Morgunblaðið - 12.12.1982, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 1982
47
Einars að leiða rafmagnið í
Skerjafjörð, framleiða þar áburð
úr loftinu og ná köfnunarefnis-
áburðarmarkaði heimsins. Þótt
nýjar aðferðir kæmu svo fram, þá
stóðu virkjanirnar fyrir sínu.
Hefði aðeins þurft að endurskoða
áætlanir um áburðarverksmiðj-
una.
Kemst ekki hjá
að verða milljóner
— Einar var meira og minna
erlendis í 20 ár og bjó ríkmann-
lega, að því er fram kemur. Lifði
hann á þessu framlagða fé?
— Hann býr erlendis, kaupir
stóra villu við London og seinna
aðra á Friðriksberg við Kaup-
mannahöfn, en býr þess á milli á
Héðinshöfða, sem virðist nánast
eins og sumarbústaður fjölskyld-
unnar. Og þegar hann segir við
Sigfús Blöndal, að nú komist hann
ekki lengur hjá því að verða
milljóner, þá hefur hann stand-
andi svítur á Palace Hotel í Kaup-
mannahöfn og Continental í Osló.
Og hann kaupir dýrindis málverk
og gamlar bækur. Sýnist hafa
ótakmarkað fé. En enginn virðist
vita hvernig launum hans er hátt-
að. Hann hefur eflaust mörg járn í
eldinum. Hann er aldrei í stjórn
Titan-félagsins og skrifar aldrei
undir nein plögg þar. Hann aflar
markaðarins og er hugmynda-
smiðurinn og hann hlýtur að vera
þar á launum. Þegar svo áhuginn
á virkjununum fjarar út, er þessu
öllu lokið fyrir honum.
— En hvað þá, þegar Titan og
North Western-Syndicate eru úr
sögunni? Hvað varð annars um
það síðarnefnda?
— Félagi Einars, F.L. Rawson,
virðisL hafa starfrækt þetta fyrir-
tæki eitthvað áfram. Einar hefur
komið þar inn með sínar hug-
myndir og hans deild fer út um
leið og „Port Skerjafjörður" er úr
sögunni.
— En hvar átti Titan-félagið
heima, sem virðist hafa átt rætur
á Lundúnaárunum?
— Það er einmitt skemmtilegt
atriði, sem ekki kemur nógu vel
fram. Eftir að Titan flyzt á norsk-
ar hendur með höfuðstöðvar í
Osló, þá var varnarþing félagsins
á Þjótanda við Þjórsá. Ragnar
sagði mér, að þegar skipin Nova
eða Lyra komu, þá beið jafnan á
hafnarbakkanum vel ríðandi mað-
ur, og hélt snarlega með alla papp-
íra austur að Þjótanda, því ekki
var hægt að þinglýsa skjölum Tit-
ans annars staðar en á hlaðinu á
þessu litla býli. Hann þurfti svo að
ríða með skjölin til baka og ná
skipsferðinni út. Þótt ég viti ekk-
ert um það, þá þykir mér líklegt að
þetta hafi verið skattamál. En
fyrirtækið er semsagt á Islandi.
Gullið í Miðdal
síðasta ævintýrið
— Og þá er komið að síðari
hluta ævi Einars Benediktssonar,
sem ekki var eins umsvifamikil?
— Enn var eftir siðasta ævin-
týrið, gullið í Miðdal. Þarna í Mið-
dalslandi voru einhver kvarzgöng,
en slíku mun stundum fylgja gull,
og þýzkir sérfræðingar voru
fengnir til að skoða þetta. Kring
um þetta voru æði mikil umsvif.
Grafið í tvö sumur gegn um mel-
ana og margur Mosfellingur mun
þar hafa fengið drjúga vinnu. Ég
man sem strákur eftir svokölluð-
um „gullsteini" við Hafravatn,
sem glytti á og við strákarnir lét-
um aldrei undir höfuð leggjast að
skoða hann á gönguferðum okkar.
Einari tókst að vekja áhuga á
námurekstri þarna. En svo fóru að
koma fram neikvæðari skýrslur
frá sérfræðingunum.
— Og þá allt í einu hefur öllum
umsvifum verið lokið?
— Þó átti Einar éftir enn einn
glæsitímann, það voru svokölluð
Þrúðvangsár upp úr 1920. Þá er
hann búinn að selja Héðinshöfða
og sestur að í Þrúðvangi, sem
tengdamóðir hans hafði byggt.
Það var mikilhæf kona, rak Hótel
Reykjavík og byggði þetta glæsi-
lega hús við Laufásveginn með út-
skurði eftir Stefán Eiríksson.
Og 1921 er Einar fenginn til að
Herdísarvík, þar sem Einar Benediktsson eyddi ævikvöldinu í dimraum eyðilegum hraunum, án vegasarabands við önnur byggð ból.
