Morgunblaðið - 02.02.1983, Blaðsíða 7
7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 1983
Sólarkaffi
Sólarkaffi Arnfiröinga verður í Domus Medica föstu-
daginn 4. febrúar og hefst kl. 20.
Aðgöngumiöasala á sama stað frá kl. 16—18
sama dag.
Nefndin
Útsala
Karlmannaföt frá kr. 1.175,00, terylen-buxur frá kr.
200,00, flannelsbuxur frá kr. 255,00, flannelsbuxur
kvenna kr. 265,00, gallabuxur karlmanna frá kr.
245,00, gallabuxur kvensniö kr. 235,00, frakkar kr.
475,00, úlpur frá kr. 350,00, trimmgallar kr. 310,00,
peysur frá kr. 95,00 o.m.fl. ódýrt.
Andrés herradeild,
Skólavöröustíg 22, sími 18250.
ÞORR-
engan
tl
Jsendu«\
m
hottamaVuw
Tilvalið í veizluna hvort sem hún er af
ÞoTi’&tro^
NAU$rs
stærri eða smærri gerðinni og hægt er að
fá matinn í trogunum okkar góðu. A bökk-
unum okkar eru allir vinsælu þorraréttirnir,
s.s. rúgbrauð, flatkökur, hangikjöt, rófu-
stappa, sviðasulta, haröfiskur, lundabagg-
ar, bringukollar og hrútspungar.
Verðið er aðeins kr. 220.-
Pantið tímanlega í síma
17758.
Að sjálfsögðu verður þorramaturinn á boðstólum
á staðnum enda ekki amalegt umhverfi til
að snæða öll herlegheitin í
p nl u te b
2 Metsölub/aóa hverjum degi!
Skipulögð
endalok
Lcsondum Stakstcina
komu úrslitin í forvali Al-
þýðubandalagsins í
Rcykjavík ekki á óvart.
Eins og hér hafði verið
spáð tókust þar á fylkingar.
I>ar barðist Svavar Gests-
son, flokksformaður, gegn
Olafi K. Grímssyni, þing-
flokksformanni, fylking
kvenna gegn verkalýðs-
fylkingu. hessar fylkingar
cignuðust fulltrúa í sex
efstu sætum og svo komust
formcnnirnir tveir í þann
hóp.
Alls kusu 469. Svavar
formaður fékk 426 atkvæði
og þar af 383 í fvrsta sæti.
Guðmundur J. Guðmunds-
son, fulltrúi verkalýðsað-
alsins, lenti í öðru sæti með
aðeins 167 atkvæði (35%)
en Guðmundur J. fékk 271
atkvæði alls og voru heild-
aratkv.eði hans svo til jafn
mörg og hins fulltrúa
verkalýðsblokkarinnar í
forvalinu, (Jrétars I>or-
steinssonar. sem lenti í 5.
sæti með 206 atkvæði en
Grétar fékk 269 atkvæði í
heild. Verkalýðsaðallinn
átti þannig um 57% fylgi í
forvalinu sem þykir tæp-
lega mikið í sjálfum verka-
lýðsflokknum. í þriðja sæti
lenti svo fulltrúi kvenna-
blokkarinnar, Guðrún
Helgadóttir, með 235 at-
kvæði í það sæti en 375
atkvarði alls, hinn fulltrúi
þessarar blokkar, Guðrún
Hallgrímsdóttir, lenti í
sjötta sæti með 215 at-
kvæði. hingflokksfor-
maðurinn sjálfur, Ólafur K.
Grímsson, lenti í fjórða
sæti með 314 atkvæði í það
en alls 354 atkvæði. Eins
og á hefur verið bent eru
þessi endalok Olafs, sem
féll um eitt sæti fyrir Guð-
rúnu Helgadóttur og á
enga von um að ná kjöri
aftur á þing úr því sæti,
ekki óvænt. I>au voru
skipulögð á æðstu stöðum í
Alþýðubandalaginu og inn-
an flokks gantast menn
með það, að atkvæði Svav-
ars, flokksformanns, hafi
ráðið úrslitum fyrir Ólaf,
þingflokksformann.
Svavar fagnar því einnig
sérstaklega að Alargrét S.
Björnsdóttir, sem lenti í
sjöunda sa>ti með 176 at-
kvæði, skuli ekki hafa
komist ofar, því að flokks-
formaðurinn lítur á hana
sem fulltrúa þeirra sem í
skjóli Olafs K. Grímssonar
hafa gagnrýnt flokksforyst-
Svavar formaður
una. Svavar hefði þó helst
viljað, að sérlegur fulltrúi
l’jóðviljans í þessu próf-
kjöri eins og öðrum innan
flokksins, Alfheiður Inga-
dóttir, kæmist upp fyrir
Margréti, en Alfheiður
lenti í áttunda sæti með að-
eins 151 atkvæði (32%).
