Morgunblaðið - 28.01.1983, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 1983
Eftirvæntingin leynir sér ekki í svip yngstu nemendanna í Alftanesskóla á leiðinni í skólabílnum til Reykjavíkur, til
að skoða þekkt listasöfn, og að fara upp í turn Hallgrímskirkju.
kirkjuturn trónar upp úr
byggðinni. Safnferðin var far-
in til höfuðborgarinnar í lista-
safn Asmundar Sveinssonar
og í listasafn Einars Jónsson-
ar. Jafnframt því fór ég með
krakkana upp í turn Hall-
grímskirkju ásamt Linda, bíl-
stjóra skólabílsins. Reykjavík
var þar skoðuð frá nýju sjón-
arhorni þ.e.a.s. úr lofti, og
kirkjan sjálf einnig skoðun lít-
illega.
Það var greinilegt að nem-
endur Álftanesskóla kunnu vel
að meta umrædda ferð, enda
ríkti mikil eftirvænting hjá
krökkunum. Það var mjög at-
hyglisvert að sjá svo unga
krakka hrífast svo mikið og
innilega af listaverkum Ás-
mundar Sveinssonar og Ein-
ars Jónssonar.
Framlag Ásmundar Sveins-
sonar og Einars Jónssonar er
mjög stórt í íslenskri list. Þeir
eiga það sameiginlegt að hafa
unnið af miklum krafti, og
verið mjög einlægir og trúaðir
á það sem þeir tóku sér fyrir
hendur í list sinni. Endur-
speglast sú hugsjón í mynd-
verkum þeirra. En þar sem
nýkomin er út bók um Einar
Jónsson, þá ætla ég að láta
Undraheimur
Ásmundarsafiis
Krakkar úr Alftanesskóla í könnunarferð
— eftir Björgvin
Björgvinsson kennara
Þegar við sem búum í
Reykjavík lítum yfir á Álfta-
nes, þá eru okkur flestum ef-
laust efst í huga Bessastaðir,
enda á forsetasetrið á Bessa-
stöðum sér mikla og merkilega
sögu. Að því fagra setri bein-
ast augu allra íslendinga í
gegnum fjölmiðlana, og ekki
síst nú í tíð okkar jákvæða og
framsýna forseta Vigdísar
Finnbogadóttur. í næsta ná-
grenni Bessastaða er blómleg
byggð, Álftanes. Á Álftanesi
virðist mikil gróska ríkja og
byggðarlagið stækkar ört.
isvagnar eru í Bessastaða-
hreppi.
Þar sem ég kenni myndlist
við Álftanesskóla þá fannst
mér alveg tilvalið að notfæra
mér skólabílinn til gagns fyrir
kennsluna. Það var því úr að
ég fór með nemendur skólans í
sérstaka safnferð til Reykja-
víkur nú nýverið. Fórum við í
fjórum hópum á tveimur dög-
um og langar mig til að gera
þessari ferð einhver skil hér.
Frá Álftanesi virkar
Reykjavík sem stór og mikil
borg, þar sem Hallgríms-
Björgvin Björgvinsson.
Barnaskóli Álftaness er einnig
í mikilli framför og nemend-
um fjölgar þar ört; eru nú um
115. Eins og við þekkjum flest
úr sveitinni þá er það yfirleitt
skólabíll sem ekur nemendúm
til og frá skólanum. Mér finnst
dálítið gaman að því, að á
Álftanesi er sami háttur hafð-
ur á þ.e.a.s að nemendum er
ekið í skólabíl í skólann og
heim aftur að kennslu lokinni.
Finnst mér það dálítið
skemmtilegt, sérstaklega
vegna þess að Álftanes er í
rauninni við bæjardyr Reykja-
víkur. En skólabíllinn er nauð-
synlegur þar því engir stræt-
Guðjón Bjarnfreðsson safnvöröur í Asmundarsafni segir krökkunum frá listaverkunum þar. Stóra gifsmyndin er
verkið, Björgun úr sjávarháska frá 1926, en frá henni bendir Guðjón á annað verk frá nýja tímanum í list Ásmundar
Sveinssonar.
nægja að lýsa komu okkar í
Ásmundarsafn, og þá um leið í
minningu um Ásmund sjálfan,
sem lést fyrir nokkrum vikum.
En ég vil taka það fram að það
var tekið mjög vel á móti
okkur á báðum stöðunum.
Það sem mér fannst sér-
staklega athyglisvert við þessa
heimsókn var mikill áhugi
krakkanna fyrir öllu því sem
fyrir augu bar. Það var eins og
börnin væru undrandi og hrif-
in í senn af hinni margbreyti-
legu list Ásmundar og það var
eins og þau skildu á sinn ein-
falda og einlæga hátt list hans
mun betur en fullorðið fólk
gerir.
