Morgunblaðið - 06.03.1983, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MARZ 1983
NORÐUR-ATLANTSHAFSFLUG
Liðlega 32% farþegaaukning f N-Atlantshafsflugi Flugleiða 1982:
„ Við reiknum með að geta aukið
farþegafjöldann um 24—30% í ár“
— segir Sigfús Erlingsson, framkvæmdastjóri
vestursvæðis Flugleiða í New York
„FARÞEGAR hafa greinilega fengið
tiltrú á félaginu á nýjan leik, eftir
erfiðleikaárin, auk þess sem við höf-
um auðvitað lagt okkur fram við að
auka ýmis konar markaðsstarfsemi
til að fjölga farþegum á nýjan leik,“
sagði Sigfús Erlingsson, fram-
kvæmdastjóri vestursvæðis Flug-
leiða, um þá miklu aukningu, sem
varð á farþegaflutningum félagsins á
Norður-Atlantshafsleiðinni á síðasta
ári. Sigfús hefur aðsetur í New York
og stjórnar starfsemi Flugleiða
vestra. Flugleiðir fluttu á síðasta ári
tæplega 183 þúsund farþega á Norð-
ur-Atlantshafinu, en til samanburðar
voru farþegar félagsins á árinu 1981
liðlega 138 þúsund. Aukningin milli
ára er því liðlega 32%, sem er mun
meiri aukning en átt hefur sér stað á
þessum flugleiðum almennt. Af
þessum tölum má vera Ijóst, að Flug-
leiðir eru á réttri braut.
FREKARI AUKNING í ÁR
„Við reiknum síðan með, að geta
aukið farþegafjöldan enn nokkuð
á þessu ári, eða á bilinu 24—30%.
Við verðum með 16 ferðir milli
Bandaríkjanna og Luxemborgar í
sumaráætiun, sem er verulega
aukning frá því í fyrra. Sú aukn-
ing kemur að mestu fram á auknu
framboði frá Chicago og Balti-
more, sem kom inn seint á síðasta
ári að nýju. Það má nefna sem
dæmi, að sætaframboð félagsins
frá Chicago verður aukið um í
kringum 50%. Ferðir Flugleiða frá
New York verða 8 á viku í sumar,
sem er svipað því sem var í fyrra.
Síðan verðum við með 6 ferðir á
viku frá Chicago og 2 ferðir á viku
frá Baltimore. Reyndar kemur
þetta aukna sætaframboð einnig
fram í því, að tímabilið er lengt út
á axlirnar," sagði Sigfús.
STEFNIR í
HÁMARKSFLUG
Aðspurður um samanburð við
fyrri tíð sagði Sigfús, að þegar
flug félagsins var sem allra mest
hefði það verið 18 ferðir í viku,
þannig að það stefndi í svipað
flug. Þegar erfiðleikar félagsins
voru sem mestir voru aðeins farn-
ar 6 ferðir í viku milli Bandaríkj-
anna og Luxemborgar.
FÆKKUN FRÁ ÍSLANDI
TIL BANDARÍKJANNA
Sigfús sagði aðspurður, að far-
þegum frá Islandi til Bandaríkj-
anna hefði fækkað gríðarlegar á
síðasta ári, eða hátt á annað
hundrað prósent. „Því miður virð-
ist sama sagan vera uppi á ten-
ingnum í ár, ef marka má bókanir
og annað. Ástæðan fyrir þessari
fækkun er auðvitað fyrst og
fremst þróun dollaraverðs, en eins
og allir vita hefur dollaraverð
hækkað mjög mikið á Islandi,
langt umfram verð annarra gjald-
miðla, þannig að ferðafólk heldur
frekar á aðrar slóðir. Hins vegar
geri ég mér góða von um að ná
árangri í að fjölga farþegum frá
Bandaríkjunum til íslands. Við
höfum orðið varir við mjög aukinn
áhuga á því undanfarið," sagði
Sigfús.
