Morgunblaðið - 04.01.1983, Page 43

Morgunblaðið - 04.01.1983, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 1983 43 • Kenny Dalglísh hefur haft ærna ástæöu til að fagna innílega að undanförnu eins og hann gerir hér á myndinni. Liverpool hefur nú afgerandi forystu í 1. deildinni ensku og er liðið nánast óstöðvandi um þessar mundir. Sjálfur hefur Dalglish sjaldan leikið eins vel og einmitt nú og er talinn líklegur til aö verða útnefndur knattspyrnumaöur ársins í Englandi. lan Rush lang markahæstur Forysta Liverpool 10 stig lan Rush hjá Liverpool er nú langmarkahæstur í Englandi. Hann hefur skorað 21 mark sam- tals á keppnistímabilinu, næstur er Bob Latchford hjá Swansea með 17 mörk og Luther Blissett hjá Watford er með 15. Brian Stein, Luton, er einnig með 15 og síðan kemur John Deehan, Nor- wich, sem skorað hefur 14 mörk. Eftir leiki gærdagsins er Li- verpool komið með tíu stiga for- ystu í I. deildinni f Englandi og eru yfirburöir liðsins með ólíkind- um. í gær sigruðu meistararnir Arsenal mjög léttilega á heima- velli sínum, 3:1. Hér neöar á síö- unni stendur, að lan Rush hafi skorað 20 mörk Liverpool á tíma- bilinu, en það er ekki rétt lengur. Reyndar var það rétt er greinin sú var skrifuö eftir laugardagsleik- ina, en kappinn lék einn leik til viðbótar í gær og komst að sjálf- sögöu ekki hjá því að skora, frek- ar en vanalega. Hann hefur sem sagt skorað samtals 21 mark á tfmabilinu. Úrslit leikjanna í gær eru á næstu síöu hér á undan, og skell- um viö okkur því beint aö segja frá gangi mála í leikjunum. Arsenal átti aldrei neina mögu- leika á því aö stööva sigurgöngu Liverpool í gær. Kenny Dalglish lagöi upp fyrsta mark leiksins sem Rush skoraöi af stuttu færi á 28. mín. Graeme Souness skoraöi annaö markiö skömmu eftir hlé og Dalglish vippaöi síöan knettinum yfir markvöröinn og i netiö eftir frábæra sóknarlotu á 70. mín. leiksins. Hans 14. mark í jafnmörg- um leikjum varð staðreynd. Brian Talbot potaöi einu marki fyrir gest- ina fjórum mín. fyrir leikslok. Áhorfendur á Anfield voru 37.713. Þrátt fyrir nær stanlausa sókn aö marki WBA tókst leikmönnum Manchester United ekki aö koma tuörunni í netið og endaöi leikurinn því meö marklausu jafntefli. Leik- urinn í heild þótti hins vegar ekki verulega líflegur. Áhorfendur á Old Trafford voru 39.123. Endurkoma Tony Morley breytti leik Aston Villa — liösins til hins betra og liðiö vann nú sinn fyrsta sigur i sex leikjum. Gordon Cow- ans skoraöi fyrra mark liösins úr víti eftir að Morley haföi verið felld- ur og siðara markiö geröi Allan Ev- ans meö skalla eftir hornspyrnu Cowans í síöari hálfleik. Leik- mönnum Southampton tókst ekki aö svara fyrir sig. Áhorfendur: 19.925. Notts County náöi ekki aö rétta úr kútnum eftir áfalliö gegn Li- verpool á laugardaginn og varö aö þola tap á heimavelli gegn Sund- erland sem var í neösta sætinu fyrir leikinn. Sunderland geröi jafn- tefli viö risana þrjá um jólin og vann nú loksins. Stan Cummins var önnur hetja liösins — hann skoraði eina mark leiksins eftir herfileg mistök í vörn County — og hin hetja liösins var markvöröurinn Chris Turner, sem varöi eins og berserkur í seinni hálfleiknum er County sótti stíft aö honum. Turn- er hefur reynst Sunderland betri en enginn undanfariö og variö hreint frábærlega. 