Morgunblaðið - 02.02.1983, Síða 1
64 SÍÐUR
26. tbl. 70. árg. MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 1983 Prentsmiðja Morgunblaðsins
RKESKIR HERMENN í BEIRÚT. Hópur 22ja breskra hermanna kom til Beirút í Líbanon í gær en þar munu
þeir taka höndum saman vió ítalska, franska og bandaríska hermenn við gæslustörf í landinu. Von er á fleirum
næstu daga en alls munu þeir verða um 100 talsins. AP.
Andropov haftiar
áskorun Reagans
— en tillögunni vel fagnað á Vesturlöndum
Pólland:
Lægri laun
handa veik-
um verka-
mönnum
Varsjá, 1. febrúar. AP.
Kommúnistastjórn Póllands
tókst í gær að yfirstíga áður
óþekkta andstöðu á þjóðþinginu
og fá þar samþykkt frumvarp, sem
ætlað er að draga verulega úr fjar-
veru frá vinnu með því að lækka
laun stórlega í veikindaforfóllum.
Áttatíu og átta af 294 þingfull-
trúum, sem viðstaddir voru at-
kvæðagreiðsluna, sátu hjá og 10
greiddu atkvæði gegn frumvarp-
inu.
Margir þeirra þingmanna,
sem sátu hjá við atkvæða-
greiðsluna eða voru frumvarp-
inu andvígir, kvörtuðu yfir því,
að frumvarpið myndi skaða
hagsmuni heiðarlegra verka-
manna. Ætlun stjórnvalda með
frumvarpinu er hins vegar að
bæta efnahag Póllands, sem hef-
ur átt við mikla erfiðleika að
stríða að undanförnu. Sam-
kvæmt því fá pólskir verkamenn
aðeins 50% af launum sínum
fyrstu þrjá dagana í veikinda-
forföllum, en síðan 80%. Til
þessa hafa þeir fengið 80%
launa frá upphafi veikinda.
Samtímis þessu frumvarpi
var borið fram annað frumvarp
um betri launakjör til handa
námuverkamönnum á eftirlaun-
um og var það samþykkt mót-
atkvæðalaust.
Rússar lækka
verð á hráolíu
Fjögur Arabaríki boða
verölækkun eftir viku
Kóm, I. febrúar. AP.
SOVÉTMENN hafa lækkað verð
á hráolíu um 2,15 dollara og er
verðið nú 29,35 dollarar fyrir
tunnuna. Vegna þessa er talið, að
aðrir olíuframleiðendur neyðist
til að lækka sína hráolíu einnig.
Fréttastofan í Kuwait sagði í
dag, að arabískar olíufram-
leiðsluþjóðir við Persaflóa
myndu innan viku lækka sitt
hráolíuverð um fjóra dollara.
Lækkunin á hráolíuverðinu í
Rússlandi kemur fram í olíu-
kaupasamningi, sem tvö ítölsk
fyrirtæki hafa gert nú nýlega.
Er haft eftir talsmönnum
fyrirtækjanna, að Rússar hafi
staðfest við þá þetta nýja verð.
í gær var verð á rússneskri
hráolíu á skyndimarkaðnum í
Rotterdam 28,50 dollarar fyrir
tunnuna.
Hin opinbera fréttastofa í
Kuwait sagði í dag, að fjórar
aðildarþjóðir OPEC við Persa-
flóa, Saudi-Arabía, Kuwait,
Sameinuðu arabísku fursta-
dæmin og Qatar, hefðu til-
kynnt samtökunum, að innan
viku yrði hráolíuverð frá þeim
lækkað um fjóra dollara á
tunnu. Væri þetta gert vegna
áframhaldandi „offramleiðslu"
í íran, Venezuela, Nígeríu, Líb-
ýu og Alsír, sem einnig undir-
byðu aðrar þjóðir í OPEC með
því að bjóða a.m.k. fjögurra
dollara afslátt á hverja tunnu.
I.ondon, I. ft bruar. AP.
ÁSKORUN Ronalds Kcagans,
Bandaríkjaforseta, á Yuri Andropov,
leiðtoga Sovétmanna, um að þeir hitt-
ust og semdu um „afnám allra meðal-
drægra kjarnorkuflauga af yfirborði
jarðar" var í dag fagnað { Vestur-
Evrópu en Andropov hefur hins vegar
hafnað henni á þeirri forsendu, að í
tillögu Kcagans sé „ekkert nýtt“ að
finna.
