Morgunblaðið - 20.11.1982, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 20.11.1982, Qupperneq 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1982 Bladburöarfólk óskast! Austurbær Lindargata 1—29 Lindargata 39—63 Þingholtsstræti Hverfisgata 63—120 Freyjugata 28—49 Úthverfi Klapparás Gnoöarvogur 44—88 Hjallavegur Heiöargeröi 2—124 Vandi í hús- næðismálum Viðtalstími borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Borgarfulltrúar Sjálfstæöisflokksins veröa til viötals í Valhöll, Háaleitisbraut 1 á laugardögum frá kl. 10—12. Er þar tekiö á móti hvers kyns fyrirspurnum og ábendingum og er öllum borgarbúum boöiö aö notfæra sér viötalstíma þessa. Margrét Laugardaginn 20. nóvember verða til viötals Albert Guömundsson og Margrét S. Einarsdóttir. Harmonikuunnendur Muniö dansleikinn í Hreyfilshúsinu kl. 9 í kvöld. Allir velkomnir. Skemmtinefndin. eftir Þorvald Garðar Kristjánsson, alþm. Húsnæðismálin eru ein allra þýð- ingarmestu mál hvers þjóðfélags. Það er ekki einungis að húsnæði er öllum mönnum nauðsynlegt, heldur hefur húsnæðisástandið, sem þjóðin býr við, hin víðtækustu áhrif. Hús- næðismálin hafa þá sérstöðu gagn- vart ýmsum öðrum málum, að jafn- vel þótt tiltölulega fáir búi við slæmt ástand er það þó alltaf mjög alvarlegt mál. Og því fremur kastar tólfunum þegar ástand er almennt slæmt. Fólk, sem býr í heilsuspill- andi íbúðum eða í ofþrengslum eða getur ekki stofnað heimili vegna húsnæðisskorts, getur átt við ósegj- anlega erfiðleika að stríða. Allir heilbrigðir menn hafa sam- úð með fólki, sem lendir í slíkum erfiðleikum. En það er einmitt vegna þessarar sérstöðu húsnæð- ismálanna, að hætt er við að þau séu notuð enn frekar en önnur mál í lýðskrums- og auglýsingaskyni. Skortir þá ekki á, að farið sé hug- næmum orðum um raunir hinna húsnæðislausu og er þá oft lögð meiri áherzla á þann söng heldur en raunhæf úrræði. Þetta skyldu menn hafa í huga, þegar litið er til laga nr. 511980 um Húsnæðisstofnun ríkis- ins, ef menn vilja leita skýringa á þeim ólíkindum, sem í þeim felast. Þáttaskil fyrir aldarfjórðungi Fyrir rúmum aldarfjórðungi voru fyrstu lögin sett um Húsnæðismála- stjórn og almenna veðlánakerfið tók til starfa. Þetta markaði þáttaskil í lánamálum húsbyggjenda í landinu. Síðan varð almenna veðlánakerfið grundvöllur opinberra aðgerða til fjármögnunar íbúðarhúsabygginga. Hið almenna veðlánakerfi var ekki fullkomið, þegar það var tekið upp og ýmsu var ábótavant. En menn vissu hvað þeir vildu og höfðu markmið að stefna að. Viðfangsefn- ið var frá upphafi að efla veðlána- kerfið. Það þurfti að bæta lánskjör- in, lengja lánstímann, lækka vexti og umfram allt að hækka lánin og auka hlutfall þeirra í byggingar- kostnaðinum. Forsenda þessa alls er fjármagnið. Hér hefur verið megin- vandinn frá fyrstu tíð að afla aukins fjármagns í þágu húsnæðismálanna. Það hefur líka verið aðalatriði, því Á Esjubergi, fjölskyldu- kvöldverður með rjóma- lagaðri humarsúpu og ekki einum, ekki tveimur heldur þremur Ijúffengum kjötréttum. Nú er tilvalið fyrir fjölskylduna að borða saman á Esjubergi á laugardags- eða sunnudagskvöldi. Ljúffengir kjötréttir fyrir þá eldri og góm- sætir hamborgarar fyrir þá yngri, auðvitað ókeypis. Kl. 19:00 sýna Módelsamtökin glæsilegan vetrarfatnað á alla fjölskylduna. Kl. 19:30 skemmta Haukur Morthens og félagar hans. Og síðast en ekki síst leikur Jónas Þórir uppáhaldslög yngri kynslóðarinnar. Komdu í kvöld. Kokkarnir bíða við rjúkandi pottana! □ Itnll Fjölskyldustaður í alfaraleið. Þorvaldur Garðar Kristjánsson. „Á sama tíma hefur hækkun vaxta og verð- trygging lána lagzt með ofurþunga á lántakend- ur og húsbyggjendur í landinu. Þannig hefur allt snúizt til verri vegar í þessum efnum í tíð nú- verandi ríkisstjórnar og stefnir nú í fullkomið öngþveiti.