FLEIRI BANDARÍKJA-
MENN TIL EVRÓPU
VEGNA DOLLARA-
STYRKINGAR
„Hin mikla styrking dollarans
hefur auðvitað orðið þess vald-
andi, að Bandaríkjamenn hafa
sótt í mun meira mæli til Evrópu,
þar sem þeir fá sífellt meira fyrir
peningana. Sérstaklega hafa þeir
sótt mikið til Frakklands. Hins
vegar kemur það í ljós, þegar far-
þegatölur okkar frá síðasta ári eru
skoðaðar, að aukning heildar-
flutninga frá Evrópu er mjög svip-
uð aukningunni frá Bandaríkjun-
um. Flugleiðir hafa gert töluvert
átak í því, að auka straum farþega
frá ýmsum Evrópulöndum og má í
því sambandi nefna mikla og
aukna markaðsstarfsemi félagsins
í Sviss, Frakklandi og Vestur-
Þýzkalandi, sem hefur skilað góð-
um árangri og mun gera á þessu
ári, ef marka má bókanir. Farþeg-
um sem koma frá Sviss og Frakk-
landi er t.d. gert auðvelt að kom-
ast með Iestum til og frá Luxem-
borg og hefur það mælst mjög vel
fyrir. Þá höfum við um nokkurt
skeið haldið uppi áætlunarbíla-
ferðum inn og út úr Luxemborg til
Vestur-Þýzkalands, og hefur sú
þjónusta verið mjög mikið notuð,“
sagði Sigfús.
FLUGIÐ GEKK
ALMENNT VEL í FYRRA
Almennt um flugið á síðasta ári
sagði Sigfús: „Flugið í fyrra gekk
almennt mjög vel, betur en oftast
áður. Vélar félagsins voru yfirleitt
mjög vel á tíma, þ.e. tafir voru
mjög litlar. Reyndar held ég að
vélar félagsins hafi ekki í annan
tíma staðizt betur áætlun al-
mennt. Þá hefur andrúmsloftið
verið mjög gott með aukinni tiltrú
fólks á félaginu."
OF LÁG FARGJÖLD
AÐALVANDAMÁLIÐ
„Annars voru okkar aðalvand-
ræði á síðasta ári, eins og reyndar
síðustu árin hið lága verð. Við höf-
um þurft að vera með lægra verð
en æskilegt hefði verið vegna
hinnar mjög svo hörðu samkeppni,
sem ríkir á þessum markaði. Til
þess að reksturinn væri nokkurn
veginn eðlilegur þyrftum við að
geta hækkað fargjöldin yfir hafið
á bilinu 10—15%. Reyndar hefur
okkur tekizt með markvissri
markaðsstarfsemi undanfarin ár,
að fjölga nokkuð þeim farþegum,
sem greiða fullt fargjald og við
stefnum að því, að halda áfram á
þeirri braut. Hlutfall fullborgandi
farþega hefur gjarnan verið á bil-
inu 12—13%, en við stefnum að
því, að koma þessu hlutfalli í
18—20% og hefur reyndar orðið
nokkuð ágengt í því efni. Þessi
þróun hefur auðvitað hjálpað
nokkuð upp á sakirnar, en betur
má ef duga skal í þessum efnum,"
sagði Sigfús.
#►
Sigfús Erlingsson, framkvæmda-
stjóri vestursvæðis Flugleiða, á
skrifstofu sinni í New York.
þURFUM AÐ GERA
N ORM ALF ARG J ALDIÐ
AÐGENGILEGRA
„Annars höfum við náð ákveðn-
um fargjaldahækkunum í vetur
með tilfærslum milli fargjalda-
flokka og á þeirri braut verður
haldið áfram. Við þurfum, að gera
normalfargjaldið meira aðlaðandi
fyrir fólk, jafnvel lækka það
eitthvað og ná þannig inn meiri
tekjum. Hins vegar reikna ég ekki
með umtalsverðum breytingum á
lægstu fargjöldunum í ár, frá því
sem var í fyrra, vegna hinnar
miklu samkeppni," sagði Sigfús.
