Morgunblaðið - 07.12.1982, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1982
Morgunblaðið/Ól.K.M.
Frá flokksráðs- og formannaráðstefnu Sjálfstæðisflokksins.
því að hið opinbera leggi
skattpeninga almennings í
áhætturekstur.
10. Treysta stöðu fjölskyldu og
heimilis, bæta hag aldraðra og
þeirra, sem minna mega sín í
þjóðfélaginu.
11. Einfalda húsnæðislánakerfið,
hækka lánshlutfali og lengja
lánstíma þannig að almenning-
ur eigi auðveldara með að eign-
ast eigið húsnæði.
12. Leggja áherslu á sjálfstæða
hugsun og skapandi starf í
menningar- og menntamálum,
þannig að þroski og hæfileikar
einstaklinganna verði virtir og
horfið frá ríkjandi miðstýringu
á þessum sviðum. Endurskoð-
un á lögum um skólakerfi er
löngu tímabær.
13. Leggja aukna áherslu á mennt-
unar- og skólamál og efla vís-
indalegar rannsóknir til þess
að unnt sé að nýta auðlindir
þjóðarinnar til lands og sjávar.
14. Sameina þjóðina til átaka gegn
fíkni- og eiturlyfjanotkun.
15. Auka áhrif kvenna í þjóðfélag-
inu og stuðla þannig að jafnari
stöðu karla og kvenna.
16. Tryggja góðar og öruggar sam-
göngur til þess að byggð þróist
með eðlilegum hætti í landinu.
Með því er hægt að nýta gæði
landsins á hagkvæman hátt.
17. Fylgja ábyrgri og sjálfstæðri
utanríkisstefnu, sem reist er á
norrænu samstarfi, öryggis- og
varnarsamstarfi vestrænna
ríkja, þátttöku í samtökum
Stjórnmálaályktun flokksráðs- og formannafundar sjálfstæðismanna:
Ábyrgd í stað upplausnar
Flokksráðs- og formannaráð-
stefna Sjálfstæðisflokksins haldin
í Reykjavík 3. og 4. desember 1982
ítrekar það grundvallarmarkmið
sjálfstæðisstefnunnar að vinna að
víðsýnni og þjóðlegri umbóta-
stefnu á grundvelli einstaklings-
frelsis og atvinnufrelsis með hags-
muni allra stétta fyrir augum.
íslendingar standa á örlagarík-
um tímaótum. Stjórnarstefnan
hefur leitt til stöðnunar, atvinnu-
öryggið er í hættu og lífskjör fara
versnandi. Við slík skilyrði er
endurreisnar þörf, sem byggja
verður á stefnu Sjálfstæðisflokks-
ins. Hann hefur áður leitt þjóðina
til framfara og hagsældar á ör-
lagatímum.
Þegar vinstri flokkarnir tóku
við stjórn landsins fyrir fjórum
árum var atvinnulífið í vexti og
skilyrði fyrir margvíslegum ný-
iðnaði. Þjóðartekjur höfðu vaxið
og jafnvægi var í viðskiptunum
við útlönd. Batnandi lífskjör og
næg atvinna byggðust öðru frem-
ur á afrakstrinum af útfærslu
landhelginnar í 200 sjómílur, en
það heillaspor var stigið undir for-
ystu sjálfstæðismanna. Þótt nú
hafi dregið úr sjávarafla um
stundarsakir er hann ekki minni
en fyrir þremur árum, en síðustu
þrjú ár hafa verið mestu aflaár í
sögu þjóðarinnar.
Eftir fjögurra ára óstjórn hefur
þessi mikli ávinningur runnið út í
sandinn. Alvarlegt hættuástand
hefur skapast í efnahags- og at-
vinnumálum þjóðarinnar. Langan
tíma mun taka að bæta það tjón,
sem mistök og fyrirhyggjuleysi í
iðnaðar- og orkumálum hafa vald-
ið. Gjaldeyrisvarasjóðnum hefur
verið varið til neyslu og eyðslu-
skuldir vegna sívaxandi viðskipta-
halla við útlönd hrannast upp.
Fjárhagslegu sjálfstæði þjóðar-
innar er stefnt í voða. Atvinnuveg-
irnir eru að þrotum komnir vegna
tapreksturs og skuldasöfnunar.
