Morgunblaðið - 02.02.1983, Page 19

Morgunblaðið - 02.02.1983, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 1983 19 Kristinn Pétursson útgerðarmaður Bakkafirði: Eignarnám á gengismun er stjórnarskrárbrot Ef Alþingi samþykkir að gera eignarnám á margumræddum gengismun þá brýtur Alþingi 67. gr. stjórnarskrárinnar sem kveður á um að ekki megi gera eigur annarra upptækar nema fullar bætur komi fyrir. Þetta mál er ákaflega einfalt. Hitt er svo annað mál hvað svokall- aðir „sérfræðingar" geta þvælt mál- in. Að mínu viti eiga sölusamtök eða einkaútflytjendur í sjávarútvegi sína samninga um sölu á afurðum í erlendum gjaldeyri. Þessi eignarrétt- ur er ekki véfengjanlegur. Þótt rík- isstjórn íslands klúðri efnahags- legri stjórnun landsins og verði þar af leiðandi að fella gengið gefur það henni engan rétt til að hirða þann mismun í íslenskum krónum talið af fiskbirgðunum í landinu á þeim tíma sem gengisfellingin átti sér stað. Sumir segja að „svipaðar ráðstaf- anir hafi verið gerðar áður“ og finnst það einhver rök. En ég bara spyr? Ef einhver hefur gerst sekur um fjárdrátt nokkrum sinnum og ekki verið gert neitt í málinu, gefur það þá viðkomandi hefð til þess að halda fjárdrættinum áfram? Ef þetta má, hvers vegna var þá ekki gert eignarnám á „gengismun" Álversins í Straumsvík og honum ráðstafað til að greiða vandræða- verksmiðjunni í Hvalfirði, sem við vorum svo vitlausir að láta komm- Kristinn Fétursson únista ráða að við ættum meiri- hluta í. Eða taka gengismun af ullar- og skinnaiðnaðinum og nota hann til þess að styrkja verst settu hænsna- bú í landinu. Er ekki tímabært að fara að opna augun? Nú er búið að telia flest niður í landinu á hausinn. Iskyggi- legt verður það að teljast þegar svo dómgreindarskakkir menn sitja á Alþingi íslendinga, að þeir virki- lega trúi því sjálfir að þeir hafi um- boð þegnanna til, undir þessum kringumstæðum, að vera að kukla í stjórnarskrána. Halda námskeið um samninga- tækni á erlendum mörkuðum BETRI undirbúningur undir samn- ingagerð og að beita meiri tækni við gerð samninganna sjálfra er mál, sem efst er á baugi hjá öllum út- flutningsfyrirtækjum í dag, segir í frétt Útflutningsmiðstöðvar iðnað- arins. Ennfremur segir: Þess vegna hef- ur Iðnþróunarsjóður og Útflutn- ingsmiðstöð iðnaðarins ákveðið að standa fyrir þessu námskeiði hér á landi. Námskeiðið er fyrst og fremst ætlað markaðsstjórum, sölustjórum og stjórnendum fyrirtækja í út- flutningsiðnaði og verður haldið að Hótel Loftleiðum 2. og 3. febrúar næstkomandi. Þetta námskeið er mjög vinsælt á Norðurlöndum um þessar mundir, það hefur t.d. verið haldið 5 sinnum að tilhlutan norska útflutningsskól- ans, ótal sinnum á vegum sænska útflutningsskólans og sænskra stór- fyrirtækja, auk þess sem það hefur verið haldið í Finnlandi og Bret- landi. Á námskeiðinu verður farið yfir raunveruleg dæmi (case) um samn- inga og undirbúning þeirra, en seinni námskeiðsdaginn fá þátttak- endur að spreyta sig á að semja við hvorn annan um ákveðið mál og eru samningsumleitanirnar teknar á myndsegulband og síðan farið yfir aftur, til að athuga hvað hafi verið vel eða miður gert. Allar nánari upplýsingar um námskeiðið eru veittar á Útflutn- ingsmiðstöð iðnaðarins. Ríkisafskipti