Morgunblaðið - 06.03.1983, Qupperneq 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MARZ 1983
fleytu þeirra að ströndum Indó-
nesíu.
Tangarsókn gegn
trúarbrögðum
í San José í Kaliforníu hafa
Nguyen Cong Hoan og aðrir víet-
namskir innflytjendur þar um
slóðir endurbyggt gamalt hús og
gert að búddamusteri. Enda þótt
hann vinni sem rafeindatæknir og
börnin hans sitji á laugardags-
morgnum fyrir framan sjónvarps-
tækið og horfi á teiknimyndasöfn,
þá virðist hugur hans ennþá mest
bundinn við þá daga á styrjaldar-
árunum, þegar friðarhreyfing
búddista undir hans stjórn var
virk í andspyrnunni gegn Saigon-
stjórninni.
„Eins og önnur samtök stjórn-
arandstæðinga var búddistahreyf-
ingin orðin þreytt á hinu lang-
vinna stríði í landinu og vildi um
fram allt koma á friði,“ segir
Hoan til skýringar. „Bandaríkin
höfðu stutt ríkisstjórnir, sem voru
siðferðilega spilltar og höfðu alls
ekkert samband við almenning í
þorpum og bæjum landsins. Aðal-
viðfangsefni okkar var að losa
landið við Thieu. Margir gengu í
þjóðfrelsishreyfinguna (þ.e. Viet
Cong) aðeins af því að þeim fannst
að allt hlyti að vera betra en
Thieu. í áróðri sínum sögðu hinir
kommúnísku þjóðfrelsismenn, að
þeir lofuðu réttlátri sameiningu í
þjóðfélagi okkar, sameiningu alls
Víetnam, og kommúnistarnir lof-
uðu friði, réttlæti, lýðræði, sjálf-
stæðu fullvalda ríki og betra lífi
þjóðinni til handa. Svo var látið
heita að þjóðfrelsishreyfingin,
Viet Cong, væri alþýðubandalag,
samtök margra hópa í þjóðfélag-
inu. Við gerðum okkur alls ekki
ljóst, að í raun og veru var aðeins
einn hópur við völd í þjóðfrels-
ishreyfingunni — það er að segja
Kommúnistaflokkurinn.
Skömmu eftir „frelsun" Suður-
Víetnam," segir Hoan, „réðust
kommúnistar opinskátt til atlögu
gegn öllum trúarsamtökum í land-
inu. Flestir hinna þekktustu trú-
arleiðtoga í Víetnam, sem barizt
höfðu hvað ákafast gegn styrjald-
arrekstrinum, voru fangelsaðir,
eignir kaþólsku kirkjunnar og
búddamustera voru gerðar upp-
tækar, pagóður og kirkjur van-
helgaðar, og leikmönnum var gert
ókleift að sækja guðsþjónustu."
Fáeinum musterum, stjórnað af
„handbendum kommúnista”, var
leyft að starfa áfram, að sögn
Hoan, til þess að láta allt líta bet-
ur út á yfirborðinu.
Eftir fall Saigon í hendur
kommúnista, snéri Hoan aftur til
heimilis síns úti á landi í Suður-
Víetnam og tók aftur upp kennslu.
Þegar hann kom til sinnar heima-
byggðar, var honum skýrt frá því,
að um 700 manns hefðu verið líf-
látnir í heimahéraði hans á fyrstu
tíu dögunum eftir hina kommún-
ísku „frelsun" og þúsundir manna
hefðu verið fangelsaðar.
Kommúnistar slátra á laun
Samkvæmt frásögn Nguyen
Tuong Lai, fyrrum yfirmanns
leyniþjónustu víetnamskra komm-
únista, var um gjörvallt landið
komið á fót „dómstólum alþýð-
unnar“ og þessar samkundur
hafðar á almannafæri. Allir þeir,
sem dregnir voru fyrir þessa
„dómstóla" voru þegar í stað
dæmdir til dauða. Lögreglusveitir
kommúnista, sem sjá áttu um af-
tökurnar, fengu hins vegar fyrir-
mæli um að drepa fólkið á mjög
afviknum stöðum, bæði til þess að
alþjóðlegir fjölmiðlar kæmust
ekki á snoðir um ódæðin og eins til
þess að íbúarnir í hinum ýmsu
héruðum landsins fylltust ekki
viðbjóði á hinni skuggalegu slát-
urtíð, sem átti sér stað. Annar
fyrrverandi embættismaður víet-
nömsku kommúnistastjórnarinn-
ar gizkar á, að um tvö hundruð
þúsund manns hafi verið líflátnir.
