Morgunblaðið - 06.03.1983, Side 7

Morgunblaðið - 06.03.1983, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MARZ 1983 7 HUCiVHKJA eftir Pétur Sigurgeirsson biskup Hin uppvaxandi kynslóð er dýrmætasta eign hverrar þjóðar. Þannig er það hjá okkur, Islendingum. Almenn- ur æskulýðsdagur kirkjunnar er kjörinn til þess að íhuga, hvar æskulýður okkur er á vegi staddur, og hvaða uppeld- isáhrifum hann verður fyrir af okkar hálfu. Það er sameigin- leg ósk okkar og áhugamál, að hinum ungu farnist sem best, og verði landi og þjóð til heilla. í öllu uppeldi varðar mestu, að börnin njóti kærleika og umhyggju, þegar þau eru að vaxa úr grasi. Þau eru í þörf fyrir aðhlynningu eins og hver annar gróður. Eitt sinn var unglingur, sem hafði lent út á glapstigu. Það dugði skammt, sem reynt var að gera honum til hjálpar. Loks var það ráð tekið að útvegja honum gott heimili í sveit. Heimili þetta var orðlagt fyrir að hafa góð áhrif á unglinga, sem þangað höfðu verið vistaðir. Þegar unglingurinn hafði verið í sveitinni um nokkurt skeið, þurfti húsmóðirin að fara til borgarinnar. Þegar hún var að tygja sig af stað, tók hún eftir því, að skjólstæð- ingur hennar varð hryggur í bragði og tárfelldi. Konan áleit, að nú hefði löngunin vaknað til hins fyrra lífernis og sagði: „Langar þig til þess að fara héðan?" „Nei,“ — var svarið. „Af hverju ertu þá að gráta?" Ég er að gráta af því, að það er enginn til þess að vera góð- ur við hann bróður minn!“ Svarið vekur mann til um- hugsunar. Við gerum okkur ekki alltaf grein fyrir því, hve mikla þýðingu ástúðlegt og kærleiksríkt atlæti hefur fyrir hina ungu. Þar er verið að leggja grunninn að framtíð barnsins. En sá kærleikur er ekki sama og eftirlæti eða undanlátssemi. Einn þáttur kærleikans er ögun. „Því að Drottinn agar þann sem hann elskar." (Orðskv. 3,12.) Þannig er það og með frelsið. Því fylgja bönd, takmörk, sem verða að vera. Hér er um að ræða hið gullna jafnvægi í uppeldismálum, hvað kær- leiksþelið snertir. Það er sam- ofið úr ýmsum þáttum, sem hvorki mega vera „of eða van“. Það var eitt sinn, er Jón Sig- urðsson kom til þings frá Kaupmannahöfn, að hinir yngri menn í bænum buðu honum til samsætis. Þegar staðið var upp frá borðum, var hann kallaður út á dyrasvalir, þar sem skólapiltar biðu fyrir utan til þess að fá að hylla hann. Jóni forseta var fagnað með fánahyllingu og söng. Forsetinn þakkaði þennan vinarhug með stuttri ræðu. Hann fór nokkrum orðum um söng þeirra og þá sérstak- lega þessi orð: „Þú kappinn dýr, sem aldrei þekktir bönd.