í ætt við „sósíalisma andskotans“ — segir Guðmundur J. Guðmundsson um tillögur sjávarútvegsráðherra um ráðstöfun gengismunar „ÞKSSI ríkisafskipti og skömmtun- arkerfi cni að mínu mati í ætt við sósíalisma andskotans, eins og það er kallað. Þarna á að taka af fyrirtækj- um, sem kannski rétt halda sér á floti, stórfé og geðþóttaákvarðanir ráðherra eiga síðan að ráða því hverjir fá lán. Ég er bara ekki meiri sósíalisti en það að mér gjörsamlega óar við að fylgja þessu eftir," sagði Guðmundur J. Guð- mundsson alþingismaður í tilefni af því að hann hefur gert fyrirvara við tillögur Steingríms Hermannssonar á Alþingi um ráðstöfun gengismunar. Guðmundur sagðist treysta Steingrími Hermannssyni illa til að fara með þetta fjármagn. Hann sagði: „Þarna er gert ráð fyrir að eftirstöðvum gengismunar, ásamt vöxtum, skuli ráðstafað samkvæmt nánari ákvörðun sjávarútvegsráðu- neytisins í samráði við sjávarút- vegsnefndir Alþingis. Þarna er það á ferðinni, að gengishagnaður verð- f'ur meiri en áætlað var og ráðherr- ann bætir þarna við nýrri grein um ráðstöfun þess. Hann tekur þarna að minnsta kosti 30 milljónir króna, ef ekki meira, og ætlar að ráðstafa þeim sjálfur eða til Byggðasjóðs. Dæmin um slíkar fyrirgreiðslur tala sínu máli. Því geri ég fyrirvara á þessu stigi málsins. Nú gæti einhver sagt að fyrirtæki eins og Bæjarút- gerð Hafnarfjarðar þurfi á þessu að halda, en mér er til efs að þetta sé rétta leiðin. Það á að gera upptækan hagnað af birgðum fyrirtækjanna og síðan eiga þau að fá, líklega svip- aðar upphæðir, til baka afur að láni gengistryggt frá Byggðasjóði. Hví ekki að láta fyrirtækin sjálf ráð- stafa sínum eigin fjarmunum? Lesendaþjónusta Morgunblaðsins: Spurt og svarað um áfeng- ismál og önnur vímuefni Eins og skýrt var frá í Morgunblaðinu, mun blaðið á næstunni birta spurningar og svör um áfengisvandamálið og önnur vímu- efni. Lesendum Morgunblaðsins er geflnn kostur á því að hringja inn spurningar um hvað eina, sem snertir þessi málefni og mun SÁÁ hafa milligöngu um að afla svara sérfróðra aðila við þessum spurningum. Þeir, sem hafa áhuga, eru beðnir að hringja í síma 10100 frá kl. 10—11 frá mánudegi til föstudags og verða þá spurningar teknar niður. Spurningar og svör birtast síðan í Morg- unblaðinu nokkrum dögum síðar. Hér fara á eftir spurningar og svör: Hringið í síma 10100 frá mánudegi til föstudags Áhrif áfengis- drykkju á líkamann mörg og margvísleg Karlmaður spyr. Hvaða áhrif hefur áfengisneysla á líkamann. Hefur hún áhrif á eitthvert eitt líffæri fremur en ann- að? Áhrif áfengisdrykkju á líkam- ann, sem vara lengur en víma og timburmenn eru mörg og marg- vísleg. Sem betur fer getur lík- aminn lengi framan af bætt úr þeim sköðum, sem verða, fái hann nægilega langa hvíld frá áfengi. Hér kemur stutt upptaln- ing til þess að gefa mönnum vísbendingu um hversu víðtækt eiturefni áfengið er. Áhrif á heila: Truflun á starfsemi heilans af óhóflegri áfengisdrykkju varir lengur en víma og timburmenn. Flest af þessu má beinlínis mæla: Truflun á svefni, minnkað nærminni, minnkaður hæfileiki til vandamálaúrlausna, breyt- ingar á dómgreind o.fl. Beinar vefjaskemmdir á litla og stóra heila og meiri eða minni starfstruflanir samfara þeim. Áhrif á