Morgunblaðið - 20.11.1982, Side 17

Morgunblaðið - 20.11.1982, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1982 Krabbameinsfaraldur í „karlelskum“ körlum í Bandaríkjunum Upp er kominn í Bandaríkjunum krabbameinsfaraldur, sem rirð- ist eigajtetur að rekja til reiru, sem berst milli manna rið samfar- ir. Alitið er að reiran skaddi ónæmiskerfi þeirra sem sýkjast, þannig að þeir rerði auðreld bráð fyrir rissar tegundir krabba- meins, sem heilbrigt rarnarkerfí getur haldið í skefjum eða út- rýmt. Hæfni líkamans til ónæmisriðbragða rirðist þannig geta riðið úrslitum þegar um krabbamein er að ræða. Talið er að ríðtækar rannsóknir á þessari uppákomu geti skipt sköpum rarð- andi lausn krabbameinsgátunnar. Vorið 1981 barst sjúkdómseft- irlitsstöðinni í Atlanta í Banda- ríkjunum tilkynning um óvenju- lega lungnabólgu í ungum karlmanni. Maður þessi reyndist vera hommi, sem ekki hefði ver- ið í frásögur færandi ef ekki hefðu fyigt í kjölfarið fregnir af fleiri sérkennilegum sjúkdóms- tilfellum í karlmönnum, sem áttu það sameiginlegt að vera hommar af lauslátara taginu. Síðla árs 1981 fóru svo að birtast í læknatímaritum greinar og bréf um unga karlmenn með óvenjulegar sýkingar eða sjald- gæfa krabbameinstegund (Kap- osi’s Sarcoma), sem fram að því hafði nær eingöngu lagst á gam- almenni. Ekki vöktu þessar greinar neina teljandi athygli fyrst í stað. Tíðni sjúkdómsins virtist hins vegar fara vaxandi uns svo var komið í ársbyrjun 1982, að um það bil eitt nýtt tilfelli greindist tTÍ jafnaðar á degi hverjum í Bandaríkjunum. Upp úr því fór áhugi lækna og vís- indamanna á fyrirbærinu að vakna fyrir alvöru, sérstaklega þegar líkur fóru að benda til þess að um smitfaraldur gæti verið að ræða. Faraldur þessi virðist ennþá vera að færast í aukana þannig að nú greinast daglega um 3 ný tilfelli í Bandaríkjunum. Um 80 af hundraði sjúklinganna eru karlelskir, en sjúkdómsins hefur einnig orðið vart hjá gleðikonum og eiturlyfjaneytendum. Hins vegar hafa kvenelskar konur (lesbiur) ennþá ekki orðið mein- semdinni að bráð svo að vitað sé. Til þessa hefur veikinnar lítið orðið vart utan Bandaríkjanna, en þar er hún langmest áberandi í stórborgum, þar sem mikið framboð er á vændisþjónustu fyrir karlelska karla. Þannig veldur þessi sjúkdómur núorðið um það bil þremur af hundraði allra dauðsfalla sem eiga sér stað í New York, Los Angeles og San Fransisco meðal karlmanna á aldrinum 24—40 ára. Hefur þetta að vonum vakið óhug hjá þeim körlum, sem líta kynbræð- ur sína hýru auga. Sjúkdómseinkennin eru dálít- ið breytileg að því leyti að sumir sjúklinganna fá ólæknandi krabbamein í húð eða eitla, en aðrir fá einungis svæsnar „tæki- færissýkingar“ sem svo eru nefndar vegna þess að þær orsakast af örverum, sem geta yfirleitt ekki sýkt aðra en þá, er hafa bilað varnar- og ónæmis- kerfi. Hið eina, sem fundist hefur sameiginlegt með öllum sjúkl- ingunum, er víðtæk og alvarleg ónæmisbilun, og er talið að það sé þessi bilun, sem orsakar bæði sýkingar og krabbamein sjúkl- inganna. Hafa rannsóknir leitt í ljós, að ónæmisbilun af svipuðu tagi og sú sem finnst í sjúkling- unum, er einnig til staðar í mörgum heilbrigðum hommum, þannig að ónæmisbilunin virðist vera orsök en ekki afleiðing krabbameinsins og sýkinganna. Er nú fylgst af athygli með af- drifum þessara einkennalausu ónæmisbækluðu manna. í heild benda þessar niður- krabbamein sé þannig að