Morgunblaðið - 20.11.1982, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1982
Ritskoðun í Nicaragua:
19 alda gömul beinagrind
Þessi beinagrind fannst nýlega með sverð sér við hlið í Herculaneum, sjávarþorpi við Miðjarðarhaf, sem grófst
í ösku og hrauni í Vesúvíusargosi fyrir nítján hundruð árum. Við uppgröft á staðnum komu í Ijós 80 beinagrindur
sem höfðu varðveitzt mjög vel.
Klipptu út 80% efnisins
og blaðið komst ekki út
Managua, 18. nóvember. AP.
BLAÐIÐ La Prensa sem er í
stjórnarandstöðu í Nicaragua
kom ekki út í dag. Að sögn
forráðamanna blaðsins er
ástæðan sú að ritskoðarar
stjórnarinnar voru svo lengi
að ákveða hvað mætti birtast
og hvað ekki að þegar því
umstangi lauk var komið
langt yfir þann tíma sem
þurfti til að vinna blaðið svo
það kæmist til kaupenda á
eðlilegum tíma. Segja
forráðamenn La Prensa að
starfsmenn upplýsingadeild-
ar innanríkisráðuneytisins
hafi verið búnir að klippa út
80% af upphaflegu lesmáli
áður en upp var staðið.
Af hinu útskúfaöa efni má
nefna grein, grundvallaða á viðtali
við Cordova, einn þriggja manna í
herforingjaklíkunni sem ræður
lögum og lofum í landinu. Eftir
Bann við inn-
flutningi á
kópaskinnum
til EBE-landa
Sirasbourg, 18. nóvemln'r. AP.
EVRÓPIJÞINGIÐ staðfesti í
dag reglugerð framkvæmda-
nefndar Efnahagsbandalagsins
sem kveður á um bann við inn-
flutningi á kópaskinnum í aðild-
arlöndin.
Um leið og þingið staðfesti
reglugerðina beindi það því til
ráðherranefndar Efnahagsband-
alagsins að reglugerðin gengi í
gildi svo skjótt sem auðið yrði og
eigi síðar en 1. marz nk.
Reynt verði
að skera nið-
ur fjárhags-
áætlun SÞ
honum var höfð gagnrýni á rit-
skoðun og það álit á ritskoðurum
að þeir væru ímynd meðal-
mennsku. Þá töldu ritskoðarar
ekki við hæfi að birta grein um
Brezhnev, þar sem m.a. var fjallað
um nýjar upplýsingar fyrrveraudi
KGB-njósnara um að KGB hefði
eindregið varað leiðtogann við því
að gera innrás í Afganistan en
hann hefði látið þær ráðleggingar
sem vind um eyru þjóta.
Sameinuðu þjóðunum, 18. nóvember. AP.
STJORNIK Handaríkjanna, Sovétrikj-
anna og Bretlands hafa tekió saman
höndum um að halda niðri kostnaði við
rekstur á vegum Sameinuðu þjóðanna,
en þessi kostnaður hefur farið ört
hækkandi að undanfornu. Þykir tíðind-
um sæta að sendiherrar þessara
þriggja ríkja gengu saman á fund Per-
ez de Quellar framkvæmdastjóra SÞ til
að ræða við hann möguleika á niður-
skurði í fjárhagsáætlun samtakanna.
Bandaríkin eru langveitulasta ríki
SÞ þegar fjárframlög til samtak-
anna eru annars vegar, og leggja til
fjórðung þess fjár sem þarf til
rekstrar. Sovétríkin eru í öðru sæti
með 13% og Bretland í sjötta sæti
með 4,5%. Onafngreindur embættis-
maður sem var viðstaddur fund
sendiherranna og de Quellars segir
framkvæmdastjórann hafa heitið
því að reyna allt sem hægt væri til
að koma í veg fyrir aukinn kostnað
við reksturinn.
Elísabet og Beatrix
Beatrix drottning í Hollandi hélt á þriðjudag í sína fyrstu þjóðhöfðingjaheimsókn til Bretlands. Á myndinni veifar
hún til mannfjöldans. Elísabet II. Bretlandsdrottning situr henni á vinstri hönd.
Rafeindarisi
gegn Japönum
Evrópuþingið:
París, 18. nóvember. AP.
TIL að stemma stigu við einokun Jap-
ana á sviði rafeindaiðnaðar á
evrópskum markaði, hefur hið þjóð-
nýtta franska fyrirtæki Thomson-
Brandt ákveðið að kaupa ríflega 75%
hlutabréfa í v-þýzka rafmagnsfyrir-
tækinu Grundig. Philips-fyrirtækið
scm er hollenzkt verður liður í þess-
ari samsteypu, en það ræður yfir
24,5% í Grundig.
