Morgunblaðið - 06.03.1983, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MARZ 1983
Nguyen Tuong Lai, fyrrum yfirmaður allrar leyni-
þjónustu hinna kommúnísku Viet Cong-skæruliða-
samtaka í Víetnam, fylgdi konu sinni og börnum
yfir ótrausta bambus-hengibrúna, sem strengd var yfir
fenjasvæðið við ströndina í Rach Gia, Víetnam, en fjöl-
skrúðugur hitabeltisgróðurinn þekur landið á þessum slóð-
um, allt í sjó fram. Á þessari stundu færði hann sér í nyt
þau mörgu laumubrögð, sem hann hafði lært í tuttugu og
eins árs hernaði Viet Cong-skæruliða mitt inni í frumskóg-
inum, brögð sem svo oftsinnis höfðu orðið þeim til lífs.
Þannig kunni hann að fela skugga fólksins, sem þarna var
á ferli í tunglsljósinu, með því að gæta þess að skuggarnir
féllu á bólverk bryggjunnar. Enginn varð þeirra var.
Eftir að hafa lyft síðasta barninu upp í bátinn, leysti
hann hljóðlega landfestar skektunnar, sem tók að reka
hægt til hafs. Átján manns, ömmur, afar, fullorðnir og
börn hnipruðu sig saman í þessum litla árabáti. Allir um
borð skyggndust óttaslegnir um eftir sovézk-smíðuðu eftir-
litsskipunum frá víetnamska sjóhernum. Ef þau næðust,
myndi það þýða annað hvort áralanga þrælkunarvinnu í
fangabúðum eða þá dauðadóma. Það bætti ekki úr skák
fyrir fólkið, að einmitt á þessum slóðum er mikið af sjó-
ræningjum á sveimi, sem ráðast af mestu grimmd á varn-
arlaust flóttafólk, láta greipar sópa um allt fémætt, sem
þeir fá hönd á fest, drepa karlmennina og hafa konur og
börn á brott með sér sem þræla. Ömmurnartvær, há-
aldraðar konur, báðust fyrir háum rómi að Guð og góðar
vættir veittu þeim vernd og öryggi á þessari háskaför. Lai
var sjálfur milli vonar og ótta um, hvort þeim tækist
undankoman. Þetta var að haustlagi, árið 1979.
A1 Santoli:
Viet Cong-tíóar
flýja unnvörpum
til Vesturlanda
Frá því Bandaríkjamenn hurfu
frá Víetnam árið 1975, hefur næst-
um því ein milljón Víetnama flúið
land í misjafnlega traustum bát-
um. Talið er, að um helmingur
þessa fólks hafi á slíkum örvænt-
ingarfullum flótta látið lífið á hafi
úti.
Það sem vekur furðu manna á
Vesturlöndum er, að fjöldi þessara
flóttamanna — mörg þúsund
manns, að áliti talsmanna flótta-
fólksins — voru áður Viet Cong-
liðar og meðlimir Kommúnista-
flokks Víetnam.
Þessir heldur óvenjulegu flótta-
menn, sem hingað til hefur verið
gefinn lítill gaumur, hafa setzt að
í Thailandi, Hong Kong, Malaysíu,
Sviss, í París og í Bandaríkjunum.
Hér á eftir fara viðtöl við hátt-
setta Viet Cong-liða og kommún-
istaforsprakka, sem telja má
glögg dæmi um menn af þessu
tagi, er flúið hafa Víetnam.
I máli þeirra koma fram eftir-
farandi upplýsingar um hvernig
ástandið er orðið í Víetnam á þeim
7 árum, sem liðin eru frá valda-
töku kommúnista árið 1975.
★ Þúsundir land.smanna----
þeirra á meðal fyrrverandi Viet
Cong-liðar — hafa verið fangelsaðir,
sendir til „endurhæfingabúða“
kommúnista eða þá teknir af lífi.
Þar að auki er sem óðast verið að
senda um 500.000 Víetnama til
vinnubúða í Síberíu í náinni sam-
vinnu við Sovétmenn.
★ Mikið magn af hrísgrjónum,
ræktuðum i Víetnam, af gúmii og
öðrum hráefnum eru árlega flutt út
til Sovétríkjanna, þótt sultur sverfi
að Víetnömum heima fyrir og at-
vinnu- og efnahagslif landsins sé á
hraðri niðurleið.
