Morgunblaðið - 28.01.1983, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 1983
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 150 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 12 kr. eintakiö.
Uppnám innan
framsóknar
Kjördæmamálið er nýj-
asta opinbera þrætuepli
framsóknarmanna. Á undan-
förnum misserum hafa for-
ystumenn Framsóknarflokks-
ins deilt opinberlega um hin
óskyldustu mál. Steingrímur
Hermannsson, flokksformað-
ur, og Ólafur Jóhannesson,
fyrrverandi flokksformaður,
hafa verið á öndverðum meiði
um fjárframlag Bandaríkja-
stjórnar til nýrrar flugstöðvar
á Keflavíkurflugvelli. Stein-
grímur vill að Banda-
ríkjamenn borgi allan kostnað
en Ólafur vill að staðið sé við
samkomulagið sem Einar Ág-
ústsson, fyrrverandi varafor-
maður framsóknar, gerði á
sínum tíma. Þá hefur Stein-
grímur Hermannsson staðið í
deilum við Halldór Ásgríms-
son, varaformann Framsókn-
arflokksins, út af vaxtamál-
um. Halldór er formaður
bankaráðs Seðlabankans og
lítur hæð vaxta öðrum augum
en Steingrímur sem hefur
eina skoðun í dag og aðra á
morgun eftir því við hverja
hann ræðir um vextina. Þriðja
stórdeila Steingríms er svo
við TómciS Árnason, ritara
Framsóknarflokksins og við-
skiptaráðherra, vegna kjör-
dæmamálsins.
Steingrímur Hermannsson
hefur tekið þátt í viðræðum
formanna stjórnmálaflokk-
anna um endurskoðun á regl-
um um kosningarétt í því
skyni að draga úr því misvægi
sem nú ríkir. Eins og sjá má
af fréttum hefur þokast í sam-
komulagsátt í þessum viðræð-
um og er Steingrímur í hópi
þeirra sem lýst hafa bjartsýni
um framgang málsins. Á mið-
vikudag brá hins vegar svo
við, að í Tímanum birtust
stóryfirlýsingar frá Tómasi
Árnasyni um svonefnda „með-
altalsaðferð“ sem er vinnun-
afn á þeirri hugmynd sem ber
hæst í viðræðum formanna
flokkanna og veldur bjartsýni
Steingríms, segir Tómas að
þessi aðferð sé „óhæf“ „Meðal-
talsaðferðin er allt of flókin
og því tel ég hana óhæfa,“
sagði Tómas í Tímanum á
miðvikudag. Það stóð ekki á
viðbrögðum Steingríms, hann
sagði í Tímanum í gær,
fimmtudág: „Ég tel að þeir
sem fordæma meðaltalsað-
ferðina geri það vegna þess að
þeir skilji hana ekki.“
Steingrímur Hermannsson
hefur gripið til margvíslegra
ráða til að vera jafnan ofan á
þegar einhver vandamál ber á
góma er hann og afskipti hans
varða. En líklega er það eins-
dæmi að flokksformaður grípi
til þess ráðs sér til varnar að
lýsa því yfir um náinn sam-
starfsmann sinn sem hafist
hefur til æðstu metorða í eig-
in flokki, að hann taki afstöðu
til viðkvæmra og mikilvægra
mála á grundvelli misskiln-
ings eða þekkingarskorts. Með
þessum ummælum sínum
staðfestir Steingrímur Her-
mannsson það sem menn utan
Framsóknarflokksins hafa
hingað til sagt oftar en einu
sinni, að Tómasi Árnasyni
hætti til að vera alltof hvatvís
og fljótur til yfirlýsinga, hann
slái um sig í hugsunarleysi.
Ýmsum kann að koma á óvart,
að Steingrímur Hermannsson
telji sig hafa stöðu til að setja
ofan í við Tómas á þessum
forsendum. En framsóknar-
mönnum er ekki alls varnað.
