Morgunblaðið - 02.02.1983, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 1983
5
Áttundu tónleikar Sinfóníunnar:
Philip Jenkins leikur einleik
ÁTTUNDU áskriftartónleikar Sin-
fóníuhljómsveitar íslands starfsárið
!982/’83 verða í Háskólabíói
fimmtudaginn 3. febrúar kl. 20.30.
Uetta eru síðustu tónleikar fyrra
misseris. Fyrstu tónleikar síðara
misseris verða 17. febrúar nk. Efn-
isskrá tónleikanna 3. febrúar er sem
hér segir: Bartók: Divertimento,
Schumann: Fíanókonsert og Prok-
ofieff: Kómeó og Júlía, ballett-svíta.
Stjórnandi tónleikanna er aðal-
hljómsveitarstjórinn, Jean-Pierre
Jacquillat.
Einleikarinn á tónleikunum er
píanóleikarinn Philip Jenkins,
fæddur í Newcastle á Englandi.
Hann stundaði aðallega píanónám
hjá Harold Craxton við Royal
Academy of Music í London, en
þar er hann nú sjálfur prófessor.
Einnig lærði Jenkins um skeið hjá
Jacques Fevrier í París og hjá
Dame Myra Hess, sem var einn
frægasti píanóleikari Breta fyrr
og síðar. íslendingar eru löngu
þaulkunnugir listamanninum
Philip Jenkins, því að hann hefur
haldið hér fjölda tónleika, bæði
sem einleikari og í kammermúsík,
auk þess sem hann var lengi bú-
settur á Akureyri og kenndi þar
mörgum góðum á hljóðfæri sitt.
Auk Sinfóníuhljómsveitar íslands
hefur Jenkins meðal annars komið
fram með helstu hljómsveitum
Bretlands og á útvarpstónleikum
með hljómsveitum Bretlands og á
útvarpstónleikum með hljómsveit-
um útvarpsstöðva BBC, Hamborg-
ar, Kölnar og Osló.
„Á ÞESSU stigi vil ég ekkert um
málið segja, en við munum hugs-
anlega ræða þetta við landbúnað-
arráðherra á morgun, en hann hef-
ur verið erlendis að undanförnu,"
sagði Hjálmar Finnsson fram-
kvæmdastjóri Áburðarverksmiðju
ríkisins í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins. Hjálmar var
spurður hvernig verksmiðjan
myndi bregðast við þeim vanda
sem nú steðjaði að, vegna mikilla
erlendra skulda.
Eins og fram kom í frétt Morg-
unblaðsins á sunnudag, nema
skuldir Áburðarverksmiðjunnar nú
um 144 milljónum króna í City
Bank í London, og kvaðst Steinþór
Gestsson alþingismaður telja, að
áburðarverð yrði að hækka um
120% milli ára, kæmu ekki til sér-
stakar ráðstafanir aðrar.
Yfirlýsing Skíðasambands íslands:
„Harmar grófa frétta-
fölsun Þjóðviljans
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá stjórn
Skídasambands íslands:
„Stjórn Skíðasambands íslands
harmar grófa fréttafölsun Helgar-
blaðs Þjóðviljans 29. janúar sl.,
þar sem jafnframt er vegið mjög
ómaklega að formanni Skíðasam-
bands íslands, Hreggviði Jóns-
syni, varðandi Norræna
Fjölskyldukeppni á skíðum 1983.
Stjórn Skíðasambands íslands
vill taka fram vegna fréttar þess-
arar að Morgunblaðinu hefur ekki
verið greitt eitt eða neitt vegna
auglýsingar í blaðinu s.l. miðviku-
dag. Morgunblaðið hefur hins veg-
ar sýnt með mjög myndarlegu
skíðablaði, þar sem aðaláherslan
var lögð á Norrænu Fjölskyldu-
keppnina á skíðum 1983, Skíða-
sambandi Islands og skíðaíþrótt-
inni ómetanlegan stuðning og vill
stjórnin þakka þetta nú. Ekki að-
eins hefur blaðið auglýst keppnina
Skíðasambandinu að kostnaðar-
lausu, heldur hefur Morgunblaðið
látið gera dreifimiða og ýmislegt
annað til að vekja athygli á keppn-
inni.