Árið 1975 gerðu kommúnistar
Nguyen Cong Hoan að „þing-
fulltrúa” á þjóðþingi hins sósíal-
íska lýðveldis Víetnam. En líkt og
aðrir suður-víetnamskir „þing-
fulltrúar" á þinginu í Hó Tsjí
Minh-borg, var honum aldrei leyft
að taka til máls né aðhafast neitt í
neinum meiriháttar málum, sem á
dagskrá voru, þar sem um það bil
tylft kommúnista frá norður-
víetnamska flokknum stjórnuðu
þinginu og gerðum þess í einu og
öllu. Sem fulltrúi á þinginu fór
Hoan tvívegis í ferðalög til
Norður-Víetnam, þar sem hann
hafði aðgang að upplýsingum um
hin helztu markmið og verkefni,
sem stjórnin hefur á prjónunum
svo og stefnu hennar og viðhorf á
ýmsum sviðum. Hoan segir, að Ví-
etnamar ætli sér ekki að hætta að
berjast eftir að þeir hafi náð Laos
og Kampútseu á sitt vald með
hernaðaraðgerðunum þar. „Á
fyrsta fundi þjóðþingsins, sem ég
sat í Hanoi,“ segir Hoan, „skýrði
Tran Quynh, aðstoðarmaður Le
Duan, ritara kommúnistaflokks-
ins, mér frá því, að „frelsun" Thai-
lands væri næst á dagskrá. Það er
söguleg nauðsyn að frelsa Thai-
land, og kommúnistaflokkur Ví-
etnam ber ábyrgð á að það takist.
Á sama þingfundi var okkur af-
hent skjal, sem bar fyrirsögnina
„Víetnarh — Suðaustur-Asía,“ þar
sem farið var orðum að stefnu
Kommúnistaflokksins í þá veru að
ölast víðtæk yfirráð."
Hoan segist hafa ákveðið að
flýja land til þess að geta sagt um-
heiminum frá ástandinu í föður-
landi sínu, Víetnam.
Áróðursráðherra komm-
únista flúinn til Sviss
Nguyen Duc Yen flúði Víetnam
með báti frá Hanoi til Hong Kong
árið 1979. Hann hafði þá verið
meðlimur kommúnistaflokks Ví-
etnam í tuttugu ár. Á styrjaldar-
árunum var hann áróðursráðherra
og heyrði beint undir forsætis-
ráðuneytið og stjórnaði auk þess
allri fréttamiðlun til erlendra
fréttastofa.
Núna vinnur sá hinn sami Yen,
óaðfinnanlega klæddur maður
hátt á fimmtugsaldri, sem frétta-
maður fyrir dagblað eitt í svissn-
esku sveitahéraði, þar sem hann
Hermenn frá
Norður-Víetnam
halda sigurreifir
inn í Hué.
og fjölskylda hans býr uppi í ásun-
um við rætur Alpafjalla. Á stríðs-
árunum heima í Hanoi hafði hann
þann starfa að sjá um þýðingar á
áróðursefni frá Sovétríkjunum á
víetnömsku. „Fáir Vesturlandabú-
ar gera sér grein fyrir því,“ segir
hann, að mestallar upplýsingar og
yfirlýsingar frá Hanoi á þessu
tímabili voru komnar beint frá
Sovétríkjunum og frá Austur-
Þýzkalandi."
Sem áróðursráðherra var Yen
til skiptis í Moskvu og Hanoi. „í
Austur-Evrópu og í Sovétríkjun-
um,“ segir hann, „sá ég þess hátt-
ar örbirgð og eymd, sem marxism-
inn hefur alls staðar valdið. Eftir
stríðslok í Víetnam sá ég ná-
kvæmlega hið sama gerast í mínu
eigin landi. Að mæia þessari
þróun í mót þýddi fangelsun eða
dauða, an þau urðu örlög margra
meðlima flokksins, jafnvel her-
manna, sem tekið höfðu þátt í
styrjöldinni við Frakka á sínum
tíma.“
í júnímánuði 1973 segist Yen
hafa séð um 30 eða 40 bandaríska
flugliða, sem enn var haldið sem
stríðsföngum uppi á hálendinu í
Norður-Víetnam. Það var sem
sagt tveimur mánuðum eftir að
ríkisstjórn Norður-Víetnam hafði
sagt, að hún hefði sleppt úr haldi
öllum stríðsföngum. „Allt fram á
þennan dag,“ bætir Yen við, „hafa
þessir menn ekki verið látnir laus-
ir.
Formaður flokksdeildarinnar í
því héraði sagði mér, að sjálf mið-
stjórn kommúnistaflokksins í
Hanoi hafi látið senda þessa fanga
til hans héraðs með þeim fyrir-
mælum, að hann ætti að bera
ábyrgð á gæzlu þeirra,“ segir Yen.
