Morgunblaðið - 06.03.1983, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MARZ 1983
39
Kristinn Svavarsson, saxófónleikari Mezzoforte, blses af innlifun.
Meira af
högum
Mezzo-
forte
„Margir vissu eitt og annað
um okkur, en sumir vissu Ifka
ekki neitt og voru óksköp vand-
ræöalegir, eins kannski hefur
að skilja,“ sagöi Jóhann Ás-
mundsson í Mezzoforte á
blaðamannafundi, sem efnt var
til í vikunni.
Jóhann kom heim frá Englandi
fyrir nokkrum dögum eftir aö
hafa átt þar viðtöl viö blöö, tíma-
rit og útvarp, og haföi hann nóg
aö gera alla dagana, sem hann
dvaldi ytra.
E.t.v. hefur frétt Morgunblaös-
ins frá því á fimmtudag fariö fram
hjá lesendum Járnsíðunnar, en
þar sagöi einmitt, aö Mezzoforte
væri komin í 86. sæti enska
breiðskífulistans (já, þess eina og
sanna opinbera) og síöan bætt-
ust þau tiðindi viö í vikulok, aö 12
tommu platan þeirra meö lögun-
um Garden Party og Funk Suite
No. 1 væri komin upp í 11. sæti
diskólistans hjá Record Mirror.
í blaöinu á fimmtudag var
einnig skýrt frá því, og e.t.v. rétt
að endurtaka hér, að hljómsveit-
in heldur utan í þessari viku og
kemur fram á einum tónleikum í
hinum mjög svo virta klúbbi
Venue á laugardagskvöld. Hugs-
anlegt er aö heimkoman dragist
eitthvaö, en síöast er Járnsíöan
fregnaöi voru þeir væntanlegir
strax daginn eftir.
Steinar Berg, forstjóri Steina
hf., sagöist aö vonum vera
ánægöur meö hvernig móttök-
urnar heföu veriö í Bretlandi og
ástæöa væri til vissrar bjartsýni.
Tveggja laga platan heföi nú
selst í 9000 eintökum og breiö-
skífan sömuleiöis.
„Það er orðiö talsvert langt frá
því viö fundum aö hjólin voru
tekin aö snúast, en þetta tekur
bara allt svo langan tíma. Viö
fengum spurnir af því fyrir tveim-
ur árum, aö Mezzoforte gæti átt
erindi inn á Englandsmarkaö, en
þaö er ekki fyrr en núna fyrst í
kjölfar geysilega öflugrar kynn-
ingarstarfsemi, aö einhver ár-
angur er farinn aö sjást.“
borö viö Angelic Upstarts til fyrir-
myndar. Þetta hráa og óheflaöa
popp-rokk í dansleikja- og hljóm-
leikaútfærslu, þar sem bassinn
leiöir, rytmagítarinn og trommurn-
ar takta saman og trommarinn
notar diskana til hins ítrasta, söng-
urinn er lifandi og röddun óvönd-
uö. Það er hvergi vottur af fyllingu
eöa fágun. Víöa er grunnt á cal-
ypso- og reggae-fíling.
4. Besta sönnunin á því hvaö
Clash hefur margt nýtt fram að
færa eru þær frábæru Sandinista-
plötur. Þar blanda þeir bandarísku
þjóölagapoppi og karabískum fíl-
ing saman, t.d. í síöustu lögunum á
hlið 5. Sums staöar bætist blús í
hópinn, t.d. í Corner Soul og Ver-
sion City. Á öörum stööum er
blandað meö reggae og jass, t.d. í
Silicone on Sapphire, Version
Partner, Shepherds Delight og If
Music Could Talk. Þessi 4 síöast-
töldu lög eru jafnframt sönnun
þess, aö Clash ber af öörum
hljómsveitum.
5. Lagiö Rebel Waltz hefur oröið
c,a«h-flokkurinn á sviði.
mörgum hljómsveitum eins og
Stranglers til fyrirmyndar.
