Morgunblaðið - 20.11.1982, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1982
31
Fallegt minnismerki
Bókmenntír
Sveinbjörn I. Baldvinsson
Bolli Gústavsson:
VORGANGA f VINDHÆRINGI
150 bls. Almcnna bókafélagið.
Bók séra Bolla Gústavssonar í
Laufási ber undirtitilinn: „... Á
mótum ljóðs og sögu.“ í henni
skiptast á ljóð og lausmálskaflar
sem bregða upp skýrum og oft
einkar skemmtilegum myndum af
mannlífi og umhverfi á Oddeyr-
inni á Akureyri fyrir 30 til 40 ár-
um. Þetta er eflaust einhvers kon-
ar minningabók og skyldi maður
nú kannski ætla að komið væri
nóg af þeim á þessum síðustu tím-
um, þegar varla kemur svo út
skáldverk að það sé ekki að
minnsta kosti öðrum þræði ævi-
minningar, ekkert síður eftir
bráðunga höfunda. Hvað sem því
líður, þá finnst mér þetta góð bók
hjá Bolla. Henni virðist ekki ætlað
að segja neinn stórasannleik um
lífið og þjóðfélagið, heldur líkist
mest eins konar fallegu minnis-
merki í skáldskaparformi um
liðna tíð og liðið fólk. Tíð og fólk
sem kemur aldrei aftur.
I ljóðunum sjáum við það sem
fram fer með augum skáldsins,
sem þá er ungt að árum og í
lausmálsköflunum förum við inn í
hús og vinnustaði og heyrum sam-
töl, erum kannski ennþá nær sög-
unni. Ekki er alltaf skýr munur á
ljóðunum og lausa málinu, því hið
síðarnefnda er oft einkar ljóðrænt
og verður skiptingin þá nánast að-
eins spurning um uppsetningu, en
það spillir auðvitað engu.
Eg hafði meira gaman að ljóð-
unum, mér fannst lausmálskafl-
arnir fremur venjulegir, prýðilega
skrifaðir, en kannski ekkert ólíkir
ýmsum öðrum slíkum úr minn-
ingabókum, hver um sig, en í heild
Séra Bolli Gústafsson.
þó víðtækari, ekki eins bundnir
sögumanni og vill verða.
Það er nú ekki alveg ný bóla að
setja minningar fram í formi
órímaðra ljóða. Ég man til dæmis
eftir nýlegum slíkum ljóðabókum
eftir Matthías Johannesen (Morg-
unn í maí), Jóhann Hjálmarsson
(Myndin af langafa, Frá Umsvöl-
um) og Erlend Jónsson (Fyrir
stríð). Það sem er nýstárlegt við
bók Bolla er að hann blandar sam-
an ljóða- og lausmálsformi. Mér
finnst það takast vel. í ljóðunum
getur höfundurinn leyft sér lík-
ingamál og vangaveltur sem ættu
illa heima í lausu máli, en í þeim
köflum eru aftur ákjósanlegar að-
stæður fyrir samtöl, svo lesandinn
öðlist betri innsýn inn í hugar-
heim þeirra persóna sem við sögu
koma. Gott dæmi um samspil
þessara tveggja þátta í bókinni er
eftirfarandi kafli:
Á neðri hæð hús.sins
er dálítill sýningargluggi,
sem nemur alveg við jörðu.
Hann er þakinn myndum af
laglegum börnum með
hrokkna lokka og
útsaumaða silkikraga
og týrólsk axlabönd
eða þá í matrósaíotum
með danskar farmannshúfur
prýddar tveim silkiböndum aftan.
I»ar eru myndaflokkar af
sköllóttum, berrösKuðum
hvítvoðungum á gæruskinni
og myndir af draumlyndislegum
stúlkum með sítt hár
og hönd undir kinn.
— Þær eru nú heldur flatterað-
ar þessar; að minnsta kosti veit ég
ekki annað en hún Stína strympa
sé ennþá bólugrafin og andfúl,
þótt Bretinn hafi kannski lyst á
henni, — hrópar rauðhærður ær-
ingi, sem er á leið í kolavinnu á
tanganum. Þarna við gluggann
kvikna ýmis umræðuefni, sem
endast þeim, sem eru á leið til
vinnu, niður alla Gránufélagsgötu
og stundum lengur ...
(Bls. 44-45.)