vissu leyti afleiðing af bilun í ónæm- iskerfinu. Hingað til hefur reynst erfitt að sanna þessa kenningu, en þessi faraldur í Bandaríkjunum virðist vera nokkuð eindregin vísbending um að ónæmiskerfið geti varið líkamann gegn sumum tegundum krabbameins að minnsta kosti. í fyrsta lagi er hann vísbending um það, vegna þess að þetta krabbamein sem þarna kemur upp er miklu illvíg- ara, heldur en sams konar krabbamein í þeim sem ekki hafa þessa ónæmisbilun. í öðru lagi finnst ónæmisbilunin í þeim sem ekki eru búnir að fá krabba- mein og það sýnir að ónæmisbil- unin er ekki afleiðing af krabba- meininu. í þriðja lagi, ef það sýnir sig að þeir sem enn eru heilbrigðir, en hafa ónæmisbil- unina, fá krabbamein, er það nánast sönnun fyrir því, að ónæmiskerfið geti varið líkam- ann fyrir sumum tegundum krabbameins. Það er því mjög mikilvægt að fá niðurstöðu í þessu máli og þar að auki er á það að líta, að við núverandi meðferð á krabba- meini, skaddast þær frumur einnig sem sjá um varnir líkam- ans, þannig að krabbameinsmeð- ferð veldur ónæmisbilun og stór hluti krabbameinssjúklinga deyr af þessum sökum. Það er jafn- stöður til þess að. ónæmiskerfið geti haft úrslitaáhrif í sambandi við tilurð og vöxt sumra tegunda krabbameins, en um það atriði hafa skoðanir víindamanna ein- mitt verið skiptar til þessa. Orsök ónæmisbilunarinnar í hommunum er hins vegar ennþá óráðin, en ýmislegt bendir þó til að um veirusýkingu geti verið að ræða, og berast böndin helst að einhvers konar nýju afbrigði svokallaðra sambýlisveira, sem gjarna taka sér varanlega ból- festu í líkamanum eftir að smit- un hefur átt sér stað. í flestum heilbrigðum einstaklingum liggja þessar veirur í friðsömum dvala ævilangt, en sumar þeirra virðast geta vaknað upp og gert óskunda, þegar varnarmáttur ónæmiskerfisins minnkar. Margar vísindastofnanir hafa þegar hleypt af stokkunum um- fangsmiklum rannsóknum á orsökum og eðli þessa nýja sjúkdóms og snúa þar bökum saman krabbameins-, veiru-, faralds- og ónæmisfræðingar. Ganga sumir svo langt að spá því að þessi uppákoma muni er tímar líða geta af sér einn af merkari viðburðum í sögu læknavísindanna. Þannig birtu vísindatímaritin Nature og Sci- ence nýlega allítarlegar yfirlits- greinar um málið. í báðum þess- um blöðum, sem eru með þeim virtustu sinnar tegundar, kemur fram sú skoðun að niðurstöður rannsókna á þessu nýja fári séu líklegar til að varpa nýju ljósi á krabbameinsgátuna. vægiskúnst á hnífsegg að rata þarna milliveginn og því mjög mikilvægt að fylgjast nákvæm- iega með ástandi ónæmiskerfis- ins meðan á krabbameinsmeð- ferð stendur, til að koma í veg fyrir að hún verði of róttæk, þannig að sjúklingurinn deyi úr sýkingum. Jafnframt skapast möguleiki á að beita áhrifaríkari krabbameinsmeðferð, ef nógu náið er fylgst með ónæmiskerf- inu. Það er alls ekki fullsannað, að þessi faraldur sé af völdum veiru, en líkur benda til þess. Líkur benda einnig til, að þessi veira valdi líka ónæmisbilun- inni. Það er þekkt að veirur valda krabbameini í dýrum, en með einni undantekningu hefur ekki ennþá tekist að sanna að svo sé í mönnum. Ef þessi krabbameinsfaraldur reynist vera smitandi, er það í fyrsta skipti sem slíkt sannast í mönnum." — Hvernig er ástandið í ónæmisrannsóknum hér á landi? „Ónæmisfræði sem vísinda- grein byrjaði að þróast seint á 19. öld og hefur leitt til meiri- háttar framfara í læknisfræði í sambandi við