6. Enginn getur sagt annað en,
aö Clash hafi sinn eigin Clash-stíl,
t.d. í reggae-lögunum Atom Tan
og Red Angel Dragnet á plötunni
Complete Rock, sem Spunds út-
nefndi „plötu ársins 1982“ (þetta
hlýtur aö eiga aö vera Combat
Rock, innsk. — SSv). Einnig eiga
lögin Car Fanning, sem er reagge-
fönk, og Know Your Rights, sem er
ska-rokk, áreiöanlega eftir aö
verða mörgum hljómsveitum til
eftirbreytni. Sömuleiöis reagge-
þjóölagapopplögin (þetta kallar
maöur nú blöndu, innsk. — SSv).
The Call Up, Straight To Hell og
Ghetto Dependant.
7. Sannleikurinn er sá, aö eng-
inn nýbylgjuhljómsveit hefur haft
meira nýtt fram aö færa en Clash.
Ég skora á þig, aö þirta þetta
bréf út af rangfærslunum um
Clash.
Magnús Sigurðsson.
P.s. Ekki er hægt aö tala um nein-
ar rangfærslur í greininni, þar
sem aðeins er sagt frá staö-
reyndum og svo vitnað í um-
mæli annarra. Þótt einhver
segi, aö Clash hafi ekkert nýtt
fram aö færa í poppinu getur
þaö einfaldlega veriö sann-
færing viökomandi. Þaö kall-
ast ekki rangfærsla.
— SSv.
Einar Örn Benediktsson skrifar:
Greinin hefði
réttlætt aftöku
Járnsíðunni hefur borist stutt
grein frá Einari Erni Benedikts-
syni, fyrrum söngvara Purrks
Pillnikks, nú aðaldriffjöður í Issl
Einar er ekki sáttur við ummæli
-DP á Járnsíðunni um síðustu
helgi vegna tónleika í Mennta-
skólanum viö Sund. Greinin fer
hér á eftir.
„Ég er ennþá aö reyna aö átta
mig á því hvort ég hafi verið á
sömu tónleikum og -DP. Svei mér
þá, þaö hlýtur aö vera því þetta
voru einu tónleikarnir, sem haldnir
voru þetta kvöld í MS. Ennþá skil
ég ekki hvernig þessi maður fór aö
því aö sjá einungis tvær hljóm-
sveitir af ellefu, sem sluppu
„sæmilega frá sínu“.
-DP minnist t.d. ekki á Hauginn,
eina af fáum nýjum íslenskum
hljómsveitum, sem hafa eitthvaö
fram aö færa meö tónlist sinni.
Hann minnist ekki heldur á Von-
brigöi, sem sjaldan hefur veriö
betri þótt hljómsveitin hafi aöeins
leikið tvö lög og því vart möguleiki
aö hún hafi verið langdregin, líkt
og öörum poppskríbent Moggans
fannst hún einu sinni vera.
Ég get fariö út í þessa tónleika í
smáatriöum og komið meö ótal-
mörg dæmi um gæöi þeirra, en
mér finnst þaö bara óþarfi. Hugur
-DP er fyrirfram ákveöinn; aö
reyna að hneykslast og rífa niöur.
Annan punkt, sem -DP nefnir,
má minnast á, og hann er hreint og
beint svíviröilegur og dónalegur.
Þaö er næstum því aö höföa megi
meiöyrðamál gegn þessum manni.
Hvernig dettur honum í hug aö lýsa
því yfir, aö næstum allar hljóm-
sveitirnar, sem tóku þátt í tónleik-
unum, hafi verið í vímu?
Vil ég benda honum á, ef hann
! þarf aö vera aö segja aö 40-50
hljómlistarmenn hafi veriö þarna í
vímu eöa kannski nokkrir („taki
þeir þaö til sín sem eiga"), þá
nafngreini hann þessa sömu aöila
eöa bara sleppi þessum smáskrif-
um. Ekki reynum viö aö draga
ályktanir af því hvaö -DP gerði fyrir
fé þaö, er hann fékk greitt fyrir
þessa grein. (Til aö foröast mis-
skilning skal þaö uþplýst, aö hann
fékk ekki greiöslu fyrir þessa grein,
-SSv.)
