Morgunblaðið - 20.11.1982, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 20.11.1982, Qupperneq 18
Ig MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1982 Eining, styrkur, ábyrgð eftir Birgi Isl. Gunnarsson Það fer ekkí á milli mála að all- ur almenningur er farinn að finna fyrir öryggisleysi. Æ meir sígur á ógæfuhliðina í efnahagsmálum landsins og upplausn blasir við á fleiri sviðum. Upplausn í ríkisstjórn Á vettvangi ríkisstjórnarinnar er upplausn. Æ fleirum verður það ljóst að ríkisstjórnin hefur ekki það innra þrek og þann siðferði- lega styrkleika að hún geti af al- vöru tekist á við vandamáiin. Sú staðreynd er óháð því, hvort stjórnin hafi þingstyrk eða ekki til að koma málum fram. Það eru til- lögur hennar og hugmyndir, sem eru máttlausar. Stjórnin hefur aldrei náð því að nýta þann byr, sem hún hafði til að takast af al- vöru á við vandamálin. Úr því það tókst ekki í upphafi eru að sjálf- sögðu engar líkur á því að það tak- ist héðan af. Það er einnig öllum ljóst að stærstu aðilar ríkisstjórnarinnar, Alþýðubandaiag og Framsóknar- flokkur vilja út úr stjórninni og munu nota fyrsta tækifærið til að yfirgefa hið sökkvandi fley. Brigslyrðin eru farin að ganga. Framsókn kennir Alþýðubanda- laginu um, hvernig komið er og segir að bandalagið hafi aldrei fengist til nokkurra ruanhæfra efnahagsaðgerða, nema þá til bráðabirgða. Alþýðubandalagið varpar hins vegar sökinni á Fram- sókn, sá flokkur sé svo upptekinn að gæta hagsmuna SÍS, að hann sjái aldrei út yfir það fyrirtæki og snúist í hringi í kringum þann gullkálf. Það blasir algjör upp- lausn við á stjórnarheimilinu. Alþingi í rauninni er sama ástand á Al- þingi. Fyrirferðarmestir þar þessa dagana eru hlaupastrákar, sem þindarlaust tala um lítilsigld mál. Loft er lævi blandið og Ijóst að þar skortir alla forystu, sem aðilar sterkrar og afkastamikillar ríkis- stjórnar eiga að sýna. Engin al- vörumál hafi enn verið tekin fyrir að frumkvæði ríkisstjórnarinnar, þótt nú séu nær sex vikur liðnar af þingi. Upplausnarástandið hefur náð til Alþingis. Stjórnmálaflokkarnir Sama er hægt að segja um stjórnmálaflokkana. Framsóknar- „Sjálfstæðisflokkurinn hefur einnig átt við sína erfiðleika að etja. Með þrautseigju og þolin- mæði hefur flokkurinn verið að vinna sig út úr þeim vanda og enginn vafi er á því að hann hefur herst í þeim sund- urlyndiseldi, sem um hann hefur leikið í tíð þessarar ríkisstjórnar.“ flokkurinn hélt þing sitt um síð- ustu helgi og skiptust menn þar mjög í fylkingar og var þar mjög ófriðlegt um að litast. Stjórnar- þátttakan er farin að reyna mjög á innviði flokksins og fyrrverandi formaður hans og núverandi utan- ríkisráðherra er kominn í einskon- ar stjórnarandstöðu. Alþýðu- bandalagið á ennfremur við mikla innri erfiðleika að etja. Æ meir flæðir undan ráðherrum flokksins og formaður þingflokksins er kominn í opinbera stjórnarand- stöðu, eins og glöggt kom fram í Þjóðviljanum um síðustu helgi. Alþýðuflokkurinn er eins og stjórnlaust rekald og Vilmundur stokkinn fyrir borð. Sjálfstæðisflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn hefur einnig átt við sína erfiðleika að etja. Með þrautseigju og þolin- mæði hefur flokkurinn verið að vinna sig út úr þeim vanda og eng- inn vafi er á því að hann hefur herst í þeim sundurlyndiseldi, sem um hann hefur leikið í tíð þessar- ar ríkisstjórnar. Innan flokksins er sú skoðun að verða æ meir áberandi að menn verði að leggja allar væringar til hliðar og víst er að innan flokksins er stór hópur yngri manna, sem vilja láta minni hagsmuni víkja fyrir meiri og eru tilbúnir að taka höndum saman í samvirku starfi. Eining, styrkur og ábyrgð eru kjörorð, sem æ fleiri flokksmenn taka sér í munn. Sterkt stjórnmálaafl Upplausn í ríkisstjórn, á Al- þingi, í stjórnmálaflokkunum og á mörgum sviðum þjóðlífsins er hættuleg. Upplausnarástand hef- ur tilhneigingu til að magnast