9.327 áhorfend- ur sáu leikinn. Gamli landsliöskappinn Mick Channon skoraði sigurmark Norw- ich gegn Swansea. Var þaö annað mark hans í þremur leikjum síöan hann gekk til liðs viö Norwich. Robbie James komst næst því aö skora fyrir Svanina hans Johns Toshack er hann þrumaöi í stöng í síöari hálfleik. Áhorfendur á Carr- ow Road voru 16.296. Brighton var svo sannarlega heppið aö Nottingham Forest fór ekki meö stigin þrjú burt frá Howe er liðin mættust. Willie Young skoraöi mark Forest meö skalla rétt fyrir hlé, og í síöari hálfleiknum átti Ken Swain skot í stöng úr aukaspyrnu og Perry Digweed markvöröur Brighton varði snilld- arlega hvaö eftir annaö. Allt leit út fyrir sigur Forest, en Mike Robin- son var á ööru máli og náöi aö jafna af miklu harðfylgi. Áhorfend- ur voru 10.402. Terry Gibson, tvítugur nýliöi hjá Tottenham, skoraöi bæöi mörk liösins í 2:1 sigrinum yfir Everton, sitt í hvorum hálfleik. Steve Archi- bald lagöi upp bæöi mörkin: á 22. og 79. mín. Graeme Sharp geröi eina mark gestanna. Áhorfendur: 28.455. Les Phillips skoraöi fyrir Birm- ingham í fyrri hálfleik og allt stefndi í fyrsta sigur liösins á útivelli á keppnistímabilinu. En 18 ára nýliöi hjá Stoke, lan Painter aö nafni, bjargaöi stigi fyrir liö sitt er hann skoraði sitt fyrsta mark fyrir þaö, örfáum mín. fýrir leiksiok. Ensku meistararnir fögnuðu nýju ári með stðrsigri lan Rush fagnaði nýju ári á laugardaginn meö því að skora þrennu fyrir ensku meistarana Liverpool er liðið gersigraði Notts County, 5:1, á Anfield. Er þetta í þriðja skipti í vetur sem Rush skorar „hat-trick“ og hefur hann nú gert 20 mörk í vetur. Kenny Dalglish hefur sjaldan leikið eins vel meö Liverpool og undanfariö og skoraði hann tvö markanna gegn County. Rush náöi foryst- unni fyrir meistarana eftir kortér en Justin Fashanu jafnaði þremur mín. síðar. Eftir þaö voru leik- menn County lítiö meö í leiknum og Phil Neal gat leyft aér þann munaö að brenna af vítaspyrnu — hann skaut framhjá marki County. Dalglish skoraöi fyrra mark sitt á 30. mín. með glæsi- legu vinstrifótarskoti og var stað- an 2:1 í leikhléi. Síðara mark sitt gerði hann úr aö því er virtist vonlausri stöðu en hann er ein- mitt þekktur fyrir þau mörk sín. Rush sá svo um tvö síöustu mörkin. Áhorfendur voru 33.644. Þrátt fyrir mjög athygliverðan árangur yfir jólahátíðina var Sund- erland enn í neösta sæti deildar- innar eftir leiki laugardagsins. Liö- iö geröi þrjú markalaus jafntefli, og þaö gegn þremur efstu liöunum, Manchester United, Liverpool og Nottingham Forest. Forest haföi aö vísu mikla yfir- buröi gegn Sunderland á laugar- U-landsliðið á NM Búiö er að velja unglinga- landsliöshópinn í körfuknattleik, sem tekur þátt í Noröurlandamóti unglinga í Árósum um næstu helgi. Hópurinn er þannig skipað- ur: Páll H. Kolbeinsson KR Björn O. Steffensen ÍR Jóhann Bjarnason Fram Þorkell Andrésson Fram Björn Zoéga Val Kristinn Kristinsson Haukum Matthías Einarsson KR Ástþór Ingason UMFN Tómas A. Holton Val Ólafur Guðmundsson KR Einar Bollason er þjálfari liösins, sem skipaö er leikmönnum fædd- um 1964 og 1965. Tómas Holton hefur flesta unglingalandsleiki aö baki af þessum drengjum, hann hefur spilaö sjö, en Páll Kolbeins- son hefur spilaö sex U-landsleiki. Jóhannes Kristbjörnsson KR og Einar Ólafsson Val eru varamenn og koma inn í hópinn ef aörir leikmenn veröa fyrir meiöslum. — SH. • PáN KotbotnMon úr KR *r otnn þoirra *r skipa unglingalandaliðtð í körfuknattMk. daginn, en eftir aö Gary Birtles haltraöi meiddur af velli á 33. mín. komust þeir aldrei nálægt því aö skora. Colin Walsh, sem kom inn á fyrir Birtles, fékk aö visu gott færi, en skaut í þverslá. Áhorfendur voru 20.382. Evrópumeistarar Aston Villa sóttu Manchester United heim og lék þar sinn fimmta leik í röö án sigurs. Eftir hálftíma leik náöi Frank Stapleton forystu fyrir Un- ited en Gordon Cowans jafnaði í hvelli úr vítaspyrnu. Steve Coppell kom United svo aftur yfir á 63. mín. meö fallegu skoti af 25 m færi og Stapleton skoraöi svo sitt ann- aö og þriöja mark United með skalla eftir aukaspyrnu Coppell. 41.545 manns sáu leikinn. Kenny Jackett skoraöi mark Watford og Peter Ward svaraöi fyrir Brighton er liöin skildu jöfn, og kom mark Ward fimm mín. fyrir leikslok. 15.139 áhorfendur sáu leikinn. 