meltingarveg: Erting og bólga í vélinda, maga og skeifugörn, sem auð- veldar myndun magasára og ger- ir þau stærri og fylgikvilla al- gengari. Breytingar á mjógirni, sem valda því, að við nýtum illa tvö B-vítamínin, B-12 og Folin- sýru, og einkenni um skort á þeim geta komið fram. Lifrar- bólga og briskirtilbólga. Áhrif á hjarta og æðakerfi: Langvarandi drykkja ásamt næringarskorti veldur veiklun hjartavöðva og auk þess oft hjartsláttartruflunum. Þessi áhrif geta leitt menn til dauða í deleríum tremens. Annars kem- ur þetta harðast niður á þeim, sem hafa hjartasjúkdóma fyrir, þá oft í formi versnandi áreyns- luverks eða hækkaðs blóðþrýst- ings. Áhrif á efnaskipti og inn- kirtla: Þessi áhrif eru býsna víðtæk. Nefna má truflun á sykurbúskap líkamans til lengri eða skemmri tíma, fitusöfnun í lifur, minnkun nauðsynlegrar framleiðslu ein- stakra eggjahvítuefna, hækkun á þvagsýru með aukinni hættu á þvagsýrugigt, truflun á salt- og vatnsbúskap líkamans. Minnkuð karlhormónaframleiðsla. Halda mætti upptalningunni áfram og tala um úttaugabólgur, bólgur í sjóntaug, vöðvarýrnun, ertingu í lungum o.fl. o.fl. Okkar reynsla sú að allir fjölskyldu- meðlimir þurfi að taka þátt í batanum Maðurinn minn er í meðferð hjá SÁÁ, en ég tel mig vera hóf- drykkjumanneskju. Á ég að hætta að drekka? Sigurður Gunnsteinsson dag- skrárstjóri á Sogni svarar. Þessi spurning kemur oft upp hjá aðstandendum, en við henni er ekkert einhlítt svar. Alkóhól- isti sem lýkur meðferð hjá stofn- unum SÁÁ veit að áfengi er og verður notað áfram hjá mjög stórum hópi af fólki og auðvelt er að nálgast það, ef þess er óskað. Hann veit líka af eigin reynslu og væntanlega vegna nýrrar þekkingar, að notkun áfengis gerir ástand hans verra og verra. Okkar reynsla er sú að allir fjölskyldumeðlimir þurfa að taka þátt í batanum. Þetta er jú fjölskyldusjúkdómur og bati hlýtur þá að vera fjölskyldubati. Tillitsemi er nauðsyn hjá öllum í fjölskyldunni og ætti að vera kostur sem bæri að leggja áherslu á. Alkóhólistinn er oft á tíðum viðkvæmur og óstöðugur fyrst um sinn, á meðan aðlögun að breyttu lífi er að eiga sér stað. Svo er einnig um aðra fjöl- skyldumeðlimi. Það á allt sínar skýringar sem of langt mál væri að fara út í hér og nú. Þar sem þessi spurning er frá hóf- drykkjumanneskju ætti hún skv. skilgreiningu á hófdrykkju- manneskju að eiga auðvelt með að láta áfengi vera a.m.k. fyrst um sinn. Hefur áfengi ein- hver varanleg áhrif Pétur Þorleifsson spyr: Hefur áfengi einhver varanleg áhrif, andleg eða líkamleg? Hvaða rannsóknir liggja til grundvallar þekkingu á þessu sviði, hvað er vitað og hvað ekki? f þætti í út- varpinu fyrir tveim árum kom fram, að samkvæmt rannsókn sem danskur læknir hafði framkvæmt, teldist svo og svo stór hópur danskra unglinga öryrkjar, vegna heilaskemmda af völdum áfeng- isneyslu. Hvað er hæft í þessu? Þórarinn Tyrfingsson læknir svarar. Sannað er, að áhrif áfengis geta orðið svo víðtæk, að þau gera unga og ófædda að öryrkj- um. Fyrir hinn almenna ofneyt- anda áfengis er þessi hætta þó hverfandi. — Ef við ætlum að aka frá Reykjavík til Akureyrar kynni Hvítárbrúin að falla niður ef við leggðum leið okkar yfir hana, en fleira er þó að varast á norðurleið. Stjórn SÁÁ skipa 36 menn Hvernig er stjórnunarfyrirkomu- lagi háttað hjá SÁÁ og hversu margir starfsmenn starfa hjá sam- tökunum? Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson framkvæmdastjóri SÁÁ svarar. Stjórn SÁÁ skipa 36 menn. Á hverjum aðalfundi SÁÁ, sem haldinn er í október, eru 12 stjórnarmenn kosnir til þriggja ára í senn. Formaður SÁA er kosinn sérstaklega á aðalfundi. Stjórn SÁÁ kýs síðan 7 manns úr sínum hópi í framkvæmda- stjórn en formaður SÁÁ er jafn- framt formaður framkvæmda- stjórnar. Á hverri meðferðarstofnun SÁÁ þ.e. Silungapolli, Sogni, Ölfusi, Staðarfelli, Dölum, svo og fræðslu- og leiðbeiningarstöð SÁÁ, eru stjórnnefndir sem fara með rekstrarstjórn viðkomandi staða. Hver stjórnnefnd er skip- uð 5 manns, þrem skipuðum af stjórn SÁÁ, einum skipuðum af starfsmönnum viðkomandi staða og einum skipuðum af sveitar- stjóra. Starfsmenn að Silungapolli eru 24 en sjúklingar 30—35, á Sogni eru 8 starfsmenn og að Staðarfelli 7 starfsmenn. U.þ.b. 60 manns eru að jafnaði í með- ferð á báðum stöðunum, 30 manns á hvorum stað. Starfs- menn í fræðslu- og leiðbein- ingarstöð SÁÁ, síðumúla 3—5 eru 6. Ein setning féll ut I upphafi svars Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar í gær við spurn- ingunni um það, hvernig starf- semi SÁÁ væri fjármögnuð féll ein setning út. Setningin á að vera „Rekstur meðferðastofnana SÁÁ er kostnaður af daggjöld- um sjúkratrygginga, en allur annar kostnaður vegna starf- semi SÁÁ svo sem vegna fræðslu- og leiðbeiningastöðvar, fræðslu í skólum, fyrirtækjum og víða, útgáfukostnaður og m.fl. er fjármagnaður með stuðningi félagsmanna, sveitarfélaga, verkalýðsfélaga, fyrirtækja, klúbba og fl. ..." og síðan er svarið eins og það var í blaðinu í gær. „Spennandi að vera innan um heimsþekkta ökumenn“ „ÞAÐ er alveg stórkostlegt að fá rásnúmer tíu í rallinu. Við verðum örugglega undir miklu álagi, inn- an um alla þessa heimsþekktu rallökumenn, en það er mjög spennandi,“ sagði Birgir Viðar Halldórsson í samtali við Morgun- blaðið í gær. Hann ásamt Hafsteini Hauks- syni tekur þátt í svokölluðu Mintex-ralli í Englandi í lok febrúar. Morgunblaðið komst á snoðir um hverjir væru fyrir framan þá félaga í rásröð. Þeirra á meðal eru Bretlands- eyjameistarinn Jimmy McRae og Svíinn Stig Blomqvist á Audi Birgir og Hafsteinn fengu rásnúmer 10 Quattro, sem af mörgum er tal- inn besti rallökumaður heims. Um hundrað keppendur taka þátt í rallinu og geta Hafsteinn og Birgir sannarlega hrósað happi yfir drættinum um rás- röðina. „Það munar miklu að vera svona framarlega og hafa veg- ina ótætta, mun akstursstíll Hafsteins njóta sín mun betur en ella hefði orðið. Það eina sem við erum bangnir við eru mal- biksleiðir í byrjun og lok ralls- ins. Við stefnum að því að hleypa engum framúr, svo fram- arlega sem ekki bilar hjá okkur,“ sagði Birgir að lokum. Það er öruggt að Hafsteinn og Birgir koma til með að vekja mikla athygli, en sjaldgæft er að nýliðar í alþjóðlegum röllum erlendis byrji jafn framarlega og raun ber vitni. Þess má geta að allir keppendur fyrir framan þá félaga í rásröð aka bílum undir stjórn bílaverksmiðja og eru því atvinnumenn. Viðtal við Birgi og Hafstein er á bls. 44.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.