Morgunblaðið - 28.01.1983, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 28.01.1983, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 1983 25 Samdráttur hjá Toyota og Nissan á síðasta ári Framleiðsla Toyota dróst saman um 2,4% og útflutningur um 3% Framleiðsla Nissan dróst saman um 6,8% og útflutningur um 6,6% TOYOTA og Nissan, tveir stærstu bílaframleiðendur Japans, tilkynntu í liðinni viku, að framleiðsla og út- flutningur fyrirtækjanna hefði dregizt saman á liðnu ári, vegna minnkandi eftir- spurnar heima fyrir og er- lendis, auk verndaraðgerða í nokkrum helztu viðskipta- löndum þeirra. Talsmaður Toyota, sem er stærsti bílaframleiðandi Japans, sagði að fyrirtækið hefði framleitt 3,145 milljónir bíla á liðnu ári, sem er um 2,4% samdráttur frá árinu 1981. Sala á innanlands- markaði hefði aukizt um 2,1% og verið samtals 1,524 milljónir bíla. Hins vegar hefði útflutningur dregizt saman um 3% og samtals verið fluttir út 1,666 milljónir bíla. Alls var fluttur 675.051 bíll til Bandaríkjanna, sem er um 2,6% samdráttur. Til Efnahagsbanda- lagslandanna voru fluttir 177.411 bílar, sem er um 5,6% færra en árið á undan. Talsmaðurinn sagði ástæðuna fyrir samdrættinum vera hinn almenna efnahags- samdrátt í heiminum, og erfið- leika á útflutningi til Bandaríkj- anna og Efnahagsbandalagsland- anna. Dæmi um jákvæða þróun sagði talsmaðurinn vera útflutning fyrirtækisins til Saudi-Arabíu, en hann jókst um 40,9% á síðasta ári. Þangað voru fluttir samtals 155.640 bílar. Talsmaður Nissan, sem er ann- ar stærsti bílaframleiðandi Jap- ans, sagði fyrirtækið hafa fram- leitt 2,408 milljónir bíla, sem er um 6,8% samdráttur frá árinu 1981. Alls voru seldir 1,108 millj- ónir bíla á innanlandsmarkaði, sem er um 2,3% samdráttur frá árinu á undan. Ut voru fluttir 1,342 milljónir bílar, sem er um 6,6% samdráttur. Talsmaður fyrirtækisins sagði samdráttinn í útflutningi til Bandaríkjanna vera um 10,1%. Samdrátturinn var síðan enn meiri til Kanada, eða um 25%. Talsmaðurinn sagðist hins vegar ekki hafa handbærar endanlega tölur um útflutnings til þessara landa. Utflutningur Nissan til Saudi- Arabíu jókst ennfremur mjög mikið eins og hjá Toyota. Alls voru fluttir þangað 116.877 bílar, sem erum 108,5% aukning frá ár- inu á undan. I Japan voru aðeins 35.564 er- lendir bílar skráðir á síðasta ári, sem er um 0,7% markaðshlut- deild. VIITCKIPTI ■ lUwiiir 11 VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF Umsjón: Sighvatur Blöndal Þjóðarframleiðsla í V-Þýzkalandi dróst saman um 1,2% í fyrra Hefur dregizt saman tvö ár í röd, en slíkt hefur ekki gerzt frá stríðslokum Þjóöarframleiðsla minnkaði um 1,2% í Vestur-Þýzkalandi á síðasta ári, eftir að hafa minnkað um 0,2% á árinu 1981, samkvæmt upplýsingum frá vestur-þýzku hagstofunni. Þar kemur ennfremur fram, að þetta er í fyrsta sinn síðan á striðsárunum, að samdráttur verður í þjóðarfram- leiðslu tvö ár í röð, en aöalástæðan er sögð hinn almenni samdráttur í efna- hagslífi hcimsins. Otto Lambsdorff, efnahagsmála- ráðherra Vestur-Þýzkalands, sagði nýlega á fundi með blaðamönnum, að útlitið væri alls ekki gott á fyrri helming ársins 1983. Reyndar væri þegar ljóst, að hagurinn myndi ekki vænkast fyrr enn í fyrsta lagi undir lok ársins. Því mætti gera ráð fyrir, að þjóðarframleiðsla myndi standa í stað, eða jafnvel dragast saman á þessu ári. Talið er að efnahagssamdráttur- inn hafi verið um 0,5% á fyrsta ársfjórðungi síðasta árs, en sam- drátturinn var um 2,5% á síðasta ársfjórðungi. Útlitið á fyrsta árs- fjórðungi ársins í ár er sízt betra en á lokamánuðum síðasta árs. Hagstofan vestur-þýzka sagði að verðmæti þjóðarframleiðslunnar á síðasta ári væri í kringum 1.247.000 milljarðar vestur-þýzkra marka. Samdrátturinn í þjóðarframleiðslu hefur m.a. komið fram í auknu at- vinnuleysi í Vestur-Þýskalandi, en undir lok ársins voru 2,2 milljónir manna án atvinnu, sem er um 9,1% af vinnufæru fólki. Þá kom fram hjá Otto Lambs- dorff, að heildarfjárfesting hefði dregizt saman um nærri 6,2% á síöasta ári, en samdrátturinn á ár- inu 1981 var um 3,8%. Árlegt meðal- tal 1970-80 1981 1982 2,9 1,9 -VA 4,8 3,0 2 Zi 2,8 -0,2 -\'A 3,6 0,3 ÍVÍ 1,9 -2,2 Zi 3,1 -0,2 % 4,1 2,9 -5 3,2 1,3 -Zi 2,8 -0,5 '/4 2,9 0,1 >A 3,2 1.2 -1/2 Tafla I. Vöxtur þjóðarframleiðslu Hækkun í % frá fyrra ári. Bandaríkin ............ Japan ................. Þýzkaland ............. Frakkland.............. Stóra-Bretland......... Ítalía ................ Kanada ................ Sjö stærstu iðnríkin... Fjögur stór iðnr. V-Evrópu Norðurlönd, alls ...... OECD-lönd. alls I Tafla 4. Viðskiptajöfnuður. Milljarðir dollara. Bandaríkin ...... Ijapan ........... I Þwkaland ....... IStóra Bretland .... loECD, alls ...... loPEC, alls ...... I Þróunarlönd án oliu | Norðurlönd, alls........... -2,82 Ðanmörk Finnland ísland . . . Noregur . Sviþjóð Spá 1983 1981 1982 Spá 1983 4,5 -9 -31 4,8 6'/: 11 -7,3 0 0 12,1 4'/. 1/, -31 -40 -55 65 0 15 -75 -65 -50 -2,82 -5,26 -5,14 -1.9 -2l/, _2 -0,3 0 0 -0,12 -0,26 -0,14 2,4 ' : _ i/. -2,9 -3 -2 */•» Tafla 2. Verðbólga ■ Verðhækkun þjóðarframleiðslu % frá fyrra ári. Spá II 1981 1982 1983 K Bandarikin 9,5 6 5% H Japan 2,8 2/4 3 Þýzkaland 4,2 4/2 3'/: n| Frakkland 11,7 12% 9 ’/4 Kgf Slóra Bretland 12.1 7% 5'4 wm Ítalía 17,6 17/4 1 6 1 4 Bgf Kanada 10,1 10/4 7 /* H Sjö stærstu iðnrikin, samtals . . . 8,5 6% 6 B Fjögur stóru iðnríki Evrópu .... 10,1 9% 8 B Önnur OECD lönd 11,1 11/2 10% 1 OECD, alls 8.9 7/2 B §9 Tafla 3. Atvinnuleysi. §gj / % af vinnuafli 1981 1982 Spa 1983 ■ Bandarikin 7,6 9/2 10' : §9 lapan 2,2 2% 2 ' 4 §9 Þýzkaland 4,8 7 8' : Frakkland 7,3 8/2 9% H Stóra Bretland 10,6 12/4 13' 4 9 Ítalía 8.5 9/4 9'4 M Kanada 7,6 11 13 « Sjö stærstu iðnríkin 6,5 8 8 1 4 H Önnur OECD lönd 8,9 10/2 11% ■ V-Evrópa 8,4 10 11 ■ OECD, alls 7,1 8/2 9' : cl Fjöldi; milljónir mans: 19 N-Amerika 9,2 12 13' 4 §9 V-Evrópa 13,8 1 6'4 18' : 1 OECD. alls . 24.7 30% 33% geta að nokkru leyti. Útflutningur minnkaði mjög á síðari helmingi ársins á sama tíma og framleiðsla og eftirspurn á heimamarkaði tók talsverðan afturkipp. Því minnk- aði þjóðarframleiðsla um rúmt 1%, og átti mest af þeim sam- drætti sér stað á síðari helmingi ársins. Á nýbyrjuðu ári er ekki bú- ist við neinum markverðum bata. Þjóðarframleiðslan er talin munu standa nær í stað á árinu í heild, en hugsanlegt er, að einhver vaxt- armerki verði að finna þegar á árið líður. Verðbólga er talin munu minnka enn nokkuð, en atvinnu- leysi mun áreiðanlega aukast. Þróun efnahagsmála hefur verið nokkuð áþekk þessu í öðrum stærstu iðnríkjum Vestur-Evrópu. Hún hefur einkennst af minni út- flutningi, eftir því sem á sl. ár hef- ur liðið. Öll ríkin hafa orðið fyrir útflutningssamdrætti á síðari helmingi ársins 1982, og geta þau ekki búist við nema mjög hægum framleiðsluvexti á þessu ári. At- vinnuleysi í öllum þessum löndum mun aukast, en hins vegar má ætla, að verðbólga þróist nokkuð mismunandi frá einu landi til ann- ars. Heldur má telja, að hún fari lækkandi í Bretlandi. í Frakklandi mun hún áfram haldast nokkuð há, enda hafa Frakkar skorið sig úr öðrum stórþjóðum Vestur- Evrópu og kosið að reka þenslu- stefnu í efnahagsmálum. ítalir stríða við mun meiri verðbólgu en hin stóru iðnríkin, og mun það ástand haldast áfram. Japan er nú næststærsta OECD-landið að framleiðsluum- fangi. Japanir hafa jafnan staðið sig hvað best meðal stóru iðnríkj- anna á lægðartímum, og er svo enn. Hagvöxtur var um 2'/2% árið 1982, og spáð er yfir 3% vexti á þessu ári. Átvinnuleysi er enn lítið, en mikið hefur