bólusetningar og einnig gerði ónæmisfræðin blóðgjafir mögulegar. Þegar sýklalyfin uppgötvuðust varð afturkippur í greininni, því þá héldu menn að þau dygðu, en síð- ustu 25 árin hafa aftur orðið af- ar miklar framfarir á þessu sviði. Ónæmisfræðin býður nú þegar upp á mikla möguleika til bættrar heilbrigðisþjónustu og margir telja að nýjar aðferðir og uppgötvanir á þessu sviði muni valda þáttaskilum í sumum greinum læknisfræðinnar. Þró- unin hefur raunar verið það ör, að hún hefur komið okkur í opna skjöldu og starfsfólk heilbrigðis- þjónustunnar er þess vegna illa i stakk búið til að nýta sér þá möguleika sem þarna hafa skap- ast. Engin sérstök rannsóknastofa í ónæmisfræði hefur verið til hér á landi hingað til, en nú er verið að stofnsetja slíka stofu við Landspítalann og standa vonir til að fjárveiting fáist, þannig að hún geti tekið til starfa snemma á næsta ári. Hafa Gigtarfélag ís- lands, Samtök astma og ofnæm- issjúklinga, SÍBS og Reykjavík- urdeild Rauða krossins gefið mjög dýr og mikilvæg tæki til þessarar rannsóknarstofu," sagði Helgi að lokum. Gæti orðið til þess að sanna að ónæmiskerfið ver líkam- ann gegn krabbameini Rætt við Helga Valdimarsson prófessor i ónæmisfræði í tilefni af fréttinni hér að ofan var haft samband við Helga Valdi- marsson, prófessor í ónæmisfræði, og var hann fyrst spurður um ónæmis- fræðina og hvernig þessi faraldur gæti valdið þáttaskilum í krabba- meinsrannsóknum. „Önæmisfræði er sú fræði- grein, sem fæst við það að reyna að skilja hvernig líkaminn fer að þvi að verjast sýklum og öðru slíku sem líkamanum er fram- andi og inn í hann sækir. Varn- arkerfi líkamans byggist á margvíslegum tegundum hvítra blóðkorna og afurðum þeirra. Ein tegund hvítra blóðkorna, svonefndar eitilfrumur, hefur beinlínis það hlutverk að greina þau efnamynstur sem eru líkam- anum framandi. Þær gera það með nemum sem sitja í úthýði frumunnar og virðast þessir nemar geta greint öll þau efna- sambönd, sem eru líkamanum óeiginleg. Hins vegar höfum við engin hvít blóðkorn, sem greina þau efnasambönd sem eru lík- amanum eiginleg og á því bygg- ist greiningin. Þessar grein- ingarfrumur hringsóla um vefi líkamans, þangað til þær verða varar við eitthvað framandi. Þegar það verður, er tvennt sem gerist. Eitilfruman framleiðir efni, sem við nefnum einu nafni boðefni og þar með talin mót- efni, og þeirra meginhlutverk er að örva starfsemi annarra teg- unda hvítra blóðkorna, svo- nefndra átfruma, sem gleypa, drepa og melta viðkomandi sýkla og aðskotahluti. Hin afleiðing þess, að eitilfruma verður vör við aðskotaefni er að þær fjölga sér, og eftir það eru því fleiri frumur næmar fyrir viðkomandi aðskotaefni og þegar það því berst aftur inn í líkamann, verða viðbrögð hans að sama skapi skjótari og öflugri. Ónæmiskerf- :ð hefur á þennan hátt minni og hæfni til greiningar og svipar þannig yfirborðslega til tauga- kerfisins. Það gjald sem við þurfum að greiða fyrir að hafa þetta kerfi, er að það getur bilað og algeng- asta bilunin eru sjúkdómar, sem við köllum einu nafni ofnæmi, en þekktastir þeirra eru astmi og exem. Ofnæmissjúkdómar eru mjög algengir og má reikna með að 20—30% einstaklinga þjáist einhvern tíma á ævinni af ein- hvers konar ofnæmi. Þá má til gamans geta þess að sá þáttur ónæmiskerfisins sem veldur algengustu ofnæmissjúk- dómunum, þróaðist líklega fyrst og fremst til þess að verja líkam- ann ormum