Morgunblaðið - 28.01.1983, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 28.01.1983, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 1983 31 Slakur lokakafli í fyrri hálf- leik varð íslandi að falli — Þriggja marka sigur Dana í síðari leiknum Frá Þórarni Ragnarssyni, blaðamanni Morgunblaösins, í Danmörku. Danir sigruöu íslendinga í síð- ari landsleik þjóöanna sem fram fór í Nyköping Falster í gœr- kvöldi, meó 23 mörkum gegn 20. Paö kom strax í Ijós í upphafi leiksins aö danskurinn ætlaöi aö selja sig dýrt og ekki aö láta þaö koma fyrir aö íslendingar ynnu tvo leiki í röö á útivelli. Þaö var mikill kraftur í leik Dananna og þeir spiluðu vörnina mjög grimmt og jafnframt gróft. Danir tóku forystu strax í upp- hafi leiksins og eftir tíu mín. leik var staöan 4:3 fyrir þá. íslendingar fóru frekar hægt af staö — byrjun- arliö íslands í leiknum var þannig skipaö: Kristján Sigmundsson, Bjarni Guömundssson, Páll Ólafsson, Hans Guömundsson, Kristján Arason, Ólafur Jónsson og Þorgils Óttar Mathiesen — en þaö var stígandi í leik íslendinga og tóku þeir vel á móti Dönum. Leikurinn þróaðist upp í þaö aö vera mjög mikill baráttuleikur og var hann mjög harður. Á 13. mín. haföi íslandi tekist að jafna metin, 5:5, og hafði Alfreö þá skorað tvö mörk í röö, og á 16. mín. náöi ísland forystu í fyrsta skipti í leiknum er Alfreö skoraði sitt þriöja mark í röö meö þrumu- skoti — stökk upp fyrir utan vörn Dana og sendi knöttinn í bláhorn- ið. Sigurður Sveinsson bætti um betur — kom islandi yfir í 7:5, og allt útlit var fyrir aö íslenska liöiö myndi spjara sig mjög vel í leikn- um. Danir voru ákaft hvattir af áhorfendum, sem troöfylltu íþróttahöllina — uppselt var á leik- inn, og voru hér 2.500 áhorfendur. Martröð Á 20. mín. var ísland samt enn meö forystu, 8:7, og það var Alfreð sem skoraöi áttunda markið. Tveimur mín. síðar tókst Erik Veje Rasmussen aö jafna metin fyrir Dani úr víti. Eftir þetta kom mjög slæmur kafli hjá íslenska liöinu, og má segja að síðustu 12 mín. fyrri hálfleiks hafi veriö hrein martröð hér í íþróttahöllinni, því þá gekk hvorki né rak hjá íslendingum — þeir geröu sig seka um slæm mis- tök og skutu oft allt of fljótt, voru meö stuttar sóknir, og Danir, sem pressuðu þá út á völlinn, settu þá úr jafnvægi. Danir skoruöu fimm mörk á þessum kafla, án þess aö íslend- ingum tækist aö svara, og breyttu því stöðunni úr 8:8 í 13:8, og þann- ig var staöan í leikhléi. í síöari hálfleik skoruöu Danir fyrsta markið — staöan oröin 14:8 — og útlitiö allt annað en glæsi- legt. Munurinn þá oröinn sex mörk, og var það mesti munur sem varö í leiknum. Allt leit þá út fyrir stórsigur Dana, en íslenska liðið náöi sér aftur á strik og sýndi mjög mikla baráttu og kraft og þeim tókst smátt og smátt að minnka muninn og þegar hálfleikurinn var hálfnaður var 17:14 fyrir Dani. Munurinn eitt mark Síöustu fimmtán mínúturnar var hart barist og mjög mikil spenna í Breiöholts- hlaupi frestað Breiðholtshlaupi ÍR sem vera átti á morgun hefur verið frestaö og verður laugardaginn 19. febrú- ar kl. 13.00. leiknum, og vestur-þýsku dómar- arnir, sem dæmt höfðu mjög vel á miðvikudaginn misstu algjörlega tök á leiknum. Mikill darraöardans var hér í höllinni, og alls var fimm Dönum vísaö af velli, þar af tveim- ur í fjórar mín. hvorum. Fimm ís- lenskum leikmönnum var vísaö af velli — þar af Hans Guömundssyni tvisvar í tvær min. Þegar tíu mín. voru eftir haföi íslandi tekist aö minnka muninn niöur í eitt mark — staöan þá 18:17 — og allt á suðupunkti. Þeim haföi tekist aö minnka sex marka forystu Dananna niður í eitt mark og sýndu nú af sér mikinn baráttuvilja og vörnin var mjög vel leikin. Greinilega var kominn mikil spenna í Danina, og þeir misstu boltann í næstu sókn. íslendingar náöu þá góöri sókn og Alfreö komst í gegn en dæmdur var á hann ruðningur. Danir óöu þá upp og skoruðu þá dýrmætt mark, og staöan skyndilega orðin 19:17 í staö 18:18 heföi Alfreð skorað. Danir skoruöu aftur en Siguröur Sveinsson minnkaöl muninn í 20:18, en Danir ná aö fylgja þessu forskoti sínu eftir og voru ekki á þeim buxunum aö hleypa íslandi fram úr. Þeir komust í 22:19, og sigruðu 23:20, eins og fram kom í upphafi. Þýsku dómararnir dæmdu mjög stíft á islendinga undir lok leiksins og oft á tíöum voru þeir mjög ósanngjarnir, t.d. er staðan var 22:20 náöu islendingar boltanum á fullkomlega