AÐHALD OG HAGRÆÐ-
ING í REKSTRI
I samtalinu við Sigfús kom
fram, að mikils aðhalds hefur ver-
ið gætt í rekstri félagsins vestra á
liðnum árum, auk þess sem kapp-
kostað hefur verið að hagræða
starfseminni, eins kostur hefur
verið. Nefndi Sigfús, að fyrir 4—5
árum hefur fastráðnir starfsmenn
Flugleiða í New York verið liðlega
230 talsins, en í dag eru þeir um
60, auk 20—25 lausráðinna
starfsmanna, sem koma inn í 6—7
mánuði á ári. „Við framkvæmum í
' raun svipaða vinnu í dag, eins og
’ gert var á árum áður með mun
minna starfsliði, en það hefur
reynzt mögulegt með ýmis konar
hagræðingu í rekstrinum," sagði
Sigfús.
SÍMAÞJÓNUSTAN
Sigfús sagði stærstan hluta
starfsliðsins starfa í bókunardeild
félagsins, eða við símbókunar-
þjónustu. „Langstærstur hluti
bókana kemur inn símleiðis. Far-
þegar hringja inn í bókunardeild-
ina víðs vegar að úr Bandaríkjun-
um, en við greiðum fyrir simtalið.
Það er því mikill fjöldi starfs-
manna, sem hefur þann starfa að
taka við símtölum og bóka fólk.
Yfir háannatímann eru í bókun-
ardeild tvær vaktir með 28 starfs-
mönnum hvor. Yfir veturinn höf-
um við fengið að meðaltali um
1.700 símtöl inn, en yfir háanna-
tímann hafa þau farið í um 3.500.
Það hefur orðið umtalsverð aukn-
ing á þessu síðustu vikur og mán-
uði og nú er meðaltalið um 2.000
og ég reikna með, að við fáum yfir
4.000 símtöl inn yfir háannatím-
ann,“ sagði Sigfús.
Það kom ennfremur fram hjá
Sigfúsi, að símstöð félagsins væri
mjög fullkomin og tölvustýrð. „Við
getum fylgzt mjög nákvæmlega
með öllum símtölum. Mælt lengd
þeirra og hversu mörg við fáum
inn á hverjum klukkutíma. Þá sjá-
um við hvaðan símtölin koma og
hvenær þau koma frá hinum ýmsu
landshlutum. Þetta gerir okkur
kleift að fylgjast mun betur með
þróun mála, en ella. Við fylgjumst
reyndar með símaþjónustunni á
hverjum einasta degi. Bókunar-
deildin er opin alla daga vikunnar
á bilinu 08.00—20.00. Við verðum
að vera með svona langan opn-
unartíma, vegna tímamismunar í
landinu."
SAMKEPPNIN
Sigfús var spurður um sam-
Flugeiginleikar Áttanna
eru þeir skemmtilegustu
Veruleg breyting hefur orðið á flug-
inu yfir Norður-Atlantshafiö á þeim
liðlega þrjátíu árum, sem það hefur
staðið yfir, en segja má reglubund-
ið flug hafi hafizt á árinu 1952.
Fyrstu árin var flogið á DC-4 vél-
um, eða „Fjörkunum“, eins og þeir
voru nefndi.r og síðan rak hver
flugvélategundin aðra, DC-6, eða
„Sexurnar", Rolls Royce, eða
„Monsarnir", DC-8, eða „Átturn-
ar“, sem enn eru í fullri notkun og
um tíma kom ein DC-10 þota, eða
„Tía“, inn í rekstur Flugleiða.
Magnús Norðdahl, flugstjóri, er
einn þeirra, sem hafa gengið í gegn-
um öll þessi tímabil, en hann byrj-
aði að fljúga á hafinu árið 1954.
Mbl. spjallaði við Magnús á dögun-
um og spurði hann fyrst hver væri
helzta breytingin á fluginu á þess-
um 30 árum.
Breytingarnar eru
auðvitað gríðarlega
miklar. Stærsta
breytingin er auðvitað sú, að vél-
arnar eru fljótari í förum, og bet-
ur fer um farþega og áhöfn. Við
urðum að halda okkur í 6—8 þús-
und feta hæð á Fjörkunum, þar
sem þeir voru ekki búnir jafn-
þrýstibúnaði, eins og vélarnar í
dag, þannig að þrýstingur inni í
vélunum er alltaf sá s»mi, burt sé
frá því í hvaða hæð er flogið.
