Morgunblaðið - 12.12.1982, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 1982
37
Bridge
Arnór Ragnarsson
Hreyfill — Bæjarleiðir
Fjórum umferðum af 11 er
lokið í aðalsveitakeppni bílstjór-
anna og er staða efstu þessi: sveita
Daníel Halldórsson 78
Anton Guðjónsson 77
Birgir Sigurðsson 54
Jón Sigurðsson 50
Steingrímur Aðalsteinsson 47
Mikhael Gabríelsson 46
Næsta umferð verður spiluð á mánudagskvöld í Hreyfilshúsinu
kl. 20.
Bridgedeild Breiðfirðinga
Að loknum 14 umferðum í að- alsveitakeppninni er staða efstu
sveita þessi: Hans Nielsen 228
Kristín Þórðardóttir 199
Óskar Þór Þráinsson 182
Ingifcjörg Halldórsdóttir 178
Elís R. Helgason 174
Steingrímur Jónasson 169
Bragi Bjarnason 163
Gróa Guðnadóttir 152
Daníel Halldórsson 147
Sigríður Pálsdóttir 145
Næstu tvær umferðir verða
spilaðar á fimmtudaginn í
Hreyfilshúsinu og hefst keppni
stundvíslega kl. 19.30.
Bridgefélag
Reykjavíkur
Gífurleg keppni er í aðal-
sveitakeppni félagsins sem kom-
in er á lokastig. Þrjár sveitir
eiga fræðilegan möguleika á
sigri en staða efstu sveita er
þessi fyrir siðustu umferð:
Sævar Þorbjörnsson 253
Jón Hjaltason (og fr.leik) 236
Karl Sigurhjartarsson 212
Ólafur Lárusson 212
Þórarinn Sigþórss. (og fr. leik) 211
Siðasta umferðin verður spil-
uð á miðvikudaginn. í Domus
Medica.
Bridgefélag
Breiðholts
Sl. þriðjudag var spilað annað
kvöldið í Barometer-tvímenri-
ingnum sem stendur yfir.
Staða efstu para:
Rafn Kristjánsson
— Þorsteinn Kristjánsson 85
Sigurbjörn Ármannsson
— Björn Björnsson 79
Helgi Nielsen
— Ragnheiður Nielsen 52
Þórarinn Árnason
— Gunnlaugur Guðjónsson 38
Sverrir Þórisson
— Haukur Margeirsson 33
Á þriðjudaginn verður ekki
spilað, en miðvikudaginn 15. des-
ember verður spilaður eins
kvölds tvímenningur. Síðasta
kvöldið í barometernum verður
spilað 21 desember en það verður
síðasta spilakvöldið fyrir ára-
mót.
Spilað er í húsi Kjöts og fisks í
Seljahverfi kl. 19.30.
Fróöleikur og
skemmtun
fyrirháa sem lága!
HUSGOGNIN!
Nú getur þú tekiö þátt í skemmtilegri
verölaunasamkeppni og hlotið góð
verðlaun í jólagjöf, ef heppnin er með þér!
Nýja húsgagnalínan frá Víði h/f
er hönnuð af hinum þekkta finnska
arkitekt Ahti Taskinen. Húsgögnin voru
fyrst sýnd í Kaupmannahöfn þar sem þau
hlutu verðskuldað lof og vöktu
talsverða athygli. Nú eru húsgögn þessi
komin á íslenskan markað, enda
framleidd af íslenskum fagmönnum hjá
Trésmiðjunni Víði í Kópavogi.
Eitt vantar þó ennþá - gott nafn á
framleiðsluna.
Þess vegna snúum við okkur til þín og
bjóðum þér að taka þátt í
verðlaunasamkeppni um besta nafnið
á nýju húsgögnin.
Samkeppnin
er afar eínföld:
1 Komdu við á einhverjum af útsölu-
stöðum okkar og skoðaðu húsgögnin.
Fáðu sérstakt eyðublað um leið.
m .. . . ——______ ,
Sendu okkur eyðublaðið með
• áritaðri tillögu þinni fyrir 20.
desember n.k..Heimilisfangið er:
Trésmiðjan Víðir h/f
POB: 209
200 Kópavogi.
4Á Þorláksmessu tilkynnirdómnefndin
•ákvörðun sýna og veitir verðlaun
fyrir besta nafnið.____________________
5 Verðlaunin eru stórglæsilegt sófasett
w#hannað af Taskinen.
Dómnefndina skipa Lovísa Christiansen híbýlafræðingur,
Reimar Charlessonfrkv.stjóri og Ólafur Stephensen frkv.stjóri
Húsgögnin eru til sýnis á eftirfarandi stöðum:
VERSLUN SIGURÐAR PÁLMASONAR HVAMMSTANGA
BJARG AKRANESI
HUSPRYÐI BORGARNESI
HUSIÐ STYKKtSHOLMI
SERIA ISAFIRÐI
0SBÆR BLONDUOSI
BOLSTURGERÐIN SIGLUFIREH
DUUS KEFLAVlK
AUGSÝN AKUREVRI
BlLAR OG BÚSLÖÐ HÚSAVlK
VERSL.F. AUSTURLANDS EGILSSTOÐUM
KJÓRHUSGOCN SELFOSSI
HÚSGAGNAVERSLUNIN REYNISSTAÐIR VESTMAN NAEY JU M
J.L. HUSIÐ REYKJAVK
HATUN SAUÐARKR0KI