Morgunblaðið - 04.01.1983, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 1983
31
Minning:
Agúst Sigurjóns-
son Grundarfirði
Fæddur 7. júlí 1925
Dáinn 24. desember 1982
l»ví bilid er svo mjóll milli blíóu og éls
aó brugðist getur lukkan frá morgni til kvelds.
Þessi orð skáldsins eiga vel við
nú er Agúst Sigurjónsson í Grund-
arfirði er kvaddur hinstu kveðju.
A Þorláksmessudag gekk hann að
sínum daglegu störfum, en um
kvöldið veiktist hann skyndilega,
og andaðist á sjúkrahúsinu í
Stykkishólmi nokkrum klukku-
stundum síðar.
Við mennirnir sjáum svo
skammt fram á veginn, skiljum
því ekki tilgang skaparans og eig-
um svo bágt með að sætta okkur
við að sjá á bak ástvinum okkar
yfir móðuna miklu, ekki síst þegar
kallið kemur svona snöggt.
Jólin voru að ganga í garð, und-
irbúningi þeirra var að ljúka og
ljósin, sem þeim tilheyra, höfðu
víða verið tendruð í litla þorpinu.
Þá kom helfregnin, hann Gústi er
dáinn. Á einu augnabliki var allt
breytt, í stað birtunnar og gleð-
innar, sem ríkt hafði í hjörtum
fjölskyldu hans og annarra ást-
vina, var komið þrúgandi myrkur
sorgarinnar.
Svona er bilið mjótt milli gleði
og sorgar, lífs og dauða. Og víst er
það, að hin óvænta sorgarfrétt
hefur snert viðkvæma strengi í
brjóstum allra sem þekktu hann,
og þeir eru vafalaust margir sem
eiga erfitt með að trúa að Gústi sé
ekki lengur á meðal okkar.
Ágúst Sigurjónsson var fæddur
í Norður-Bár í Eyrarsveit 7. júlí
1925, sonur hjónanna Bjargar
Hermannsdóttur og Sigurjóns
Halldórssonar útgerðarmanns. Af
fjórum bræðrum eru nú aðeins
tveir á lífi, yngsti bróðirinn Hall-
dór, Iést af sama sjúkdómi fyrir
rúmum þremur árum, eftir stutta
sjúkdómslegu, svo faðir þeirra
hefur séð á bak tveim sonum sín-
um með svo skömmu millibili.
Ágúst var mikill atorku- og dugn-
aðarmaður og það svo að hann
unni sér vart hvíldar, lagði oft
nótt við dag. Hann var vörubíl-
stjóri að aðalatvinnu en hafði
mörg járn í eldinum, og vann til
skamms tíma mikið við útgerð
föður síns og rak steypustöð um
tíma ásamt ýmsu öðru.
Ágúst bar hag kirkjunnar sinn-
ar í Grundarfirði mjög fyrir
brjósti, og er mér ekki grunlaust,
að við byggingu hennar hafi hann
lagt sterka hönd á plóginn, sem og
víðar, þó það verði ekki tíundað
hér né margt annað sem hann lét
gott af sér leiða, enda honum lítt
að skapi.
Ágúst hafði ákveðnar skoðanir
á hlutunum, var lítið fyrir að
trana sér fram, en traustur maður
með afbrigðum, samviskusamur
og vinur vina sinna.
Sú sem þetta ritar þekkti hann
best sem góðan eiginmann og
elskulegan föður, og ber fallega
heimilið hans að Fossahlíð 3
gleggst vitni um samheldni,
myndarskap og snyrtimennsku
húsbændanna.
Ágúst var kvæntur Dagbjörtu J.
Guðmundsdóttur og eiga þau
þrjár dætur. Þær eru: Björg,
tæpra fimmtán ára, Steinþóra,
þrettán ára, og Dagný, á öðru ári.
Mikil samstaða og eining ríkti á
þessu heimili og oft hef ég undrast
hugulsemi telpnanna þeirra, svo
ungar sem þær eru, hvað þær
hugsa um að gleðja aðra, að
minnsta kosti er það mín reynsla,
enda fellur eplið sjaldan langt frá
eikinni.
Ég trúi því að nú muni mamma
þeirra fá endurgoldið hið góða
uppeidi sem þær hafa hlotið hjá
foreldrum sínum báðum, og það
komi nú gleggst í ljós, hve mikið
gott í þeim býr.
Hvergi hef ég notið meiri gest-
risni en hjá þeim Dæju og Gústa,
og eflaust munu fleiri taka undir
það. Ég veit líka að við hjónin vor-
um ekki þau einu sem þau viku úr
rúmi fyrir, þó að sjálfsögðu væri
nóg af góðum rúmum á því heim-
ili, og aldrei kom ég svo í Fossa-
hlíðina að húsbóndinn tæki ekki
bílinn úr bílskúrnum og byði í
ökuferð um nágrennið, því allt var
gert sem hægt var til að gera gest-
unum dvölina sem ánægjulegasta.