stig af stigi og verða óviðráðanlegt. I slíku ástandi er nauðsynlegt að hægt sé að kalla til sterkt, lýðræð- islegt afl, sem hægt sé að halla sér að. Sterkur og sameinaður Sjálf- stæðisflokkur er svarið við því, hvernig komast eigi út úr upp- lausnarástandinu. Flokkurinn þarf umboð kjósenda sem fyrst, svo að hægt sé að fara að vinna af alvöru. Veljum leiðir frelsisins eftir Jón Magnússon, fgrrv. formann SUS Á næstu mánuðum kunna að verða teknar ákvarðanir sem skipta sköpum um framtíð SjálfstæðisflokksirtS. Flokkurinn stendur um margt vel að vígi. Meiri samstaða er nú innan flokksins en oft áður. Ný kynslóð er að taka við ábyrgð og hefur sýnt það m.a. í borgarstjórn Reykjavíkur að hún er trausts verð. Sjálfstæðisflokkurinn einn flokka hefur bent á aðrar leiðir sem farnar hafa verið til að koma í veg fyrir verðbólgu, hefja á ný markvissa uppbyggingu íslensks atvinnulífs til að koma í veg fyrir að framfarasókn þjóðarinnar stöðvist. Sjálfstæðisflokkurinn var á sín- um tíma stofnaður sem breiður, víðsýnn borgaralegur flokkur. Einstaklingshyggjan og einka- eignarrétturinn var og er einkenni stefnu flokksins. Þau rúm fimmtíu ár, sem flokkurinn hefur starfað, hefur hann rúmað innan sinna vébanda að ýmsu leyti nokkuð ólíka hópa borgaralega sinnaðs fólks. Þetta hefur gert Sjálfstæð- isflokkinn að þeim fjöldaflokki, sem hann er í dag og hefur verið. Það skiptir því miklu fyrir Sjálf- stæðisflokkinn, ef hann vill halda stöðu sinni sem breiður fjölda- flokkur, að taka ríkt tillit til þeirra ólíku sjónarmiða sem uppi eru í flokknum hverju sinni, reyna eftir megni að samræma þau og móta þannig sameiginlega stefnu sem sjálfstæðisfólk ekki einungis sættir sig við, en er einnig reiðu- búið að berjast fyrir. Hvaða vanda þarf að leysa? Viðfangsefnin og vandamálin í dag eru þau að hver verðbólgu- holskeflan á fætur annarri ríður yfir. Framsækin atvinnustefna er ekki mörkuð. Ágreiningur milli byggðarlaga og atvinnustétta magnast. Ohjákvæmilegt er nú að víkja þegar frá þeirri stefnu skammtímalausna sem fylgt hefur verið, en verði það ekki gert, leiðir slíkt til lakari lífskjara, atvinnu- leysis og fólksflótta. Við þurfum að auka frelsi einstaklinganna og leysa þá úr viðjum síaukinnar skattheimtu, móta atvinnustefnu sem miðast við arðsemi og fram- tíðaruppbyggingu í stað atvinnu- bótasjónarmiða skuttogaraára- tugarins. Umfram allt verða Jón Magnússon „Samhjálpin er nauðsynleg, hún er sú innri trygging í þjóðfélaginu sem veitir fólki öryggiskennd. Öryggis- kennd, sem við viljum ekki vera án. Markmið okkar er að hjálpa þeim sem þess þurfa til sjálfshjálpar þar sem það er mögulegt, en forðast að gera alla að styrk- þegum ríkisins með einum eöa öðrum hætti.“ sjálfstæðismenn að benda á og berjast fyrir Ieiðum frelsisins, svo að einstaklingurinn geti starfað án áreitni, boða og banna ríkis- valdsins. Þetta verður að gera stöðugt, og stefna frá ríkisafskipt- um til frjálsræðis. Það er ekki nóg að rísa eingöngu upp þegar enn nýjar tillögur eru lagðar fram til skerðingar frelsinu. Mannúð og manngildi Sjálfstæðisstefnan er grunduð á því, að einstaklingarnir séu mis- munandi. Þess vegna gerum við kröfu til þess að mótað sé fjöl- breytt þjóðfélag, sem tekur tillit til mismunandi hæfileika, langana og þarfa fólksins. Það er andstætt okkar lífsskoðun að alla skuli steypa í sama mót. í samræmi við þessi sjónarmið verður að taka til- lit til þeirra sem þurfa á hjálp samfélagsins að halda. Frjálslynd félagsmálastefna Sjálfstæðis- flokksins er því eðlileg og miðar að því að tryggja borgurunum ör- yggi ef eitthvað bjátar á. Þó okkur kunni nú að finnast þær lausnir, sem valdar hafa ver- ið, ekki þær bestu, þá megum við ekki falla í þá gryfju að fordæma alla félagslega samhjálp. Sam- hjálpin er nauðsynleg, hún er sú innri trygging í þjóðfélaginu sem veitir fólki öryggiskennd. örygg- iskennd, sem við viljum ekki vera