“ að ekkert hefur verið hægt að sækja fram á þessu sviði nema með auknu fjármagni. Þess vegna hefur endur- skoðun húsnæðislöggjafarinnar venjulega beinzt fyrst og fremst að fjármagnsöflun. I þessum efnum var smám saman sótt fram í rétta átt með því að Byggingarsjóði ríkis- ins voru fengnir auknir og nýir tekjustofnar, svo sem með skyldu- sparnaði ungs fólks og með launa- skatti. En árið 1980 dregur bliku á loft með því að rofin er hin jákvæða þróun, sem fólgin var í því að styrkja fjárhagsgrundvöll Bygg- ingarsjóðs ríkisins. Fjörráð við húsbyggjendur Við setningu laga nr. 511980 um Húsnæðisstofnun ríkisins var brugðið frá þeim vana, sem jafnan hafði verið áður fylgt við endurskoð- un húsnæðislöggjafarinnar, að afla aukins fjármagns í þágu húsnæð- ismálanna. En það var ekki nóg með þetta, heldur var farið þveröfugt að við það, sem áður tíðkaðist, með því að Byggingarsjóður ríkisins var sviptur aðaltekjustofni sínum, þar sem var launaskatturinn. Og svo var óskammfeilnin mikil, að jafnframt voru lögð stóraukin verkefni á Byggingarsjóð ríkisins án þess að honum væri séð fyrir nokkrum nýj- um tekjustofnum til að mæta þess- um þörfum. Hér var um bein fjörráð að ræða við hinn almenna húsbyggj- anda í landinu. Það var beinlínis verið að grafa undan þeim lánasjóði, sem lánað hafði til meginhluta allra húsbygginga í landinu. En hér var um meir að tefla en Byggingarsjóð ríkisins. Það var veg- ið að þeim viðhorfum og þeirri lífsskoðun, sem er grundvöllur þessa átaks, sem þjóðin hefur gert í hús- næðismálum sínum á undanförnum áratugum. Það var vegið að þeirri sjálfsbjargarviðleitni og einka- framtaki, sem skilað hefur okkur glæsilegum árangri í húsnæðismál- um. Það sem mest á reið var að styrkja þetta framtak með því að bæta íbúðarlánin til fólksins í land- inu, lengja lánstímann, lækka vexti og hækka hlutfall lána af bygg- ingarkostnaði. Það þurfti að festa í sessi þá skipan, sem svo vel hefur reynzt okkur með því að tryggja betur, að öllum almenningi í land- inu væri gert fært að byggja og standa undir þeim lánskjörum, sem hið almenna íbúðarlánakerfi hefur upp á að bjóða. Niðurrifsstarfsemi ríkisstjórnar Þessi niðurrifsstefna núverandi ríkisstjórnar hefur svo birzt í stað- reyndum, sem við blasa. Það hefur ekki verið nægilegt fjármagn til þess að mæta eftirspurn eftir lán- um, sem svara til raunverulegra þarfa þjóðarinnar til nýrra íbúða. Eftirspurnin eftir lánum hefur verið minnkuð með ráðstöfunum ríkis- valdsins vegna þess að lánin hafa alltaf orðið minni og minni hluti af byggingarkostnaði. A sama tíma hefur hækkun vaxta og verðtrygging lána lagzt með ofurþunga á lántakendur og hús- byggjendur í landinu. Þannig hefur allt snúizt til verri vegar í þessum efnum í tíð núverandi ríkisstjórnar og stefnir nú í fullkomið öngþveiti. Samdráttur í byggingum I þessum efnum má muna timana tvenna. Um 1970 hafði þokað svo áfram í þessum málum, að íbúðalán almenna veðlánakerfisins námu milli 45 og 50% af byggingarkostn- aði. Síðan hefur sigið á ógæfuhlið- ina og keyrt um þverbak hin síðustu misseri, svo nú er svo komið, að íbúðalán almenna veðlánakerfisins eru komin undir 20% af bygg- ingarkostnaðinum. Áhrif þessa koma óhjákvæmilega fram í sam- drætti í íbúðarhúsabyggingum. Kemur þetta bezt í ljós, þegar litið er á tölur og yfir fjölda íbúða, sem Byggingarsjóður ríkisins veitti lán út á á síðustu árum. Árið 1978 var lánað til nýbygginga út á 1.883 íbúð- ir. Árið 1979 var lánað til 1.687 íbúða. Árið 1980 voru veitt lán til 1.665 íbúða. Og árið 1981, þegar stefna núverandi ríkisstjórnar kem- ur fram með fullum þunga, er lánað út á 1.072 ibúðir. Þessi þróun er þeim mun ískyggilegri, þar sem samkvæmt íbúðaspá Þjóðhagsstofn- unar er gert ráð fyrir, að það þurfi að byggja 2.000 nýjar íbúðir á ári. Þessar geigvænlegu staðreyndir blasa nú við og menn sjá því glöggt í hvert óefni stefnt er, ef þessi þróun heldur áfram. Fram til þessa hefur ríkisstjórnin barið höfðinu við steininn í húsnæð- ismálunum og jafnvel sýnt þá óskammfeilni að hælast um óhæfu- verkin. En nú virðist svo komið, að jafnvel stjórnarliðið treystist ekki lengur til að neita staðreyndum og er nú farið að tala um úrræði til að bæta fyrir það, sem úrskeiðis hefur farið. Þau úrræði þurfa skoðunar við, en það er önnur saga. Breskur,, Pub a Vínlandsbar. Ferðavinningur dreginn út í lok vikunnar. Verið velkomin! HOTEL LOFTLEIÐIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.