Morgunblaðið - 07.12.1982, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1982
7
Bcoeente
Þegar gæöi, hönnun og verö
haldast jafn vel í hendur og i'
Beocenter 7002 hljómtækja-
samstæöunni, þá er valið
auðvelt.
Komdu og leyföu okkur aö
sýna þér þessi frábæru
hljómtæki, sem fá lof tónlist-
ar- og listunnenda.
Beovox S 55
Verö 39.980 — meö hátölurum.
Greiðslukjör.
TSílamatkadutínn
K&t cttisqctu 12- 1S
Saab 900 GL8 1981
Hvítur, eklnn 18 þús. Útvarp,
segulband. Verö 220 þús.
Mazda 626 1600 1982
Brúnn, ekinn 3.000 km 5 gira.
Verð 150 þús.
Saab 99 GL 1977
Blár, ekinn 58 þús. Verö 95 þús.
Subaru 4x4 1980
Grár, ekinn 68 þús. Útvarp,
segulband. Verö 140 þús.
Rover 3500 1978
Gulur, ekinn 72 þús. Sjálfskipt-
ur, aflstýri, útvarp, segulband,
rafmagn í rúöum og læsingum.
Verð 175J>ús.
Citroén G8 Station 1980
Rauöur, eklnn 30 þús. Útvarp.
Verö 98 þús.
Honda Civic 1981
Rauður, ekinn 30 þús. Útvarp,
segulband. Verö 130 bús.
Toyota Tercel
3ja dyra 1980
Blásanz, ekinn 31 þús. Sjálf-
skiptur, útvarp. Verö 120 þús.
Dahiatsu 1980
Grænn, ekinn 39 þús. Útvarp,
segulband.
3JU
jn«r0imt>Tat>ib
itMvttn
DJODVIIIINN
LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 1982.
Hin daglegu prófkjör
í blaöaheiminum
Alþýðublaöiö, ríkisrekinn fjórblööungur, ræöst aö Morgunblaö-
inu í helgarleiðara í tilefni prófkjöra. „Enginn grætur hinsvegar
þótt Mogganum blæöi“ eru lokaorö þessa „tímamótaleiðara“.
Höfundur hans mætti hugleiða það aö íslenzku dagblöðin, þ.á m.
Alþýðublaðið, ganga flesta daga ársins undir sitt prófkjör — á
sölumarkaði, þar sem val fólksins ræður. Þar er frammistaöa
fjórblöðungsins slík aö hann væri löngu liðin saga, ef ekki kæmu
til ríkisauglýsingar og fastakaup þess opinbera!
Prófkjör
A-flokkanna
Þjóðviljinn fjallar í helg-
arleiðara um prófkjör —
og er mikið niðri fyrir.
llm prófkjör Alþýðu-
flokksins í Keykjavík segir:
„Sú prófkjörsvima sem
rann á allmarga fyrir
nokkru virðist vera farin
að renna af mönnum. Al-
þýðuflokkurinn hefur enga
ástæðu til að fagna sínu
prófkjöri í Reykjavík. Þar
tóku um fjórðungi færri
kjósendur þátt en í heldur
aumlegu prófkjöri fyrir
borgarstjórnarkosningarn-
ar. Var þó miklu meira í
húfl nú — m.a. staða þess
manns sem einna líklegast-
ur er til foringja í flokkn-
um, Jóns Baldvins Hanni-
balssonar.1*
Um framboðsmál Al-
þýðubandalagsins segir
Þjóðviljinn m.a.:
„Alþýðubandalagið hef-
ur smíðað sér nokkuð
þungar reglur um forval,
sem andstæðingar hafa
gert lítið úr og haft hátt um
að allt væri það upp á ein-
ræðishneigðir og innilok-
unaráráttur. Forvalsreglur
eru satt bezt að segja ekki
fullmótaðar og þörf er að
endurskoða þær og laga að
aðstæðum á hverjum
tíma.“ l*að er nú svo — og
svo er nú það, Þjóðvilji
góður.
