Morgunblaðið - 23.12.1982, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1982
27
■w
A að svipta aldraða þeirri
heilsu- og kjarabót að fá
læknisfræðilega endurhæf-
ingu þeim að kostnaðarlausu?
Heilsuræktin í Glæsibæ hefur
frá því í nóvember 1976 veitt
Reykvíkingum og öðrum, 67 ára og
eldri, læknisfræðilega endurhæf-
ingu, þeim að kostnaðarlausu. I
samningi sem gerður var þá,
skyldi Heilsuræktin greiða 19,88%
kostnaðar, Tryggingastofnun
ríkisins 40,12% og Reykjavíkur-
borg 40%.
Heilsuræktin hefur húsnæði á
leigu en á nú kost á að kaupa það
eða vera borin út ella þann 5.
janúar næstkomandi. Fyrsta af-
borgun er 460 þúsund krónur.
Leitaði Heilsuræktin til fjárveit-
inganefndar Alþingis um fjár-
stuðning sem þessari upphæð
nemur. Hafnaði nefndin þessum
stuðningi og einnig var felld
breytingatillaga við fjárlögin um
að þessi upphæð fengi að vera inni
á þeim og voru 12 þingmenn með-
mæltir en 32 á móti. Aðrir sátu
hjá.
Skulu nú raktar ástæður þess að
stofnunin er í fjárþröng. Þegar
Endurhæfingastöðin opnaði
haustið ’76 stóð fjárhagur hennar
traustum fótum. Eftir gerð samn-
ingsins við Reykjavíkurborg og
ríkið auglýsti stofnunin eftir
sjúkraþjálfurum en engin umsókn
barst. Matth ías Bjarnason og
Einar Agústsson, þáv. heilbrigðis-
og utanríkisráðherrar aðstoðuðu
þá Heilsuræktina við ráðningu
sjúkraþjálfara frá Danmörku. Var
5 ára samningur gerður við
danska yfirsjúkraþjálfarafélagið.
Kom formaður félagsins til ís-
lands í nóv. ’76 ásamt ráðnum
sjúkraþjálfara og hélt fund með
stjórn Félags ísl. sjúkraþjálfara
og fór vel á með þeim. Formann
félagsins vantaði á fundinn.
Nokkru síðar birtist rætin níð-
grein í Mbl. um Heilsuræktina.
Björn Jónsson, þáv. forseti ASÍ
svaraði greininni og hófst grein
hans á þessari vísu: „Viljirðu sví-
virða saklausan mann, segirðu’
ekki beinar skammir um hann en
lætur það svona í veðrinu vaka þú
vitir hann hafi unnið til saka."
Feitir bitar eru sýnilegir þeim
sem sjá vilja. Var þess farið á leit
við mig sem formann stjórnar
Heilsuræktarinnar að ég kæmi
fram í þættinum Kastljósi ásamt
borgarlækni og fulltrúum Sjúkra-
þjálfarafélagsins í Janúar ’77. Lá
svo mikið á að ekki var hægt að
bíða eina viku eftir að ég gæti tek-
ið þátt í umræðum í þættinum
þrátt fyrir að menntamálaráð-
herra og útvarpsstjóri færu fram
á það. Höfnuðu umsjónarmenn
Kastljóss þeirri beiðni alfarið.
Eftir að hafa sótt í sig veðrið í
Kastljósþættinum fór nú formað-
ur Sjúkraþjálfarafélagsins til
Danmerkur og gat þvingað danska
yfirsjúkraþjálfarafélagið til að
rifta fimm ára samkomulagi
þeirra við Heilsuræktina um út-
vegun á sjúkraþjálfara.
Var nú egnd gildra fyrir stjórn
Sjúkraþjálfarafélagsins og gekk
hún óbeðin í hana. Heilsuræktin
gerði samning við Háskólasjúkra-
húsið í Lundúnum um ráðningu á
þjálfurum þaðan næstu tvö árin.
Þann samning eyðilagði stjórn
Sjúkraþjálfarafélagsins einnig en
vegna gildrunnar tókst rannsókn-
arlögreglu ríkisins að ná sönnun-
argögnum um þetta heim. Hefur
lögfræðingur Heilsuræktarinnar
stefnt Félagi sjúkraþjálfara fyrir
atvinnuróg.
Vegna þess að Heilsuræktin
stóð uppi sjúkraþjálfaralaus en
með lækni þó, treystist Trygg-
ingastofnun ríkisins ekki til að
standa við sinn hluta samningsins
við Heilsuræktina frá í nóv. ’76
um greiðslu á 40,12% kostnaðar
við endurhæfingu aldraðra. Vegna
þess stefndi nú í algjört óefni hjá
Heilsuræktinni fjárhagslega og
vegna þess að forráðamenn henn-
ar vildu ekki svipta gamla fólkið
þeirri þjónustu sem það þó fékk í
stöðinni fóru þeir nú að bera
þennan hluta kostnaðarins líka,
eða 60% alls. Skal það sagt stjórn-
völdun Reykjavíkur til ævarandi
sóma, að þau hafa greitt Heilsu-
ræktinni eins og samningur segir
til um og ekki látið misgerðir
Sjúkraþjálfarafélagsins bitna á
stofnuninni. (Annars hefði ekki
verið hægt að hafa opið fyrir
gamla fólkið frá kl. 9 á morgnana
og til kl. 9 á kvöldin alla virka
daga.) Nemur persónulegur kostn-
aður aðstandenda Heilsurækt-
arinnar nú nærri þremur milljónum
króna og segir sig sjálft hve erfitt
það hlýtur að vera einstaklingum
að rísa undir slíkum bagga.
