Morgunblaðið - 04.01.1983, Side 22

Morgunblaðið - 04.01.1983, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 1983 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 150 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 12 kr. eintakiö. Eftirmæli ríkisstjórnarinnar Af ummælum stjórnmálafor- ingja um áramótin verður ráðið, að þeir vilja að þing verði rofið sem fyrst og gengið til kosninga. Brýnasta úrlausnar- efnið fyrir þingrof er að komast að niðurstöðu um leiðréttingu á misvægi atkvæða eftir búsetu manna. í því efni hafa ýmsar hugmyndir verið settar fram og Morgunblaðið tekur undir þá skoðun Geirs Hallgrímssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, í áramótagrein hér í blaðinu, að hver maður eigi að hafa eitt at- kvæði, hvar á landinu sem hann býr. Það er grundvallaratriði lýðræðis, þó að hitt liggi jafn- framt ótvírætt fyrir eins og Geir bendir á, að um þetta réttlæt- ismál þarf að ríkja gagnkvæmur skilningur milli þéttbýlis- og strjálbýlisbúa. Þess vegna verð- ur að ganga fram í því á þann veg, að samstaða náist um þá lýðræðislegustu niðurstöðu sem flestir geta samþykkt og án þess að stofnað sé til sundurþykkju milli þéttbýlis og strjáibýlis. Væri æskilegast að stjórnmála- flokkarnir næðu samkomulagi um málið nú í jólaleyfi þing- manna, svo að tafarlaust væri unnt að ganga til afgreiðslu þess og rjúfa síðan þing í lok janúar eða byrjun febrúar. Hvað sem þessu líður er þegar unnt að taka saman eftirmæli núverandi ríkisstjórnar, sem setið hefur frá 8. febrúar 1980. Geir Hallgrímsson gerði það með þessum hætti í áramóta- grein sinni: „Heitið var að verðbólgan færi niður í 8—10% á ári, hún hefur verið 40—60% og stefnir í 60—80% á næsta ári. Heitið var stöðugu gengi en dollarinn hefur fjórfaldast í verði og fyrirsjáanlegt er, að á þriggja ára afmæli ríkisstjórn- arinnar verði hann nær fimm- falt hærri í verði en þremur ár- um áður. Viðskiptajöfnuður var hag- stæður þegar núverandi ríkis- stjórn tók til starfa en stefnir nú í 10—12% halla miðað við þjóðarframleiðslu... Erlendar skuldir voru um 30% af þjóðarframleiðslu en stefna nú hratt í 50% af þjóðar- framleiðslu, Island er að verða eitt af skuldugustu löndum heims og er þá langt til jafnað, enda hefur fjármálaráðherra sagt að við værum að sökkva á kaf í ískyggilega skuldasöfnun. Greiðslubyrði vaxta og af- borgana var 13—14% af árleg- um gjaldeyristekjum en stefnir nú í 25—33%. Fjórðu hverri og allt að þriðju hverri krónu af árlegum gjaldeyristekjum okkar er þegar ráðstafað fram í tím- ann. Best að standa saman Frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, sagði meðal annars í áramótaávarpi sínu: „Á erfiðum tímum gerum við það hvert öðru best að standa sam- an. Treysta hvert öðru; leggjast á eitt til sameiginlegrar far- sældar. Við viljum svo margt, og við höfum svo mikið að gefa hvert öðru að tímabundnir erf- iðleikar breyta engu um hve gott það er að búa í þessu landi. Með- an við eigum okkur þann metn- að að gera okkar besta þá mun vel farnast. Sé markið sett svo hátt að við verðum að neyta allra okkar krafta þá erum við á réttri leið. Þá er andinn í þjóð- inni glaðvakandi í bjartsýnni önn daganna." Um