Morgunblaðið - 07.12.1982, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1982
23
Níræð í dag:
Helga Friðbjarnar
dóttir Hofsósi
í dag, 7. desember, á amma mín,
Helga Friðbjarnardóttir, 90 ára
afmæli. Hún fæddist að Brekku-
koti í Blönduhlíð í Skagafirði og
voru foreldrar hennar Anna Jóns-
dóttir og Friðbjörn Pétursson frá
Vatnsleysu.
Árin í kringum aldamótin
reyndust ýmsum erfið en því láni
átti amma að fagna að móðir
hennar þótti dugmikill vinnu-
kraftur og sá til þess að börnin
hennar spjöruðu sig í hinni hörðu
lífsbaráttu. Með þennan góða
móðurarf fór amma ung að takast
á við lífið og um fermingu var hún
byrjuð að vinna fyrir sér vestan
vatna. Alls staðar þótti hún dug-
míkill vinnukraftur og reyndist
lífsgleði hennar og kátina góður
förunautur.
15. september 1915 var mikill
hamingjudagur í lífi ömmu þegar
hún giftist Birni Þórhalli Ast-
valdssyni frá Á í Unudal. Þau
amma og afi settu fyrst saman bú
að Bakka í Viðvíkursveit en fluttu
síðan að Hofsgerði á Höfðaströnd.
Lengstan sinn búskap bjuggu þau
á Litlu-Brekku í Hofshreppi en
þaðan fluttu þau 1953 er þau héldu
til Hofsóss og keyptu Staðarbjarg-
ir þar sem amma bý enn. Björn
Þórhallur lést 30. september 1962.
Þessar fátæklegu línur mínar
segja ekki nema litla sögu af lífs-
hlaupi þessarar gæðakonu. Mig
skortir fróðleik um þá miklu bar-
áttu sem efnalítil þjóð þurfti að
heyja í byrjun þessarar aldar.
Lýsingar sem skráðar hafa verið á
bækur segja ekki nema lítið brot
af þeirri sögu sem aldamótskyn-
slóðin tekur með sér yfir landa-
mæri lífs og dauða. Þó amma hafi
aldrei lagt það í vana sinn að
kvarta yfir kjörum sínum og
hlutskipti þá veit maður að hún
hefur einhvern tímann þurft að
beita útsjónarsemi og lagni til að
fæða og klæða börnin sín 11 sem
hún skilaði til fullorðinsáranna.
En það tókst þeim ömmu og afa að
gera og þegar þessar línur eru
skrifaðar eru afkomendurnir
orðnir 155.
90 ár eru langur tími í lífi ein-
staklings. Flestir þeir sem ná slík-
um aldri verða þó áður en honum
er náð að sætta sig við leikreglur
elli-kerlingar. En amma hefur átt
því láni að fagna að halda undan-
tekningarlítið fullri heilsu öll
þessi ár. Ég er ekki í nokkrum efa
að bjartsýni hennar og lífsgleði
hefur ráðið miklu þar um.
Á þeim brotakenndu tímum sem
við lifum er okkur svo gjarnt að
benda á dekkri hliðar mannlífsins
og finna að sem flestu í fari mann-
anna. Þetta sjónarmið hefur
Helga Friðbjarnardóttir ekki gert
að sínu og þann aldarfjórðung sem
ég hefi lifað man ég aldrei eftir
ömmu öðru vísi en með góðlátlegu
brosi þar sem hún stóð við kaffi-
könnuna á Staðarbjörgum og
bætti ögn af kúmeni út í til að
bragðbæta kaffið.
Við sem áttum þess kost að
heimsækja þig amma mín um síð-
ustu helgi munum ekki gleyma
þeirri heimsókn í bráðina. Það
hefur alltaf verið gott að koma í
Skagafjörðinn og vefja þig hlýjum
örmum. Að koma inn í litla húsið
þitt og skoða allar myndirnar og
lifa sig inn í þær minningar sem
þeim eru tengdar er mikil til-
breyting frá hinu daglega amstri. .
Ég vil nota tækifærið hér til að I
þakka þeim Bjössa og Svönu fyrir I
móttökurnar sem við fengum en
þau hafa reynst þér góðir drengir
í mörg ár.
Amma mín, þessar línur mínar
eiga að vera einhverskonar þakk-
lætisvottur fyrir vettlingana og
sokkana sem þú hefur sent mér í
gegnum árin. Ég vona að það fari
vel um þig á afmælisdaginn, það
munu margir hugsa hlýlega heim
að Staðarbjörgum í dag. Ég sendi
þér mínar bestu óskir í tilefni
dagsins og megi góðar vættir vaka
yfir gjörðum þínum.
Arnar Björnsson
VZterkurog
k-J hagkvæmur
auglýsingamiöill!
Vorum að fá þessi
gullfallegu húsgögn
Ármúla 44 - Símar€5153 og 32035
festing
fyrir létta og þunga hluti. hefur grip og hald.
ffilIsSílICB fæst í flestum byggingavöruverslunum.
Ólafur Kr. Guðmundsson
c/o Trévirki hf.
„Allir fagmenn hljóta að þekkja Thorsmans boltana og vita um þeirra festigetu, enda er Thorsmans nafnið
gæðamerki sem allir geta treyst.“
Ef óskað er eftir sýnishornum af ofanskráðu efni frá Thorsmans þá góðfúslega fyllið út
þennan miða. Sýnishornin eru send án endurgjalds.
1
Nafn:
Heimilisfang:
Staður:
JOHAN RÖNNING HF ^’otoöb