Þess er nú beðið með mikilli
óþreyju hvort misskilningur
Tómasar eða skilningur
Steingríms ræður stefnu
Framsóknarflokksins í.kjör-
dæmamálinu. Með gamla
framsóknarlaginu verða
hrossakaupin nú hafin og þá
má hinn almenni kjósandi
fara að vara sig, því að fram-
sóknarstefnan í kjördæma-
málinu hefur aldrei tekið mið
af grundvallarreglunni um
jafnrétti.
Seta í ráðum
og nefndum
Eins og kunnugt er sitja
alþingismenn í alls kyns
ráðum og nefndum. Störf
þeirra þar eru með öllu óskyld
löggjafarstarfinu. Hefur
mörgum verið það þyrnir í
augum að þingmenn seilist
með þessum hætti inn á svið
þar sem þeir hafa eftirlits-
hlutverki að gegna en eiga
ekki að standa að beinum
framkvæmdum. Þess mis-
skilnings gætir ekki síst
vegna málflutnings Vilmund-
ar Gylfasonar, að ekki sé unnt
að sporna gegn þessu nema
með því að breyta stjórn-
arskránni. Staðreynd er að
ekki þarf annað en hugarfars-
breytingu á alþingi vilji menn
minnka umsvif þingmanna í
nefndum og ráðum utan al-
þingis — það eru þingmenn-
irnir sjálfir sem kjósa í nefnd-
irnar og ráðin.
Ný þjónustumiðstöð fyrir aldraða og öryrkja
Ingunn Gíslason, formaður stjórnar Múlabæjar, flytur ávarp við hina formlegu opnun í gær, en fjöldi manns var viö opnu
Áætlað að hún þjói
að 100 manns á þes
Meðal þeirra sem viöstaddir voru við opnunina í gær voru margir þeirra, sem fyi
Múlabær býður uppá.
Þjónustumiðstöðin Múlabær við Ár-
múla í Reykjavík, sem er þjónustumið-
stöð fyrir aldraða og öryrkja, var form-
lega opnuð í gær. Múlabær er í hús-
næði því sem öryrkjavinnustofur SÍBS
— Múlalundur — voru áður til húsa,
en húsnæðið er samtals um 600 fer-
metrar á tveimur hæðum við Ármúla
34. Þjónustumiðstöðinni nú er komið
upp með samvinnu þriggja aðila;
Keykjavíkurdeildar Rauða kross fs-
lands, SÍBS og Samtaka aldraðra í
Reykjavík. Forstöðumaður Múlabæjar
hefur verið ráðinn Guðjón S. Brjáns-
son, félagsráðgjafi.
Á blaðamannafundi í Múlabæ í
gær kom fram, að upphaf málsins er
það, að árið 1981 hafði Rauði kross
Islands ákveðið að öldrunarmál
væru forgangsverkefni á ári aldr-
aðra 1982. Var því haft samband við
öldrunarlækningadeild Landspítal-
ans, öldrunarþjónustu Reykjavík-
urborgar og landlæknisembættið,
varðandi það á hvern hátt Rauði
krossinn gæti helst orðið að liði. Var
þá talið að hentugasta verkefnið
væri dagvistunarþjónusta, skamm-
tímavistun og hvíldardvöl.
Öldrunarnefnd Reykjavíkurdeild-
ar var stofnuð 9. september 1981.
Formaður hennar er Ólafur E.
Ólafsson, en með honum í nefndinni
er Sigurveig Sigurðardóttir, félags-
ráðgjafi og Anna Þrúður Þorkels-
dóttir, félagsmálafulltrúi hjá
Reykjavíkurborg. Nefnd þessi vann
ásamt stjórn deildarinnar að könnun
þessara mála.