Þá er rétt að minna á, að Dag-
blaðið Vísir hefur einnig tekið á
þessu máli af stórhug og,var fyrst
til að koma skráningarspjaldi
keppninnar á framfæri við al-
menning. Einnig hefur RUV, út-
varp og sjónvarp skýrt frá keppn-
inni.
Stjórn Skíðasambandsins vill
undirstrika, að öllum er frjálst að
Rostungurinn hinn
rólegasti í Rifshöfn
ROSTUNGURINN í Rifshöfn er við beztu heilsu. Ekkert fararsnið er á
honum og gerir hann sig æ meira heimakominn. í óveðrum síðustu daga
hefur hann fært sig inn í höfnina og er fullur öryggis gagnvart forvitnum
áhorfendum, þó svo þeir nálgist hann, þegar hann tekur sér hvíld á
klettum í enda Suðurgarðs.
Sæmundur Kristjánsson vigt-
armaður á Rifi sagði að rostung-
urinn virtist hafa nægt æti og una
sér vel. Hann hefði í óveðrum síð-
ustu daga leitað vars inn í höfnina
og uppáhaldshvíldarstaðurinn
væri í enda Suðurgarðs. Gangandi
menn komast í seilingarfjarlægð,
áður en hann skellir sér til sunds
og sagði Sæmundur hann sýna
mönnum jafnmikla athygli og
þeir honum. Selir sem verið hafa í
Rifshöfn halda sig í Norðurgarð-
inum, þegar þeir fara á land, en
rostungurinn virðir þá ekki við-
iits.
Sólmundur Einarsson fiski-
fræðingur sagði í viðtali við Mbl.,
að nú væri sannað að rostungur-
inn er karlkyns, eins og hann
hefði alltaf reiknað með, þar sem
einvörðungu karldýr leggja upp í
slíkar ferðir frá hjörðum sínum
einsömul. Því gæti þetta meira en
vel verið Valli víðförli, eins og
haldið hefur verið fram.
styðja Skíðasamband íslands í
þessu máli, sem og í öðrum verk-
efnum sambandsins. Stuðningur
Morgunblaðsins er Skíðasam-
bandinu kærkominn og er gerður
á sama hátt og í Noregi og Sví-
þjóð, þar sem velviljuð fyrirtæki
hafa tekið þetta mál upp á sína
arma. Öll þessi atriði voru skýrð
fyrir blaðamanni Þjóðviljans, sem
ekki virðist hafa haft áhuga á að
skýra satt og rétt frá þessu máli.
Stjórn Skíðasambandsins telur
vænlegra fyrir ritstjórn Þjóðvilj-
ans að styðja skíðaíþróttina í
þessari stærstu landskeppni
heimsins með sama myndarbrag
og Morgunblaðið, heldur en að
níða hana niður með pólitískum
ofstækisskrifum."
Fjárhagsvandi Áburðarverksmiðjunnar:
Málið lagt fyrir land
búnaðarráðherra
40-70%
oMáttw
Jakkaföt .... kr. 1.990—2.550
Stakir jakkar ......... kr. 990
Blazer jakkar ......... kr. 890
Terelyn buxur ......... kr. 495
Stretch Flannel ....... kr. 695
Ullar mittisjakkar .... kr. 790
Vatteraöir frakkar .... kr. 1.190
Kuldajakkar ........... kr. 990
Skyrtur kr. 150 —250
Velúr peysur . kr. 295
Blazer peysur . kr. 250
Bómullartreyjur .. kr. 250
Mikið úrval mest allt
nýjar vörur
Snorrabraut s. 13505 Glæsibæ s. 34350 Miðvangi s. 53300 Hamraborg s. 46200