Séra Ólafur Skúlason og Öldr-
unarnefnd þjóðkirkjunnar beittu
sér fyrir því á síðastliðnu sumri
við stjórn Sjúkraþjálfarafélagsins
að hún léti af þeirri lagalausu
herkví sem hún hefur haldið
Heilsuræktinni í í fimm ár. Ólafur
Jóhannesson, utanríkisráðherra
veitti síðan það liðsinni er dugði
til ráðningar erlendra sjúkraþjálf-
ara.
Þann 4. október síðastliðinn
hófu þeir störf hjá Heilsuræktinni
og þá gekk einnig í gildi samning-
ur Heilsuræktarinnar við Trygg-
ingastofnun ríkisins frá í nóv. ’76.
Væri nú ekkert því til fyrirstöðu
að sarfsemin gæti haldið áfram
nema hvað Heilsuræktinni hefur
verið gert að kaupa húsnæði það
sem hún hefur haft á leigu í
Glæsibæ og greiða fyrstu afborg-
un fyrir 5. janúar eða vera borin
út ella.
I upphafi þessarar greinar
greindi ég frá samningi Heilsu-
Innilegar þakkir fyrir samúö og vinsemd vegna fráfalls mannsins
míns,
ÁRNA SIGURÐSSONAR,
útvarpsvirkjameistara,
Huldulandi 5.
Sigriöur Svava Guðmundsdóttir.
t
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför
INGÓLFS ÞORVALDSSONAR,
Bargstaðastraati 55.
Fyrir hönd barna og tengdabarna hans,
Guðrún Ólafsdóttir.
ræktarinnar við Tryggingastofn-
unina og Reykjavíkurborg um
læknisfræðilega endurhæfingu
aldraðra. Að einu vil ég spyrja:
Hvenær myndi sambærileg ríkis-
rekin stofnun leggja til 19,88%
kostnaðarins án þess að fara í
vasa þrautskattpínds almennings
eftir peningunum? Er það ekki
einhvers virði í hálfgjaldþrota
þjóðfélagi að það fólk sé til sem
nennir að leggja á sig ómælt erfiði
öðrum til heilla og aukins heil-
brigðis. Er ekki nóg að 21%
skatttekna þess opinbera fari til
heilbrigðismála? Ellilífeyririnn er
naumur. Aldrað fólk sem nýtur
þjónustu hjá Heilsuræktinni fær
tæpar þúsund krónur í kjarabót á
mánuði við það. Þetta er eina
stofnunin á íslandi, og kannski í
öllum heiminum, þar sem allir 67
ára og eldri geta fengið slíka þjón-
ustu sér að kostnaðarlausu. Gerir
þetta fólkrkleyft að búa lengur við
óskerta iíkamlega og andlega
krafta; það verður ekki jafnfljótt
„stofnanamatur" og ella.
Að lokum vil ég hvetja aðstand-
endur þess fólks sem þannig hefur
notið þjónustu hjá Heilsuræktinni
til að koma nú til hjálpar í neyð
stofnunarinnar og leggja henni
fjárhagslegt lið. Framlög annarra
eru einnig þakksamlega þegin.
Heiti ég á ykkur að bregðast ekki
og verið minnug þess að margt
smátt gerir eitt stórt. Eru framlög
til stofnunarinnar frádráttarbær
til skatts. Opið er í Heilsuræktinni
frá níu á morgnana til níu á kvöld-
in. Ávísanareikningur stofnunar-
innar er nr. 80022 í útibúi Lands-
bankans að Laugavegi 77 og nnr.
hennar 3867-9929. Er hægt að
leggja inn á þann reikning í öllum
útibúum Landsbankans hvar sem
er á landinu. Guð blessi ykkur og
gleðileg jól!
Jóhanna Tryggvadóttir,
formaður stjórnar Heilsuræktarinn-
ar í Glæsibæ.
UOLA-
GJAFIR
KAFFIVELAR
Verð frá kr. 1.170,-
HANDÞEYTARI
Verð kr. 774,-
LILLI PUTT RYKSUGA
Hapdhæg með
hleðslutæki
Verð kr. 648,-
« •
BRAUÐRISTAR
Verð frá kr. 735,-
MINUTUGRILL
OG VÖFFLUJÁRN
Verð kr 3.009,-
STRAUJÁRN
Verð frá kr. 626,-
EGGJASUÐUTÆKI
Verð kr. 963,-
I
i
/
RAFMAGNS-
TANNBURSTI
Verð kr. 1.045,-
RYKSUGUR
1000 wött
Stillanlegur sogkraftur
Verð kr 3.480,-
BRÆÐURNIR ORMSSON %
LÁGMÚLA 9 SÍMI 38820