Enginn þeirra húsnæðisvalkosta
sem til boða stóðu á árinu 1981 þótti
nægilega hentugur til að hrinda
framkvæmdum af stað. Var ýmist að
framkvæmdir sýndust of fjárfrekar
eða staðsetning óheppileg. I einu til-
viki reyndist húsnæði ekki fáanlegt
þegar á reyndi. Var þá ákveðið að
miða framkvæmdir við minna verk-
efni, sem aðeins fæli í sér dagvistun-
arþjónustu og væri hægt að ljúka á
ári aldraðra.
Á stjórnarfundi, 14. janúar 1982,
skýrði formaður Reykjavíkurdeild-
arinnar, Arinbjörn Kolbeinsson
læknir frá því að hann hefði rætt við
Odd Ólafsson fyrrverandi yfirlækni
um hugsanlegar leiðir til að koma á
fót dagvistunarþjónustu fyrir aldr-
aða í Reykjavík. Kom þar fram
hugmynd um samvinnu milli Reykja-
víkurdeildar RKÍ, SÍBS og Samtaka
aldraðra um Þjónustumiðstöð fyrir
aldraða og öryrkja í húsakynnum
þeim sem myndu losna í apríl eða
maí sama ár (1982) þar sem öryrkja-
vinnustofur SÍBS, Múlalundur, voru
til húsa í Ármúla 34.
Eftir nokkra grundvallarkönnun á
málinu var Öldrunarnefnd deildar-
innar falið að annast framgang
málsins. Á fundi Öldrunarnefndar
Reykjavíkurdeildar og fulltrúa frá
SÍBS, sem haldinn var 2. mars 1982,
kom fram að SÍBS var fúst að gefa
kost á % hlutum hússins að Ármúla
34 um 10 ára skeið til stofnunar
dagvistunar- og þjónustustöðvar
fyrir eldra fólk og öryrkja, enda yrði
samvinna við Reykjavíkurdeild RKÍ
og Samtök aldraðra um stofnun
heimilis og rekstur.
Þetta verksmiðjuhúsnæði var alls
um 600 fm á tveimur hæðum, án inn-
réttinga. Lovísa Christiansen arki-
tekt var ráðin til að gera tillögur og
teikningar varðandi breytingar og
innréttingar á húsinu. Allar teikn-
ingar voru gerðar á Litlu teiknistof-
unni í Hafnarfirði.
Samningur milli Reykjavíkur-
deildar annars vegar og SÍBS og
Samtaka aldraðra hins vegar um
rekstur og stofnun dagvistunar-
stöðvarinnar var undirritaður hinn
21. september 1982. Þá skipuðu
rekstraraðilar stjórn fyrir stofnun-
ina. í henni eiga sæti eftirtaldir:
Fyrir Reykjavíkurdeild RKÍ: Ingunn
Gíslason, kosin formaður og vara-
maður Arinbjörn Kolbeinsson; fyrir
SÍBS: Kjartan Guðnason og vara-
maður Júlíus Baldvinsson; fyrir
Samtök aldraðra: Sigurður Gunn-
arsson, kosinn ritari og til vara
Hans Jörgensson.
Reykjavíkurdeild RKÍ hefur kost-
að allar innréttingar og breytingar á
húsnæðinu, sömuleiðis öll húsgögn,
borðbúnað ög flest þjónustutæki.
Heildarkostnaður við breytingu á
húsnæðinu, ásamt húsbúnaði og
tækjum var 2,8 milljónir. Kvenna-
deild Reykjavíkurdeildar hefur lagt
til allan húsbúnað í borðstofu og
setustofu, borðbúnað og sjúkrabað-
laug af fullkomnustu gerð, alls að
verðmæti kr. 550.000.00. Reykja-
víkurdeild RKÍ hefur notið styrks úr
sérverkefnasjóði Rauða kross ís-
lands til þessara framkvæmda að
upphæð krónur 980.000.00. Þegar á
heildina er litið lætur nærri að um
60% af heildarfé til allra þessara
framkvæmda séu upprunnin úr söfn-
Ármúli 34, en þar á 2. og 3. hæð, á samt