án. Markmið okkar er að hjálpa þeim sem þess þurfa til sjálfs- hjálpar þar sem það er mögulegt, en forðast að gera alla að styrk- þegum ríkisins með einum eða öðrum hætti. Sú íslenska stefna mannúðar, manngildis og trúar á getu fólks- ins og rétt þess, er og á að vera stefna Sjálfstæðisflokksins, enda samofin sögu þjóðarinnar frá upp- hafi. Það má ekki þrengja hana, það verður að leyfa mismunandi sjónarmiðum að rúmast í Sjálf- stæðisflokknum. Það er styrkur hans. Flokkur lýðræðisins Sjálfstæðisflokkurinn hefur markað sér stöðu í íslensku þjóð- félagi sem opinn, valddreifður lýð- ræðisflokkur. í þeim anda verður hann að starfa og varast miðstýr- ingu og flokksræði sem er í raun andstætt þeim viðhorfum sem sjálfstæðisstefnan byggir á. Framundan eru tímar sem munu reyna á þrek og þol þjóðarinnar til að takast á við vanda velferðarrík- isins. Þau vandamál eru til að sigrast á og það er hægt ef vilji er fyrir því að beita nútímalegum vinnubrögðum og ferskum hug- myndum til að leysa þau. Við slík- ar aðstæður mega sjálfstæðis- menn ekki gleyma kjarna þeirra lýðræðishugmynda sem tengja okkur saman í einum flokki. Verði Sjálfstæðisflokkurinn trúr þeirri stefnu sem saga hans og starf hefur mótað, á hann möguleika á meira kjörfylgi en nokkru sinni fyrr. Sjálfstæðis- stefnan er ekki byggð á kennisetn- ingum eða spámönnum framtíð- arlandsins. Hann er íslenskur flokkur, sprottinn úr íslenskum jarðvegi og á að velja þær leiðir sem hæfa íslensku þjóðinni. Báknið burt eftir Hauk Þór Hauksson í fyrstu stefnuskrá Sjálfstæðis- flokksins fyrir 50 árum segir með- al annars: „Að beita sér fyrir þjóð- legri og víðsýnni umbótastefnu á grundvelli einstaklings- og at- vinnufrelsis, með hagsmuni allra stétta fyrir augum." Fyrir fáum árum sameinuðust ungir sjálfstæðismenn undir kjör- orðinu „Báknið burt“. Þetta gerð- ist í kjölfar stórkostlegrar út- þenslu ríkisvaldsins og oftrú manna á endalausum afskiptum hins opinbera af flestum þáttum þjóðlífsins. Sjaldan hefur slagorðið „Báknið burt“ átt betur við en í dag. Bein og óbein afskipti opinberra stofn- ana af rekstri fyrirtækja hafa aldrei verið meiri. Forsjá ríkisins í nýiðnaði hefur aldrei verið meiri. Atvinnu- og einstaklingsfrelsi er ógnað. Sjálfstæðisfiokkurinn hefur jafnan verið málsvari at- vinnufrelsis og undir merki hans hafa þeir fylkt sér, sem betur hafa treyst einstaklingum og samtök- um þeirra en forsjá ríkisins. Komandi ár mun skipta sköpum um hvernig til tekst að byggja upp nýiðnað hér á landi. Ef stefnan verður sú, að góðverkastefna opinberra aðila á kostnað skatt- borgarans verður látin ráða og í engu skeytt að arðsemi, mun illa fara. Látum menn gera góðverk á eig- in kostnað. Sköpum aðstæður til að athafnasamt æskufólk sjái sér hag í að taka beinan þátt í at- vinnulífinu. En hugmyndir ungra sjálfstæð- ismanna vekja von. Von um að umsvif ríkisins í at- vinnurekstri verði takmörkuð. Ríkisfyrirtæki á borð við Ríkis- skip og Ríkisprentsmiðju Guten- bergs verði seld eða lögð niður. Von um að óbeinum afskiptum ríkisvaldsins verði hætt. Verð- lagshöft afnumin. Framleiðendur og seljendur verðleggi sjálfir vöru Haukur Þór Ilauksson sína og þjónustu. Sterk neytenda- samtök eru mun líklegri til árang- urs en Verðlagsstofnun. Von um að öll fyrirtæki í hvaða formi, sem þau eru tekin, búi við sömu skattareglur. Von um að fjáraustri í óarðbær- ar framkvæmdir verði hætt. Þessum hugleiðingum tel ég rétt að ljúka með tilvitnun í Adam Smith. „Sá . stjórnmálamaður, sem reynir að stjórna því hvernig ein- staklingarnir nota sjálfsaflafé sitt, er ekki einungis að vinna óþarfaverk, hann er einnig að taka sér völd, sem engum manni, engu ráði, og engri nefnd er treystandi til að nota, og verður hvergi eins hættulegt og hjá þeim manni, sem er svo vitgrannur og metnaðar- gjarn, að hann telur sig hæfan til að beita því.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.