara ekki sagt að ljóðlistin sé leit að kjarna málsins?" — VJ. Prófkjör Sjálfstæðis- manna í Reykjavík 28. og 29. nóvember 1982 Stuðningsmenn mínir hafa vinnu- aðstöðu að Brekku- gerði 28, vegna und- irbúnings fyrir væntanlegt prófkjör. Opið daglega frá kl. 14.00 til 22.30. Sími38770 Esther Guðmundsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.