Morgunblaðið - 06.03.1983, Page 3

Morgunblaðið - 06.03.1983, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MARZ 1983 3 Útvarpsstjóri gengur gegn meirihluta útvarpsráós: Þorgrímur ráðinn þótt Atli fengi með- mæli meirihlutans ÚTVARPSSTJÓRI hefur ráðið Porgrím Gestsson, blaðamann af Helgarpóstinum, í starf fréttamanns á fréttastofu útvarps, þótt meirihluti útvarpsráðs mælti með því að Atli Steinarsson blaðamaður fengi starf- ið. Er þetta í annað sinn sem Atla er synjað um starf á fréttastofunni þótt meirihluti útvarpsráðs mælti með honum í bæði skiptin, og hefur hann skotið málinu til menntamálaráð- herra. Við atkvæðagreiðslur í út- varpsráði mæltu þrír útvarps- ráðsmenn af sjö með Þorgrími Gestssyni, en fjórir með Atla Steinarssyni. Samkvæmt heimild- um Morgunblaðsins mæltu full- trúar Sjálfstæðisflokksins í ráð- inu, Ellert B. Schram, Markús Örn Antonsson og Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson, og Markús Á. Einars- son fulltrúi Framsóknarflokksins með Atla,- en með Þorgrími þeir Vilhjálmur Hjálmarsson fulltrúi Framsóknarflokksins, Eiður Guðnason fulltrúi Alþýðuflokks- ins og Tryggvi Þór Aðalsteinsson fulltrúi Alþýðubandalagsins. Morgunblaðið innti þá Atla Steinarsson og Vilhjálm Hjálm- arsson álits á þeirri ákvörðun út- varpsstjóra að ganga gegn meiri- hluta útvarpsráðs. „Eins og andleg niðurlæging“ — segir Atli Steinarsson „Það er ekki sárast að fá ekki vinnu á fréttastofu útvarpsins. Sá vinnustaður er ekki efstur á óska- lista mínum, þó ég hafi sótt um aug- lýsta stöðu á fréttastofu útvarpsins tvívegis á um það bil hálfu ári,“ sagði Atli Steinarsson er hann var inntur álits á þeirri ákvörðun út- varpsstjóra að fara gegn vilja meiri- hluta útvarpsráðs við ráðningu fréttamanns á fréttastofu útvarps. „Starf þar teldi ég þó eftirsókn- arvert fyrir mann sem starfað hefur sem skrifandi blaða- og fréttamaður I rúma þrjá áratugi. Sárara en að fá ekki umrætt starf er, að ákvörðun þar um er tekin þegar meirihluti útvarpsráðs hef- ur í bæði skiptin mælt með ráðn- ingu minni. Þegar slík niðurstaða liggur fyrir, og síðan ekki eftir henni farið, verður þetta fyrir mann eins og andleg niðurlæging. Þetta gerist sem betur fer ekki í löndum þar sem lýðræði er haft að leiðarljósi í stjórnsýslu og í stjórn ríkisstofnanna. í svona tilfellum eins og ég hef lent í í tvígang, að verða fyrir valdníðslu embættismanna, liggur aðeins eitt ljóst fyrir. Fólk sem ekki hefur lögum og reglum sam- kvæmt tilskilið vald til ákvörðun- ar um stöðuveitingar tekur sér það og kemst upp með það. f þessum tilvikum tel ég að undir rói mjög alþýðubandalagssinnaður frétta- stjóri. Svo illa er komið yfir stjórn útvarpsins, að ýmsir deildarstjór- ar virðast komast upp með nánast hvað sem þeir vilja, eins og ljóst er af dæmunum um ráðningu frétta- manna. Ég hef áður sagt að sú vald- níðsla sem ég tel mig beittan af yfirmönnum útvarpsins er ekki síður hnefahögg í andlit útvarps- ráðsmanna. Þeir eiga lögum sam- kvæmt að fjalla um þessar ráðn- ingar, en þó þeir taki meirihluta- ákvörðun eru þær algjörlega hundsaðar. Hver hefur veitt það vald sem að baki slíkum ákvörðun- um er? Er fréttastjóri útvarpsins valdameiri en allir aðrir frétta- stjórar þessa lands? Að geta ráðið, gegnum útvarpsstjóra, öllu starfsmannavali fréttastofunnar. Hér er því miður um pólitískt mál að ræða og pólitískt vald að baki, sem ég tel óheilbrigt og andstætt anda laga og reglna útvarpsins. Því fyrr sem það verður brotið niður þeim mun betra. Ég tel að það sé aðallega tvennt, sem forráðamenn útvarpsins hafi gegn mér. Annars vegar það að gamlar sögur fara af mér fyrir vínhneigð, og hins vegar að ég er sjálfstæðismaður. Ég hef sjálfur leitað mér aðstoðar varðandi vínhneigðina, og tel mig að fullu og öllu hafa læknast af þeim kvilla. Ég mun hins vegar seint læknast af kvillanum að vera sjálfstæðismaður, en sá kvilli er mikið böl í augum fréttastofu- manna,“ sagði Atli Steinarsson. „Valdið er hjá útvarps- stjóra“ - segir Vilhjálm- ur Hjálmarsson „Ég vil bara benda á að valdið er hjá útvarpsstjóra, en útvarpsráð- ið er umsagnaraðili. Sá sem veit- ingavaldið hefur er ekki bundinn af áliti umsagnaraðila,“ sagði Vil- hjálmur Hjálmarsson, formaður útvarpsráðs, er hann var inntur álits á þeirri ákvörðun útvarps- stjóra að ganga gegn áliti meiri- hluta útvarpsráös við ráðningu fréttamanns á fréttastofu útvarps. „Það er eins og vant er þegar umsagnaraðilar eiga í hlut, að þá eru menn óánægðir þegar ekki er eftir því farið. En um þetta er ósköp lítið að segja. Þetta er alltaf að gerast í „kerfinu" mað- ur,“ sagði Vilhjálmur. Vilhjálmur sagði að það væri venja að umsagnar um umsækj- endur væri leitað hjá frétta- stjórum á fréttastofum útvarps og sjónvarps. Þeir hefðu mælt með Þorgrími í þessa stöðu. Vilhjálmur sagði að fundinn hefði setið auk sín þeir Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson, Mark- ús Örn Antonsson og Ellert B. Schram sem fulltrúar Sjálfstæð- isflokksins, Markús Á. Einars- son fulltrúi Framsóknarflokks- ins, Eiður Guðnason fulltrúi Al- þýðuflokksins og Tryggvi Þór Aðalsteinsson fyrir Alþýðu- bandalagið. Páskaferö Brottför: 30. marz — 12 dagar Sol ENN NOKKUR SÆTILAUS Vorið er yndislegur tími við Miðjarö- arhafið þegar ilmurinn frá gróandan- um fyllir loftið sætri angan og sól- þyrstur ferðamaðurinn skolar af sér þreytu og drunga vetrarins. Eigum fáar íbúðir lausar á La Nogalera og Santa Clara GOLFUNNENDUR! Höfum fengið fáein herbergi á hinu glæsilega golfhóteli Atalaya Park í Marbella _ _ _g\f\ Verð með hálfu fæði í 12 daga kr. lOi * 'OUi' Austurstræti 17, sími 26611, Hafnarstræti 98, 1 Akureyri, sími 22911. Feröaskrifstofan ÚTSÝN

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.