Morgunblaðið - 06.03.1983, Page 34

Morgunblaðið - 06.03.1983, Page 34
i ) 34 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MARZ 1983 Fræg knattspyrnufélög MANCHESTER UNITED Nýtt lið Jimmy Murphy var ekki með í hinni örlagaríku ferð til Belgrad því hann hafði fengið frí hjá Matt Busby til að stjórna welska lands- liðinu á móti fsraelsmönnum í .Cardiff. Eftir slysið tók hann strax við framkvæmdastjórastarf- inu á Old Trafford og hans fyrsta verkefni var að stjórna liðinu í bikarkeppni á móti Sheffield í 5. umferð þann 19. febrúar. Aðeins tveir af leikmönnunum sem fóru til Belgrad voru með í leiknum: Harry Gregg og Bill Foulkes. Tveir nýir menn voru fengnir til liðsins, þeir Ernie Taylor frá Blackpool og Stan Crowther frá Aston Villa, aðrir leikmenn voru sóttir í varaliðið. Við upphaf ieiks- ins brast Jimmy Murphy í grát og í leikskránni voru leikmennirnir einkenndir með númerum en ekki nöfnum. 60.000 áhorfendur komu á Old Trafford þetta kvöld, þar á meðal var Denis Law sem þá lék með Huddersfield. United: „Liðið sem kom úr engu“ sigraði 3—0 í þessum „við- kvæma" leik. Shay Brennan, sem var vanur að leika sem hægri bakvörður í varamannaliðinu, fékk nú stöðu vinstra megin á vell- inum og skoraði tvö mörk. Tíu ár- um seinna lék hann með Man- chester United í sigurleik gegn Benfica í Evrópukeppni og þá sem bakvörður. Síðan tapaði United fyrir Bolton 2—0 og þannig duttu bæði West Bromwich og Fulham út af lista efstu liða. Enn er í minnum haft þegar miðherji Bolton-liðsins, Nat Lofthouse, réðst í loftköstum á Harry Gregg og velti honum og boltanum inn í netið og skoraði þar með annað markið í leiknum — en enginn leikmanna United andmælti, þó þeir hefðu ærna ástæðu til. Á þessu tímabili komu Bobby Charlton og Dennis Violett ásamt Matt Busþy aftur til United; Busby á hækjum en Charlton í góðu líkamlegu ástandi og aðeins tveimur mánuðum eftir slysið var hann kominn í landsliðið. f undanúrslitum Evrópukeppn- Tommy Docherty gerði Man. Utd. tvívegis að enskum bikarmeisturum. Hér lyftir hann bikarnum hátt á loft á Wembley eftir að lið hans hafði sigrað Liverpool, 2—1 . Sumarið áður hafði AC Torino keypt Denis Law af Machester City fyrir 115.000 pund, sem þá var hæsta verð fyrir leikmann og einu sinni áður átti Denis metið eða þegar Manchester City keypti hann frá Huddersfield. Sem sagt þrisvar sinnum hæsta þágildandi kaupverð greitt fyrir Denis Law. Hann gat ekki sætt sig við hinn mikla þrælsaga í ítölskum fót- bolta, vikulangar æfingaferðir til fjalla og ekki síst ítalska knatt- spyrnustílinn. Til að kóróna allt átti hann í útistöðum við þjálfara sinn í lok fyrsta keppnistímabils- ins, sem endaði með því að þjálf- arinn útilokaði hann frá leikjum í tvær vikur. Meðan hinir leikmenn AC Torino, með Enzo Bearzot sem fyrirliða, fóru til Sviss til að leika nokkra vinaleiki, sat Denis Law eftir í Torino — eða þar til hann hélt einnig af stað nokkrum dög- um síðar þar sem Matt Busby, sem af tilviljun var staddur í Ölpunum og frétti af erjunum milli Denis og þjálfara hans, hringdi í hann og bauð honum til Sviss. Busby og Denis urðu fljótt á eitt sáttir um samvinnu og tók United að sér að losa hann frá AC Torino. Meðan Denis Law gældi við hugsunina um að komast aftur til Manchester United, hugleiddi AC Torino að selja hann til Juventus, vegna þess eins að Juventus var reiðubúið að greiða 160.000 pund fyrir hann eða 45.000 pundum meira en munnlegt samkomulag Torino og United hljóðaði upp á. Þegar Denis frétti þetta tók hann saman pjönkur sínar, fékk sér leigubíl frá Torino til Milano og flaug þaðan til fæðingarstaðar síns Aberdeen og þar fyrst lét hann í sér heyra. Þá varð stjórn- endum Torino ljóst að Denis Law var