Eftir að Titan félagið flyst á norskar hendur med aðalstöðvar í Osló, er varnarþing félagsins á ÞjóUnda við Þjórsá og þangað verður hraðboði að ríða með öll
skjöl frá skipshlið til að fá þau þinglýst á hlaðinu. En fram kemur að Ragnar Jónsson hrl. dáist að því hve vel og örugglega hefur verið gengið frá öllum
þinglýsingum.
koma heim til að flytja Kristjáni
konungi tvær drápur, þegar hann
kom til íslands. Alexander Jó-
hannesson segir að Einar hafi ver-
ið beðinn um þetta og að hann hafi
sent drápuna heim í símskeyti, því
hana þurfti að prenta. Einar nær
svo togaraferð til íslands, og kom
heim til að flytja konungi dráp-
una. Þá er Einar á sínu síðasta
glæsiskeiði, gengur um með grá-
fóðrað svart slá með silkispennu,
sem hann sló yfir öxlina. Og hefur
ekki fyrr eða síðar sést meira
glæsimenni á götum Reykjavíkur.
En konungur skilur sjálfsagt ekk-
ert í þessu sem verið er að flytja,
þótt hann hafi fengið afhenta þýð-
ingu á dönsku og lætur ekki sér-
stakt þakklæti í ljós.
— Þú segir að þetta hafi verið
síðasta glæsitímabilið í lífi Ein-
ars?
— Eftir það flytja þau hjónin
úr Þrúðvangi í Veltusund 1 og þar
leystizt heimilið upp. Valgerður
fer til Noregs. Einar bjó áfram í
Veltusundi 1, í herbergjum sem ég
þekki vel, því ég bjó þar öll mín
menntaskólaár. Hlín hafði þá
saumastofu í svokölluðu Actahúsi
í Mjóstræti. Og Einar fer að verja
þar tíma sínum, til að eiga eitt-
hvert athvarf. Það verður svo til
þess að þau leita í vandræðum sín-
um inn í Laugarnesspítala á náðir
Aðalbjargar Sigurðardóttur. Síðar
til Gunnfríðar Jónsdóttur með
undarlegum hætti, því maður
hennar, Asmundur Sveinsson, var
fenginn til að gera brjóstmynd af
Einari. Og nú bregður svo við að
fyrirsætan fær greiðslu líka. Ein-
ar selur þá Grænlandsbókasafnið
sitt og það verður þeim Hlín far-
areyrir suður til Túnis í desember
1930. Þau eru í þessari ferð í nær
tvö ár, koma til Parísar á leiðinni
frá Túnis og taka svo undarlegan
hala á ferð sína. Halda suður til
Barcelona, þar sem þau eru líka í
nokkra mánuði.
— Ég held að þar hafi Herdís-
arvíkurrómantíkin komið til, held-
ur Björn áfram. Það er allt svo
indælt á Islandi í fjarska. Einar á
þessa jörð og þau segja upp ábú-
andanum. Þegar þau koma heim
og í Laugarnes, þá er greinilega
búið að ákveða þennan flutning út
í auðnina í Herdísarvík, það er
nokkuð skrýtið, hver sem skýring-
in er á því.
— Er ekki skrýtið að þau skuli
ekki heldur hafa farið í Krýsuvík,
sem Einar átti líka?
— Þá var komin fram í Hafnar-
firði hugmyndin um eignarnám á
jörðinni Krýsuvík. Einar var
raunar illa leikinn þar, fékk
eitthvað smávegis fyrir jörðina en
jarðhitinn ekkert metinn. Það var
gróf eignaupptaka. Ég hefi heyrt
þjóðsögu um að þegar Krýsuvík
var tekin af þeim, þá hafi Hlín
lagt svo á að ekkert skyldi þar
þrífast. Og það skrýtna er að allt
sem þar hefur verið byrjað á, hef-
ur runnið út í sandinn.
— Hvað finnst þér svo sjálfum
um skáldið og þjóðsagnapersón-
una, eftir að hafa fengið þessi
kynni af Einari Benediktssyni
gegn um viðtöl við svo marga, sem
þekktu hann? Er hann jafn stór í
sniðum á eftir?
— Mér finnst Einar enn meira
heillandi persóna. Það eru svo
stórir og magnaðir fletir í þessum
manni. Lengi vel fannst mér að
þessi mikli athafnamaður og
skáldið hlytu að rekast á, svo ólík-
ir menn sem þeir virtust vera. En
nú sé ég að þeir eru i raun af ein-
um og sama toga. Mér sýnast at-
hafnir Einars og skáldskapur,
hugmyndir hans og framtíðarsýn,
hið sama. Fossamálin vera skáld-
legur boðskapur. Það kemur fram
í einu viðtalinu að ljóðið Norður-
ljós verður til í hótelherbergi í
London, þar sem ekkert er að sjá
út um gluggann. Hann þarf engin
norðurljós til að yrkja um þau.
Og lokaorð Björns Th. Björns-
sonar í þessu viðtali eru: — Ég fæ
ekki betur séð en að Einar Bene-
diktsson sé æði lifandi á íslandi,
úr því enn er hægt að deila um
hann fyrir æðsta dómstóli lands-
ins. ‘
— E.Pá.