Röðuná
framboðslista
Prófkjör þóttu í takt við
tímann þá upp vóru tekin.
Þau, eins og öll mannanna
verk, þurfa þó endurskoð-
unar við — í Ijósi tiltækrar
reynslu.
Sú krafa verður t.d. æ
háværari, ef viðhalda á
prófkjörum í núverandi
mynd, að settar verði
fastar reglur um fram-
kvæmd þeirra, jafnvel
lögbundnar. f því sam-
bandi hefur ekki sízt verið
bent á nauðsyn þess að
prólkjör framboðsaðila í
sama kjördæmi fari fram á
sama tíma og á sama stað.
Þar sé hverjum kjósanda
frjáls þátttaka — en aðeins
hjá einum framboðsaðila.
Þá væri hægt að fyrir-
byggja skipulagða misnotk-
un prófkjöra sem, því mið-
ur, hefur sagt til sín.
Aðrir benda á að hyggi-
legra sé að taka upp þá
hætti, sem annarsstaðar
þekkjast, þ.e. að kjósand-
inn fái að gera upp á milli
frambjóðenda á þeim
framboðslista, er hann kýs,
með „númerun" eða ann-
ars konar persónulegu vali,
en trúnaðarráð framboðs-
aðila gangi frá framboðs-
listum.
Þeir, sem gagnrýna
prófkjör, staðhæfa, að þau
fæli hæflleikafólk frá þátt-
töku í samfélagsmálum.
Þeir, sem verja þau, benda
hins vegar á, að í prófkjör-
um felist val þingmanna og
sveitarstjórnarmanna ekk-
ert síður en í endanlegum
kosningum, sem aftur rétt-
læti fjöldaáhrif í framboðs-
röðun. Allar hliðar þessa
máls þarf að íhuga vand-
lega þegar hugað verður að
framtíðarskipan.
Þegar ríkis-
stjórnin er öll
Myndun núverandi rík-
isstjórnar, með þátttöku lít-
ils brots þingflokks sjálf-
stæðismanna, hefur óneit-
anlega valdið innanflokks-
átökum í Sjálfstæðis-
flokknum, þó sá megintil-
gangur Alþýðubandalags
og Kramsóknarflokks með
stjórnarmynduninni, að
kljúfa Sjálfstæðisflokkinn
til frambúöar, hafl mistek-
izt, eins og úrslit sveitar-
stjórnarkosninga á sl. vori
sýndu glögglega.
iH'gar ríkisstjórnin er
öll, en hún er nú að syngja
sitt siðasta, getur sjálfstæð-
isfólk sameinast á ný í
órofa heild. Nú ríður og á
því að virkja þá orku, sem
býr í fjöldafylgi Sjálfstæð-
isflokksins, fyrir hugsjón-
um og baráttumálum
flokksins og gegn andsUeð-
ingurn. i stað innbyrðis
átaka.
Stjórnmálaályktun ný-
afstaóins flokksráðsfundar
var samþykkt samhljóða.
Það er vegvísun að sam-
átaki í komandi kosn-
ingabaráttu.
STÓRIR MENN
ÞURFA STERKT HJARTA!
og reyndar meira en þaö - sterkan lík-
ama og hraustan líkama. Slíkt næst
aðeins með góðri þjálfun og með
aðstoð réttra tækja. Því bjóðum
við yður TUNTURI þjálfunar-
hjól og róðrabáta, einmitt
nú þegar líkami yðar
þarfnast þess - eftir
sólarlaust sumar og
svartasta skamm-
degið framundan.
Við lofum ekki
„ATLAS vöðvum“
slíkt er undir yður
komið, en minnum
aðeins á: “Sveltur
sitjandi kráka-en
fljúgandi fær“
Lítið því við í Sætúni 8 - við erum sveigjanlegir í samningum.
heimilistæki hf.
SÆTÚNI8-15655