Morgunblaðið - 06.03.1983, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 06.03.1983, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MARZ 1983 45 og eftirstöðvar á 9-12 mán. VHS VIDEOTÆKI Verð frá kr. 31.160.- HLJÐMBÆR en • - UPioNccn HLJOM*HEIMIUSaSKRIFSTOFUTÆKI HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999 ÚTSÖLUSTAÐIR: Portið. Akranesi — KF Borgf Borgarnesi — Verls Inga. Hellissandi — Patróna. Patreksfiröi — Seria. Isafiröi — Sig Pálmason. Hvammstanga — Alfhóll. Siglufiröi — Cesar. Akureyri — Radíóver. Húsavik — Paloma. Vopnafirói — Ennco. Neskaupsstaö — Stálbúöin. Seyöisfiröi — Skógar. Egilsslóöum — Djúpið. Djúpavogi — Hornbær. Hornafiröi — KF Rang Hvolsvelli — MM, Selfossi — Eyjabær. Vestmannaeyjum — Rafeindavirkinn. Grindavík — Fataval. Keflavík Seltjarnarnes: Fræðslu- og umræðukvöld fyrir foreldra unglinga FélagsmálaráA Seljtarnarnes- bæjar stendur fyrir fræðslu og um- ræðukvöldum dagana 8., 15. og 22. mars nk., fyrir foreldra unglinga. Fræðslu- og umræðukvöld verða haldin í sal Tónlistarskólans við Suðurströnd og hefjast kl. 20.30 hvert kvöld. Fjallað verður um ýmis málefni sem snerta unglinga, samskipti þeirra og foreldra, t.d. verða flutt erindi um vímuefni, kynfræðslu, líkamlegar og tilfinningalegar breytingar á unglingsárunum o.fl. Fyrirlesarar verða: Magnús Ingimundarson, yfirkennari, Ingi- björg Sigmundsdóttir, hjúkrun- arforstjóri, Þuríður Jónsdóttir, fé- lagsráðgjafi og Þorgeir Magnús- son, sálfræðingur. Þátttökugjald er kr. 150 — fyrir hjón og kr. 100 — fyrir einstakl- inga. Þátttaka tilkynnist á skrifstofu félagsmálastjóra, Ueilsugæslu- stöðinni við Suðurströnd, fyrir 7. mars nk. hans við leikritin. Hvert bindi verður um 500 bls. að stærð. Haf- steinn Guðmundsson ræður útliti bókanna. Eiríkur Hreinn sagði m.a. um þessar þýðingar Helga: „Þýðingar Helga Hálfdanarson- ar á leikritum Shakespeares eru meira bókmenntaafrek en auðvelt er að gera sér í hugarlund og vafa- lítið mesta þýðingarafrek sem unnið hefur verið á Islandi. Magn- ið er geysimikið, samtals 4000 bls., og ágæti þýðinganna hefur enginn dregið í efa, enda hafa leikhús- menn orð á því hversu meðfæri- legir textar Helga eru á leiksviði." Karamazovbræðurnir í þýðingu Gunnars Arnasonar frá Skútustöðum Þá hefur verið ákveðið að gefa út í þessum bókaflokki Kara- mazov-bræðurna eftir Dostojevsk- ij í þýðingu Gunnars Árnasonar frá Skútustöðum. Eiríkur Hreinn sagði að þetta mikla rússneska skáld hefði hingað til verið und- arlega vanræktur á íslandi. Kara- mazov-bræðurnir eru síðasta og mesta verk Dostojevskijs og kom upphaflega út árið 1880. íslenska útgáfan verður að öllum líkindum í þremur bindum og er ráðgert að gefa út fyrsta bindið á næsta ári. Gunnar Árnason þýddi Kara- mazov-bræðurna fyrir aldarfjórð- ungi af ensku, en seinni tvö bindin af þýðingunni glötuðust svo ekkert varð af útgáfu. Gunnar þýddi seinni tvö bindin aftur nýlega, og þá af ensku. Nokkur fleiri verk eru í undir- búningi, en þau eru ekki það langt á veg