Morgunblaðið - 07.12.1982, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1982
19
Fundur um „Samruna
löggjafarvalds og
framkvæmdavalds“
ORATOR, Télag laganema, heldur
almennan félagsfund um málefnið:
„Samruni löggjafarvalds og fram-
kvæmdavalds", nk. miðvikudags-
kvöld, 8. desember, kl. 20.30 í stofu
101 Lögbergi.
Frummælendur verða Vilmund-
ur Gylfason alþingismaður og
prófessor Sigurður Líndal.
Fundurinn er öllum opinn og
aðgangur ókeypis.
Höfn:
Rúmlega 33 þúsund fjár slátrað
Höfn, 3. denember.
Heildarsláturfjártala hjá Kaupfélagi
Austur-Skaftfellinga var 33.351 kind
eða 463 færri en í fyrra.
Meðalvikt var 13,31 kg eða 9
grömmum minna en í fyrra. Mesta
meðalvikt eftir sveitum var úr Öræf-
um, 13,79 kg. Mesta meðalvikt
þeirra, sem lögðu inn 100 dilka eða
fleiri átti Eyþór Ragnarsson, Skála-
felli, 15,5 kg, en hæsta meðalvikt átti
Bergur Þorleifsson, Flatey, 15,8 kg.
Mestar afurðir eftir eina á átti Sigf
urjón Jónsson, Smyrlabjörgum, 70
kg, en það voru þrílemingar.
— Gunnar
Togveiðar bannaðar í
Þverál og Strandagrunni
AÐ UNDANFÖRNU hefur ítrekað verið gripið til skyndilokunar svæða í
Þverál og Strandagrunni vegna þess að þorskur í afla togara hefur reynst
undir viðmiðunarmörkum.
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
því að tillögu Hafrannsóknastofn-
unar gefið út reglugerð um bann
við togveiðum á þessum svæðum.
Samkvæmt reglugerð þessari eru
allar togveiðar bannaðar frá og
með 7. desember til og með 5.
janúar nk. á svæði, sem markast
af línu dreginni um eftirgreinda
punkta:
1. 66°47’2N 23°08’V, 2. 66°57’0N
23°21’0V, 3. 67°01’N 22°12’3V, 4.
67°13’2N 22°24’5V, 5. 67°16’1N
21°18’2V, 6. 67°03’4N 21°09’3V, 7.
67°05’4N 20°29’2V, 8. 66°40’2N
20°35’5V,9. 66°38’2N 21°08’7V, 10.
66°54’1N 21°18’2V.
Gallerí Langbrók:
Munir úr Dalaleir á sýningu
í GALLERÍ Langbrók hefur verið
opnuð sýning á leirmunum, sem
Kolbrún Björgólfsdóttir leirlista-
maður hefur unnið úr Dalaleirnum
svokallaða.
A sýningunni eru smámunir
ýmiss konar, skálar, krúsir og vas-
ar. Kolbrún hefur annast til-
raunavinnslu á Dalaleirnum.
Meðfylgjandi mynd ef af Kol-
brúnu við nokkra af munum þeim,
sem hún hefur gert.
Frædslufundur um fjárfestingar-
og ávöxtunarmöguleika almennings
MIÐVIKUDAGINN 8. desember
efnir Kaupþing hf. til almenns
fræðslufundar um efnið „Hagkvæm-
ustu fjárfestingar- og ávöxtunar-
möguleikar almennings”.
Fundurinn verður haldinn að
Hótel Loftleiðum (Kristalsal) og
hefst kl. 20.30. Erindi flytur dr.
Pétur H. Blöndal, trygginga-
stærðfræðingur.
Fjallað verður m.a. um fjárfest-
ingu í spariskírteinum, happ-
drættisskuldabréfum, veðskulda-
bréfum einstaklinga, fasteignum,
hlutabréfum, vörubirgðum, lista-
verkum, eðalsteinum og eðal-
málmum.
Að loknu erindi verða frjálsar
umræður og fyrirspurnum svarað.
Öllum er heimill aðgangur, meðan
húsrúm leyfir.
„Hnefahögg í andlit þeirra
þúsunda sjálfstæðismanna ...
Vfirlýsing Gunnars Thoroddsen, forsætisráðherra á flokksráðsfundi Sjálfstæðisflokksins 4. desember 1982
í ræðu Geirs Hallgrímssonar í
gær komst hann svo að orði:
„Þessi mikli sigur Sjálfstæðis-
flokksins í sveitarstjórnakosning-
unum var jafnframt ótvíræður
dómur kjósenda um þá vinstri
stjórn, sem setið hefur að völdum
í nærfellt þrjú ár. Þessi úrslit eru
sú eina skoðanakönnun, sem mark
er takandi á.“
Geir leyfir sér að kalla ríkis-
stjórn undir forsæti sjálfstæð-
ismanns „vinstri stjórn". Ætli
næsta skref hans verði ekki það að
kalla nýsköpunarstjórn Ólafs
Thors vinstri stjórn, af því að
Ólafur hafði bæði Sósíalistaflokk-
inn og Alþýðuflokkinn með sér í
þeirri stjprn?