Það má því kannski segja að við
höfum flogið í veðrinu, því algeng
skýjahæð er einmitt á þessum
slóðum. Ókyrrð var því oft á tíðum
mun meiri en hún er í dag, auk
þess sem við áttum oft við ísing-
arvandamál að stríða.
Þessar vélar voru líka mun
hægfleygari en þær sem við eigum
að venjast í dag. Algengur tími
yfir hafið til New York var t.d. 14
klukkustundir og það tók oft um 6
klukkustundir að fljúga frá ís-
landi til Hamborgar í Þýzka-
landi," sagði Magnús.
Magnús var inntur eftir því
hvort Fjarkarnir hefðu ekki verið
mun erfiðari í meðhöldlun en t.d.
Átturnar, sem notaðar eru í dag.
„Auðvitað voru þessar vélar mun
ófullkomnari tæknilega en vélarn-
ar í dag og því þurfti að hafa
meira fyrir þeim. Þetta voru hins
vegar ágætistæki og reyndar góð-
ar vélar á síns tíma vísu. Annars
er ekki hægt að tala um Fjarkana
og Átturnar í sama orðinu, svo
mikill er munurinn á þeim,“ sagði
Magnús.
„Eftir nokkur ár í notkun var
Fjörkunum síðan skipt út fyrir
Sexurnar, sem þá voru að ryðja
sér til rúms á markaðnum. Sex-
urnar voru nokkru hraðfleygari,
en við urðum eftir sem áður að
fljúga þeim í skýjahæð, og ókyrrð-
in olli því sömu óþægindunum
fyrir farþega og áður. Sexurnar
voru mun betur búnar tæknilega
en Fjarkarnir og auðveldara var
að meðhöndla þær. Við flugum
Sexunum á þessari leið alveg
framundir 1964, þegar fyrstu Rolls
Royce-vélarnar voru teknar í
notkun, en þær voru alltaf nefnd-
ar „Monsarnir". Þeim vélum var
flogið framundir 1970, þegar Átt-
urnar tóku við.
„Monsarnir" voru mjög sérstak-
ar vélar. Þær „reyndu alltaf að
plata" þig. Þær voru tiltölulega
erfiðar í flugtaki og lendingu, sér-
staklega var erfitt að stjórna þeim
í lendingu. Þegar niður á jörðina
var komið, var eins og maður væri
kominn undir stýri á járnbraut-
arlest,“ sagði Magnús og brosti í
kampinn.
„Það var hins vegar alveg
þokkalegt að fljúga „Monsunum".
Þeir höfðu nokkuð aðra flugeigin-
leika en aðrar vélar á þeim tíma.
Það kom kannski sérstaklega til af
því, að stýri vélarinnar var mjög
frábrugðið. Verksmiðjurnar ætl-
uðu að koma þessari tegund stýra
á almennan markað, en það gekk
ekki upp,“ sagði Magnús. „Það má
hins vegar ekki gleyma því, þegar
þessir hlutir eru rifjaðir upp, að
„Monsarnir" voru með jafnþrýsti-
klefa og var því flogið ofar skýj-
um, til mikilla hagsbóta fyrir
alla.“
„Það var síðan í kringum 1970,
að Átturnar leystu „Monsana" af
hólmi. Það var mikil breyting
fyrir okkur. Átturnar, sérstaklega
þær lengri, hafa mjög skemmti-
lega og góð flugeiginleika. Per-
sónulega tel ég löngu Átturnar
hafa beztu flugeiginleika, sem
þekkjast á þotum nútímans.
Eru „Átturnar" ekkert farnar
að úreldast í dag? „Alls ekki. Þær
standa fyllilega fyrir sínu. Þetta
eru öruggustu vélar, sem völ er á,
enda eru þær í verkefnum um all-
an heim, og flugfélög ætla sér
greinilega að vera með þær í
rekstri um ókomin ár. í því sam-
bandi má benda á, að mjög mörg
flugfélög hafa farið út í mikla
fjárfestingu við að skipta um mót-
ora á vélunum. Frá hljóðlátari og
eyðslugrennri mótora til að svara