komin að unnt sér að skýra frekar frá þeim nú. AB gefur út nýjan bókaflokk: Úrvalsrit heimsbókmenntanna Almenna bókafélagið hefur hafið útgáfu á nýjum bókaflokki undir heitinu „Urvalsrit heimsbók- menntanna". í flokkinn verða ekki teknar aðrar bækur en viðurkennd bókmenntaverk, sem áhrif hafa haft, eða hafa, á heimsbókmennt- irnar. Verkin í flokknum verða mismunandi að stærð og útliti, en öll einkennd með sameiginlegu merki fyrir bókaflokkinn. Á blaðamannafundi sem Al- menna bókafélagið boðaði til sagði Eiríkur Hreinn Finnbogason að ekki væri búið að taka ákvörðun um endanlega stærð bókaflokks- ins og yrði það ekki gert að sinni. Eiríkur sagðist búast við að 2—4. bækur bættust í flokkinn á ári, og væri ætlunin að vanda til útgáf- unnar eftir fremsta megni, bæði hvað snerti þýðingar og frágang. Sagði Eiríkur að félagið gerði sér vonir um að þessi bókaflokkur verði bæði merkt og áhrifamikið framlag til íslenskra bókmennta og íslenskrar menningar. Don Kíkóti í þýöingu Guðbergs Bergssonar Fyrsta ritið í þessum flokki er Don Kíkóti eftir Cervantes de Saavedra í þýðingu Guðbergs Bergssonar. Don Kíkóti hefur, eins og kunnugt er, haft geysimik- il áhrif á bókmenntir síðari tíma, bæði leikrita- og sagnagerð. Verkið mun koma út í 8 bindum og eru þrjú þeirra þegar komin út og tvö bætast við á þessu ári. Síðan er gert ráð fyrir að 6. og 7. bindi komi út 1984 og 8. bindið 1985. Hvert bindi er rúmiega 200 bls. i DIN-broti. Guðbergur hefur unnið að þýðingunni undanfarin ár og ekki notið til þess nokkurra styrkja. Og hann mun vera eini nútímamaðurinn sem hefur þýtt verkið í heild sinni. Don Kíkóti kom upphaflega út í tveimur bindum 1605 og 1615. Síð- Aðeins Þessi mynd var tekin á blaðamannafundi sem AB boðaði til í þeim tilgangi að kynna nýjan bókaflokk, Úrvalsrit heimsbókmenntanna. Frá vinstri: Jóhannes Nordal, Gunnar Árnason frá Skútustöðum, Guðbergur Bergsson og Eiríkur Hreinn Finnbogason. an hefur sagan verið gefin út i fjöldamörgum útgáfum víða um lönd og eru margar þeirra breytt- ar á ýmsa vegu, sleppt úr, dregið saman, jafnvel svo mikið að úr verða aðeins ágrip af sögunni. Guðbergur þýðir eftir frumútgáf- unni og er þessi íslenska útgáfa algerlega óstytt. Leikrit Shakespeares í þýðingu Helga Hálfdanarsonar Næsta stórvirkið í þessum bóka- flokki er leikrit Shakespeares í þýðingu Helga Hálfdanarsonar. Þetta mikla verk mun koma út í 8 bindum og er fyrsta bindið þegar komið út, en í framtíðinni er gert ráð fyrir að eitt bindi komi út á ári. Helgi hefur nú lokið við að þýða öll leikrit Shakespeares, 37 að tölu. f fyrsta bindinu ritar Helgi inngangsorð um Shakespeare og samtíð hans, og síðan fylgja hverju bindi ítarlegar skýringar • Þú eignast SHARP VHS VIDEOTÆKI • Þú verður þinn eigin myndastjóri 0 Velur hvaða mynd þú horfir á — og hvenær • Þarft ekki að láta þér leiðast einhæft sjónvarpsefni • Hoppaðu á þetta tilboð — þaó gefst ekki betra. Höföar til .fólksíöllum starfsgreinum!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.