Að leiðarlokum þakka ég og
fjölskylda mín honum alla hjálp-
semi og vinsemd, allar ferðirnar
hans út á rútubílastöð með köku-
kassana eða hvað sem það nú var,
og hversu fljótur hann var að
sinna alls konar kvabbi og snún-
ingum fyrir okkur.
Við minnumst hans með trega
og þökk, og iðrumst þess nú að
hafa ekki átt fleiri stundir með
honum meðan tími gafst.
Svo bið ég föður ljósanna að
lýsa honum á þeim vegi sem hann
gengur nú, og leiða hann inn i lönd
eilífðarinnar.
Ég bið algóðan Guð að gefa
Dæju og telpunum hennar styrk í
þeirra miklu sorg, og að þeim veit-
ist sá friður sem frelsarinn talaði
um er hann segir: Frið læt ég eftir
hjá ykkur, minn frið gef ég yður.
Öldruðum föður, bræðrum og
öðrum aðstandendum Ágústs Sig-
urjónssonar votta ég innilega
samúð mína.
Elísabet Vormsdóttir
Líkamsrækt
VI
JSB
£1
Dömur athugið
Annela UaIaI 4A
Kennsla hefst 10. janúar.
Hýtt
námskeið
hefst 11. janúar
★ Líkamsrækt og megrun tyrir dömur á öllum
aldri.
★ 50 mín. æfingakerfi meö músík.
★ Morgun-, dag- og kvöldtímar.
★ Tímar tvisvar eða fjórum sinnum í viku.
Þ
★ „Lausir tímar“ fyrir
vaktavinnufólk.
★ Almennir framhalds-
og lokaöir flokkar.
Fyrir þær
sem eru í megrun
3ja vikna kúrar.
Tímar fjórum sinnum í viku.
Mataræði, vigtun, mæling.
Verið brúnar og hraustar allt árið.
Sólbekkirnir eru í Bolholti. Ath.: Einnig ný Ijós í Suðurveri.
Sauna og góð búnings- og baðaðstaða á báðum stöðum.
$ 'jf.
Stuttir hádegistímar í Bolholti. 25
mín. æfingatími — 15 mín. Ijós.
Kennsla
fer fram
á báöum stööum.
Ath.:
Opiö í Bolholti frá mánu-
deginum 3. janúar.
Líkamsrækt JSB,
Suðurveri, sími 83730
Bolholti 6, sími 36645.
..........................
B^llett
Kennsla hefst á ný mánu-
daginn 10. janúar.
Innritun nýrra nem-
enda og allar upplýs-
ingar í síma 15359 kl.
13—19, daglega.
Nemendur frá fyrra
námskeiði komi á
sama tíma og áður.
Ballettskóli
Guðbjargar Björgvins.
fþróttahúsinu Seltjarnarnesí, Litla sal.
dTsTít
TÖLVUFRÆÐSLA
TÖLVURITVINNSLA
..... . , Leiöbeinendur:
Tilgangur namskeiðsins er að kenna og
æfa þátttakendur i notkun ritvinnslu og
gefst tækifæri á að kynnast eiginleikum
ýmissa þeirra ritvinnslukerfa sem nú
eru í boði.
Efni:
— Undirstööuatriöi ritvinnslu.
— Ritvinnsla á stórar tölvur — ETC.
— Ritvinnsla á smátölvur:
— BSG, Ritþór, Scriþsit, Worstar.
Ragna Siguröardóttir
Guöjohnsen
Námskeiöiö er ætlaö þeim sem vilja afla sér alhliöa þekk-
ingu um hvaö ritvinnsla er og vilja æfa sig og meta mismun-
andi kosti ritvinnslukerfa.
Tími: 10.—14. janúar 1983
kl. 09.00—13.00.
Staöur: Ármúli 36, 3. hæð.
(Gengið inn frá Selmúla).
Ath.: Fræðslusjóöur Verslunarmannafélags
Reykjavíkur greiöir þátttökugjald félags-
manna sinna á þessu námskeiöi og skal
sækja um þaö til skrifstofu VR.
ÁÆTLANAGERÐ
MEÐ SMÁTÖLVUM
Markmið námskeiösins er aö gefa
stjórnendum og öörum sem starfa viö
áætlanagerö og flókna útreikninga, inn-
sýn í hvernig nota má tölvur á þessu
sviði.
Á námskeiöinu veröur gerö grein fyrir
undirstööuatriöum viö áætlanagerö og
kennd notkun forritara VisiCalc og
SuperCalc. Þessi forrit starfa á svipað-
an hátt, en eru gerö fyrir mismunandi
tölvukerfi. Nemendur veröa þjálfaöir í
aö leysa raunhæf verkefni ásamt eigin
verkefnum á tölvunum.
Námskeiöið er ætlað stjórnendum og
öörum sem vilja kynnast forritunum
VisiCalc og SuperCalc.
Staöur: Ármúli 36.
Tími: 10.—12. janúar 1983
kl. 13.30—17.30.
Þátttaka tilkynnist til Stjórnunarfé-
lagsins í síma 82930.
STJÚRNUNARFÉLAG
ISLANDS
SIÐUMULA 23 SÍMI 82930