og stærri sníkjudýr- um, en þessi þáttur er orðinn svo til óþarfur í nútímasamfélögum á norðurhveli jarðar. Islend- ingar hafa til dæmis varla haft gagn af þessum þætti varnar- kerfisins, frá því sullaveikinni var útrýmt hér á landi. Hin meginbilunin í ónæmis- kerfinu eru svokallaðir sjálfsof- næmissjúkdómar. í því tilfelli er bilunin sú, að greiningarfrum- urnar hafa ruglast og hvítu blóð- kornin ráðast þar af leiðandi á vefi og líffæri eigin líkama. Al- gengasti sjúkdómurinn af þessu tagi er liðagikt. Annars eru þess- ir sjúkdómar margvíslegir og geta leitt til þess að hvaða líf- færi líkamans sem er skemmist og stundum fleira en eitt í sama sjúklingi. Margt bendir til þess að þegar fruma verður illkynja og mynd- ar það sem við köllum krabba- mein, að þá verði mynsturbreyt- ingar á úthýði þeirra og efna- mynstur þeirra verði þannig framandi greiningarfrumum ónæmiskerfisins. Ef svo er, ættu þær að taka eftir þessum breyt- ingum og þar með halda hinum illkynja frumum í skefjum og eyða þeim. Þetta gerist greini- lega ekki, þegar sjúklingar fá krabbamein, en sú kenning hefur lengi verið uppi, að illkynja frumur myndist í mun fleiri ein- staklingum, heldur en þeim sem veikjast af krabbameini og að 17 Togaramaður- inn Guðmundur Halldór - ný bók eftir Jónas Guðmundsson KOMIN er út ný bók eftir Jónas Guðmundsson, rithöfund og list- málara, „Togaramaðurinn Guð- mundur Halldór". A kápusíðu seg- ir m.a.: „Jónas Guðmundsson skrifar í þessari bók um Guðmund Halldór, sem stundaði sjó í um það bil 65 ár og lét af vinnu níræð- ur. Guðmundur Halldór hóf sjó- róðra á opnu skipi og lá við í fjár- húsum vestur í Arnarfirði, barn að aldri. Fór síðan á skútur, en sneri sér fljótlega að togara- sjómennsku og var togarasjómað- ur frá árinu 1918—1967. Jónas Guðmundsson skrfar ekki einasta um togarasögu Guðmundar Hall- dórs. I baksýn er borgin, verka- mannabústaðirnir gömlu eða Verkó, kjör alþýðumanna og dag- legt líf. Viðmælendur Jónasar eru Guðmundur Halldór og sonur hans, Guðmundur J. Guðmunds- son, verkamaður. Um þessa sögu leika aðsteðjandi veður og myndir, er sprottnar eru úr lífinu sjálfu." „Jónas Guðmundsson hefur áð- ur gefið út fjölmargar bækur, smásögur, ljóð og leikrit o.fl. Það er Bókaútgáfan Hildur sem gefur þessa bók út, bókin er myndskreytt af höfundi og kápu- mynd er eftir hann. Setning, filmuvinna og prentun var unnin hjá Guðjóni O. og Félagsbókband annaðist bókband. Bókin er 173 bls. Námskeið um viðhald og endurbætur gamalla húsa Byggingaþjónustan í Reykjavík og Fræðslumiðstöó iðnaðarins gangast fyrir námsstefnum um viðhald og endurbætur gamalla húsa og er þá fyrst og fremst átt við timburhús og járnvarin timburhús. Meðal fyrirles- ara eru Leifur Blumenstein bygg- ingafræðingur, Hjörleifur Sigurðs- son arkitekt, Þór Magnússon þjóð- minjavörður, Hörður Ágústsson listmálari, Guðmundur Pálmi Krist- insson verkfræðingur og Helgi V. Guðmundsson deildarstjóri. Námsstefnur þessar verða haldnar á Akureyri 26. og 27. nóv- ember og í Reykjavík 3. og 4. des- ember. Á Akureyri verða meðal fyrirlesara, auk fyrrgreindra, þeir Gísli Jónsson, Helgi Bergs og Sverrir Hermannsson. Ingvar Gíslason menntamálaráðherra flyfur ávarp í námsstefnulok. Tilkynningar um þátttöku þurfa að berast Byggingaþjónustunni í Reykjavík eða á Akureyri. Lág- marksþátttaka á hvort námskeið er 30 manns.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.