Morgunblaðið - 20.11.1982, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 20.11.1982, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1982 15 lagi, sem er njörvað niður á ótelj- andi máta. Netaskemmdir þorsks og þorskfiska og afleiðingar þeirra í fullunnum afurðum nema geysi- háum upphæðum, og unnt er að sýna fram á, að bætt stjórnun á fiskveiðum gæti komið i veg fyrir skemmdir af þessu tagi. En ein- stakar útgerðir telja sig verða að hafa mörg net í sjó og fara óvar- lega með þau til þess að geta gert út yfirleitt. Sjómenn telja á sig ráðist, ef rætt er um netaskemmd- ir (dauðblóðgaður fiskur) svo og aðrar hráefnisskemmdir, sem ger- ast til sjós. Og ferskfiskmat er með öllu óvirkt tæki til að stuðla að bættum hráefnisgæðum! Leiðir 7 og & ná yfir fjöldann allan af girnilegum nýjungum, sem áreiðanlega verða fram- leiðsluvörur i framtíðinni sumar hverjar. Til þess að svo megi verða, þarf bæði tækni- og mark- aðsþekking að vaxa, en svo mikið hangir hér á spýtunni, hvað verð- mæti snertir, að ágiskunum verð- ur sleppt. Menn deila um það, hvort t.d. framleiðsla kolmunna- skreiðar eða fiskhleifa (fiskbúð- inga) getur orðið arðbær. Augljóst er, að æðandi verð- bólga, rangskráning gengis, skort- ur á áhættufjármagni og „iðnað- arumhverfi" svo og nálægð við öfl- uga veiðimennsku, eru ekki þær aðstæður, sem nauðsynlegar eru fyrir nýjungar af umræddu tagi, en hráefnis- og markaðsforsendur eru fyrir hendi. Svarið við því, hvort um sé að ræða arðbæra valkosti, leynist fyrst og fremst í íslensku efnahagslífi almennt en ekki í því, hvort unnt væri að gera hlutina við eðlilegar aðstæður. Vandinn er aðallega stjórnmálalegs eðlis A fyrrnefndum fundi með hags- munaaðilum í sjávarútvegi svo og við ýmis önnur tækifæri hefur komið nokkuð skýrt í ljós, að hagsmunaaðilum finnst tækni- menn taka of mikið upp í sig, ef þeir setja fram einhverjar tölur um framleiðsluverðmæti, því þeir telja, að engin vissa sé fyrir því, að um arðbærar nýjungar sé að ræða. Ymsum tæknimönnum, sem þekkja ekki til hins margslungna hagsmunanets í sjávarútvegi, finnst kollegar sínir á því sviði ekki gera nægilega grein fyrir nýj- . um og arðsömum framleiðslu- möguleikum, en eins og fyrr segir, er það ekki unnt, nema menn gefi sér pólitískar forsendur. Ef tækni- menn fara að ræða um pólitík, tapa þeir tiltrú. Þannig eru málin í einskonar pólitískri sjálfheldu. Það er lítill vafi á því, að sjávar- útvegur er mun stærri gullkista en margur hefur talið. Til þess að nýta megi betur möguleika hans, verður að skapa honum möguleika til að fjármagna nýjungar og til- raunastarfsemi og stöðva þá blóðmjólkun hefðbundinna vinnslugreina, sem veldur því, að þær rétt hanga á horriminni og verða fyrir miklum áföllum í gæðamálum. Auk þess þarf að setja upp sérstaka áætlun um það, að unnt verði fyrir útgerðaraðila og sjómenn að skila betra hráefni að landi án þess að endurbætur kosti þá mun minni tekjur eða setji þá beinlínis á hausinn. Sýnikennsla frá kl. 14-18 í dag: Búið sjálf tU aðventu- skreytingarnar Aðventan er framundan. Margir halda þeim góða sið að skreyta heimili sín af því tilefni. Skemmtilegast er fyrir fólk að gera skreytingarnar sjálft. SkreytingaverkstæÓi Komið á skreytingaverkstæði Blómavals nú um helgina. Sjáið færustu blómaskreytingamenn gera fagraraðventuskreytingar, - kynnist handbragði þeirra og lærið af þeim. Eigum fyrirliggjandi altt efni til aðventu- og jólaskreytinga. Opið alla daga til klukkan 21. Frost og fönn eru engin fyrirstaða þegar ATLAS er annarsvegar. ATLAS snjóhjólbarðar: Minni bensíneyðsla, meiri ending og síðast en ekki síst, aukið öryggi fyrir þig, þína og þá sem á vegi ykkar verða. Á ATLAS eru þér allir vegir færir. Hjólbarðaviðgerð Jóns ólafssonar við Ægissíðu sér um að selja og setja undir ATLAS snjódekk fyrir íbúa mið- og vestur- bæjar. SAMBANDIÐ S? VÉLADEILD HJÓLBARÐASALA Hofðabakka 9 /-83490-38900 GÆÐAEFTIRLIT MEÐ GÆÐAVÖRUM

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.