Morgunblaðið - 20.11.1982, Síða 33

Morgunblaðið - 20.11.1982, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1982 33 Ný reykinga- varnarnefnd HEILBKKiÐIS- og tryggingaráðu- neytið hefur skipað nýja reykinga- varnarnefnd frá 1. nóv. sl. að telja. Hlutverk hinnar nýju nefndar yrði fyrst og fremst: 1. Að vera heilbrigðisyfirvöldum og öðrum opinberum aðilum til ráðuneytis um allt er að tóbaks- vörnum lýtur. 2 Að gera tillögur til stjórnvalda um ráðstafanir til þess að vinna gegn neyslu tóbaks. 3. Að vinna að samstilltu átaki í reykingavörnum og samræm- ingu starfa hinna einstöku aðila. 4. Að veita aðstoð og leiðbeiningar varðandi tóbaksvarnir. 5. Að fylgjast sérstaklega með tób- aksneyslu í landinu. 6. Að nýta þekkingu og reynslu annarra þjóða á sviði tóbaks- varna. Er nefndinni ennfremur ætlað að starfa í nánum tengslum við Holl- ustuvernd ríkisins. I nefndina hafa verið skipuð: Guðrún Guðlaugsdóttir, fréttamað- ur, formaður, dr. med. Þórður Harðarson, prófessor, tilnefndur af Hjartavernd, Þorvarður örnólfs- son, lögfræðingur, framkvæmda- stjóri Krabbameinsfélags Reykja- víkur, tilnefndur af Krabbameins- félagi íslands. Ný þjónusta Útleiga á teppahreinsivélum Bjóöum einungis nýjar og öflugar há- þrýstivélar frá Kárcher og frábær hreinsiefni. Allir viöskiptavinir fá afhentan litmyndabækling Teppalands meö ít- arlegum upplýsingum um meöferö og hreinsun gólfteppa. Tépprlrnd ATH: PANTANIR TEKNAR í SÍMA. Grensásvegi 13, símar 83577 og 83430. aotir sjálfur jólaundirtríminguriim heftt Eru jólin vandamál á þínu heimili? Ertu ef til vill ein þeirra, sem kappkostar að hafa heimilið hreint og fallegt, áður en jólahátíðin gengur í garð? fallegum Kópallitum. Með Kópal sparast ótrúlega mikið erfiði - og heimilið verður sem nýtt, þegar sjálfur jólaundirbúningurinn hefst. Skammdegissólin í Mosfellssveit eftir Erling Kristjánsson Sólin er mjög tekin að lækka á lofti enda kominn 14. nóvember. Flestar fréttir útvarps og blaða þurrar, kuldalegar, já bara leiðin- legar og meira að segja hann Trausti kemur manni ekki í gott skap þegar hann skýrir út veður- kortin. Mikið andskoti er veðurkortið eitthvað fúlt. Nema hvað ég ætlaði að fara í Hlégarð í kvöld með alla krakk- ana. Leikfélagið ætlar að sýna galdrakarlinn í Oss. Nei, hann átti víst heima í OZ. Þeir felldu víst aldrei niður set- una í OZ. Já, var ekki regnboga- lagið í þessu leikriti? Þetta dá- samlega lag sem flytur mann í heilum áttundum undir og yfir regnbogann. Já, hvað megnar ekki tónlistin? Sjáum bara og heyrum. Við erum komin í Hlégarð og sitjum í 4. röð, ekki margir háir í sætum fyrir framan okkur. Ég lít í leikskrána, þar eru mörg nöfn, og flest ný. Þetta eru aðal- lega unglingar, skólakrakkar og smábörn, fáir á pabba- og mömmualdri, enginn á afa og ömmualdri. Hver skyldi meðalald- ur leikaranna vera? Varla tveggjastafa tala. En hvernig má samhæfa svona hóp? Jú, það getur hún Sigríður okkar Þorvaldsdótt- ir, hún kann sitt fag. Hún lék líka Dóróteu aðalpersónu ævintýrisins, þegar það var sýnt í Þjóðleikhús- inu hérna um árið. Nú setur ljósameistarinn sig í stellingar og regnbogi myndast yf- ir sviðinu. Allir óska sér í hljóði. Og tjöldin þokast til hliðar, leik- myndin kemur í ljós. Hún er af einföldu og góðu gerðinni þar sem áhorfandinn eykur við með eigin ímyndunarafli. Sviðskiptingar eru einnig sérlega vel útfærðar. Ekki spilla heldur búningarnir. Og leik- ararnir, ótrúlegt, hverju má ná fram hjá svona ungu og reynslu- litlu fólki. Hópsálin hjá þessu fólki hlýtur að vera pottþétt eins og það sjálft myndi orða það. Hvílík vinna að koma þessu saman svo hnökralítið sé. Þetta eru hreinustu galdrar. Áhorfend- ur, sem margir eru af yngri kyn- slóðinni, lifa sig svo inn í verkið að allur salurinn er orðinn að einu leiksviði. Leikurum er leiðbeint ef þeir ætla að ganga í öfuga átt og varaðir við ef óvættir nálgast. Og svo er þessu lokið eftir tvo tíma. Töfralandið í Hlégarði verð- ur aftur Hlégarður hinn venjulegi en það er sólskin í hugum áhorf- enda jafnt sem leikara. Og ég gef fjandann í öll veður- kortin hans Trausta á næstunni. Við Mosfellingar höfum fengið gott ljós í skammdeginu. Ég er ekki að skrifa leikdóm. En ég má þó til með að minnast á einn leik- arann og vona áð á engan sé hall- að. Aðalhlutverkið, Dóróteu, leik- ur 15 ára stúlka úr Mosfellssveit, Guðný María Jónsdóttir. Þetta er stórt hlutverk og hún er á sviðinu allan tímann bæði syngur, dansar og leikur með ýmsum geðbrigðum. Allt ljómandi gott. Til hamingju, Guðný. Við ykkur sem lesið þetta vil ég segja: Drífið ykkur á sýningu Leikfélags Mosfellssveitar á Galdrakarlinum í OZ sem fyrst. Þið fáið þar að sjá sólskinsblett í heiði. Svo má minna á að þetta er ekki bara barnaleikrit heldur leik- rit fyrir fólk á engum aldri. Góða skemmtun. Erlingur Kristjánsson Þá ert þú sennilega líka ein þeirra sem leggja sig alla fram viö hreinsun og hreingerningar í jóla- mánuðinum og sennilega ein þeirra, sem er alveg örmagna, þegar sjálfur jólaundirbúningur- inn hefst - og svo geturður ekki notið sjálfrar jólahátíðarinnar fyrir þreytu! Við leggjum til, að þú leysir þetta vandamál með því að mála - já, mála íbúöina með björtum og málninghlf Jólaánægjan verðurtvöföld, þegar þú átt þess kost að njóta hennar án streitu og strengja

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.