Morgunblaðið - 02.02.1983, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 1983
31
Öruggur fimm marka sigur gegn Noregi
— fjórði sigur íslands í fimm leikjum í ferðinni
Fr i Þ6r»rni Ragnartiyni, biaöamanni
Morgunbladsins, í Noregi
íslenska landsliðið í handknattleik sigraði það norska í fyrri leik
liöanna í gær með 22 mörkum gegn 17 og var sigur íslenska liðsins
mjög verðskuldaöur og öruggur. íslendingarnir voru betri aöilinn allan
tímann og höföu ávallt örugga forystu í leiknum. Þetta var fimmti
landsleikur íslands í Norðurlandaferöínni og jafnframt sá besti. ís-
lenska liðið lék yfirvegað allan tímann og af mikilli festu og sýndi á sór
mjög góðar hliðar. Skoruð voru falleg mörk af línu og úr hraðaupp-
hlaupum, og langskytturnar íslensku áttu stórgóðan leik. Norska liðið
lék nokkuð vel en átti aldrei svar í sókninni gegn sterkri íslenskri vörn
og mjög góðri markvörslu tveggja góðra markmanna, Brynjars Kvaran
og Kristjáns Sigmundssonar, og jafnframt réði norska vörnin illa við
sérlega vel útfæröar leikfléttur íslendinganna.
Gangur leiksins
Byrjunarlið islands í leiknum var
þannig: Brynjar Kvaran í markinu,
Hans Guömundsson, Alfreð Gísla-
son, Kristján Arason, Bjarni Guö-
mundsson, Guömundur Guð-
mundsson og Steindór Gunnars-
son, sem lék einungis í sókninni.
Þorbjörn Jensson kom inn á fyrir
hann í vörnina. Þetta byrjunarliö
náöi öruggri forystu fyrir Island og
komst í 4:1. Norðmenn skoruöu
fyrsta markiö, en Alfreö jafnaöi
meö glæsilegu langskoti, Kristján
skoraöi annaö markið úr vítakasti,
og Bjarni Guðmundsson skoraöi
þaö þriöja af línunni eftir glæsilega
sendingu Kristjáns Arasonar.
Fjórða markiö kom einnig af lín-
unni, Steindór Gunnarsson skor-
aði þaö. Norðmenn minnkuöu
muninn í 4:3, en Alfreö skoraði 5:3.
Þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður
náöu Norömenn góðum leikkafla
og jöfnuöu þeir á 16. mín. 5:5. Þá
haföi íslenska liöinu tvivegis mis-
tekist aö skora í dauöafærum.
Annaö skotiö var variö en hitt fór í
stöngina.
Kraftur í leikmönnum
Guömundur Guðmundsson
skoraði sjötta markið og sjöunda
markinu bætti Bjarni Guömunsson
viö á 19. mín. úr hraðaupphlaupi.
Mikil keyrsla var í leik íslenska liös-
ins og mikill kraftur í leikmönnum
miöaö viö aö þetta var fimmti leik-
ur þeirra á örfáum dögum. Þegar
23 mín. voru liðnar af leiknum var
staðan 8:6, Kristján skoraði átt-
unda markið úr víti, og síðustu tvö
mörk hálfleiksins voru íslensk. Al-
freö skoraöi fyrst stórglæsilegt
mark meö miklu þrumuskoti eftir
uppstökk, og Siguröur Sveinsson
gerði síöasta mark hálfleiksins.
Þannig var staöan í hálfleik — ör-
ugtj íslensk forysta — 10:6.
I fyrri hálfleiknum lék ísland flata
vörn — 6:0 vörn — og var hún
mjög vel leikin. Kristján Arason og
Þorbjörn Jensson léku á miðjunni
og voru góðir og jafnframt voru
Alfreö og Páll Ólafsson sterkir sem
bakverðir. Brynjar Kvaran átti
stórleik bak viö þessa sterku vörn,
hann varöi átta skot í fyrri hálfleik,
sum úr dauðafærum.
Brynjar gerdur óvirkur!
i síðari hálfleik komu norðmenn-
irnir mjög ákveönir til leiks og léku
afar fast og gróft fyrstu mínúturn-
ar. Þeir skoruðu fyrsta markiö, en
Alfreö svaraöi strax, og eftir fimm
mín. var dæmt vítakast á ísland.
Ekki er hægt að fullyrða neitt, en
það kom blaðamanni Mbl. mjög
spánskt fyrir sjónir, aö enginn
norðmaður stillti sér upp við
punktalínuna til að taka frákastið
ef markvörðurinn skildi verja. All-
ir fóru þeir í vörnina, nema sá
sem tók vítakastið, og gaf hann
sér óvenju langan tíma til undir-
búnings. Þegar flautað var skaut
hann þrumuskoti beint framan í
Brynjar Kvaran, sem féll vankað-
ur í gólfið og varð að fara af leik-
velli og gat ekki leikið meira með.
Kristján Sigmundsson kom í
markiö í stað Brynjars og stóö
hann sig einnig vel. Islendingar
gáfu síöur en svo eftir þrátt fyrir
þetta atvik — efldust ef eitthvað
var — og er fimmtán mín. voru
liðnar af hálfleiknum höföu þeir
náö sex marka forystu, 16:10. Tíu
mín. fyrir leikslok var staðan 18:12
og virtist þá sem þreyta væri farin
aö segja til sín í íslenska liðinu, og
staöan breyttist í 18:15, norðmenn
geröu þrjú mörk í röö.
Páll Ólafsson skoraði næsta
mark íslands eftir góöa leikfléttu
— 19:15 — og síöustu fimm mín.
voru algerlega eign íslendinganna.