“ Þessu sagðist hann reyndar þurfa að mótmæla því að „all- ir yrðu að leggja á sig bönd og gæta hófs, ungir sem gamlir. An margskonar banda fengi ekkert staðist." (Hannes Haf- stein 1. bls. 26.) Foreldrum er í dag mikill vandi á höndum að ala upp börn sín. Því hefur ætíð fylgt mikill vandi og ábyrgð að sjá um uppeldi barnanna, en ekki síst nú, þegar svo margt glep- ur fyrir með gylliboðum og blekkingum sem afvegaleiða Almennur æskulýðsdagur: Uppeldi til friðar og torvelda foreldrum að rækja hlutverk sitt. Ungling- um í dag stafar mest hætta af áfengi og eiturlyfjum. Þar er um svo mikið vandamál að ræða, að allir verða að leggj- ast á eitt til þess bægja þeim voða frá dyrum heimilanna og bjarga æskunni frá því að ánetjast hvers kyns vímugjöf- um. — Á tímum mikilla breytinga er nauðsynlegt að halda fast í það veganesti, sem reynst hef- ur farsælt og ekki er hyggilegt að hverfi með tímans straumi. í því efni eru lærdómsrík um- mæli Þórarins Eldjárns bónda og kennara á Tjörn í Svarfað- ardal: „Æska aldamótanna síð- ustu, sem oft heyrist nefnd í ræðu og riti, var borin inn í harðan heim fátæktar og fábreyttra atvinnuhátta, næsta ólíkan þeim heimi, er blasir við í dag. Uppeldisboð- orð þeirra tíma voru heldur ekki miðuð við það fyrst og fremst að komast yfir fjár- muni með sem léttustu móti og minnstri vinnu og eiga í skjóli auðs rósama daga, held- ur hitt að gera ungdóminn skilningsríkan á gildi drengi- legs starfs og starfsgleði, framvindu lífsins til bættra lífskjara, skapa með æskunni heilbrigða hugsun og lífsvið- horf, kenna henni að gera fyrst kröfuna til sjálfrar sín, setja hana ofar kröfunni til annarra. Boðorð þeirra upp- eldisþátta voru: Atorka í starfi, skyldurækni, hófsemi, nýtni, guðstrú og ættjarðar- ást.“ (Dagur 2. nóv. 1960.) Við snúum ekki hjóli tímans aftur á bak. En við verðum sem áður að leggja höfuð- áherslu á þá þætti. uppeldis, sem gilda fyrir alla tíma, og hafa þeim mun meiri þýðingu sem meira reynir á. Þessi æskulýðsdagur bendir á eitt af því allra nauðsynleg- asta, sem varðar nútímann, en það er: Uppeldi til friðar. Á þennan þátt uppeldismála var bent í ályktun prestastefnunn- ar á Hólum í Hjaltadal 1982. Þar segir: „Vér hvetjum söfnuði lands- ins til þess að leggja aukna áherslu á uppeldi til friðar með því að: a) Ástunda slíkt uppeldi innan fjölskyldunnar sjálfrar og í samskiptum milli heimila á þann hátt m.a. að sýna sáttfýsi, sanngirni, hóg- værð og umburðarlyndi. b) — vekja menn til vitundar um skaðsemi ofbeldis í fjölmiðl- um, myndböndum, leikföngum og á fleiri sviðum." Hið gegndarlausa ófriðar- stagl og vígbúnaðarkapp- hlaup, sem heimurinn sýnst um, hefur mögnuð áhrif á unga sem gamla. Eitt sinn sá ég mynd af barni sem sat á skólabekk og var að draga til stafs með blýanti. En ljósið, sem féll á barnið og blýantinn myndaði þannig skugga á vegginn í skólastofunni, að þar kom fram mynd af manni með byssu um öxl. Þetta er táknmynd af þeim anda, sem svífur yfir vötnunum. Með friðarboðskap sínum vill kirkjan breyta þessari mynd og þessum anda. Kristur kom til þess að lækna mannkynið af hatri og hefndarhug með því að sigra illt með góðu. Kirkjan boðar barnavininn mesta og hlutverk okkar hinna eldri er að leyfa honum að komast að til þess að vera leiðtogi hinna ungu. Tökum eftir því sem Kristur sagði: „Leyfið börnunum að koma til mín og varnið þeim eigi, því að slíkra er Guðs ríki.