Morgunblaðið - 06.03.1983, Side 5

Morgunblaðið - 06.03.1983, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MARZ 1983 5 Guðsþjónusta í útvarpssal kl. 11.00: Friðarfundur Skálholtsskóla- nema á æskulýðsdegi kirkjunnar í hljoðvarpi kl. 11.00 er dagskrár- liður sen nefnist Æskulýðsdagur þjóðkirkjunnar: Guðsþjónusta í út- varpssal á vegum Skálholtsskóla og sskulýðsstarfs kirkjunnar. Það er Oddur Albertsson, kenn- ari í Skálholtsskóla, sem sér um þessa messu með nemendum sín- um, og verður hún með nokkuð óvenjulegum brag. Hinum hefð- bundnu messuliðum verður haldið, en nemendurnir velja og leika lög af hljómplötum, flygja leikþætti og syngja sjálf. — Yfirskrift messunnar er „Uppeldi til friðar", sagði Oddur Albertsson, — og þar verður fjall- að feimnislaust um rætur ófriðar og óréttlætis, sem er orsök ófrið- arins. Sérhver messa er „friðar- fundur" sem ætti að taka fyrir málefni dagsins, sem að samfélag- inu snýr. Nú þegar framtíð þessa heims er hótað á báða bóga af svokölluðum „friðarbombum", er messan einmitt vettvangur fyrir friðarumræðuna, sem skiptir okkur öll máli, áður en of seint verður að hafast nokkuð að. Krist- ur var hafinn yfir allan stjórn- málaágreining. Eins á kirkjan að starfa, áháð hagsmunum ýmissa hópa. Kristur kenndi okkur að meta lífið og gaf okkur rétt til að krefjast þess að fá að lifa. „Uppeldi til friðar“ er yfirskrift messunnar sem nemendur Skálholtsskóla annast í útvarpssal, ásamt kennara sínum, Oddi Albertssyni, á æskulýðs- degi Þjóðkirkjunnar, en útsendingin hefst kl. 11.00. Hér er hópurinn saman kominn fyrir utan skólann sinn fyrr í vetur. Kvöldstund með Agöthu Christie: Miðaldra eiginkona A dagskrá sjónvarps kl. 21.35 er þáttur f myndaflokknum Kvöldstund með Agöthu Christie og nefnist hann Miðaldra eiginkona. María leitar ráða hjá Parker Pyne vegna ótryggðar eiginmanns síns. f þetta skipti bera ráð hans annan árangur en til var ætlast. Gwen Watford f hlutverki Maríu. Frá sýningu Samtaka fréttaljósmyndara á Kjarvalsstöðum. Glugginn kl. 20.50: Ljósmyndasýning, grafík- listamaður að starfi o.fl. A dagskrá sjónvarps kl. 20.50 er Glugginn, þáttur um listir, menning- armál og fleira. Umsjónarmaður: Sveinbjörn I. Baldvinsson. Svipast verður um á sýningu Sam- taka fréttaljósmyndara á Kjar- valsstöðum, sem opnuð var um síð- ustu helgi. Litið verður inn í Rósen- bergkjallarann undir Nýja bíói, sem nú er verið að gera upp og færa í upprunalegan búning, en á þriðja áratugnum var þarna veitingastað- ur. Skyggnst verður um sali í Nor- ræna húsinu, þar sem Jóhanna Bogadóttir sýnir verk sín, og fylgst verður með listakonunni að starfi. Björk Guðmundsdóttir syngur nýtt lag eftir Björgvin Gíslason, sem væntanlegt er á hljómplötu, og Jón Örn Marinósson flytur pistilinn Aðr- ir hafa orðið. Stundin okkar kl. 18.00: Viðtöl, sögur, leikþátt- ur og teiknimyndasagá A dagskrá sjónvarps kl. 18.00 er Stundin okkar. Umsjónarmaður: Bryndís Schram. Stjórn upptöku: Við- ar Víkingsson. Efni þáttarins er eftirfarandi: Þrettán ára börn úr Árbæjarskóla syngja ísraelskt lag. Bryndís talar við séra Agnesi Sigurðardóttur um æskulýðsdag Þjóðkirkjunnar og les sögu sem 4. bekkur B í Fellaskóla myndskreytti. Tveir drengir úr Árbæjarskóla flytja frumsaminn leikþátt um skaðleg áhrif leik- fangavopna. Bryndís kynnir sér leðuriðju og ræðir við Evu Vil- hjálmsdóttur og fjölskyldu hennar. Sýnd verður íslensk teiknimynda- saga, Vordagur í sveit, eftir Guð- björgu Ólafsdóttur. Teikningar eru eftir Mariu Gísladóttur, en lesari er Ragnheiður Steindórsdóttir. Einnig verður sýndur þáttur af Blámanni — Júlíus Brjánsson les. Loks kemur leynigestur í Stundina Sr. Agnes Sigurðardóttir okkar sem börn úr Fellaskóla reyna að þekkja með því að leggja fyrir hann spurningar. Sumarhús I "nflórekemmöeauSmar- SSSS&«2*í&*r PÚ nÝtur S i námunda >ar baöstrendu , . ^ stuttra 5a skemmtileg nágrenni larferða og i n*annahöfn ;;tbostt™°9flðraðdea'sern • Dyrehavsbakken : SS""n"h6,'iM Verslanir • Veitingahús • skemmtistaoir T6n“lS'l'9<««"a,“i'inflar' tjarlaegð Sjáumst í sumarhúsunum Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.