Þegar Ásmundur kom fram
með sínar frábæru myndir um
hið vinnandi fólk, þá varð
hann fyrir aðkasti þeirra
manna sem skildu ekki fram-
sýni hans. Dæmi um myndir í
þessum flokki eru t.d.
„Járnsmiðurinn" „Vatnsber:
inn“ og „Þvottakonurnar". I
þessum verkum lýsir hann á
listrænan hátt þrautseigju og
krafti, enda sagði Ásmundur
að sér fyndist allt vinnandi
fólk fallegt fólk. Allir sem
skilja vildu gátu séð að þar fór
listamaður með jákvæð við-
horf.
Ég bað safnvörðinn í Ás-
mundarsafni, Guðjón Bjarn-
freðsson, að lýsa fyrir krökk-
unum því helsta sem fyrir
augu bar: Fremst í salnum var
staðnæmst við verkið Björgun
úr sjávarháska, gert 1926, sem
er stór og mikil gifsmynd. Þar
er listamaðurinn að túlka
björgun á raunastundu, en á
þessum tíma var mikil slysa-
hætta þegar menn fóru út á
opnum bátum til veiða. Þarna
fremst í salnum mætast nýi og
gamli tíminn í list Ásmundar.
Skyndilega bendir Guðjón
safnvörður krökkunum á
myndverk úr járni sem er
gjörólíkt stóru gifsmyndinni.
En það er verkið Friðar- og
Landnámssól frá 1972, gert í
tilefni af 1100 ára byggð á ís-
landi, það var síðasta verk
Ásmundar á 50 ára löngum
listferli hans. Það stendur nú í
Árbæ, þar sem leiðirnar liggja
til austurs og vesturs út úr
Reykjavík. Nú, við höldum
áfram að skoða safnið og för-
um hratt yfir sögu. Tréskuro-
artímabilið er talið af mörgum
það besta í list Ásmundar. í
enda safnsins stendur ein af
mörgum tréskurðarmyndum
hans „Móðurást“ frá 1948, sem
lýsir stemmningu frá stríðsár-
unum; stríðshrjáð móðir með
sundurskorið barn í fanginu.
Frá Móðurást" þá leiðir Guð-
jón krakkana að einu sér-
kennilegu, en skemmtilegu
verki, en það er „Andardráttur
á glugga", gert úr járni og
gleri 1967, sem er úr þjóð-
trúnni, óvættur, sem andar á
glugga. Hægt er að hreyfa
hluta verksins fram og til
baka (hreyfilist) Guðjón fór
með skemmtilega stöku fyrir
krakkana sem listamaðurinn
/■
Snjór með mesta móti
Innri Múla, Harúaslrönd, 14. janúar.
RAFMAGN fór af klukkan 19,
• •
Olfushreppur:
Fjárhags-
áætlun ’83
fullgerð
l'orlákshofn, 24. janúar.
Fjarhagsáætlun Ölfushrepps
1983 er nú fullgerð og fram-
kvæmdaáætlun vel á veg komin.
Niðurstöðutölur eru 23.883.000
kr.
Helstu tekjur eru:
Útsvar kr. 13.000.000, eða 54,43%
Fasteignagj. kr. 2.500.000, eða 14,65%
Aðstöðugj. kr. 2.711.000, eða 11,35%
Helstu útgjaldaliðir eru:
Ýmis lögb. framlög 2.612.000 eða 10,94%
Æskul.- og íþróttamál 2.508.000 eða 10,50%
Fræðslumál 2.064.000 eða 8,64%
Yfirstjórn sveitafél. 1.825.500 eða 7,64%
Hreinlætismál 1.466.000 eða 6,14%
Til eignabreytinga og
gjaldfærðra fjárfest-
inga, kr. 7.023.500 eða 29,42%
J.H.S.
laugardaginn 8. janúar og var
rafmagnslaust í sólarhring. Það
var mjög bagalegt fyrir alla, en þó
einkum fólk, sem varð að hand-
mjólka allt upp í 20 kýr. Síminn fór
líka og þá versnaði nú málið, þar
sem við vorum sambandslausir við
önnur héruð. Veður var vont,
stórhríð og urðu margir, sem voru
á ferð um sveitina, að skilja bíla
sína eftir og labba til næsta bæjar
og gista þar.
Þegar þetta er skrifað er enn
ófært til Patreksfjarðar, en ver-
ið er að reyna að opna Kleifar-
heiði. Óvíst er þó, hvort það
tekst. Þótt svona sé, hef ég eng-
an heyrt kvarta. Suma var að
vísu farið að vanta kaffi til að
hella upp á könnuna, en það er
nú að færast til betri vegar, því
jarðýta fór í gær um sveitina
með vörur frá verslunum. Snjór
er nú með mesta móti.
S.J.Þ.