Slík innantóm slagorð eru ekki
samboðin formanni Sjálfstæðis-
flokksins.
En hitt er alvarlegra: Hnefa-
höggið í andlit þeirra þúsunda
sjálfstæðismanna um land allt,
sem styðja ríkisstjórnina og sem
af alefli studdu framboð Sjálf-
stæðisflokksins í öllum sveitarfé-
lögum.
Slík orð og hugarfar greiða ekki
götu einingar.
Að því er varðar okkur sjálf-
stæðismenn í ríkisstjórn, þá erum
við Friðjón Þórðarson og Pálmi
Jónsson ekki minni sjálfstæðis-
menn en Geir Hallgrímsson. Ný-
lega hefur Pálmi fengið traustsyf-
irlýsingu frá sjálfstæðismönnum i
sinu kjördæmi með yfirburðasigri.
Ég efa ekki, að Friðjóni verði
einnig vottað slíkt traust í próf-
kjöri, sem framundan er á Vestur-
landi.
Við óskum þess ekki síður en
aðrir sjálfstæðismenn, að sam-
komulag náist.
Við skulum vona, að þrátt fyrir
þessi og önnur mistök formanns-
ins auðnist sjálfstæðismönnum að
ná sáttum, svo að Sjálfstæðis-
flokkurinn verði að nýju heill og
samstæður flokkur.
Skipasmíðastöð
Marselíusar á ísafirði:
Nokkrir sýna
áhuga á að
kaupa stöðina
ísafirði, 2. desembi‘r.
EIGNIR M. Bernharösson hfM skipa-
smíðastöðvar á ísafirði, hafa verið
auglýstar til sölu. Eignirnar eru boðn-
ar til sölu í heilu lagi eða hlutum, en
um er að ræða tvær dráttarbrautir,
skála fvrir skipasmíði, járnsmíðaverk-
stæði, trésmíðaverkstæði, bifreiða-
verkstæði, járnvöruverzlun og lager
og skrifstofuhúsnæði.
Ástæða þess að fyrirtækið er
auglýst til sölu er sú, að engin verk-
efni liggja nú fyrir hjá stöðinni.
Staða fyrirtækisins er talin traust
þó svo að kreppt hafi að með lausa-
fjármagn og verkefnaskortur næstu
mánuði geri útlitið nú dökkt.
Hjá fyrirtækinu hafa starfað allt
upp í 60 manns þegar mest hefur
verið, en nú starfa þar um 20
manns. Fyrirtækið hefur starfað í
yfir 30 ár og er eina skipasmíða-
stöðin á Vestfjörðum.
Vitað er að nokkrir aðilar og þeir
víðar en á Isafirði hafa sýnt áhuga
á að athuga með kaup á fyrirtæk-
inu.
— (llfar
Athugasemd
frá rétthöfum myndbanda
á Islandi
MORGUNBLAÐINU barsl í gær eft
irfarandi athugasemd frá Gunnari
Guðmundssyni hdl., framkvæmda-
stjóra Samtaka rétthafa myndbanda á
íslandi:
Samtök rétthafa myndbanda á
íslandi vilja leiðrétta misskilning
þann sem kemur fram hjá forsvars-
mönnum Kapalkerfis í Vík í Mýr-
dal, í Mbl. þann 05.12. ’82, varðandi
synjun Myndbandaleigu kvik-
myndahúsanna á útleigu mynd-
bandefnis til Kapalkerfis.
Myndbandaleigur leigja almennt
ekki út myndefni nema til notkunar
í heimahúsum. Sé myndbandaefni
sem einungis er leigt út til heimil-
isnota notað í kapalkerfi er um
opinbera birtingu að ræða og slíkt
ólöglegt með öllu og getur leitt til
málshöfðunar af hendi rétthafa
viðkomandi efnis.
í sumum tilvikum hafa innlendir
rétthafar þó rétt á myndefni fyrir
kapalkerfi og verður þá að semja
sérstaklega um greiðslu fyrir slíka
leigu hjá viðkomandi rétthafa, sem
mun veita fyllri upplýsingar um
hvaða efni er að ræða.
KJÖTMIÐSTÓPIM Laugalaek 1. s. 86SII
Opið öll hádegi í desember
Úrbeinuð hangilæri
Úrbeinaðir hangiframpartar
Úrbeinuö ný lambalæri
Úrbeinað fullt ávaxtalæri
Úrbeinaðir lambahryggir
Úrbeínaðir nýir frampartar
Lambageiri
Lamba herrasteik (úrb. framhryggur
London lamb sértilboð
Lambaschnitzel
Lambapottsteik (smágullasch)
Lambahamborgarhryggur
Okkar verð
139,70
99,00
109,00
109,00
129,00
86,00
129,00
kryddaður) 86,00
117,50
139,00
119,00
89,00
Skráð verö
174,25
125.70
141,00
142,00
163.70
114,85
160,00
115,00
142,00
165,00
* 145,00 „
111,00