Morgunblaðið - 02.02.1983, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 1983
29
bótarkostnað vegna launahækk-
ana eða fengið þær bættar eftir
öðrum leiðum. Það er því í raun
hvorki hvati fyrir hendi hjá ein-
stökum fyrirtækjum að standa
gegn óraunhæfum launakröfum
við slíkar aðstæður né að auka
hagræðingu. Niðurstaðan verður
verðbólga, ringulreið og hefting
framfara í atvinnulífinu.
Efnahagsþrengingar
og vísitölubinding
Slíkar aðstæður myndast ekki
einungis, ef niðurstöður kjara-
samninga eru hærri en geta þjóð-
arbúsins leyfir, þegar þeir eru
gerðir. Ef þjóðarbúið verður fyrir
áföllum, með svipuðum hætti og
nú hefur gerst hér á landi, tefur
vísitölubinding launa nauðsynlega
aðlögun raunlauna að breyttum
þjóðartekjum. Afleiðingin verður
stigmögnun verðbólgunnar, eins
og reynslan sýnir glöggt hér á
landi. Við hvert áfall virðist efna-
hagskerfið ná nýju og hærra verð-
bólgustigi. Þetta er að hluta al-
þekkt fyrirbæri frá öðrum lönd-
um, sbr. áhrif olíuverðshækkana
bæði 1973/1974 og 1979/1980. Sá
munur er hins vegar á, að flestum
þróuðum þjóðum hefur tekist að
hleypa slíkum áföllum í gegnum
hagkerfið meira og minna í eitt
skipti fyrir öll á tiltölulega
skömmum tíma, en þó með mis-
jafnlega miklum erfiðismunum.
Verðbólgan í Japan fór t.d. í hart-
nær 25% árið 1975, en er núna
milli 2 og 3%. Islenska hagkerfið
hefur hins vegar náð hærra verð-
bólgustigi við hvert áfall. Ef vísi-
tölukerfið í núverandi formi á
þarna þátt að máli, sem vissulega
má færa sterk rök fyrir, er það
ótvírætt dragbítur á hagvöxt. Þá
er í raun gerð tilraun til að halda
uppi kaupmætti í skamman tíma
með því að draga úr lífskjörum,
þegar yfir lengri tíma er litið.
Hver tilraun til að halda uppi
óraunhæfum skammtíma kaup-
mætti fæli í sér, að langtímaþróun
kaupmáttar yrði lakari en unnt
væri að ná með breyttum vinnu-
brögðum. Stöðugt væri gengið á
útsæðið, þannig að uppskeran yrði
minni ár frá ári.
Lokaorð
í þessu stutta erindi hef ég farið
um víðan völl varðandi verðbólgu,
vísitölu og verðbætur. Efnið er
alltof yfirgripsmikið til að unnt sé
að gera því viðhlítandi skil á
nokkrum mínútum. Hins vegar er
það von mín, að í þessum hugleið-
ingum hafi verið drepið á ýmis
áhugaverð atriði, sem geti orðið til
frekari umhugsunar og umræðu.
íslenskur þjóðarbúskapur
stendur nú á vissum tímamótum.
Sjávarauðlindir landsmanna eru
líklega fullnýttar ef ekki ofnýttar.
Aðrar atvinnugreinar verða að
mestu að standa undir hagvexti í
framtíðinni. Til að viðhalda og
bæta núverandi lífskjör þarf veru-
leg umskipti í atvinnumálum. Um-
skipti, sem líklega má helst líkja
við uppbyggingu sjávarútvegs upp
úr aldamótunum, ef vel á að vera.
Slík atvinnuþróun, sem byggði á
fjölþættri eflingu atvinnulífsins,
getur ekki átt sér stað að mínu
viti, nema sigrast verði á verð-
bólgunni. Það er e.t.v. unnt að
halda i horfinu hvað sjávarútveg
varðar og fjölga stóriðjuverum.
En þróttmikið atvinnulíf á breið-
um grunni dafnar ekki í grýttum
og ófrjósömum verðbólgujarðvegi.
Til þess að við verðbólguna
verði ráðið er óumflýjanlegt að
gera umtalsverðar og varanlegar
breytingar á vísitölukerfinu, jafn-
vel er íhugunarvert hvort afnema
beri það í áföngum eða með öllu.
Þeir sem standa í vegi fyrir slík-
um róttækum breytingum bera
þunga ábyrgð. Svo notað sé miður
skemmtilegt orðalag eins stjórn-
málamanns í blöðunum fyrir
skömmu er þar fremur að finna
raunverulega „áhugamenn um
kjaraskerðingu" en meðal þeirra,
sem vilja gera verulegar umbætur
á vísitölukerfinu. Ég vil þó ekki
ætla neinum slíkan áhuga.