löglegan hátt en engu aö síöur var dæmt aukakast á island. Segja má aö fyrstu 20 mín. leiksins hafi íslenska liöiö spilaö vel — leikur liöanna var mun betri og kröftugri en i fyrri leiknum og íslenska liðið var mun ákveðnara og hreyfanlegra, og vörnin var all- góö. Kristján Sigmundsson byrjaði í markinu og spilaöi fram aö hálf- leik og varði hann fimm skot. Brynjar Kvaran lék allan síöari hálfleikinn varöi hann fjögur skot. Alfreð bestur Besti leikmaður íslenska liösins var tvímælalaust Alfreö Gíslason, hann skoraöi sex mörk í leiknum og var mjög ógnandi, en samt var hans einstaklega vel gætt af Dön- um. Rétt er geta frammistööu Bjarna Guðmundssonar, hann spilaði allan leikinn og baröist af fádæma dugnaði. Hann skoraöi fjögur mjög glæsilega mörk og lék afar vel bæöi í sókn og vörn. Aðrir leikmenn náöu sér ekki verulega á strik, t.d. var Kristján Arason mis- tækur í leiknum og sama má segja um Hans Guðmundsson, sem var góöur í fyrri leiknum. Nú var hann óheppinn meö skot sín og var full bráöur aö skjóta á stundum og lék ekki nógu yfirvegaö. Þegar á heildina er litið má segja að liöiö hafi komiö sæmilega Fariö til Finn- lands í dag íslenska landsliðiö heldur Noröurlandareisu sinni áfram í dag, en þá fer hópurinn til Finn- lands. Þar veröur síöan leikið við heimamenn á laugardag og sunnudag. Á mánudag er ferðinni heitið til Noregs, þar sem leikið verður á þriöjudag og miöviku- dag við frændur vora Norömenn. Hópurinn kemur heim næsta fimmtudag. — SH. vel frá leiknum, ef undanskilinn er hinn hroöalegi kafli í lok fyrri hálf- leiksins, sem réö hreinlega úrslit- um í þessum leik, þar sem varla var möguleiki á því aö vinna upp sex marka forskot Dana. Danirnir spiluöu mun betur í þessum leik en þeim fyrri, þeir voru mjög ákveönir og spiluöu fast og voru hreyfanleg- ir, og besti maöur liösins var Erik Veje Rasmussen, sem leikur meö Helsingör. Hann skoraöi átta mörk, þar af þrjú úr vítum, og sýndi frábæran handbolta. Samt var hann tekinn úr umferö langtím- um saman i síöari hálfleik. Þá var Michael Fenger góöur og skoraði hann fimm mörk. Aörir sem skor- uöu fyrir þá voru: Klaus Skletting 2, Kjeld Nielsen 2, Hans Erik Hattesen 2 og Jörgen Gruver 1. Mörk islands Alfreö Gíslason 6, Bjarni Guömundsson 4, Kristján Arason 4 (2 víti), Páil Ólafsson 2, Hans Guömundsson 2, Sigurður Sveinsson 2 og Steindór Gunn- arsson 1. Mikiö var um brottvisanir, ís- lendingar voru fimm sinnum reknir út af, Steindór tvivegis í tvær, Þorgils í tvær, Páll Ólafsson í tvær, og Hans Guömundsson tvívegis í tvær. Einnig voru tveir danskir leikmenn reknir af velli, og fóru tveir þeirra tvívegis út af. — SH./— ÞR. Viðbrögð dönsku blaðanna: Mjög óhress með tapið Alfreð Gíslason, sem hér sést í landsleik gegn Dönum milli jóla og nýárs í Laugardalshöll, stóö sig framúrskarandi vel í báöum leikjunum gegn Dönum á útivelli í gærkvöldi og fyrrakvöld. Alfreð var markahæstur í leiknum í gær, skoraði sex mörk og var mjög ógnandi. Þá hefur Alfreð staöiö sig vel í varnarleiknum, verið fastur fyrir og ekkert gefið eftir. Hann hefur aldrei náð sér veru- lega á strik meö landsliðinu fyrr en nú og er vonandi að hann verði góöur í framtíöinni með liö- inu. B-keppnin er framundan og þar kemur örugglega til meö aö mæöa mikið á honum í baráttu viö fíleflda varnarmenn. Alfreö hefur leikið mjög vel með liði sínu, KR, í vetur og verður missir KR mikill, ef hann fer frá félaginu í vor. Svo gæti farið, en nánar er fjallað um það á bls. 29. Frá Þórarni Ragnarssyni, blaöamanni Morgunblaðsins, í Danmórku. Viöbrögð Dönsku blaðamann- anna við sigri íslendinga í fyrri leik liðanna voru á einn veg — allir voru þeir mjög óhressir með tapið og sögðu blöðin í gær að danska liðið hefði leikið illa. Töldu blöðin danska liðið ekki geta staðið undir því að teljast fjórða besta lið í heimi — en Danir urðu í fjórða sæti í síðustu heims- meistarakeppni — og segja þeir slæmt hve liðiö dettur niður á milli stórkeppna. Sögðu þeir liðið hafa hikstað mjög gegn íslendingum og voru greinilega afskaplega miður sin að leikurinn skyldi ekki hafa unnist. Voru blöðin sammála um það að liðið gæti ekki leikið svona illa tvo daga í röð, og tryðu þau ekki öðru en að sigur ynnist í síðari leiknum — sem fram fór í gær- kvöldi, og fjallað er um annars staðar á hér á siðunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.