“ (Mark. 10,14.) Á haustin má heyra auglýs- ingar á þessa leið: „Nú eru börn að hefja skólagöngu sína og mjög mikilvægt er, að for- eldrar fylgi börnunum sínum í skólann og velji þeim, hvaða leið er best að fara.“ Á sömu forsendum vill kirkjan „sem er oss kristnum móðir" velja börnum landsins þá leið að ganga á Guðs vegum. Gódan daginn! Verðtrygging veitir vörn gegn veröbólgu — en hefur þú hugleitt hversu mikla þýðingu mismunandi raunvextir hafa fyrir arðsemi þína? Yfirlitið hér að neöan veitir þér svar við því. VER0TRYGGÐUR SPARNA0UR - SAMANBURÐUR A AVÖXTUN Verðtrvgging m v lánskjaravisitölu Nafn- vextir Raun- ávöxtun Fjöldi ára til að tvöf. raungildi höfuðstóls Raunaukning höfuðst. eftir 9 ár Veðskuldabréf 3% 8% 9ar 100% Sparisk. rikissj. 3.5% 3.7% 19ár 38 7% Sparisjóðsreikn. 1% 1% 70ár 9.4% Verðbréfamarkaöur Fjárfestingarfélagsins hefur víötæka reynslu í veröbréfaviðskiptum og fjármálalegri ráðgjöf og miölar þeirri þekk- ingu án endurgjalds. GENGIVERÐBRÉFA 7. MARS 1983: VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI RÍKISSJOÐS: 1970 2. flokkur 1971 1. flokkur 1972 1. flokkur 1972 2. flokkur . 1973 1. flokkur A 1973 2. flokkur 1974 1. flokkur 1975 1. flokkur 1975 2. flokkur 1976 1. flokkur 1976 2. flokkur 1977 1. flokkur 1977 2. flokkur 1978 1. flokkur 1978 2. flokkur 1979 1. flokkur 1979 2. flokkur 1980 1. flokkur 1980 2. flokkur 1981 1. flokkur 1981 2. flokkur 1982 1. flokkur 1982 2. flokkur Sölugengi pr. kr. 100.- 11.396,04 9.937,82 8.617,07 7.302,64 5.224.90 4.812,62 3.322.48 2.731.44 2.057,84 1.950,34 1.556,93 1.444.48 1.206,22 979,40 770,57 649,55 502,62 376.47 296,05 254,25 188,90 171.47 128,19 VEÐSKULDABRÉF MEÐ LÁNSKJARAVÍSITÖLU: Meóalévöxtun umfram verðtryggingu er 3,7—5,5%. VEÐSKULDABRÉF ÓVEROTRYGGÐ: Sötugengi m.v. nafnvexti (HLV) Sölugengi nafn- Ávöxtun m.v. vextir umtram 2 afb./ári (HLV) verðtr. 1 ár 96,49 2% 7% 2 ár 94,28 2% 7% 3 ár 92,96 2’/2% 7% 4 ár 91,14 2’/r% 7% 5 ár 90,59 3% 7% 6 ár 88,50 3% 7’/«% 7 ár 87,01 3% 7’/4% 8 ár 84,85 3% 7V4% 9 ár 83,43 3% 7’/,% 10 ár 80,40 3% 8% 15 ár 74,05 3% 8% VERÐTRYGGÐ HAPPDRÆTTISLAN , RÍKISSJÓÐS pr°krT<r C — 1973 3.340.09 D — 1974 2.872,15 E — 1974 2.021.38 F — 1974 2.021,38 G — 1975 1.339,92 H — 1976 1.224,53 I — 1976 971,46 J — 1977 867,10 1. fl. — 1981 186,83 12% 14% 16% 18% 20% 47% 1 ár 63 64 65 66 67 81 2 ár 52 54 55 56 58 75 3 ár 44 45 47 48 50 72 4 ár 38 39 41 43 45 69 5 ár 33 35 37 38 40 67 Ofantkráð gengi er m.v. 5% ávöxtu p.á. umfram varðtryggingu auk vinr ingsvonar. Happdrættisbréfin eru ge in út á handhafa. Verðbréfaniarkdöur Fjárfestingarfélagsins Lækjargötu12 101 Reykjavik lönaóarbankahúsir"1 Sími 28566

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.