Er Hólabrekkuskóli
í Breiðholti of stór?
eftir Sigurjón
Fjeldsted skólastjóra
Á forsíðu Alþýðublaðsins þann
27. janúar sl. er viðtal við Braga
Jósepsson fulltrúa Alþýðuflokks-
ins í fræðsluráði og kennara við
Kennaraháskóla íslands. Þetta
stutta viðtal byggist á bókun
Braga á fundi í fræðsluráði 3.
janúar sl. en hann einn fræðslu-
ráðsfulltrúa greiddi atkvæði gegn
því að fara þess á leit við borgar-
ráð að hefja byggingu III. áfanga
Hólabrekkuskóla.
Bragi Jósepsson telur að sumir
skólar, þar á meðal Hólabrekku-
skóli í Breiðholti, séu allt of stórir
og því beri að leysa tímabundin
vandkvæði skólans á annan veg.
Rétt er það að skólamenn telja
heppilegra á margan hátt að hafa
skóla ekki mjög fjölmenna og er
hægt að færa fyrir því mörg rök.
En fámennir skólar geta líka
skapað mörg vandkvæði í rekstri
svo vandrataður verður meðalveg-
urinn í þessum efnum sem og svo
mörgum öðrum.
Stefnumörkun
f upphaflegri stefnumörkun um
byggingu skóla í Breiðholti III,
Fella- og Hólahverfi, var ráð fyrir
því gert að Fella- og Hólabrekku-
skóli yrðu þriggja hliðstæðna
skólann a.m.k. Att er þá við að
þrír bekkir séu í hverjum aldurs-
flokki. Aldrei hef ég heyrt þessu
mótmælt fyrr en nú, þegar Fella-
skóli er fullbyggður fyrir mörgum
árum og til stendur að hefja bygg-
ingu á III. áfanga Hólabrekku-
skóla.
Bragi Jósepsson segir að hægt
sé að leysa tímabundna þörf fyrir
aukið skólarými í Breiðholti III á
annan og hagkvæmari hátt en
með því að byggja við skólann.
Þessa fullyrðingu hefur Bragi
ekki rökstutt á nokkurn hátt eða
fært fram tillögur um hvað skuli
gera. Engar ábendingar hafa frá
honum komið um hagkvæmari
lausn. Það eina, sem hann hefur
látið frá sér fara í þessum efnum,
eftir því sem ég best veit, er að
færanlegu kennslustofurnar sem
víða eru við skóla borgarinnar séu
ljótar og þunglamalegar.
Nægur tími
Þar sem Bragi Jósepsson er nú
að hefja sitt annað kjörtímabil í
fræðsluráði get ég ekki betur séð
Trúnaðarbréf
afhent á írlandi
FRÁ utanríkisráöuneytinu hefur
borist svohljóðandi fréttatilkynning:
Einar Benediktsson, sendiherra,
afhenti í dag dr. Patrick Hillary,
forseta írska lýðveldisins, trúnað-
arbréf sem sendiherra íslands á
írlandi með aðsetur í London.
ItanríkisráAunoylid,
28. janúar 1983.
Leiðrétting
í FRÉTTAPISTLI sem birtist í
Morgunblaðinu föstudaginn 21.
janúar síðastliðinn undir heitinu,
Fljótsdalur: Árangur skógræktar
hefur farið fram úr björtustu von-
um, urðu tvenn mistök. Önnur
myndin sem birtist með greininni
var á höfði og undirskriftin var
röng, átti að vera G.V.Þ. Eru hlut-
aðeigandi beðnir velvirðingar á
mistökunum.
Sigurjón Fjeldsted
„Hólabrekkuskóli hefur ver-
ið byggður í áföngum eins og
algengt er með stórhýsi. I.
áfangi var tekinn í notkun að
hluta árið 1974, II. áfangi
1979 og vonanditekst að
taka III. áfanga í notkun
1984.“
en hann hafi haft verulega góðan
tíma til þess að velta þessum mál-
um fyrir sér og hugsa til framtíð-
arinnar, sem hann talar um í við-
talinu, því á árinu 1979 var þegar
farið að fjalla um þennan áfanga
og gert ráð fyrir fé til byrjunar-
framkvæmda 1980, þó að ekkert
yrði úr þeim.
Þessi umtalaði áfangi er 4 al-
mennar kennslustofur, mynd-
menntastofa, 2 stofur fyrir hand-
mennt ásamt munageymslum, 2
stofur fyrir eðlis- og efnafræði
ásamt svokölluðu hópkennslurými
sem einnig er í I. áfanga skólans.
Hólabrekkuskóli hefur verið
byggður í áföngum eins og algengt
er með stórhýsi. I. áfangi var tek-
inn í notkun að hluta árið 1974, II.
