Morgunblaðið - 12.12.1982, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 1982
45
Heitt og kalt
Bókmenntir
Sveinbjörn I. Baldvinsson
Nína Björk Árnadóttir:
SVARTUR HESTUR f MYRKRINU
Ijóð, 67 bls. Mál og menning.
l>essi fimmta Ijóðabók Nínu
Bjarkar skiptist í tvo kafla. Hinn
fyrri nefnist „Með kórónu úr skýi“,
en hinn síðari „Fugl óttans". í fyrri
kaflanum eru Ijóð af ýmsu tagi, flest
persónuleg. Þar er til dæmis fallegt
ástarljóð sem heitir „Júnínótt, Ijóð
fyrir flautu". Það endar svona:
' ... Svo heit
voni hjörtu okkar
svo heit
ad frostið getur
aldrei
framar hert þau
og alltaf síAan
syngjum við
í blóöi
hvors annars
alltaf síóan syngjum við
í blóði
hvors annars
í þessum kafla er og að finna
ljóð sem eru tileinkuð Tómasi
Guðmundssyni, Jökli og Stefáni
Herði. Hér er einnig titilljóðið,
„Svartur hestur í myrkrinu", sem
virðist vera í ætt við landslags- og
ættjarðarrómantík samtaka
herstöðvaandstæðinga og ní-
tjándualdarskáldanna. Það hefst
svona:
f myrkrinu kemur hann til mín
sorg hans er söngurinn um gleymsku þjóðar
gleymt hefur hún
að standa vörð um frelsið
Nína Björk Árnadóttir
Hestur þessi hinn svarti kemur
við sögu síðar í bókinni og í bók-
arlok er greint frá vissu hans um
að hann muni mæta þjóð sinni af-
tur við heiðina „og þá þeysir hann
með hana/inn í daginn/inn í bláan
— bjartan daginn“.
í síðari hluta bókarinnar eru
ljóð sem öll eru, að minnast kosti
á yfirborðinu, ort fyrir munn ann-
arra en skáldsins sjálfs og heita í
samræmi við það t.d. „Heiða“,
„Jóna og Lilla“, „Doddi“ og „Hún
og manneskjan”. Mörg þessara
ljóða lýsa fólki sem á við geðræn
vandamál að stríða og sum þeirra
a.m.k. lýsa atvikum og stemmn-
ingu á geðdeild á sjúkrahúsi. önn-
ur lýsa svo atvikum og stemmn-
ingu sem verða til þess að fólk
hafnar á slíkri deild. Þarna er á
ferðinni sú tegund skáldskapar
sem mjög hefur tíðkast á Norður-
löndum siðustu ár og verið nefnd-
ur af sumum „vandamálakveð-
skapur“ og þykir niðrandi ein-
kunn.
Ljóðin í þessum kafla eru
„opnari“ og hversdagslegri en
Ijóðin í fyrri kaflanum og sum
þeirra eru nánast litlar smásögur,
sem kannski mætti kalla „örsög-
ur“. Erfitt er að vitna í þessi ljóð,
sakir frásagnareðlis þeirra, en
sum þeirra eru athyglisverð en
ekki voru mörg sem hrifu mig, þó
get ég nefnt „Bréf frá Heiðu“. Eg
vona sannarlega, að þessi kafli sé
ekki byggður á reynslu Nínu
sjálfrar, hennar vegna, því hér eru
á ferðinni dapurlegar og uggvæn-
legar lýsingar á því sem lífið býð-
ur sumu fólki upp á. En flest af
því fannst mér ég hafa heyrt áður.
Ég varð fyrir vonbrigðum með
þessa bók, enda hafði ég búist við
töluvert miklu. Einkum þykir mér
seinni hlutinn einhvern veginn
fjarlægur og kaldur þrátt fyrir
allan þann mannlega sársauka
sem þar er í raun verið að segja
frá. Ahrifin sem þessar örlagalýs-
ingar höfðu á mig voru einkum
þau, að ég var feginn því að þekkja
ekki þessa hlið tilverunnar nema
að litlu leyti. Ég held satt að segja
að Nína ætti að fjalla um þessi
mál á öðru formi en í ljóðum, því
það getur hún svo sannarlega, eins
og sást til dæmis á sjónvarpsleik-
ritinu „Hælið“ sem miðað við leik-
ritagerð sjónvarpsins þessi miss-
erin virðist vera tákn liðinnar
gullaldar.
„Júnínótt" er næstum eina ljóð-
ið í bókinni sem stóð undir þeim
kröfum sem ég hafði gert til
þeirra fyrirfram. Það er eins langt
frá því að vera „kait“ og hugsast
getur og að mínum dómi það lang-
besta í bókinni. Nú get ég ekki
annað en beðið spenntur eftir leik-
ritinu í Þjóðleikhúskjallaranum.
Úrvalsferöir urval
í 3 4 $ • 7 •
• 10 11 1« 13 14 1»
i« if ia 1* ao 2i »2
... iw ÍS 21 J? rt M
'j'
Almanaks-
happdrætti
Þroskahjálpar
Landssamtökin Þroskahjálp gefa
um þessi áramót út Almanaks-
happdrætti, eins og undanfarin ár.
Er almannakið fyrir árið 1983 lit-
prentað og fylgir hverjum mánuði
happdrættisvinningur. Eru allir vinn-
ingarnir tólf ferðir til útlanda á veg-
um Ferðaskrifstofunnar Úrvals.
Dregið verður 15. hvers mánaðar, og
kostar almanakið kr. 75,-. Selja
landssamtök þroskaheftra happ-
drættisalmanak sitt um allt land á
vegum félaganna, sem sjá um söl-
una.
Landssamtök þroskaheftra eru
nú að undirbúa byggingu sumar-
dvalarheimilis fyrir fatlaða í
Botni í Eyjafirði, en mjög vantar
slíkt heimili, þar sem óvíða er að-
gangur að orlofsbúðum sem fatl-
aðir geta notið. Mun ágóðinn af
happdrættisalmanakinu ganga til
þess verks. Undanfarin ár hefur
ágóðinn af happdrættinu verið
notaður til að koma upp gisti-
heimilinu í Kópavogi fyrir fólk
utan af landi, sem leitar með
þroskaheft börn sín til sérfræð-
inga í Reykjavík og gerði happ-
drættisalmanakið kleift að koma
því upp.
ió af
meginþorra
þjóðarinnar
daglega!
Auglýsinga-
síminn er224 80
HAIALARAR
Hefur þú kynnst sígildum hljómburði Scala óperunnar í Mílanó, Boston Symphony
Hall, Planetarium eða Royal Albert Hall í London?
Vissir þú að á slíka staði eru LU hátalarar valdir, auðvitað vegna hljómgæðanna?
Það er því engin tilviljun, að heimsfrægt kunnáttufólk á borð við Herbert von
Karajan, Miles Davis og strákana í hljómsveitinni Electric Light Orchestra (ELO)
kjósa □ hátalara til eigin nota, auðvitað vegna hljómgæðanna.
E1 hátalarar hafa einstakt tónsvið. Það sem skiptir þó öllu máli í reynd er hinn
hárnákvæmi tónblær þeirra, hvernig þeir endurhljóma nákvæmlega hin ólíkustu hljóð-
færi, einmitt þannig sem kunnáttufólk kýs og kann að meta.
FÁLKINN
Suöurlandsbraut 8, sími 85884