Megintilgangur þessara við-
skipta er að stöðva hina öru sókn
Japana á v-evrópskum markaði,
þegar rafeindabúnaður er annars
vegar og telja kunnugir að fyrsta
verkefni hins nýja evrópska
rafeindarisa verði að búa til nýtt
myndbandakerfi til að keppa við
japönsku Beta- og VHS-kerfin, sem
hafa selzt í miklum mæli á
evrópskum neytendamarkaði.
N-írland:
Lögreglurannsókn á
rekstri de Loreans
l.undúnum, 18. nóvember. AP.
LÖGREGLAN er að rannsaka
fjárreiður á bílasmiðju hins
bandaríska John Z. de Lorean
á Norður-írlandi, að því er
brezk stjórnvöld skýrðu frá í
dag, en bílasmiðjan varð gjald-
þrota. Lundúnablaðið The
Times sagði frá því í dag að
uppgötvazt hefði að fé hefði
horfið út úr rekstri fyrirtækis-
ins.
De Lorean var handtekinn í Los
Angeles fyrir mánuði vegna gruns
um aðild að kókainbraski. Aðeins
fáum klukkustundum fyrir hand-
tökuna tilkynnti brezka stjórnin
um þá ákvörðun sína að loka bíla-
smiðju de Loreans á N-írlandi þar
sem fyrirtækið gæti ekki staðið
við fjárhagsskuldbindingar sínar.
The Times segir það hafa verið
iðnþróunarráð N-írlands, sem fór
fram á lögreglurannsókn á fjár-
reiðum fyrirtæksins. Blaðið kveðst
ekki hafa upplýsingar um upp-
hæðina sem saknað er en telur að
þar sé um verulega fjárhæð að
ræða.
Tvítug stúlka frá Dóminíkanska
lýðveldinu „Ungfrú alheimur“:
„Fegurð er
ekki bara
ytra útlit
l.undúnum, 19. nóvvmber. AP.
„FEGURÐ ER ekki bara ytra útlit,“ sagði hin 22 ára gamla Marias-
ela Alvarez frá Dóminíkanska lýðveldinu, sem var í gærkvöld út-
nefnd „Ungfrú aiheimur“. Hafði Mariasela betur í keppninni við 67
aðrar stúlkur. Maria Sverrisdóttir tók þátt í keppninni fyrir íslands
hönd. Þetta er í 32. sinn sem þessi keppni er haldin.
Fyrir keppnina var stúlku frá Trinidad og Tobago spáð mestum
frama, en hún komst ekki lengra en í undanúrslitin. Sigur Alvarez
kom því nokkuð á óvart. í öðru sæti í þessari keppni varð tvítug
finnsk stúlka, Sari Kaarina Aspholm að nafni. Della Dolan, tvítug
stúlka frá Bandaríkjunum, varð í þriðja sæti.
Sigur Alvarez vakti mikla
gleði í heimalandi hennar og þar
var slegið upp veislum á götum
úti í tilefni dagsins og dansinn
dunaði fram á nótt. Vart þarf að
taka það fram, að þetta er í
fyrsta sinn, sem fulltrúi frá
þessari litlu eyju í Karabiska
hafinu ber sigur úr býtum í feg-
urðarsamkeppni.
Ungfrú Mariasela Alvarez er á
fyrsta ári í námi í byggingalist
(arkitektúr). Hún sagði frétta-
mönnum, að hún hefði ekki endi-
lega verið sú fegursta, en senni-
lega verið hæfasta stúlkan í
hópnum. í slíkri keppni væri það
ekki einvörðungu útlit, heldur og
framkoma og gáfnafar, sem
einnig skiptu máli. í ljós hefur
komið að Alvarez er nauðalik
sigurvegaranum úr keppninni í
fyrra, Pilin Leon frá Venesúela.
Fyrir sigur sinn í keppninni
hlaut Alvarez sem svarar
135.000 íslenskum krónum. Þá
tryggði sigurinn henni eins árs
starf sem fyrirsætu og þar hefur
hún aldrei undir sem svarar
680.000 ísl. krónum upp úr krafs-
inu. Þá fær hún að spreyta sig í
kvikmynd undir stjórn ekki
ómerkari manns en þess, sem
stjórnaði upptökum á Óskars-
verðlaunamyndinni „Chariots of
fire“, Dodi Fayed.
Auk Alvarez voru fjórar aðrar
stúlkur krýndar. Sú finnska,
Sari Kaarina Aspholm, fékk tit-
ilinn „Ungfrú Evrópa", Caroline
Murinda, 22 ára frá Zimbabwe
hlaut titilinn „Ungfrú Afríka",
hin 22 ára gamla Sarah Jane Ar-
eza frá Filippseyjum, hlaut titil-
inn „Ungfrú Asía“ og Catherine
Anne Morris, 19 ára stúlka frá
Ástralíu, var útnefnd „Ungfrú
Eyjaálfa".