áfangi 1979 og vonandi tekst að
taka hluta III. áfanga í notkun ár-
ið 1984. Vegna áfangabyggingar
hefur m.a. þurft að kenna sér-
greinar í bráðabirgðahúsnæði sem
í sumum tilvikum er varla for-
svaranlegt að nýta fyrir kennslu
en gert í þeirri trú að betri tíð sé
framundan. Vegna skorts á sér-
kennsluhúsnæði hefur þurft að
grípa til þess ráðs að fella niður
kennslugreinar hjá yngri nemend-
um, og verður ekki hjá því komist
að auka þá skerðingu til muna nk.
skólaár vegna húsnæðisskorts.
Gamlar lausnir
Bragi Jósepsson segir að ekki
eigi að binda sig við gamlar lausn-
ir í þessum efnum. Ég hald að sú
gamla lausn sé enn í fullu gildi að
hlaupast ekki brott frá hálfklár-
uðu verki og byrja þess í stað á
öðru sem e.t.v. hlyti sömu örlög og
hefði mun meiri kostnað í för með
sér.
Þessi byggingaráfangi hefur
hlotið óvenju mikla umfjöllun og
má þar til að mynda nefna fund
sem haldinn var um teikningar af
byggingunni þar sem þáverandi
fræðslustjóri og formaður
fræðsluráðs mættu ásamt hönnuði
og nokkrum fræðsluráðsfulltrú-
um, þó ekki Braga Jósepssyni, for-
eldrum og starfsmönnum skólans.
Ymsar ábendingar sem fram
komu og voru byggðar á reynslu
starfsfólks skólans urðu til þess að
hönnuður breytti ýmsu er talið
var að betur mætti fara. Hér hefði
verið kjörið tækifæri fyrir
fræðsluráðsfulltrúann að láta ljós
sitt skína.
Ég sé ekki að Bragi Jósepsson
eigi sér marga fylgjendur í þessu
máli, enda greinilega ekki eins
kunnugur málum skólans og ég
hélt.
Framtíðin
Það hefur mörgum reynst erfitt
að spá fram í tímann og svo ætla
ég að verði um alla ókomna tíð. Að
vísu er það reynt eftir bestu getu
og með öllum tiltækum ráðum en
dugir oft skammt. Því skal ekkert
fullyrt um það hver staða Hóla-
brekkuskóla verður eftir áratugi
en ætla má að Fella- og Hóla-
brekkuskóli verði seint fámennír
vegna þeirrar íbúðasamsetningar
sem er í hverfunum.
Það mun eiga all langt í land að
koma á einsetningu í elstu bekkj-
um grunnskólans í þessum skólum
og vonandi verður henni komið á
áður en húsnæðið verður tekið til
annars brúks.
í þessu máli hefði fræðsluráðs-
fulltrúanum verið hollt að hafa í
huga, að endirinn skyldi í upphaf-
inu skoða.
Sigurjón Fjeldsted,
skólastjóri.
íslandsdeild
Amnesty International:
Fjallað um mál
afganskra
flóttamanna
ÍSLANIISDEILD Amnesty Interna-
tional heldur í kvöld kaffikvöid þar
sem málefni afganskra flóttamanna
veróa til umræðu.
Séra Bernharður Guðmundsson,
sem er nýkominn úr ferð til Pak-
istan, segir frá afgönskum flótta-
mönnum. Á undan spjallar Ragn-
ar Aðalsteinsson hæstaréttarlög-
maður um réttarstöðu flótta-
manna. Camilla Söderberg og
Snorri Örn Snorrason leika saman
á flautu og lútu.
Kaffikvöld íslandsdeildar Amn-
esty International verður í Skóla-
bæ, Suðurgötu 26, miðvikudaginn
2. febrúar, klukkan 20.30.
24 nýir hjúkrunarfræðingar
Hinn 18. desember sl. brautskráóust 24 nýir hjúkrunarfræöingar hjá Iljúkrunarskóla íslands.
1. röö: Bryndis Þorvaldsdóttir, Hólmfríöur Traustadóttir, Súsanna V. Davíösdóttir, Þórunn Sævarsdóttir, Áslaug
Svavarsdóttir, Jóhanna Vilhjálmsdóttir, Gyöa Þorgeirsdóttir.
2. röð: Sigrún Siguröardóttir, Kagna Dóra Ragnarsdóttir, Ingibjörg Friöbertsdóttir, Kristín Pálsdóttír kennari,
Sigríður Jóhannsdóttir yfirkennari, Þorbjörg Jónsdóttir skólastjóri, Aldís Friöriksdóttir kennari, Sigríöur II. Einars-
dóttir, Þóra Hjartardóttir, Anna Lilja Harðardóttir, Marta B. Marteinsdóttir.
3. röö: Ásdís B. Káradóttir, Ragna Gústafsdóttir, Þórdís Eiríksdóttir, Þóranna Tryggvadóttir, lngibjörg Fjölnisdóttir,
Þórhildur Pálsdóttir, Erla Lind Þorvaldsdóttir, Agústa Frímannsdóttir, llelena Á. Bjarman, Guöný Bergvinsdóttir.