dregið úr útflutn- ingsgetu Japan, m.a. vegna við- skiptahafta í öðrum löndum. Má ætla, að útflutningur, sem verið hefur helsti vaxtarhvatinn þar í landi á undanförnum árum, geti ekki lengur orðið það á næstu árum. I töflu 2 eru dregnar saman spár um verðbólgu í helstu OECD- löndunum. Af þeim tölum, sem þar koma fram, má draga þá ályktun, að nokkuð hafi áunnist í því að draga úr verðbólgu á ÓECD- svæðinu í heild, þótt deila megi um, hvort sú samdráttarstefna, sem mörg stærstu löndin hafa fylgt til að minnka verðbólgu, hafi skilað árangri sem erfiði. Víst er, að þau lönd sem hvað mesta áherslu hafa lagt á verðbólgu- hjöðnun, Bandaríkin, Bretland og Þýskaland, hafa komist langt í því að minnka verðbólgu, en kostað til miklu atvinnuleysi á móti. Önnur lönd, svo sem öll Suður-Evrópu- löndin svo og Norðurlönd, hafa ekki náð eins miklum árangri í baráttunni við verðbólguna enda ekki viljað fórna atvinnustigi sínu að sama skapi. Hefur það orðið til þess, að verðbólgustig í hinum ýmsu OECD-löndum er að verða æ meir mismunandi, og hefur það þegar komið fram í talsverðu gengisumróti. Eru gengisbreyting- arnar á Norðurlöndunum á sl. hausti til vitnis um það, en þá lækkuðu Svíar gengi krónu sinnar mjög og Finnar gengi marksins. Miklar sviptingar hafa og átt sér stað milli gjaldmiðla evrópska peningakerfisins (European Mont- ery System) og er tilraun þess kerfis til að koma á gengisjafn- vægi milli aðildargjaldmiðla þess svo gott sem komin út um þúfur. í töflu 3 eru dregnar saman helstu tölur um atvinnuleysi í OECD-löndunum. Þar sést, að at- vinnuleysi er þegar orðið mikið í öllum stærstu ríkjum OECD nema Japan og hefur alls staðar farið hraðvaxandi, sérstaklega í Þýska- landi. Enn sem komið er hafa nokkur lönd Evrópu, (Noregur, Svíþjóð, Island, Sviss og Austur- ríki) haldið niðri atvinnuleyusi hjá sér, en nú er einnig tekið að sverfa að í sumum þessara landa, þannig að þau fá ekki lengur haldið uppi sama atvinnustigi og áður. Búast má við, að atvinnuleysi haldi áfram að aukast um gervallt OECD-svæðið á næstu tveim árum ef ekki lengur, því það er viðtekin hegðunarregla sem erfitt mun reynast að komast fram hjá, að at- vinnuleysi heldur ávallt áfram að aukast um sinn eftir að vöxtur framleiðslu hefur glæðst á ný. Viðskiptahalli OECD-landanna er áætlaður 55 milljarðar dollara árið 1983, eða heldur hærri en á sl. ári. Athyglisvert er, að halli Banda- ríkjanna mun væntanlega stórauk- ast milli þessara tveggja ára, en það mun hafa í för með sér, að aðrar þjóðir innan OECD hljóta að auka afgang sinn á móti. Minnk- andi viðskiptahalli hjá þeim þróunarlöndum, sem ekki hafa olíu, endurspeglar erfiða skulda- stöðu þeirra, sem farið hefur ört versnandi og neyðir þau til að draga úr innflutningi á sama tíma og erfitt er um aukningu útflutn- ings. Hefur núverandi efnahags- lægð þar af leiðandi komið hvað harðast niður einmitt á þessum hópi landa. I heild er talið að framleiðslu- vöxtur á OECD-svæðinu verði um og innan við 1% milli síðasta árs og þessa. Á þessu ári verði vöxtur- inn í kringum 2% frá fyrra ári og farið lítið sem ekkert í vöxt, þegar á árið líður. Mun það ástand hald- ast fram á árið 1984. Þessi spá, sem kemur frá OECD í desember sl., er nokkuð svartsýnni en sú, sem gerð var fyrir sex mánuðum, og endurspeglar hún annars vegar að stjórnvöld stærstu iðnríkjanna hafa enn ekki viljað leggja út í verulegar framleiðsluaukandi efnahagsaðgerðir, en hins vegar kemur þarna fram, að atvinnurek- endur eru einkar svartsýnir á efnahagshorfur í náinni framtíð. Fjárfestingarhneigð atvinnuvega er hvarvetna í lágmarki, og kaup- hneigð neytenda með daufasta móti. Hvort tveggja þarf að breyt- ast til að núverandi ástandi verði snúið við.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.