Hin sterku öfl
Ólafur R. Grímsson hef-
ur ástundað það í stjórn-
málabaráttu síðustu ára að
láta sem svo að hann búi
yfir meiri þekkingu en aðr-
ir á hinum flóknu við-
fangsefnum stjórnmál-
anna. Hiklaust hefur hann
sagst vera að afhjúpa hvert
samsærið eftir annað og
það hefur verið fylgifiskur
merkra stjórnmálatíðinda,
að Olafur segist hafa sagt
fyrir um lyktir mála löngu
áður en nokkur fór að
hugsa um þau. I>að kemur
svo sannarlega á óvart að
jafn glöggskyggn baráttu-
maður skuli ekki ná ör-
uggu sæti á framboðsllsta
eigin flokks. En að leiks-
lokum stendur ekki á skýr-
ingum hjá Ólafi. í sam-
ræmdri yfirlýsingu hans í
öllum fjölmiðlum að forvali
Alþýðubandalagsins loknu
segir: „l>að kom mjög
skýrt í Ijós síðustu dagana
að sterk öfl í flokknum
höfðu ákveðið að vinna
skipulega gegn kosningu
minni og það bar greini-
lega þann árangur að litlu
munaði að ég héldi mínu
sæti, en sá munur var mér
í óhag.“
l>að er svo sannarlega
ekki á allra færi að pakka
því inn í slíkar umhúðir að
Kjartan varaformaður
manni sé hafnað í eigin
flokki. Olafur hefur reynst
ófáanlcgur til að skýra frá
því hvaða „sterku öfl“
þetta eru. Hann getur auð-
vitað ekki viðurkennt það
opinberlega eftir 5 ára
þingsetu, að verkalýðsað-
allinn, konur og flokksfor-
maðurinn hafi barLst
harkalega gegn því að
þingflokksformaðurinn
na-ði aftur inn á þing. Seg-
ist Olafur a>tla að gera út
um þetta innan flokksins
og mun þingflokksformaö-
urinn í því efni njóta stuðn-
ings síns gamla fóstbróður
úr Möðruvaljahreyfíng-
unni, Baldurs Óskarsson-
ar, núvcrandi fram-
kvæmdastjóra Alþýðu-
bandalagsins, sem lenti í 4.
sæti í forvali á Suðurlandi
og hefur ákveðið aö vera
ekki lengur á ILstanum þar.
Hvað skyldu hin „sterku
öfl" gera næst, þegar þing-
flokksformaðurinn og
flokksframkvæmdastjór-
inn hefja baráttu við þau á
flokksvettvangi?
*
Ovíst um
framboð
Olafur R. Grímsson
sagöi hér í blaðinu í gær,
að hann hefði ekki tekið
ákvörðun um það hvort
hann ætlaði að taka 4. sæt-
ið hér í Reykjavík. Hann
kann því að fara að dæmi
Baldurs 4. á Suðurlandi og
hætta við allt — hefja
skæruhernaö innan Al-
þýöuhandalagsins og vinna
gegn hinum „sterku öfl-
um“ án þess að vera á
framboóslista.
Ólafur þingflokksformaður
í forystugrein l>jóðvilj-
ans í gær skrifar Kjartan
Ólafsson, varaformaður Al-
þýöubandalagsins. með
næsta sérkennilegum hætti
um þingflokksformanninn.
I*ar segir meðal annars:
„Þjóðviljinn hefur á síð-
ari tímum verið heldur spar
á hrósyrði um þá einstakl-
inga sem best skila sínum
störfum í forystusveit
okkar pólitísku hreyfingar.
Og verkin eru ekki alltaf
metin svo sem vert væri.
Hvað sem öðru líður má
ekki minna vera en á það
sé minnt hér og nú, að
Ólafur Ragnar Grímsson
hefur í störfum sínum á
þingi þau tæpu fimm ár,
sem hann hefur átt þar
sæti, reynst einn dugmesti
þingmaöur, sem íslensk
vinstrihreyfing hefur átt á
Alþingi fyrr og síðar.
l>ótt sjónarmið vinstri
manna á Islandi séu ólík í
ýmsum efnum, þá ættu
þeir að geta veriö um það
sammála að fáir eiga meira
erindi á þing en Olafur
Ragnar."
I fyrstu málsgrein er
svarað árásum frá Ólafi og
valin einkennileg sjálfs-
gagnrýnisleið: Já, Þjóðvilj-
inn hrósaði þér ekki nóg,
karlinn minn, þess*vegna
lentirðu í 4. sæti.