leið og tekið er undir þessi hvatningarorð forseta íslands er ástæða til að vekja máls á því, að sú skoðun sem forsetinn set- ur fram er í hróplegri andstöðu við þá stefnu sem fylgt er af þeim sem í ríkisstjórn sitja. Til samstarfs síns stofnuðu þeir í því skyni að eyðileggja öflugasta stjórnmálaafl þjóðarinnar, Sjálfstæðisflokkinn, og sáðu þannig frækornum óeiningar og sundrungar. Ríkisstjórnin sem enn situr var mynduð eftir að aðilarnir að henni höfðu hafnað hugmynd Geirs Hallgrímssonar um að allir flokkar legðust á eitt og tækju höndum saman um lausn aðsteðjandi vanda. Og nú er svo komið að^æðsta markmið ríkisstjórnarinnar er, að ráð- herrarnir geti setið sem lengst hvað svo sem líður þjóðarhag, enda gætir ekki bjartsýni í önn daganna á íslandi í upphafi árs 1983. Hin nýja kapeli* Foanvofnkirkjn. MorfunblnðMI/KÖE. Ný útfararkap- ella við Foss- vogskirkju vígð Séra Ólafur Skúlason dómprófastur vígir hina nýju kapellu Foi ANNAN í nýári var vígð við athöfn ný kapella Fossvogskirkju, sem er í norð- urálmu krikjunnar. Séra Ólafur Skúla- son dómsprófastur framkvæmdi vígsl- una. í lok athafnarinnar flutti biskup- inn yfir íslandi, herra Pétur Sigur- geirsson, bæn og blessun. Dómkórinn söng við athöfnina og Marteinn H. Friðriksson lék á orgel. Hin nýja kapella verður notuð vegna kistulagningar og er fram fara fámennari útfarir eða þær, sem fram fara í kyrrþey og ekki eru opnar athafnir. Verður hún nefnd kapella Fossvogskirkju. Eldri kapellan, þ.e. sú sem tekin var í notkun á síðastliðnu ári, verð- ur eftirleiðis eingöngu notuð vegna kistulagningar. Verður hún kölluð Bænhús Fossvogskirkju. Kapellan nýja tekur um 80 manns í sæti. Þar innanstokks er allt nýtt. Ber þá fyrst að nefna að altari, kertastjakar og blómavasar eru úr slipuðum grásteini. Hefur Stein- smiðja S. Helgasonar smíðað hvort Heitið var að setja samning- ana í gildi og vernda kaupmátt launþega en kaupmáttur kaup- taxta hefur farið sílækkandi frá því að þessi fyrirheit voru gefin fyrir 4 árum ... Skattbyrði vinstri stjórna síð- ustu fjögurra ára hefur aukist um 11.000 krónur á hvert mannsbarn í landinu ... Heitið var að lækka vexti en þeir hafa stórhækkað og sparn- aður, sem var nálægt 25% af þjóðarframleiðslu, hefur samt minnkað og er nú kominn niður í allt undir 17%. Innlánsstofn- anir eru í bullandi skuldum við Seðlabankann." Hvað segia beir um fiskverösákvöröunina? Óskar Vigfússon Langþreyttir á opinberum af- skiptum ,VIÐ erum orðnir langþreyttir á opin- berum afskiptum af kjaramálum sjó- manna og útvegsmanna, þeim sem koma fram við fiskverðsákvörðun hverju sinni í misjafnlega miklum mæli“, sagði Óskar Vigfússon fulltrúi sjómanna, en hann greiddi atkvæði gegn ákvörðuninni. Óskar sagði, að vegna fiskverðsákv- örðunarinnar hefði verið boðað til fundar með formönnum allra aðildar- félaga Sjómannasambandsins, auk stjórnar sambandsins, n.k. sunnudag. Þar yrði rætt um fiskverðið og þær forsendur, sem lágu fyrir fiskverðs- ákvörðun, einnig um afskipti ríkis- valdsins. Þá sagði Óskar: „Við erum orðnir langþreyttir á þessum afskiptum, og það er spurning, hvort við erum ekki komnir út á yztu nöf með þetta hluta- skiptakerfi og hvort það er ekki ástæða til að skipta þar um.