Morgunblaðið - 06.03.1983, Page 29

Morgunblaðið - 06.03.1983, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MARZ 1983 29 Flugliðar í þjálfun. keppnina á þessu ári. „Samkeppn- in verður eftir sem áður hörð. Á því leikur enginn vafi. Hins vegar hafa þau tíðindi gerst, að Capitol- flugfélagið, sem hefur verið okkar aðalsamkeppnisaðili, hefur átt í miklum rekstrarerfiðleikum á undanförnum mánuðum. Þeir hafa tilkynnt, að flug félagsins verið dregið nokkuð saman, sem kemur okkur auðvitað eitthvað til góða. Ennþá er þó of snemmt að spá í þau áhrif nákvæmlega. Sömu sögu er reyndar að segja af öðrum keppinaut okkar, Metro, sem er dótturfyrirtæki Flying Tigers. Það stefnir allt í að þeir hætti beinu áætlunarflugi yfir hafið. Þeir munu að vísu fljúga í gegnum Frankfurt til Tel Áviv í ísrael, en starfsemi þeirra verður aðeins brot af því, sem hún hefur verið. Það verður hins vegar fyrirsjáan- lega ekkert lát á annarri sam- keppni, nema síður sé,“ sagði Sig- fús. Flug með farþega og vörur er gjarn- an sameinað yfir vetrartímann, til að auka nýtni vélanna. „STOP OVER“ FARÞEGAR Að síðustu var Sigfús inntur eftir því hvernig útlitið væri með „stop over“ farþega á íslandi, en þeim hefur fækkað mjög mikið á síðustu árum. „Útlitið er nokkuð þokkalegt. Við teljum okkur geta aukið straum „stop over“ farþega þó nokkuð á þessu ári. Hótelmál hafa verið okkur nokkuð erfið í gegnum tíðina, en nú horfir hins vegar til betri vegar í þeim efnum, þannig að við erum tilbúnir að auka straum þéhsa ferðafólks. Reyndar ætlum við og höfum haf- ið sérstakt átak hér vestra til að fá „stop over“ farþega til íslands. Við komum íslandi að í öllum okkar auglýsingum, sem þegar hefur gefið góða raun,“ sagði Sig- fús Erlingssson, framkvæmda- stjóri vestursvæðis Flugleiða í Bandaríkjunum, að síðustu. Rætt viö Magnús Nordahl flugstjóra hjá Flugleiðum betur kröfum tímans. Þá hefur það færzt í vöxt að keyptar séu nýjar innréttingar í vélarnar og þegar það er búið, tel ég að ekki sé verr búið að farþegum, en í öðrum flugvélategundum," sagði Magnús. Flugleiðir áttu og voru með í rekstri um tíma eina DC-10, eða „Tíu“ eins og þær eru nefndar, og Magnús var einn flugmanna fé- lagsins, sem flaug henni. Við innt- um Magnús álits á þeim vélum. „Tíurnar eru mjög tæknilega full- komnar og góðar vélar. Reyndar tel ég hana beztu vélina í hópi stóru breiðþotanna. Hún hefur hins vegar átt undir högg að sækja vegna óhróðurs og ills um- tals, sem átt hefur sér stað á síð- ustu árum, vegna óhappa sem upp komu. Það var hins vegar ekki vél- in sjálf, sem átti þar sökina, eins og látið hefur verið í veðri vaka. Þar komu ýmsir aðrir þættir inn í myndina, eins og viðhald, sem aldrei hafði hlotið viðurkenningu. Tían er tæknilega fullkomnari en Átturnar, enda smíðuð mun seinna. Flugeiginleikar hennar eru hins vegar ekki eins skemmti- legir. Hún er styttri og vakari, en það var auðveldara að stjórna henni. Mín skoðun er reyndar sú, að félagið þurfi að fá Tíu í flotann að nýju i framtíðinni," sagði Magnús. Aðspurður um brautarþörf Átt- anna annars vegar og Tíanna hins vegar sagði Magnús, að Átturnar þyrfti lengri braut. „Þær eru mikl- ir brautarhákar. Tíurnar hægja fyrr á sér, þar sem mótstaðan er meiri. Vélin er styttri og breiðari. Auk þess er bremsubúnaðurinn á Tíunum fullkomnari." Magnús var inntur eftir því hver væri helzti munurinn á