Sárt þykir mér þegar menn eins
Strákarnir í
Toto stóðu
sig einna best
Það voru strákarnir í Toto,
sem komu manna best út,
þegar Grammy-verölaununum
var deilt út í Bandaríkjunum í
vikunni. Þess skal þó getið, að
menn leggja misjafnt gíldis-
mat á niðurstöður þessar, en
látum oss kíkja ögn á niður-
stöðurnar.
Tveggja laga plata árins varö
„Rosanna" meö Toto. Toto átti
einnig plötu árins, en hún ber
einfaldlega nafniö „IV.“ Gamla
kempan Willy Nelson krækti
sér hins vegar í lag ársins með
„Always on my Mind“.
Bestu popplögin var kjörin
„You should hear how she talks
about you“ meö Melissu
Manchester og „Truly“ meö
Lionel Richie. Besta sönglausa
(instrumental) popplagiö var út-
nefnt „Chariots of Fire" meö
Vangelis.
Þau Pat Benatar og John
Cougar voru kjörnir rokksöngv-
arar árins með lög sín „Shad-
ows of the night" og „Hurts so
good." Þá fengu Joe Cocker og
Jennifer Warnes verðlaun sem
besti popp-dúettinn á síðasta
ári.
og -DP misnota aöstööu sína.
Þessi maöur ætti að hyggja aö því,
aö hann býr ekki í steinkastala,
heldur glerhúsi, og sagt hefur ver-
iö, aö þeir, sem búa í slíku húsi,
ættu ekki aö kasta steinum.
Sem áhorfandi aö þesum um-
ræddu tónleikum held ég aö þessi
maður heföi betur látiö ógert að
skrifa um þá. Viö, sem förum, og
allir þeir, sem einhvern tíma munu
fara á tónleika þurfa ekki skrif sem
þessi. Þau afhjúpa -DP einungis
sem algera „hnetutösku".
Þaulsetið
í 15 vikur
Ástralirnir í Men At Work náðu
því frábæra afreki að sitja í 15
vikur í fyrsta sætinu samfleytt á
bandaríska breiöskífulistanum
áður en þeir neyddust til aö þoka
fyrir öðru og nýrra efni.
Afrek þeirra kemst þó ekki
nema rúmlega i hálfkvisti viö til-
tæki Bee Gees-bræöranna, fals-.
ettudrengjanna frá sama landi.
Þegar platan meö lögunum úr
„Saturday Night Fever" kom út
fyrir nokkrum árum (hvenær var
diskó-æöiö aftur i algleymingi?)
sat hún óslitið í 25 vikur á toppi
bandaríska listans.
AÖ halda vöku
fyrir mönnum
Fimm ungir sveinar úr hin-
um „hýra Hafnarfirði" hafa
tekið höndum, fótum og öðr-
um útlimum saman um að
stofna hljómsveit. Hefur flokki
þessum verið gefið nafnið
Vaka og er takmarkíð að sögn
að halda vöku fyrir fólki á
komandí kvöldum.
Vaka leikur mestmegnis
frumsamda tónlist, en aö því er
segir í fréttatilkynningu frá
hljómsveitinni mun efni eftir
aöra aö auki veröa flutt. Tón-
listin er að uppistöðu til létt
rokk, sem væntanlega má
skilja sem vissa andstööu viö
þungt rokk og þá líka rokk í
milliþungavigt.
Fimmmenningarnir í Vöku
eru eftirtaldir: Gylfi Már Hilm-
isson/gítar og söngur, Jón
Trausti Haröarson/bassi, Jón
Þór Gíslason/söngur og
hljómborö, Smári Eiríksson/-
trommur, og Sigsteinn Grét-
arsson/hljómborð.
Á meöfylgjandi mynd geta
menn reynt aö sþá í hver er
hvaö í sveitinni, en myndin er
birt í sömu stærö og hún barst
Járnsíöunni. Ekki þarf að taka
þaö fram, aö eindregið er
óskað eftir ögn stærri myndum
í framtíðinni.