Þjóðartekjur hafa rýrnað verulega
og afkoma heimila fer versnandi.
Innlendur sparnaður hefur dregist
stórlega saman og lánsfjárkreppa
ríkir í landinu. Fjöldaatvinnuleysi
er á næsta leiti að sögn talsmanna
ríkisstjórnarinnar, ef fram heldur
sem horfir.
★
Flokksráðs- og formannaráð-
stefnan lýsir ábyrgð á hendur rík-
isstjórninni fyrir að virða að vett-
ugi eðlilegar kröfur stjórnar-
andstöðunnar í ágúst um að kalla
þing saman og efna til kosninga í
haust. Jafnframt lýsir fundurinn
eindregnum stuðningi við þau
sjónarmið, sem formaður Sjálf-
stæðisflokksins setti fram í við-
ræðunum við ríkisstjórnina í
október, að þing yrði rofið, stjórn-
in segði af sér og efnt yrði til
kosninga.
Ríkisstjórnin hefur misst öll tök
á efnahagsmálum þjóðarinnar og
skortir starfhæfan meirihluta á
Alþingi. Hún er með öllu ófær um
að leysa þann vanda.sem steðjar
að þjóðinni.
Eftir fjögurra ára stjórnarsetu
draga forystumenn Alþýðubanda-
lagsins og Framsóknarflokksins
upp ófagra mynd af ástandi þjóð-
mála. Þeir staðfesta, að þjóðin sé
að sökkva í skuldafen og efna-
hagslegt sjálfstæði hennar í
hættu. Þeir viðurkenna að of lítið
hafi verið gert og of seint. Þess
vegna sér Alþýðubandalagið
ástæðu til að leggja fram sérstaka
neyðaráætlun með höftum og
skömmtun til næstu fjögurra ára
vegna þeirrar kreppu, sem stefna
þess og aðgerðarleysi í atvinnu-
málum á liðnum árum hefur leitt
til.
Niðurtalningarstefna Fram-
sóknarflokksins hefur breyst í
andhverfu sína. Verðlagið hefur
verið upp en kaupið talið niður.
Viðbrögð Framsóknarflokksins
eru þau að lögfesta beri verðbólg-
una. Þetta staðfestir að þeir skilja
ekki lengur samhengið milli eigin
ákvarðana og ríkjandi ástands.
★
Sjálfstæðisflokkurinn beitti sér
fyrir því í upphafi sjöunda áratug-
arins, að leysa atvinnulíf lands-
manna úr fjötrum millifærslu-
kerfis, hafta og miðstýringar. Með
því að gefa einstaklingnum eðli-
legt svigrúm var snúið frá stöðnun
til framfarasóknar og viðreisnar
efnahagslífsins. Nú er svo komið
að hefja þarf á ný endurreisn
efnahags- og atvinnulífs.
Stemma verður stigu við því
upplausnarástandi, sem nú ríkir í
málefnum þjóðarinnar. Ekki er
lengur hægt að láta ábyrgðarleysi
og sýndarmennsku mola undir-
stöður atvinnulífsins. Treysta
verður atvinnu landsmanna með
því að leysa atvinnulífið á ný úr
viðjum ríkisafskipta, auka þjóðar-
framleiðsluna og bæta afkomu
heimilanna. Gefa þarf einstakl-
ingunum tækifæri til að beita
hugviti sínu og atorku til nýrra
átaka í atvinnuuppbyggingu.
Sjálfstæðisflokkurinn vill:
1. Hefja sókn í atvinnumálum til
að koma í veg fyrir atvinnu-
leysi, sem nú blasir við.
2. Treysta á ný efnahagslegt
sjálfstæði þjóðarinnar, stöðva
söfnun eyðsluskulda og ná
efnahagslegu jafnvægi með
lækkun verðbólgu. Ríkið gangi
á undan með því að draga úr
skattheimtu og útgjöldum og
takmarki sjálfvirkar greiðslur
úr ríkissjóði.
3. Færa vald til einstaklinga og
sveitarfélaga, skerpa skil milli
verkefna ríkis og sveitarfélaga
og færa beina skattheimtu í
hendur sveitarstjórna. Afnum-
in verði óþarfa íhlutun og af-
skipti ríkisvaldsins.