því, að fljúga til New York annars veg- ar og hins vegar til Luxemborgar. „Það er auðvitað mikill munur þar á, vegna þess hversu umferð er f íðarlega mikil inn til New York. Luxemborg er eins og maður sé einn í heiminum. Það getur verið nokkuð álag að koma inn til New York á háannatíma. Við þurfum oft að bíða í „hold in“, þar sem flugumferðarstjórnin annar ein- faldlega ekki umferðinni. Það líða síðan ekki nema nokkrir tugir sek- úndna milli véla, þegar komið er inn og við flugtak. Þegar komið er inn til lendingar er einfaldlega ætlast til að maður komi sér hið snarasta út af brautinni, að öðrum kosti er næsta vél komin alveg í kjölfarið," sagði Magnús. Aðspurður um álag á flugmenn almennt á þessari leið sagði Magnús, að auðvitað væri álagið mest við flugtak og lendingu. Það mætti kannski segja, að sjálft flugið yfir hafið væri nokkurs konar eftirlit með stjórntækjum vélarinnar. „Vélinni eru gefnar ákveðnar skipanir, sem hún síðan fer eftir. Reyndar er hægt að prógrammera vélarnar þannig, að þær sjá um lendinguna sjálfar. Þá var Magnús inntur eftir því hvernig það færi í menn að flúga jafnmikið milli tímabelta eins og raun ber vitni, þar sem New York er t.d. 5 klukkustundum á eftir Reykjavík, og hvernig það væri að vera jafnlengi að heiman eins og raun ber vitni. „Það er auðvitað alltaf fremur hvimleitt að fljúga milli tímabelta. Mér finnst þetta allt í lagi á leiðinni vestur, en það er hins vegar verra á heimleið. Þetta er hins vegar hlutur, sem maður verður að sætta sig við og lifa við. Hvað varðar spurningu um vistina að heiman, þá finnst mér allt í lagi að vera 1—3 daga í burtu, en um leið og dvölin verður lengri, fer það að verða leiðinlegt, auk þess sem það er auðvitað allt- af frekar pirrandi að búa á hótel- um, hvar svo sem þau eru. Áttu- flugmenn félagsins hafa t.d. mikið verið í hinum svokallaða „Air India“-flugi síðustu misserin og þá er úthaldið allt frá 4 dögum upp í' 15 daga, sem er ekki það vinsæl- asta hjá mönnum,“ sagði Magnús. Magnús var inntur eftir því hversu mikla þjálfun flugmenn Flugleiða þyrfti að fá, ef ákveðið yrði að taka Tíu að nýju inn í rekstur félagsins. „Þeir menn sem hafa öðlazt réttindi til að fljúga vélunum, þurfa aðeins að fara á stutt námskeið og eru síðan tékk- aðir út. Hvað varðar aðra, þá þurfa þeir að fara á töluvert um- fangsmikið námskeið, áður en þeir fá réttindi. Það er reyndar þannig með allar vélar, að hafi menn ekki réttindi á þær, þurfa þeir að ganga í gegnum mikla þjálfun," sagði Magnús. Magnús hefur í gegnum tíðina verið þekktur fyrir áhuga sinn á listflugi og hann á með félögum sínum mjög fullkomna listflugvél. Hann var því spurður að síðustu hver væri munurinn á því að fljúga stórum þotum annars vegar og litlum vélum hins vegar. „Það er auðvitað ekki hægt að bera þetta saman á neinn hátt annan en að báðar fljúga vélarnar. Það ánægjulegasta við listflugvélina, og reyndar litlar vélar almennt, er að maður getur gert það sem mann langar til. Listflug krefst hins vegar mikillar þjálfunar, og í listfluginu getur maður í raun verið að bæta við sig alla ævi. Það eru engin takmörk fyrir fram- þróun þar. Persónulega finnst mér mun meira gaman að fljúga litlu vélunum og þá alveg sérstaklega listflugvélum," sagði Magnús Norðdahl, flugstjóri hjá Flugleið- um, að síðustu í samtali við Mbl.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.