Guömundur, Siguröur og Bjarni
skoruðu þá og er hálf mín. var eftir
var staðan 22:16. Á þessum síð-
ustu sek. fengu íslendingar tvö
dauðafæri úr hraöaupþhlauþum.
Fyrst var skotið framhjá, og síðara
skotið fór í stöng. Norömenn náðu
knettinum og brunuðu fram, og
skoruðu 17. mark sitt u.þ.þ. er
leiktíminn var að renna út. Loka-
staöan því 22:17, en heföi hæglega
getaö orðiö 23:16.
Sterk liðsheild
Þaö var fyrst og fremst sterk
liösheild sem vann þennan örugga
sigur á norðmönnum því allir
leikmenn stóöu mjög vel fyrir sínu.
Þó er ekki annað hægt en aö
hrósa markmönnunum, Brynjari
Kvaran, sem varöi níu skot, og
Kristjáni Sigmundssyni, sem varöi
átta skot, og Alfreð Gíslasyni, sem
var mjög góöur bæöi í vörn og
sókn. Hann skoraöi sjö mörk í
leiknum, flest með miklum þrumu-
skotum eftir uppstökk, og nokkur
skoraöi hann langt fyrir utan
punktalínu og réðu norðmenn ekk-
ert viö hann. Hornamennirnir
Bjarni og Guðmundur voru ákaf-
lega snöggir í hraðaupphlaupum,
og Páll lék á miðjunni i sókninni og
stjórnaöi leikkerfunum, oq qeröi
það vel.
Mörk Islands: Alfreö Gíslason 7,
Bjarni Guðmundsson 4, Kristján
Arason 4, Páll Ólafsson 3, Sigurö-
ur Sveinsson 2, Guömundur Guö-
mundsson 1 og Steindór Gunn-
Frá Þórarni Ragnarssyni, blaöamanni
Morgunbladsins, í Noregi.
„Ég er mjög ánægður meó leik
íslenska liðsins. Strákarnir léku
eins og fyrir þá var lagt, og skil-
uöu hlutverkum sínum meö mikl-
um sóma,“ sagöi Hilmar Björns-
son, landsliðsþjálfari, eftir leikinn
í gær.
Hilmar vildi ekkert tjá sig um at-
vikið er Norðmaðurinn skaut í and-
arsson 1. Tveimur íslenskum leik-
mönnum var vikið af velli: Þorbirni
Jenssyni tvívegis í tvær mín. og
Alfreð Gíslasyni í tvær mín.
lit Brynjars úr vítakastinu í upþhafi
síöari hálfleiks. Hann sagöist ekki
hafa hugsaö sérstaklega um þaö
og haft öörum hnöppum aö
hneppa.
„Mér fannst norska liðið gott
miöaö viö þau norsku liö sem viö
höfum verið að leika við gegnum
árin og er það frekar i sókn,“ sagöi
Hilmar.
• Alfreö Gíslason lék mjög vel í
gær, bæöi í vörn og sókn.
<----------------------
Alfreð Gíslason:
„Fann mig vel“
Frá Þórarni Ragnarssyni, blaóamanni Morg-
unblaðsins, í Noregi
„Ég var mjög ánægður meö
mína frammistööu í leiknum og ég
fann mig sérstaklega vel,“ sagöi
Alfreð Gíslason.
„Norska liöið fannst mér frískt.
Norðmennirnir eru fljótir og sterkir
og þeir böröust mjög vel. Þrátt
fyrir þaö unnum viö öruggan sigur
og þaö gefur vísbendingu um þaö
að viö séum á réttri leiö. —SH/ÞR.
Ólafur Jónsson:
„Liðið vann
vel saman"
Frá Þórarni Ragnarssyni, blaðamanni
Morgunblaösins, í Noregi.
Ólafur Jónsson, fyrrum fyrirliöi
landsliósins, sem hvíldi í gær,
sagói aó leikurinn heföi verið
mjög góður hjá íslenska liöinu.
„Liðiö vann saman sem ein heild
og leikflefturnar gengu óvenju
vel og skiluöu fallegum mörkum.
Þetta var sanngjarn og ánægju-
legur sigur, og vonandi vinnum
vió jafn örugglega í leiknum á
morgun (í kvöld),“ sagöi Ólafur.
— SH/ÞR.
Brynjar meiddur viljandi?
Frá Þórarni Ragnarssyni, blaöamanni
Morgunblaösins, i Noregi.
Eins og fram kemur í grein-
inni um leikinn skaut einn Norö-
mannanna þrumuskoti í andlit
Brynjars Kvaran úr vítakasti í
upphafi seinni hálfleiksins. Er
hann tók vítakastið voru allir
landar hans komnir í vörnina —
enginn stillti sér upp viö
punktalínuna til aö hiröa frá-
kastió ef Brynjar myndi verja —
og virtist þaö ekki koma þeim
neitt á óvart er Brynjar féll í
gólfið, en hann varö að fara af
velli og lék ekki meira meö.
Brynjar haföi variö mjög vel
fram aö þessu atviki, en ekki er
hægt aö fullyrða hvort þetta hafi
veriö mjög ódrengileg og lítil
íþróttamannsleg framkoma
Norömannanna, að gera hann
óvirkan viljandi, en þaö vakti
óneitanlega mikla furöu mína er
allir norsku leikmennirnir nema
sá sem tók vítiö skyldu fara til
baka er vítið var tekiö.
— SH/ÞR.
— SH/ÞR.
Storutsala
hófst í morgun
„Ánægður með liðið“