4. Láta þá, sem taka efnahagsleg-
ar ákvarðanir, bera ábyrgð á
þeim, hvort sem í hlut eiga
stjórnvöld, hagsmunasamtök,
Flokksráðs- og formannaráð-
stefna Sjálfstæðisflokksins, hald-
in í Reykjavík 3. og 4. desember
1982 ítrekar samþykkt síðasta
landsfundar um nauðsyn leiðrétt-
ingar á kjördæmaskipan og kosn-
ingalögum.
Ráðstefnan leggur áherslu á að
fyrirtæki eða einstaklingar.
5. Bæta og jafna starfsskilyrði
atvinnuveganna, þannig að vel
rekin fyrirtæki geti skilað arði
og aukið framleiðslu og fram-
leiðni. Horfið verði frá núll-
rekstrarstefnunni, sem veldur í
raun taprekstri. Tekið verði
upp frjálst verðmyndunar-
kerfi.
6. Hverfa frá hringlandahætti
núverandi stjórnvalda í geng-
ismálum og miða skráningu
gengis við stöðu atvinnuvega
og jafnvægi sé í utanríkis-
viðskiptum.
7. Örva framtak einstaklinga og
uppbyggingu atvinnufyrir-
tækja þ.á m. með afnámi
tekjuskatts á almennar launa-
tekjur. Jafnframt verði tryggt
að sparnaður í formi hlutdeild-
ar atvinnufyrirtækjum njóti
sömu skattmeðferðar og gildir
nú um sparifé.
8. Leita samstarfs um uppbygg-
ingu orkufreks iðnaðar við inn-
lenda og erlenda aðila, er ráða
yfir fjármagni og tækniþekk-
ingu og eiga greiðan aðgang að
mörkuðum. Lögð verði áhersla
á nýtingu innlendra orkulinda,
svo að unnt sé að létta á þeirri
miklu byrði sem orkukostnað-
urinn er mörgum landsmönn-
um.
9. Láta arðsemi ráða fjárfestingu
til að fjármagn þjóðarinnar
nýtist sem best og hverfa frá
jafnað verði vægi atkvæða milli
einstaklinga og kjördæma og
þingmannatala stjórnmálaflokk-
anna verði í samræmi við fylgi
þeirra í landinu.
Ráðstefnan ætlast til þess að
þessar breytingar nái fram að
Sameinuðu þjóðanna og standa
vörð um frjáls milliríkjavið-
skipti.
★
Við þær erfiðu aðstæður sem nú
ríkja er brýnt að þjóðin fái tæki-
færi og hvatningu til þess að
vinna sig út úr vandanum.
Flokksráðs- og formannaráð-
stefnan minnir á, að skynsamleg
nýting takmarkaðra auðlinda er
undirstaða þess að hægt sé að
njóta lífskjara eins og þau gerast
best í veröldinni. Hefja þarf nýja
sókn til að vernda náttúru lands-
ins og tryggja að ekki verði spillt
lífi, lofti, láði né legi. Bæta þarf
gróður og koma í veg fyrir rýrnum
landkosta. Það mun í framtíðinni
skila þjóðinni meiri afrakstri og
fjölbreyttara atvinnulífi.
Sjálfstæðisstefnan hefur reynst
þjóðinni best á umliðnum áratug-
um og á rætur með þjóðinni allri.
Meginforsenda þeirrar stefnu er
sú sannfæring, að hagsmunir allra
íslendinga fari saman hvar í stétt
sem þeir standa og hvar á landinu
sem þeir hafa valið sér búsetu.
Þjóðlegur menningararfur, kirkja
og kristindómur verði hér eftir
sem hingað til leiðarljós sjálf-
stæðisstefnunnar.
Flokksráðs- og formannaráð-
stefnan skorar á sjálfstæðismenn
um land allt að fylkja sér til sig-
urs í komandi kosningabaráttu
þjóðinni allri til heilla.
ganga áður en gengið verður til
næstu alþingiskosninga og felur
þingflokknum að fylgja málinu
eftir. Jafnframt verði endurskoð-
un stjórnarskrárinnar í heild
hraðað, svo því verki megi verða
lokið sem fyrst.
Alyktun flokksráðs- og formannaráðstefnu Sjálfstæðisflokksins:
Leiðrétting á kjördæma-
skipan og kosningalögum