Tass-fréttastofan rússneska
hafði það í dag eftir Andropov, að
tillaga Reagans væri aðeins ítrek-
un á núll-stefnunni svokölluðu, sem
felst í því, að ekki verði komið fyrir
neinum meðaldrægum eldflaugum
í Evrópu. Á það hafa Sovétmenn
ekki viljað fallast. Sagði Andropov
tillögu Reagans óraunhæfa og til
þess fallna að koma í veg fyrir
samkomulag í Genf.
Vel fagnað í Vestur-Evrópu
Tillaga Reagans, sem George
Bush, varaforseti opinberaði í Ber-
lín í gær, hefur verið aðalfréttaefn-
ið í Vestur-Þýskalandi og annars
staðar í Vestur-Evrópu. Helmut
Kohl, kanslari, sagði í gær, að hér
væri um „friðarboðskap" að ræða
og nú yrðu Sovétmenn að sýna það
í viðræðunum í Genf, að þeir vildu
í raun semja um frið og afvopnun.
Hans-Jochen Vogel, kanslaraefni
jafnaðarmanna, sagði, að tillagan
væri „skref í rétta átt“ en var hins
vegar vantrúaður á jákvæð við-
brögð Sovétmanna. Claude Cheyss-
on, utanríkisráðherra Frakka,
sagði í London í dag, að hann fag-
naði tillögu Reagans og kvaðst vera
mjög hlynntur fundi æðstu manna
stórveldanna tveggja. The Times of
London sagði um tillöguna, að með
henni sýndi Reagan á áhrifaríkan
hátt, að hann vildi semja um frið
og ítalska stórblaðið Corriere della
Sera og vinstrisinnaða blaðið La
Republica sögðu tillöguna „stór-
kostlegt" frumkvæði.
Harma viðbrögð Rússa
Bandaríska utanríkisráðuneytið
lýsti í dag vonbrigðum sínum með
undirtektir Andropovs við tillögu
Reagans um gagnkvæmt bann við
öllum meðaldrægum kjarnorkueld-
flaugum. Sagði talsmaður þess, Al-
an Romberg, að tilboð Reagans um
fund þeirra leiðtoganna stæði enn
og að vonandi tækju Sovétmenn
það til frekari athugunar. Bush,
varaforseti, kom til Hollands í dag
þar sem hann mun eiga viðræður
við stjórnvöld og hvetja til aukinn-
ar einingar innan Nato.
Danmörk:
Verkfalls-
menn að
gefast upp
Kaupmannahofn, I. febrúar. AP.
TALIÐ var í dag aó danskir hafnar-
verkamenn myndu brátt gefast upp
á verkfalisaögerðum en þær hafa nú
staðið um tveggja mánaða skeiö. Til
verkfallsins var efnt þegar ríkis-
stjórnin ákvað að minnka nokkuð
atvinnuleysisbætur, sem greiddar
eru þeim hafnarverkamönnum, sem
ekki vinna fullan vinnudag.
Paul Schlúter, forsætisráð-
herra, sagði í dag eftir ríkisstjórn-
arfund, að verkfallið hefði ekki
valdið neinum skorti í landinu og
að engin breyting yrði á ákvörðun
stjórnarinnar um atvinnuleysis-
bæturnar. í Kalundborg og Frede-
ricia komu hafnarverkamenn til
vinnu í morgun í þeirri trú, að
samningar yrðu teknir upp, en í
nágrannaborgunum söfnuðust
þeir saman við hafnirnar og sneru
heim aftur þegar afstaða ríkis-
stjórnarinnar var ljós.