17 ára nýliöi hjá West Ham, Tony Cottee aö nafni, skoraöi fyrsta mark liösins gegn Totten- ham og var þetta frumraun stráks- ins í aðalliði West Ham. Mark hans kom á 27. mín. Ray Stewart geröi annaö markiö úr víti og Geoff Pike þaö þriöja. Tvö seinni mörkin komu baeöi í síöari hálfleik — bæöi eftir góöan undirbúning Alan Kristján setti nýtt Islands- met innanhúss Nýtt íslandsmet í langstökki karla innanhúss leit dagsins Ijós í Baldurshaga á dögunum er þar fór fram jólamót ÍR og Ármanns. Metið setti Kristján Harðarson og stökk hann 7,30 metra, sem er fjórum sentimetrum lengra en gamla metiö sem Jón Oddsson setti í fyrra. Devonshire. Áhorfendur voru 33.383. Arsenal skoraöi tvívegis á fyrstu fimm mínútunum gegn Swansea og voru Alan Sunderland og Tony Woodcock þar aö verki. Vladimir Petrovic lók sinn fyrsta leik meö Arsenal og kom mark Woodcock eftir glæsilega sendingu frá hon- um. 25.237 áhorfendur voru mætt- ir á Highbury til aö sjá Petrovic leika sinn fyrsta leik og uröu ekki fyrir vonbrigöum, þar sem hann stóö sig vel. Alan Curtis skoraöi eina mark Swansea. 15.669 áhorfendur sáu Sammy Mcllroy skora sigurmark Stoke gegn Norwich. Paul Mariner skoraöi fyrra mark Ipswich gegn Southampton og Russel Osman þaö síðara. Varnar- maöurinn Mark Wright skoraöi eina mark Dýrlinganna — hans fyrsta mark í deildarkeppninni ensku. Áhorfendur: 18.866. Gamla kempan Mike Ferguson skoraöi bæöi mörk Birmingham gegn Man. City, en Kevin Bond og Peter Bodak, sem City er meö aö láni frá Man. Utd, skoruöu mörk Manchester-liösins. Áhorfendur voru 16.362. WBA komst tvívegis yfir í leikn- um gegn Everton en í lokin var þaö einungis stórgóö markvarsla Tony Godden sem bjargaöi liöinu frá tapi. Hollendingurinn Romeo Zondervan skoraöi fyrst fyrir Al- bion, en Graeme Sharp jafnaði tveimur mín. síöar meö skalla- marki. Gary Owen kom Albion af- tur yfir en Mark Higgins skoraöi seinna mark Everton. Áhorfendur voru 15.194. Steve Whitton og Jim Melrose tryggöu Coventry sigur á útivelli gegn Luton meö mörkum í fyrri hálfleik, en Mal Donaghy náöi aö svara fyrir liöiö frá hattaborginni frægu. Áhorfendur voru 13.072. Einn leikur fór fram í 1. deild í gærkvöldi: Watford sigraöi Man. City á heimavelli sinum 2:0. Jimmy Gillighan, 19 ára framherji er lék í staö Ross Jenkins, sem er meidd- ur, skoraöi bæöi mörk Watford. Watford fór í annaö sætiö viö sig- urinn. STAÐAN 1. DEILD Liverpool 23 15 5 3 58- 21 50 Watford 23 12 4 7 42- -25 40 Manchester l'td. 23 II 7 5 31- -18 40 Nottinuh. Forest 23 12 4 7 39- -31 40 West llam 22 12 1 9 40- 32 37 ('oventry 23 11 4 8 32- -29 37 Aston Yilla 23 11 2 10 34- -31 35 West Bromwich 23 9 6 8 36- -34 33 Tottenham 23 10 3 10 34- -33 33 Manchester ('ity 23 9 5 9 29 -36 32 Ipswich Town 23 8 7 8 37- -29 31 Stoke ('ity 23 9 4 10 r, -36 31 Kverton 23 8 6 9 38- -32 30 Arsenal 23 8 6 9 28- -32 30 Southampton 23 8 5 10 28- -38 29 Notts ('ounty a 8 4 11 31- -42 28 Norwich ('ity 21 7 5 11 25- 91 26 Brighton 21 6 6 11 21- -42 24 Swansea (’ity 29 6 6 12 29 -36 23 Luton Town 22 5 8 9 38- -46 23 Sunderland B 5 8 10 29 -37 23 Birmini»ham 23 4 11 8 18- -32 23 2. DEILD Wolves 23 15 4 4 46- 20 49 Q.P.R. 23 13 4 6 35- 22 43 Kulham 23 12 5 6 45- 99 41 Leicester 23 11 3 9 40- 99 36 Sheff. Wed. 23 10 6 7 38- -31 36 Shrewsbury 23 10 5 8 30- -30 35 (■rimsby 23 10 4 9 34- 41 34 Oldham 13 7 12 4 39- -31 33 l-eeds 23 7 11 5 26- -24 32 Kotherham 23 8 8 7 28- 91 32 Barnsley 23 7 10 6 32- 27 31 Newcastle 23 7 9 7 34- -34 30 ('rystal Palace 23 7 9 7 26- -26 30 Blackburn 28 8 6 9 34- -35 30 (’helsea 23 7 7 9 25- -29 28 ('arlLsle 23 7 5 11 42- 47 26 Middlesbrough 23 6 9 8 27- -42 27 Bolton 23 6 7 10 24- -31 25 ('harlton 23 7 12 34- -49 25 ('ambridge 23 6 6 11 25- -34 24 Derby 23 3 10 10 24- -36 19 Burnley 23 5 4 14 32- -43 19

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.