I annarri málsgrein er
klappað á glókollinn og
honum þökkuð fimm ára
samvinna.
I þriðju málsgrein er svo
gert grín að Ólafi. Eftir að
hann er fyrir tilstilli
„sterkra afia“ lentur í
fjórða sæti er sagt að fáir
menn eigi meira erindi á
þing!
Formannaraunir
Atkvæöi Svavars formanns réð úrslitum um þaö aö Ólafur
þingflokksformaður lenti í fjórða sæti og fyrir utan þing.
Kjartan varaformaöur kveöur Ólaf meö kaldhæðni í Þjóövilj-
anum í gær. Ólafur hyggur á hefndir og mun notfæra sér
aðstöðuna sem Baldur Óskarsson, framkvæmdastjóri Al-
þýðubandalagsins, hefur á flokksskrifstofunni. Formanna-
raununum er ekki lokið.
Hagur félagsins hefur verið góður
Vélbátaábyrgðarfélag ísfirðinga 80 ára.
Vélbátaábyrgðarfélag ísfirðinga varð 80 ára 24. þ.m. I>að var stofnaö
24. janúar 1903 og hefur starfað síðan. Starfssvæði félagsins náði fyrst
yfir ísafjörð, ísafjarðardjúp og Vestur-ísafjarðarsýslu, en fyrir nokkrum
áratugum var starfssvæðið aukið þannig að það nær nú frá Brjánslæk að
Skagatá. Á aðalfundi félagsins sem haldinn var á sl. hausti kom fram, að
á árinu 1981 voru 126 bátar í skyldutryggingu og í frumtryggingu hjá
félaginu voru 13 skip og togarar yfir 100 lestir. Samtals nam vátrygg-
ingarupphæð þeirra skipa sem tryggð voru hjá félaginu á því ári kr.
375.280.080,- og á sl. ári munu vátryggingarfjárhæðir skipa tryggðra hjá
félaginu hafa numið kr. 539.902.200.-
Fyrstu stjórn félagsins skip-
uðu Jón Laxdal, formaður, S.J.
Nielsen, féhirðir og Árni
Sveinsson, ritari og voru þá 17
félagsmenn með 22 fiskiskip í
tryggingu. Formenn félagsins
frá stofnun hafa verið Jón Lax-
dal frá 1903—1907, Sigurður
Stefánsson 1908, Ingólfur Jóns-
son 1909—1910, Jóhannes Pét-
ursson 1911, Karl Löve
1912—1915, Axel Ketilsson
1916—1920, Jón Sigmundsson
1921, Jón Brynjólfsson
1922—1928, Jóhann Þorsteins-
son 1929—1946, Björgvin
Bjarnason 1947—1948, Hannes
Halldórsosn 1949—1957, Guð-
finnur Einarsson 1958—1975 og
Jón Gunnar Stefánsson frá 1976
og síðan.
Framkvæmdastjórar hafa
verið Sófus J. Nielsen
1903—1904, Jón Auðunn Jóns-
son 1905—1907, Sigurður Krist-
jánsson 1908, Helgi Sveinsson
1909, Einar Jónsson 1910—1912,
Ólafur Davíðsson 1913—1923,
Hannes Halldórsson 1924—195ð,
Matthías Bjarnason 1960—1975
og Hinrik Matthíasson frá 1976
og síðan.
Núverandi stjórn skipa Jón G.
Stefánsson, Flateyri, Matthías
Bjarnason, ísafirði og Guð-
mundur Guðmundsson, Isafirði.
Hagur félagsins hefur verið
góður einkum nú á seinni árum
og stjórn félagsins hefur ákveð-
ið að minnast þessara tímamóta
í starfi félagsins síðar í vetur, en
horfið var frá því að minnast
afmælisins nú, vegna óhag-
stæðrar veðráttu, en ætlunin er
að bjóða félagsmönnum til sam-
komuhalds síðar í vetur, þar
sem starfsemi félagsins verður
ítarlega rædd. Mikill og góður
samstarfsandi hefur jafnan ríkt
innan félagsins, og hefur orðið
til þess að styrkja verulega hag
þess og er óhætt að fullyrða að
félagsmenn almennt hafa verið
ánægðir með starfsemi þessa fé-
lags. Vélbátaábyrgðarfélag ís-
firðinga er eitt af elstu starf-
andi vátryggingafélögum lands-
ins og hefur látið þó nokkuð að
sér kveða í málefnum útgerðar
og öryggis sjófarenda.
(KrélUlilkvnninj'.)