Morgunblaðið - 20.11.1982, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1982
19
Af hverju Pétur?
eftir Gísla Jóhannes-
son skipstjóra
Þegar þetta birtist verð ég kom-
inn út á sjó, og mun því miður
verða fjarverandi þá daga sem
prófkjör Sjálfstæðisflokksins
stendur yfir. Þannig verður einnig
ástatt um fjölda félaga minna.
Ég vil því með greinatstúf þess-
um leitast við að hafa áhrif á þá,
sem tækifæri hafa til að taka þátt
í þessu prófkjöri og skora á þá að
tryggja Pétri Sigurðssyni alþing-
ismanni öruggt sæti á framboðs-
lista flokksins.
Kynni mín af Pétri eru orðin
löng og það er á grundvelli þeirra
kynna, sem ég læt þessa áskorun
koma fram.
Pétur stundaði sjó í um tvo ára-
tugi og kynntist þá fiskveiðum og
siglingum af eigin raun og lauk
prófi bæði frá fiskimanna- og far-
mannadeild Stýrimannaskólans í
Reykjavík.
Siglingar hans á hafnir landsins
og síðan ferðir hans árum saman á
vegum Sjálfstæðisflokksins um
allt land hafa gert hann hæfari en
flesta aðra þingmenn til að skilja
þarfir frumatvinnuvega okkar og
þess fólks, sem að þeim vinnur við
afla, vinnslu, flutning og sölu.
Félagar okkar í sjómannastétt
og aðrir launþegar hafa líka treyst
honum og valið hann til forystu í
félögum sínum og hagsmunasam-
tökum, bæði í stærsta sjómanna-
félagi landsins, í miðstjórn Al-
þýðusambandsins o.fl., o.fl.
í hugum okkar sjómanna er
hann þó sá þingmaður, sem ætíð
hefur haft að helsta baráttumáli
sínu öryggi og slysavarnir sjó-
manna, sem annarra. Verður til-
kynningaskyldan eitt þeirra mála
sem Pétri verður seint fullþakkað.
Formennska og forysta hans í
Sjómannadagsráði um tuttugu ára
skeið og afrek þeirra félaga sem
þar eiga sæti hafa fyrir löngu vak-
ið þjóðarathygli. Ekki aðeins
byggingar yfir hundruð gamal-
menna, heldur einnig rekstur
Hrafnistuheimilanna og annarra
fyrirtækja þessara samtaka, sem
enn hafa staðið af sér þau áföll
sem öðrum atvinnurekstri er bú-
inn hin síðari ár. A vegum þessara
samtaka munu nú vinna á sjötta
hundrað manns.
Þáttur Péturs Sigurðssonar í
fjölda félaga og framlag hans til
góðra mála er flestum Reykjvík-
ingum kunnur, þótt málefni aldr-
aðra og stofnun SÁÁ muni bera
þar hæst. Fyrir okkur sjómenn,
sem erum einnig að basla í eigin
útgerð er þýðingarmikið að eiga á
Alþingi menn sem skilja hvað um
er að ræða, þegar atvinnurekstur,
vandamál hans og þarfír er um að
ræða.
Þegar viðkomandi þingmaður á
einnig til að bera í ríkum mæli
næman skilning og samúð með
kjörum og aðbúnaði þeirra, sem
minna mega sín í þjóðfélagi okkar,
og hefur þor og þrek til að berjast
Pétur Sigurðsson.
fyrir málstað þeirra er sætið vel
skipað.
Þessum kostum er Pétur Sig-
urðsson alþingismaður búinn, því
endurtek ég áskorun mína til fé-
laga og stuðningsmanna Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík, að
stuðla að kosningu hans í próf-
kjörinu 28. og 29. þessa mánaðar, í
öruggt sæti á framboðslista
flokksins í næstu alþingiskosning-
um.
Þrjú kvöld-
námskeiÖ i
Grindavík
NÁMSFLOKKAR Grindavíkur
tóku, að þessu sinni, til starfa um
síðustu mánaðamót. Þrjú nám-
skeið verða fyrir áramót í eftir-
töldum efnum:
Námsflokkar Grindavíkur,
Rauðakrossdeild Grindavíkur og
slökkviliðsstjórinn í Grindavík,
hafa samvinnu um að halda
námskeið í Skyndihjálp og bruna-
vörnum. Námskeiðið hófst mið-
vikudaginn 17. nóvember og er
haldið í Grunnskóla Grindavík-
ur á miðvikudagskvöldum kl.
20.00.
Námskeið í jólaföndri er fyrir
nokkru hafið hjá Námsflokkun-
um og námskeið í fatasaumi
hefst 16. nóv. öll námskeiðin eru
haldin í húsnæði Grunnskóla
Grindavíkur. Nemendur geta
enn skráð sig á þessi námskeið
og verða þau á kvöldin.
„Gilitrutt", með
myndum Brians
Pilkingtons
IÐUNN hefur gefið út þjóðsöguna
um Gilitrutt með litmyndum eftir
Brian Pilkington. Bókin er með
sama sniði og Ástarsaga úr fjöllun-
um eftir Guðrúnu Helgadóttur sem
út kom í fyrra og hefur nú verið
gefin út í ýmsum löndum, en Bri-
an gerði einnig myndir í þá bók.
Er hún nú komin á Norðurlanda-
málunum öllum nema finnsku og
síðast á færeysku. Gilitrutt er hér
prentuð eftir texta þjóðsagna Jóns
Árnasonar. Prentmyndastofan hf.
litgreindi myndirnar, en Oddi
prentaði bókina.
Stærðfræði-
handbókin í
nýrri útgáfu
Á NÆSTUNNI mun Staðalútgáfan
senda frá sér Stærðfræðihandbókina
í nýrri útgáfu. Stærðfræðihandbókin,
sem fyrst kom út árið 1970 í tæplega
þrjú þúsund eintökum, seldist upp á
rúmum þremur árum og hefur verið
ófáanleg síöan.
í þessari nýju útgáfu er Stærð-
fræðihandbókin bæði aukin og
endurbætt. Aukið hefur verið stór-
lega við svokallaðar tegrunarjöfn-
ur, margföldunartaflan fimmtán-
földuð, bætt við kaflann Eldhús-
reikningur og nýjar stærðfræði-
þrautir settar í stað hinna fyrri.
Mikilvægasta nýjungin í þessari
annarri útgáfu Stærðfræðihand-
bókarinnar er trúlega nýr kafli
sem nefnist Notkun vasatölvu.
Þetta er um þrjátíu blaðsíðna kafli,
saminn af höfundi Stærðfræði-
handbókarinnar dr. Árna Hólm, og
kennir á kerfisbundinn hátt notkun
vasatölvu.
Bókin er í nýju útgáfunni 320
blaðsíður og er offsetfjölrituð hjá
Letri sf.
Gömul götumynd frá Hafnarstræti.
. ÍQAGLOPNUMVB
NWA BOKADEILD
Allir þekkja gömlu, góöu ritfangaverslun Pennans I Hafnarstræti.
Enda engin furóa, því Penninn hefur verslaó í götunni í 50 ár.
Á afmælisárinu færum vió enn út kvíarnar. Vió höfum opnaó nýja
bókadeild sem hefur bæói íslenskar og erlendar bækur á boóstólum
og fjölbreytt úrval tímarita.
Líttu inn til okkar I Hafnarstræti. Nú færóu ritföngin, gjafavörur og
allar bækur I sömu gamalgrónu versluninni í hjarta borgarinnar.
Hafnarstræti18,simi 10130. FULLKOMIN SÉRVERSLUN
1932-1982