algjörlega ófáanlegur til að leika fyrir ítalskt knattspyrnufé- lag aftur og féllust á að selja hann til United fyrir 116.000 pund. United skrifaði út tvær ávisan- ir; eins sem hljóðaði upp á 71.000 pund handa AC Torino og aðra upp á 45.000 pund sem AC Torino skuldaði enn Manchester City. Tíu árum eftir flugslysið mikla varð Man. Utd. Evrópumeistari innar tókst United að sigra AC Milano 2—1 á heimavelli en á San Siro töpuðu þeir 4—0. Þrátt fyrir ósigurinn baúð evrópska knatt- spyrnusambandið United að halda áfram þátttöku, en enska knatt- spyrnusambandið var mótfallið því. Samt sem áður var veturinn 1958/59 United mikil hvatning; þeir náðu þeim undraverða árangri að hafna í öðru sæti í deildarkeppninni á eftir Wolver- hampton, en ákvörðun Matt Busby að kaupa leikmanninn Albert Quixall frá Sheffield, einu ári eftir flugslysið, fyrir hæsta kaupverð sem um gat þá, átti ekki hvað minnstan þátt í frammistöðu þeirra. „Það var á þessu keppnistíma- bilið sem Matt Busby sýndi hvað hann er óskaplega sterkur per- sónuleiki," sagði Jack Crompton, þáverandi þjálfari félagsins. „Áð- ur en hann gat byggt upp lið þurfti hann að byggja sjálfan sig upp. Ég man svo vel er við gengum einn morgun upp tröppurnar að skrifstofu hans á Old Trafford: allt í einu rétti hann mér hækj- urnar sínar og reyndi að komast áfram án þeirra. Hann hafði mikl- ar kvalir, en hann ætlaði ekki að gefast upp. Þegar við vorum svo í bílnum á heimleið eftir að hafa horft á nokkra leiki, þurfti hann að hagræða sér ótal sinnum í sæt- inu.“ Það var sama hvar United lék leiki sína, alls staðar var áhorf- endafjöldinn gífurlegur. Oft var uppselt löngu áður en leikurinn hófst og á Old Trafford komu meira en ein milljón manna á deildarleiki þeirra sem voru 21. Eða að meðaltali 53.258 áhorfend- ur á leik. Áhugi manna fyreir félaginu var einstakur og jafhvel á leikjum varamannaliðsins voru jafnan yfir 10.000 áhorfendur. Hæsta kaupverðið Matt Busby vissi að hann gat ekki gert góða unga knattspyrnu- menn að stjörnum á einu keppn- istímabili. En vegna hins mikla fjölda áhorfenda og góðrar fjár- hagsstöðu gat hann keypt gott lið, sem hann og gerði smátt og smátt. Hann keypti Noel Cantwell frá West Ham og Maurice Setters frá West Bromwich til að styrkja lið sitt. Sumarið 1962 endurheimti hann Denis Law frá Ítalíu og borgaði fyrir hann hærra verð en fyrir nokkurn annan leikmann eða 116.000 pund. Hinn frábæri leikmaður Denis Law var afbragðs knatt- spyrnumaður, sem virkaði sem segull á áhorfendur líkt og Bobby Charlton. Fyrsta keppnistímabil hans á Old Trafford var þó engin sigurganga því United hafnaði í 19. sæti. Skakkaföllin voru svo mörg þennan vetur að Matt Busby ákvað í febrúar 1963 að freista þess að kaukpa nýjan leikmann til liðsins. Fyrir valinu varð Paddy Crerand, frá Celtic Glasgow, sem var þekktur fyrir prúðmannlegan og jákvæðan leik, sem féll einkar vel að leikaðferðum Denis Law. Enda áttu þeir tveir drjúgan þátt í að Manchester United lauk keppn- istímabilinu með að sigra Leicest- er í úrslitaleik bikarkeppninnar á Wembley 3—1. Var það óneitan- lega huggun fyrir 19. sætið í deild- inni. Næstu fimm keppnistímabil á eftir einkenndist leikur United af virðuleik og drambsemi — og var sjálfstraust leikmanna orðið gegndarlaust. 1964 voru þeir í 2. sæti í deildarkeppninni, 1965 í 1. sæti, 1966 í 4. sæti, 1967 í 1. sæti og 1968 í 2. sæti. Þrjú ár í röð (frá 1964) komust þeir í undanúrslita- Shay Brennan og Bobby Charlton hlaupa sigurhring á Wembley með Evrópu- leik FA-keppninnar. Sigurganga bikarinn eftir að Man. Utd. sigraði Benfica, 4—1, í sögulegum úrslitaleik. þeirra náði hámarki árið 1968 þeg- 4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.