Morgunblaðið - 20.11.1982, Page 23
4-
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1982
23
Schultz á fréttamannafundi:
Segir Bandaríkja-
menn reiðubúna
að bæta sambúðina
Washington, 19, nóvemb«r. Al*.
BANDARÍKJAMENN eru reiöubún-
ir til að bæta sambúðina við Sov-
étmenn, en aðeins að þvi gefnu að
Sovétmenn séu reiðubúnir til að rétta
fram sáttahönd. Svo sagði George P.
Schultz, utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, i ræðu, sem hann flutti á frétta-
mannafundi í gær.
„Það, sem mestu máli skiptir er,
að breyting verði á hegðun," sagði
Schultz á fundinum. „Kannski eru
móttökur Sovétmanna við komu
bandarísku sendinefndarinnar við
fráfall Brezhnevs dæmi um breytt
viðhorf. Sendinefndinni var einkar
hlýlega tekið,“ sagði Schultz enn-
fremur.
Schultz sagði ennfremur, að ekki
hefði verið ákveðinn leiðtogafund-
Lítill áhugi hjá
almenningi á
hlutabréfunum
Lundúnum, 19. nóvember. Al*.
SVO VIRÐIST, sem sú fyrirætlun
bresku stjórnarinnar, að gefa al-
menningi kost á að kaupa meirihluta,
51%, hlutabréfa í ríkisfyrirtækinu
Britoil, ætli að mistakast. Áhugi al-
mennings virðist einfaldlega ekki
nægur.
Sérfræðingar stjórnarinnar vilja
skella skuldinni á olíumálaráð-
herra Saudi-Arabíu, sheikh Ahmed
Zaki Yamani, sem sagði fyrr í vik-
unni, að fyrirsjáanlegt væri lækkað
verð á olíu, sem nemur 34 Banda-
ríkjadollurum á hverja tunnu.
Ætlun stjórnarinnar var að gera
ölium kleift að kaupa hlutabréfin.
Voru þau seld á rúm tvö sterlings-
pund stykkið, alls 255 milljónir
talsins. Þannig ætlaði stjórnin að
verða sér úti um 550 milljónir
punda.
Tilkynnt var í dag, að fyrir dyr-
um stæði önnur svipuð hlutabréfa-
sala. Hefur breska stjórnin til-
kynnt að hún hyggist bjóða al-
menningi að kaupa 51% hlutabréfa
i bresku simamálastofnuninni.
ur ríkjanna á næstunni, en fundur
þeirra Reagans og Andropovs væri
eitt þeirra atriða, sem rædd yrðu í
stjórninni á næstunni. „Við mynd-
um taka því vel ef einhver hreyfing
yrði,“ sagði Schultz.
Veður
víða um heim
Amsterdam 12 rigning
Aþena 18 rtgning
Banpkok 33 heióskírt
Beirút 22 heióskirt
Belgraö 10 heióskírt
Berlin 5 skýjaö
Brússel 9 skýjaó
Buenos Aires 24 skýjaó
Chicago 12 rigning
Oyflinni 8 rigning
Frankfurt 12 heióskírt
Genf 10 ■kýjaó
Helsínki 4 skýjað
Hong Kong 24 skýjað
Jerúsalem 21 heióskirt
Jóhannesarborg 28 heiðskírt
Kaupmannahöfn 8 rigning
Kairó 23 heíöskírt
Lissabon 17 heiðskírt
Los Angetes « skýjaó
Madrid 14 heióskirt
Maxíkóborg 24 skýjaó
Miami 27 skýjaó
Montreal 7 skýjaó
Moskva 9 skýjað
Nýja Dehlí 31 skýjaó
New York 13 skýjaó
Ósló -2 skýjað
Peking 19 heiðskírt
Rio de Janeiro 26 skýjaó
Rómaborg 14 heiöskírt
San Francisco 15 rigning
Singapore 33 rigning
Stokkhólmur 2 skýjaó
Sovéskir herflugmenn, sem standa til vinstri á myndinni, hlýða á ávarp í Suðaustur-Angóla, er þeir voru frelsaðir
af skæruliðum, sem létu í staðinn bandaríska fanga af hendi.
Víðtæk mótmæli vid heim-
sókn Husaks til Austurríkis
Vínarborg, 19. nóvember. Al*.