Atvinna er stundum stopul hjá
dönskum hafnarverkamönnum og
því hefur þeim verið bætt upp það,
sem á vantar 40 stunda vinnudag,
með atvinnuleysisbótum. Fyrir
tveimur mánuðum ákvað stjórnin
að skerða þennan styrk um 20%
og var það liður í víðtækum efna-
hagsaðgerðum hennar. Hardy
Hansen, formaður Verkamanna-
sambandsins danska, bauðst í gær
til að fá hafnarverkamenn til að
snúa aftur til vinnu ef þeir fengju
tveggja ára umþóttunartíma en
því neitaði Schlúter. Kvað hann
verkfallið ólöglegt eins og félags-
dómur hefði skorið úr um auk
þess, sem það hefði einkennst af
ofbeldisaðgerðum nokkrum sinn-
um. „Fólk má ekki halda, að
verkalýðsbarátta af þessu tagi
geti borgað sig,“ sagði Schlúter.
Talsmenn vinnuveitenda segja,
að verkfallið sé að renna út í sand-
inn. Sl. föstudag hefðu 26 skip ver-
ið afgreidd, 41 í gær og 51 í dag og
nú væru aðeins 20 skip stopp
vegna verkfallsaðgerðanna.
Christine Stevens, forseti bandarísku dýraverndunarsamtakanna AWI:
Mótmæli íslendingar krefj-
umst við innflutningsbanns
Mótmæli þeir ekki, beitum við okkar fyrir betri viðskiptakjörum
Washinglon I. Tebrúar. Krá (>unnari l'álssvni blaóamanni Mbl.
„MÓTMÆLI íslendingar ákvörðun Alþjóðahvalveiöiráösins um stqðvun
hvalveiða frá og með árinu 1986, sjáum við okkur ekki annað fært en að fara
þess á leit við handarísk stjórnvöld, að allur innflutningur á fiski frá íslandi
verði stöðvaður. Við skiljum þann vanda, sem fslendingar eiga við að etja
nú, en skiljum ekki að þeir skuli auka enn frekar á hann með því að ætla sér
að mótmæla hvalveiðibanninu," sagði Christine Stevens, forseti Bandarísku
dýraverndunarsamtakanna, Animal Welfare Institute, í samtali við Morgun-
blaðið í dag.
Christine Stevens sagði enn-
fremur, að mótmæltu fslendingar
ekki banninu myndu dýravernd-
unarsamtökin ekki aðeins hætta
mótmælaaðgerðum, heldur beita
sér fyrir því, að íslendingar nytu
betri viðskiptakjara í Bandaríkj-
unum en hingað til. Nefndi hún
það dæmi, að Kóreumenn hefði
ekki mótmælt banninu og hefðu
notið rýmri viðskiptakjara vegna
þess gagnstætt Japönum, sem
mótmæltu banninu.
Aðstoðarmaður fulltrúadeildar-
þingmannsins Dons Bonker, sem
er formaður þeirrar undirnefndar
Bandaríkjaþings, sem fer með
mannréttindamál og alþjóða-
stofnanir, þar með talið hval-
veiðimál, sagði ekki vafa á því að
þingið yrði að ræða þetta mál og
móta niðurstöðu í því. Væri það
vegna þess að í lögum frá 1979 um
fiskverndun og ráðstafanir vegna
þeirra væri svo kveðið á í Pelly-
viðbótarlögunum, að forseta
Bandarikjanna væri heimilt að
stöðva allan innflutning á fiski
frá þeim þjóðum, sem ekki virtu
ákvarðanir Alþjóðahvalveiðiráðs-
ins. Þegar málið kæmi fyrir á
þinginu myndi Don Bonker beita
sér fyrir því að þingið ákvæði
stöðvun innflutnings sjávaraf-
urða frá íslandi. Mæltist við-
skiptaráðherrann, Malcolm
Baldridge, til þess við þingið, að
það ákvæði slíkar refsiaðgerðir,
þyrfti ekki að koma til ákvörðun
forsetans þar að lútandi.
f öðrum viðbótarlögum,
Peckwood-Magnusson-viðbótar-
lögunum, er kveðið svo á, að við-
skiptaráðherra Bandaríkjanna sé
heimilt að svipta erlendar þjóðir
veiðiréttindum innan bandarísku
lögsögunnar virði þau ekki
ákvarðanir Alþjóðahvalveiðiráðs-
ins. Alls hafa 66 öldungardeildar-
þingmenn staðfest Pelly-viðbót-
arlögin með undirskrift sinni og
má þar nefna marga af þekktustu
stjórnmálamönnum Bandaríkj-
anna, þeirra á meðal Edward
Kennedy og Barry Goldwater.