“ Aðspurður um hvað hann teldi að koma ætti í staðinn sagði hann: „Ann- að launakerfi. Það er hægt að hugsa sér svipað kerfi og þekkist í landi, fastakaup og bónus eða annað því um líkt.“ um, hvort tveggja er fram hjá hluta- skiptum. Ríkisstjórnin ákvað hins vegar að fara þessa leið og þess vegna ætlum við að semja okkur að ákvörð- un hennar." Þá sagðist Kristján vilja undir- strika þær breytingar sem yfirnefnd- in hefði verið sammála um að breikka á ný verðbilið milli gæða- og stærðar- flokka, einnig milli slægðs fisks og óslægðs, sem yfirnefndin hefði verið sammála um. „Við væntum þess að með þessum ráðstöfunum sé stuðlað að því að verðlauna þá sem koma með góðan fisk á land og því verði þetta til að aflinn nýtist betur," sagði hann. Kristján sagði í lokin, að í samning- um við ríkisstjórnina í þessu efni hefði hún lofað að felld yrðu niður stimpilgjöld og lántökugjald af skuldbreytingalánum, sem þýða myndi um 12 til 15 millljónir króna fyrir útgerðina, sem hún ella hefði þurft að borga í skatta þar sem skuldbreytingar eiga sér stað. Þá hefði ríkisstjórnin einnig lofað að endurgreiða allt að 2 mánuði sem út- gerðin hefði þurft að greiða í aflahlut í slysatilfellum. fjármuna til lausnar á rekstrarvanda- málum sjávarútvegsins, svo ekki sé minnst á þau vinnubrögð sem við hafa verið höfð. Sjálfstæðismenn telja að auka verði tekjur útgerðarinnar þannig að rekstrargrundvöllurinn sé tryggður. Lausn á því vandamáli fæst því aðeins að hagsmunaaðilar;: sjó- menn, útgerðarmenn, fiskframleið- endur og opinberir aðilar geri sér grein fyrir og leiti leiða til samkomu- lags.“ Friðrik Pálsson Gengur gegn allri skynsemi Matthías Á. Mathiesen: Vandanum fleytt áfram með verð- Kristján Ragnarsson bólguaðgerðum Sáttir við þetta, þó kosið aðra leið „VIÐ samþykktum fiskverðið á þeim forsendum sem þar um ræðir og þess vegna erum við sáttir við þetta, þótt niðurstaðan sé ekki eins og við hefðum kosið. Eftir sem áður er um nokkurn halla á útgerðinni að ræða, það er 3,7% á bátum, 0,8% á togurum, 8,2% á stórum togurum, eða að meðaltali 2,9%,“ sagði Kristján Ragnarsson, fulltrúi útgerðar- manna, en hann greiddi atkvæði með fiskverðsákvörðuninni. Kristján sagði einnig: „Síðan vitum við að gengið kemur til með að breyt- ast og hækka útgerðarkostnaðinn, síðan kemur fiskverðshækkun aftur 1. marz og aftur breyting á gengi. Þann- ig að við erum alltaf að elta rófuna á sjálfum okkur. Bregðist ekki afli á ár- inu 1983 eða verði svipaður og á árinu 1982 verður þetta betri rekstrarstaða en við höfum haft að undanförnu. Þá vil ég taka fram, að við hefðum kosið aðra aðferð, ekki að olía yrði niðurgreidd heldur að útgerðin fengi beint tekjuauka, sem þýtt hefði að 7% olúgjaldið hefði verið hækkað í 17% og það kallað kostnaðarhlutdeild eða eitthvað annað. Þá hefði útgerðinni verið gert að borga sinn olíukostnað og það hefði þýtt sömu efnislegu niðurstöður um afkomu og einnig orð- ið sama aðferðin gangvart sjómönn- „Fiskverðsákvörðunin svo og ráðstal- anir henni samfara eru ákvarðanir ríkis- stjórnarinnar. Ríkisstjórnin ber þvi alla ábyrgð á þeim afleiðingum sem þessar ákvarðanir hafa í