„Menn þessir voru í þrælkunar-
vinnu.“
Örlög þessara manna eru enn
þann dag í dag í höndum Hanoi-
stjórnarinnar. Yen segir, að Han-
oi-stjórnin ætli að reyna að nota
þessa fanga sem eins konar póli-
tíska beitu gagnvart Bandaríkjun-
um í samningaumleitunum ríkis-
stjórnanna um að koma á aftur
stjórnmálasambandi milli Hanoi
og Washington. „Slíkt stjórnmála-
samband," segir Yen, „yrði hins
vegar að teljast til meiriháttar
mistaka. Það samkomulag myndi
aðeins auðvelda kommúnistum að
halda áfram styrjaldarrekstri sín-
um gegn öðrum löndum og auka
enn á kúgun víetnömsku þjóðar-
innar. Bandarísk fjárhagsaðstoð
myndi verða notuð til þess að
kaupa vopn fyrir og til að útvega
víetnamska hernum vistir svo að
hann geti ráðist inn í önnur ríki
Suðaustur-Asíu. Auk þess myndu
Sovétríkin nota Víetnama til þess
að reka fleyg tortryggni á milli
Bandaríkjanna og Kína.“
Vandlega skipu-
lögö blekking
Samkvæmt frásögn Nguyen Tu-
ong Lai fer andstaðan gegn stjórn-
völdum sífellt vaxandi í Víetnam
— almennir borgarar sýna and-
stöðu sína með því að draga sig út
úr allri þátttöku í pólitískri starf-
semi flokksins, en fyrrverandi
Viet Cong-liðar, fyrrum hermenn í
suður-víetnamska stjórnarhern-
um og menn úr ýmsum ættbálkum
í landinu hafa tekið upp skipu-
lagða vopnaða mótspyrnu. Árið
1977 sprengdu andspyrnuhópar
þýðingarmiklar eldsneytisbirgða-
stöðvar við Long Binh í loft upp —
en það voru skemmdarverka-
aðgerðir, sem jafnvel Viet Cong-
liðum tókst aldrei að koma í kring
á stríðsárunum. Yen hefur því við
að bæta, að aðgerðum andspyrnu-
hópa í Víetnam sé haldið vandlega
leyndum af hálfu stjórnvalda.
„Starf mitt í Hanoi var m.a. í
því fólgið að undirbúa fólk fyrir
heimsóknir erlendra fréttamanna
frá Vesturlöndum," segir Yen,
fyrrverandi áróðursráðherra
Hanoi-stjórnarinnar. „Þegar
sendinefndir frá Vesturlöndum
komu í heimsókn til Hanoi eða til
annarra borga í Víetnam, var
fólkið undirbúið í tæka tíð varð-
andi það, hvernig því bæri að haga
sér við slík tækifæri og hvað menn
áttu að segja. Jafnvel á götum úti
er hinn hversdagslegi raunveru-
leiki allur annar en sá sem sýndur
er blaðamanni frá Vesturlöndum.
Leynilögreglan er alls staðar á
ferli. Það er farið með vestræna
blaðamenn til fundar við örugga
flokksmeðlimi, sem yfirvöld
treysta fullkomlega, og þessir
trúnaðarmenn kommúnista munu
segja nákvæmlega það, sem flokk-
urinn hefur sagt þeim að segja, en
ekkert annað. Þegar því Vestur-
landabúar sjá Víetnama brosa, þá
gera þeir sér alls ekki grein fyrir
því, að brosið er tákn kurteislegs
virðuleika en slíkt bros segir ekk-
ert um tilfinningar viðkomandi.
Ef vestrænn blaðamaður skýrir
frá því, að Víetnamar uni glaðir og
ánægðir við sinn hlut, þá veit sá
blaðamaður ekkert um Víetnam."
Styrkið og fegrið líkamann
Dömur og herrar
Ný 4ra vikna námskeiö hefjast 7. marz
Leikfimi fyrir konur á öllum aldri. Hinir vinsælu herratímar í hádeginu
Hressandi — mýkjandi — styrkjandi — ásamt megrandi æfingum. Sértím-
ar fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eda meira. Sértímar fyrir eldri
dömur og þær sem eru slæmar í baki eöa þjást af vöövabólgum. Vigtun —
mæling — sturtur — gufuböö — kaffi og hinir vinsælu sólaríumlampar.
Innritun og upplýsingar alla virka daga
frá kl. 13—22 í síma 83295.
Júdódeild Ármanns
Ármúla 32.
Megrunarnámskeið
Nýtt námskeið hefst 28. febrúar. Námskeiöið veitir alhliða
fræðslu um holiar lífsvenjur og vel samsett mataræði, sem
getur samrýmst vel skipulögðu, venjulegu heimilismataræöi.
NÁMSKEIÐIÐ ER FYRIR ÞA:
• Sem vilja grennast og koma í veg fyrir að vandamáliö endur-
taki sig.
/ • Sem vilja forðast offitu og það sem henni fylgir.
• Sem vilja fræðast um hollar lífsvenjur og vel samsett matar-
æöi.
NÁMSKEIÐIÐ FJALLAR MEÐAL ANNARS
UM EFTIRFARANDI ATRIDI:
• Grundvallaratriði næringarfræöi.
• Fæðuval, gerö matseöla, uppskriftir.
• Þætti sem hafa áhrif á fæðuval, matarvenjur og matarlyst.
• Leiöir til aö meta eigiö mataræöi og lífsvenjur.
Upplýsingar og innritun í síma 74204 í dag og næstu daga.
Kristrún Jóhannsdóttir, manneldisfræðingur.