VÍÐTÆK mótmæli settu mjög svip
sinn á þriggja daga heimsókn Gustav
Husak, leiðtoga tékkneska kommún-
istaflokksins, sem lauk í Austurríki í
dag. Hvar sem Husak fór mættu hon-
um hópar fólks með mótmælaspjöld
þar sem krafist var fullra mannrétt-
inda í Tékkóslóvakíu. Talið er að
flestir i hópi mótmælendanna hafi
verið Tékkar, sem flúið hafa land, en
einnig mótmælti fólk úr röðum kirkj-
unnar.
Einn hluti mótmælanna var
fyrirfram ákveðin ferð leikritahöf-
undarins Pavel Kohout til Prag.
Kohout er útlægur frá Tékkóslóv-
akíu. Hann flaug til Prag án þess
að hafa vegabréfsáritun og var vís-
að úr landi, en tókst að hitta dóttur
sína að máli á flugvellinum áður en
hann sneri aftur.
í heimsókn sinni ræddi Husak
við forseta Austurríkis, Rudolf
Kirchenschlaeger, og Bruno
Kreiski kanslara. Husak sagði við
fréttamenn eftir fundi sína með
ráðamönnunum, að uppátæki Koh-
out væri „barnaleg sýndar-
mennska" og að ekki væri að vænta
neinnar stefnubreytingar í afstöðu
tékkneskra yfirvalda til undirróð-
ursmanna.
Því var hins vegar getið í sam-
eiginlegri yfirlýsingu Husaks og
ráðamannanna austurrísku, að
nauðsyn þess að hafa vegabréfs-
áritun til að komast til Tékkóslóv-
akíu yrði hugsanlega endurskoðuð.
Vegabréfsáritun þessi hefur verið
harðlega gagnrýnd í Austurríki.
Eftirmaður Khomeinis
verður valinn í desember
Beirút, 19. nóvember. Al*.
TALSMAÐUR íranska þingsins, Ali-
Akbar Rafsanjani, sagði í útvarpsræðu
í dag, að sú ákvörðun að kjósa þegar
eftirmann Ayatollah Ruhollah Khom-
einis, sem er orðinn 83 ára og fársjúk-
ur, væri eingöngu tekin til þess að
koma í veg fyrir upplausn og hugsanleg
átök þegar trúarleiðtoginn félli frá.
Rafsanjani sagði í dag, að ráð sér-
fræðinga myndi kjósa eftirmann
Khomeinis þann 10. desember. Yrði
annað hvort einn maður fyrir valinu,
eða þá hópur manna.
Khomeini komst til valda í bylt-
ingunni, sem gerð var í íran 1979.
Hann er talinn þjást af hjartasjúk-
dómi og fer nú orðið aldrei út fyrir
hússins dyr þar sem hann heldur til.
Hann hefur kvatt almenning í land-
inu til að taka þátt í kjörinu um
fulltrúa til að velja eftirmann sinn.
I KVOLD
Nóvemberkvöld
í Nausti
Matseðill
Laugardagurinn 20. nóv. 1982 dinner
Kalt laxapaté með ristuðu brauði
og sinnepssósu
- O -
Hreindýrasteik „smetana“ með waldorf-
salati, peru, rauðkáli og smetanasósu.
— O -
Mokkaís í súkkulaðibollum
með kahluakremi.
Þjónustugjald og söluskattur innifalið
í verði.
Service change and sales tax included
in the price.
fl MORGUN
Fjölskyldudagur
í Nausti
í hádeginu bryddum við upp á nýjungum og bjóðum fjöl-
skyldunni upp á ýmislegt nýtt.
Við sjáum um börnin ykkar að áhyggju- og kostnaðar-
lausu. Fjölbreyttur matseðill að venju.
kaffitímanum bjóðum við rjómakaffi og gómsætar kökur.
UM
Fyrir börnin höfum við sett upp barnaleiksvæði með ýms-
um leikföngum, videótæki með teiknimyndum, blöð og
fleira þeim til skemmtunar. Þar geta litlu börnin unað sér
og fengið frábæran barnamat, pylsur, gos og fleira. Fóstra
passar börnin á meðan fullorðna fólkið gæðir sér á Ijúf-
fengum veizlumat í aðalsal.
; , zr<
r A/A
í kvöld leika og skemmta félagarnir
Graham Smith og Jónas Þórir af sinni
alkunnu snilld.
BORÐAPANTANIR í SÍMA 17759
Veríd
velkomin