Morgunblaðið - 12.12.1982, Síða 35
35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 1982
Gallerý Háholt í Hafnarfirði:
Einar Einarsson og Snorri
Daníel sýna 120 málverk
ÞESSA dagana sýna verk sín í Há-
holti í llafnarfirði, Einar Einarsson
og Snorri Daníel Halldórsson. Sýn-
ingin var opnuð hinn fjórða desem-
ber, og henni lýkur hinn 19. desem-
ber. Samtals eru á syningunni 120
verk, Einar sýnir 54 málverk, og
Snorri Daníel 66 verk. Sýningin er
sölusýning, og eru flest verkanna til
sölu. í dag klukkan 15 mun Manu-
ela Wiesler flautuleikari leika á sýn-
ingunni.
Einar Einarsson er fæddur í
Vestmannaeyjum árið 1930. Hann
fluttist ungur til Reykjavíkur, og
lagði stund á vélvirkjanám í
Vélsmiðjunni Héðni og síftar við
Iðnskólann í Reykjavík og hann
lauk Vélskólaprófi 1954. Þá lagði
hann stund á framhaldsnám í
Bandaríkjunum, og hann hefur
starfað hjá teiknistofu Hitaveitu
Reykjavíkur frá 1960.
„Ég hef allt frá barnæsku feng-
ist við að mála,“ sagði Einar í
spjalli við blaðamann Morgun-
blaðsins í vikunni, „og það kom sér
oft vel meðan á skólagöngu stóð að
mála myndir og drýgja tekjur
mínar með sölu á einni og einni
mynd. Þegar ég fór til Bandaríkj-
anna hafði ég með mér skyssur og
málverk. Það kom mér á óvart
hvað Ameríkanar ásældust þessi
íslensku landslagsmálverk mín.
Ég var búin að vera um það bil tvö
ár í Ameríku án þess að hafa
heyrt íslenskt orð. Þá rekst ég inn
á veitingahús skammt hjá þar sem
ég vann, og allt i einu heyri ég
íslenskt mál talað við hliðina á
mér, og voru þetta þá hjónin Jó-
hann Eyfells og Kristín Eyfells,
þarna urðu miklir fagnaðarfundir
og áttu þau þá heima mjög
skammt frá þar sem ég bjó. Þau
bjuggu í mjög skemmtilegu húsi,
þar sem kjallarinn var vinnustofa.
Jóhann bauð mér að mála með sér,
sem ég þáði og unnum við þar
mikið saman og áttum gott og
skemmtilegt samstarf.
Ég er nú búinn að byggja mér
hús þar sem ég hef góða vinnu-
stofu og hef aðstöðu til að mála og
ganga frá málverkum."
„Ég var einn af stofnendum Frí-
stundamálarafélags íslands,“
sagði Snorri í samtali við Morgun-
blaðið við sama tækifæri, „með
þeim Axel heitnum Helgasyni í
Nesti og Helga S. Jónssyni, sem nú
er í Keflavík. Við vorum þá 30
talsins, karlar og konur. Við héld-
um svo samsýningu í gamla Lista-
mannaskálanum hér í Reykjavík.
Síðan stofnuðum við skóla að
Laugavegi 166. Aðal kennarinn
var skoskur listamaður Dr. Weiz-
el, mjög góður. Ég hélt svo áfram,
og hélt einkasýningu að Hótel HB
Vestmannaeyjum, sem gekk mjög
Þrír aðstandendur plötunnar um Alla og Heiftu. Frá vinstri: Leó Löve hjá
ísafoldarprentsmiftju, Ragnheiftur Steindórsdóttir og Aftalsteinn Bergdal.
Heifta heldur á plötunni, en Alli á bókinni sem fylgir. Morgunbiaíift/KÖE.
Snorri Daníel Halldórsson vift tvö verka sinna á sýningunni, til vinstri er
mynd frá Reykjavíkurhöfn.
Einar Einarsson við nokkur verka sinna á sýningunni; portrett af hinum
þjóðkunnu mönnum, dr. Bjarna Benediktssyni, Ómari Ragnarssyni og Jó-
hannesi Sveinssyni Kjarval.
vel, síðan nokkrar yfirlitssýningar
að Týsgötu. Hélt einkasýningu að
Hamragörðum 1978, sem tókst
líka mjög vel. Tók þátt í samsýn-
ingu, sem Verslunarmannafélag
Reykjavíkur efndi til í Listasafni
Alþýðu. Fyrsta myndin, sem seld-
ist var eftir mig. Að þessu sinni
sýni ég í Háholt Hafnarfirði, 44
olíumálverk og 26 vatnslitamyndir
allar unnar slðastliðin ár. Háholt
Hafnarfirði, sýningarsalur Þor-
valdar Guðmundssonar er einhver
allra skemmtilegasti sýningarsal-
ur, sem við íslendingar eigum.“
ísafoldar-
prentsmiðja
gefur út
sína fyrstu
hljómplötu
ísafoldarprentsmiðja hf. er 105
ára á þessu ári og er elsta starfandi
prentsmiöja á íslandi. Prentsmiðjan
gefur nú út sína fyrstu hljómplötu, á
105 ára afmælinu. Þaft er barnaplat-
an „Alli og Heiða“, sem er ætluft
hlustendum sem eru um þaft bil 100
árum yngri en útgefandinn. Maft
plötunni fylgir bók þar sem eru text-
ar af plötunni, en auk þess tengir
stutt saga textana.
Flytjendur á hljómplötunni eru
leikararnir Aðalsteinn (Alli)
Bergdal og Ragnheiður (Heiða)
Steindórsdóttir, en Hannes Bald-
ursson leikur á píanó.
Lögin og upphaflegir textar eru
eftir danskan mann, Asger Ped-
ersen, en Óskar Ingimarsson
þýddi og staðfærði textana. Ólöf
Knudsen teiknaði plötuumslag og
myndir í bókina.
Stykkishólmur:
Gód
hausttíð
Þegar litið er á heildina er
óhætt að fullyrða að haustveður
hafa verið góð í Stykkishólmi
þetta haust og það sem af er vetri.
Veðurblíða og fagurt útsýni yfir
eyjar og sund og einnig til fjalla.
Vegir hafa ekki teppst og hefir
rútan ætíð haldið áætlun og fer
ennþá eftir sumaráætlun.
Við vonum að tíð verði okkur
hliðholl áfram.
Fréttaritari.
HLJÐMBÆR
HLJOM-HEIMILIS-SKRIFSTOFUTÆKI
HVERFISGÖTU 103
SIMI 25999
17244
(U) PIOIMEER'
x-noo
HI-FI SYSTEM
3ia ára ábvrgð
Eins og þú
sérð hana..
er jólatilboð
okkar