■k Frelsi til trúariðkana hefur ýmist
verið heft algjörlega eða takmarkað
mjög, eignir kirkju og mustera verið
gerðar upptækar, helgir dómar sví-
virtir.
★ Bandarískir flugliðar hafa sézt i
nauðungarvinnu í Norður-Víetnam,
allmörgum mánuðum eftir að stjórn-
völd í Hanoi lýstu því yfir, að búið
væri að sleppa öllum stríðsföngum.
Þessir menn eru ennþá í Víetnam.
★ „l)omino-kenningin“, sem eitt
sinn var svo mjög dregin í efa, virð-
ist vera í fullu gildi. Kommúnistar i
Víetnam hafa nú uppi áform um að
„frelsa" einnig Thailand, eftir að
þeir hafa náð Kampútseu og Laos á
sitt vald.
Nguyen Tuong Lai, fjölskylda
hans og vinir höfðu heppnina með
sér. Eftir að hafa hrakist um á
hafi úti í nærri því vikutíma á
litla bátnum sínum, komust þau
loks til flóttamannabúða á Bi-
dong-eyju í Malaysíu. Þar var Lai
fenginn sá starfi að aðstoða við að
yfirheyra aðra hermenn úr röðum
kommúnista og flóttamenn, sem
talizt höfðu til hinna hærra settu
meðlima Kommúnistaflokksins,
en þess háttar menn eru stöðugt
að koma til Bidong-eyju. í tvö löng
ár beið fjölskylda Lais eftir að fá
að flytjast frá flóttamannabúðun-
um til framtíðar-búsetu í öðru
landi. Núna býr fjölskyldan í litl-
um fjallabæ í Sviss, og Lai er tek-
inn til við að læra tungu heima-
manna og tekur auk þess ökutíma.
Alla sína ævi hafði hann verið
hermaður. Fjórtán ára að aldri
gekk hann í lið með Viet Minh,
sem börðust við Frakka á fenja-
svæðunum í Mekong-óshólmanum,
heimahéraði Lais. Eftir að Frakk-
ar höfðu verið gjörsigraðir við
Dienbienphu, var Lai fengið það
verkefni að skipuleggja and-
spyrnuhreyfingar víðs vegar á ós-
hólmasvæðunum. Árið 1959 hafði
hann þegar klifrað upp í efsta
Bátafólkiö, flótta-
mennirnir frá Víetnam,
hættir lífi og límum
hundruðum þúsundum
saman fremur en að þjást
undir stjórn kommúnista í
heimalandi þeirra. Talid
er aö tugir þúsunda
barna, kvenna og karla
hafi farist á flóttanum,
margir af völdum sjóræn-
ingja.
þrep mannvirðinga flokksins og
var nú kominn í hóp þeirra, sem
mynduðu innsta hringinn í
Kommúnistaflokki Víetnam. Á
fyrstu árum Vietnam-styrjaldar-
innar hafði hann með höndum
stjórn Viet Cong-skæruliðahópa,
og eftir að hafa sannað hreysti
sína og hæfni, var hann sendur í
herskóla í Sovétríkjunum og í
Hanoi. Því næst aftur á sínar
heimaslóðir til þess að taka þátt í
bardögum við bandaríska herliðið.
Lai er mjög hávaxinn maður,
sem bar höfuð og herðar yfir
liðsmenn þeirra herflokka, sem
hann átti að innræta skilyrðis-
lausa hlýðni og óttaleysi — en
þeirra verkefni töldust nær alltaf
til hinna hættulegustu og blóðug-
ustu í stríðinu. Meðan á Tet-
sókninni stóð árið 1968, þar sem
Viet Cong-liðar guldu gífurlegt af-
hroð, voru það herflokkar undir
stjórn Lais, sem fóru fremstir til
sjálfsmorðs-árásanna á Bien
Hoa-flugvöllinn.
Eftir það var Lai fenginn starfi
í aðalstöðvum þjóðfrelsishreyf-
ingarinnar (Viet Cong), sem stað-
settar voru á hinu stríðshrjáða
landsvæði við landamæri Kamp-
útseu; var Lai útnefndur yfirmað-
ur leyniþjónustu Viet Cong, svo og
gagnnjósnadeildarinnar.
Árum saman fór hann mest
huldu höfði um frumskógana og