Stíðið úti í löndum hefur teygt
hramminn norður á Oddeyrina og
hefur sín áhrif á mannlífið, eins
og reyndar aðrar hræringar á er-
lendum vettvangi. Catalina- og
Grumman-flugbátar eru áþreif-
anleg tákn ófriðarins:
Fjötur stríðsins
vckur eitraða söngva,
sem brjótast fram úr
mjóu vélbyssuhlaupi
eins og nöturlegt
gelt úr stálkjafti.
Þannig siglir dauðinn
um vegu englanna
í heimsstríði.
(Bls. 77.)
„Vorganga í vindhæringi" fékk
viðurkenningu í bókmenntasam-
keppni Almenna bókafélagsins og
er hún vel að henni komin. Hér er
á ferðinni einlæg, ljóðræn og
skemmtileg lýsing á hluta fortíð-
arinnar, fortíðar sem kannski er
ekki eins fjarlæg okkur og við
höldum. I bókinni verður hún al-
tént býsna lifandi.
Jónas
Ingimundarson
Glæsitónleikur í
Norræna húsinu
eftir sr. Gunnar
Björnsson
I hádeginu á miðvikudag efndi
tónleikanefnd Háskólans til pí-
anótónleika með Jónasi Ingi-
mundarsyni.
Það er ólítil upplyfting í mat-
artímanum að hlýða á jafnfull-
kominn flutning á fagurri efnis-
skrá og hér var raunin. Hún
samanstóð af píanóverkum eftir
Pólverjann Frederic Chopin, ein-
hvern Ijúfasta söngvara tón-
bókmenntanna samanlagðra.
Jónas Ingimundarson fór á
kostum þessa unaðsstund í
Vatnsmýrinni. Hvort heldur var
í Etýðunni í As-dúr, þar sem
litlu fingur beggja handa sjá um
útlínurnar, syngjandi fagrar, en
innraddirnar gera ýtrustu kröf-
ur til hinna fingranna átta, eða í
Pólónesu í c-moll, þar sem
vinstri höndin leikur á strengja-
bassa, eins og þeir hljóma af
mestri fyllingu, var leikur hans
gæddur návist af ætt draumsins.
Jónas Ingimundarson hefur
þann áslátt, sem tekur heima í
sérhverju næmu hjarta og
hljóðfæri hans er einlægt í kon-
sertstillingu. Hann lýr smíðaj-
árn sitt nærfærnum höndum,
uns honum hefur tekist að gera
af efni sínu grip þvílikan, sem
hann hafði ætlað sér. Þetta er
tónamál á hærra stigi, opinber-
un, sem æ sjaldnar hljómar á
vorum dögum, vegna þess að svo
fáir menn hafa sálarrósemi til
að fága rétta tóninn meðan
borgin er að brenna, en æða þess
í stað ólsjálfrátt út á torgin og
hrópa eldur.
Búnadarbankinn
Grundarfirdi
Búnaðarbanki íslands opnar mánu-
daginn 22. nóv., útibú í Grundarfiröi og
yfirtekur jafnframt alla starfsemi Spari-
sjóös Eyrarsveitar.
Eigendur innlána í Sparisjóöi Eyrar-
sveitar eru vinsamlega beönir aö fram-
vísa sem fyrst í útibúinu sparisjóösbók-
um sínum og öörum innlánsskírteinum
til aö fá skipt á þeim og hliöstæöum
innlánsskírteinum bankans.
Bankastjórnin heitir á Grundfiröinga til
samstarfs um aö efla svo útibúiö aö þaö
geti oröiö aflgjafi trausts atvinnulífs og
velmegunar í Grundarfiröi.
Afgreiöslutíminn veröur kl. 9:15—12:30
og 13:30—16:00. Sími 93-8695.
Kaffiveitingar veröa í útibúinu fyrir
viöskiptavini allan opnunardaginn.
Veriö velkomin.
Búnaðarbanki íslands.
5>ai?
Sparisjóður Eyrarsveitar hef-
ur hætt allri starfsemi frá 20.
nóv. 1982.
Búnaöarbanki íslands hefur
yfirtekiö starfsemi sparisjóös-
ins frá sama tíma.
Stjórn Sparisjóös Eyrarsveitar
þakkar öllum fyrir góö viö-
skipti undanfarin ár og óskar
Búnaöarbankanum og öllum
Grundfiröingum farsældar á
komandi árum.
Sparisjóður
Eyrarsveitar.