för með sér, án þess að tryggður sé rekstrargrundvöllur sjáv- arútvegsins," sagði Matthias Á. Mathie- sen en hann átti, fyrir hönd þingflokks sjálfstæðismanna sæti í nefndinni sem sjávarútvegsráðherra lét skipa. Matthías sagði einnig: „í stað þess að koma fram raunhæfum aðgerðum til lausnar vandamálum útgerðarinn- ar í landinu heldur ríkisstjórnin áfram sjóðamyndunum og millifærsl- um til niðurgreiðslu á rekstrarkostn- aði útgerðarinnar. Tekna til þess fyrirhugar ríkisstjórnin að afla með 4% útflutningsgjaldi á sjávarafurða- framleiðslu ársins 1983. Þegar fisk- vinnslufyrirtækin eiga í vaxandi sam- keppni á fiskmörkuðum erlendis og umtalsverð birgðasöfnun á sér stað í landinu virðist ríkisstjórnin hafa þau ráð ein að skattleggja aðalútflutn- ingsvöru landsmanna, fiskinn. Ljóst er að sú óðaverðbólga sem við búum við er ein af meginorsökum þess mikla rekstrarvanda sem at- vinnulífið í landinu glímir við. Sýnist ríkisstjórnin, meðal annars með þeim aðgerðum sem hún leggur nú til vegna vanda útgerðarinnar, ekki hafa þor né getu til þess að ráðast gegn verðbólg- unni, heldur fleytir vandanum áfram með verðbólguaðgerðum. Sjálfstæðismenn hafa verið og eru andvígir sjóðamyndun til millilfærslu „ÞESSI leið, sem valin var, er ekki skynsamleg, en var víst sú eina sem ríkisstjórnin taldi færa,“ sagði Friðrik Pálsson annar fulltrúi kaupenda í yfir- nefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins, en hann sat hjá við afgreiðslu fiskverðs. Hann sagði síðan: „Olíuniður- greiðsla af þessu tagi gengur þvert á þær hugmyndir, sem sérstök orku- sparnaðarnefnd er að vinna að, og gerir hennar frómu tillögur harla léttvægar í þessum samanburði. í harðnandi árferði hlýtur að vera nær lagi að gera menn betur meðvit- andi um hvað hlutirnir kosta og reyna að auka sparnað heldur en að auka niðurgreiðslur. Ef olíukostnaður er óbærilegur fyrir útgerðina, þarf að reyna að draga úr olíunotkun á hvert fiskkíló, í stað þess að gefa þriðja hvern olíulítra. Þessi útflutningsgjalds/olíusjóðs- leið orsakar auk þes óheppilegar millifærslur milli útgerða og jafnvel landshluta. Sú leið, sem til umræðu var í Verðlagsráði, að auka olíugjald eða kostnaðarhlutdeild, er mun hreinlegri, og hvetur til aukinnar framleiðslu og minni eysðlu. Ef til vill er þó verst að skýra skattlagningu eins og útflutningsgjald fyrir erlend- um kaupendum. Flestar þjóðir í kringum okkur háfa tekið upp virðisaukaskatt og gert all- ar mögulegar ráðstafanir til að létta álögum af útflutningsvörum sínum, og aðrar þjóðir greiða stórlega niður útfluttar fiskafurðir. Á sama tíma aukum við beina skattlagningu á helstu útflutningsvörur okkar. Þetta gengur gegn allri skynsemi." Kjartan Jóhannsson: Stutt á milli kollsteypanna „ÞÆR fullyrðingar, að Alþýðuflokkur- inn hafi samþykkt þessar ráðstafanir í sambandi við fiskverðið eru alrangar. Okkur alþýðuflokksmönnum var ekki kunnugt um afgreiðslu fiskverðs fyrr en það kom í útvarpsfréttum, og ekkert samband var haft við okkur um þá af- grciðslu", sagði Kjartan Jóhannsson, en hann átti sæti í þingmannanefnd þeirri sem sjávarútvegsráðherra lét tilnefna af

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.