Morgunblaðið - 06.03.1983, Side 46

Morgunblaðið - 06.03.1983, Side 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MARZ 1983 Ástæðulaust að vera hræddur við dáleiðslu Spjallað við dávaldinn Frisenette og hæfileikar hans reyndir Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir virðist ómögulegt aó loka munninum. Frisenette stendur viö gluggann á hótelherbergi sínu og furöar sig á þeim ótrúlegu möguleikum sem íslensk veörátta býður upp á. — „Ég gæti best trúað aö hann færi að rigna aftur. Annars er ég nú farinn aö þekkja þessa veöráttu ykkar eftir heimsóknir mínar hingað. Það er merkilegt hvað veðrið hérna getur breyst á stuttum tíma ... “ — Hann er þægilegur í viðmóti og alls ekkert dularfullur, eins og sumir gætu kannski haldið þar sem þekktur dávaldur á í híut. í hugum okkar, sem teljum okkur vera „venjulegt fólk“ eru dávaldar forvitnileg fyrirbæri enda búa þeir yfir þeim ótrúlegu hæfileikum að geta náð valdi yfir hugsun fólks og fengiö það til að gera nánast hvað sem er. Forvitni og löngun til að kynnast þessum manni og dáleiðslu- hæfileikum hans nánar rak okkur á fund hans og í eftirfarandi samtali segir Frisenette nánar frá sjálfum sér. Frá einni skemmtun Frisenette í Háskólabíói nú í vikunni. (Ljósm. Mbi. rax.) »Ég er fæddur í Danmörku en foreldrar mínir fluttu til Banda- ríkjanna þegar ég var fimm ára. Ég hef því lengst af verið banda- rískur ríkisborgari en hef nú feng- ið danskan ríkisborgararétt og er fluttur aftur til míns gamla föð- urlands, þar sem ég ætla að eyða ellinni. Hvernig það atvikaðist að ég fór út í skemmtiiðnaðinn má segja að það hafi verið fyrir til- viljun. Þegar ég var um tvítugt fékk ég mikinn áhuga á töfra- brögðum og byrjaði þá að reyna alls konar brellur sem áhugamað- ur. Smátt og smátt þróaðist þetta áhugamái mitt og 25 ára gamall gerðist ég atvinnumaður í töfra- brögðum." Hafðirðu einhverja sérstaka fyrir- mynd úr þessum bransa, — ein- hvern úr fjölskyldunni kannski? „Nei, það hefur enginn úr minni fjölskyldu lagt fyrir sig töfrabrögð eða dáleiðslu. Pabbi var að vísu starfandi píanóleikari og tengdist þannig skemmtiiðnaðinum og það hefur ef til vill ráðið einhverju um það að ég vildi verða skemmti- kraftur. En að öðru leyti fór ég þarna inn á braut sem var óþekkt í minni fjölskyldu." Alkóhól er óvinur þinn „Ég var um þrítugt þegar ég byrjaði á dáleiðslunni. Ég hef allt- af haft mikinn áhuga á dulrænum fyrirbrigðum og ekki síst þeim sem tengjast mannshuganum og hinni ótrúlegu fjölbreytni f mannlegri hugsun. Dáleiðsla kem- ur inn á það svið. Góður vínur minn frá Indlandi kom mér á bragðið. Hann var læknir og kenndi mér undirstöðuatriðin." Var erfitt að læra dáleiðslu? „Já, ég neita því ekki, sérstak- lega í byrjun á meðan ég var að ná valdi yfir sjálfum mér. Það er grundvallaratriði að menn hafi stjórn á eigin hugsunum áður en þeir fara að stjórna hugsun ann- arra. En ég var heppinn því þessi indverski vinur minn var mjög góður kennari. Eitt af því sem hann sagði við mig var þetta: Haltu þig frá alkóhóli. Alkóhól er óvinur þinn og ef þú byrjar að drekka missir þú vald yfir sjálfum þér og ef þú getur ekki stjórnað sjáifum þér getur þú ekki stjórnað öðrum. Og þú getur heldur ekki einbeitt þér eins og nauðsynlegt er við dáleiðsluna. — Ég hef fylgt þessum ráðum vinar míns. Ég get að vísu tekið glas af léttu víni en sterka drykki bragða ég aldrei. í fyrstu fór ég mér hægt í dá- leiðslunni og stundaði hana bara sem áhugamaður þar til ég taldi mig hafa náð góðum tökum á þessu og vissi nákvæmlega hvað ég var að gera. Síðan hef ég verið í þessum bransa sem atvinnumað- ur.“ Og þú hefur ferðast víða í sam- bandi við starfið? „Já, ég hef flækst um allan heim. Þó hef ég aldrei komið til Rússlands eða Kína. Það er ýms- um erfiðleikum háð að fara sem skemmtikraftur til þessara landa auk þess sem almenningur þar skilur ekki ensku og það er alltaf erfitt að koma fram þar sem eng- inn skilur mann, jafnvel þótt túlk- ur sé við hendina. En það er fyrst og fremst Evrópa og Ameríka sem hefur verið starfsvettvangur rninn." Er einhver munur á því hversu fólk er móttækilegt fyrir dáleiðslu eftir þjóðerni? „Fólk er mjög misjafnlega mót- tækilegt fyrir dáleiðslu, en það fer þó ekki eftir þjóðerni. Að vísu er hægt að finna mun á fólki eftir því hverrar þjóðar það er og það ræðst þá af siðum, venjum og jafnvel uppeldi í hverju landi. Það er til dæmis mjög auðvelt að dá- leiða Ameríkana. Þeir hafa mjög gaman af að koma upp á svið og taka þátt í leiknum og þeir líta á þetta sem leik til að hafa gaman af. Að þessu leyti eru þeir ef til vill svolítið barnalegir. En þeir koma yfirleitt upp á svið með jákvæðu hugarfari sem er afar mikilvægt í þessu. íslendingar eru líka tiltölulega auðveldir viðfangs og yfirleitt jákvæðir. Þeir vilja fá góða skemmtun út úr þessu og eru ófeimnir við að koma upp á svið. En eins og ég sagði er fólk mis- jafnlega móttækilegt. Flestir sem koma upp á svið vilja láta dáleiða sig og það er mjög mikilvægt. Sumir eru hræddir við að reyna og til er fólk sem kemur beinlínis með því hugarfari að vinna á móti mér. Þeir hugsa kannski með sér að réttast sé að fletta ofan af þess- ari vitleysu eða hafa vantrú á þessu einhverra hluta vegna. Slíkt fólk er ekki hægt að dáleiða. Ef einhver segir við sjálfan sig: Ég vil ekki láta dáleiða mig, — þá getur enginn dáleitt hann.“ Dáleiðsla getur ekki skaðað neinn Við spyrjum nú Frisenette hvort hann muni eftir einhverju sérstöku atviki frá ferli sínum og hvort hann hafi einhvern tíma lent í því að missa tökin á við- fangsefninu. „Mér hafa aldrei orðið á nein mistök í dáleiðslunni enda er það ekki hægt. Annað hvort dáleiðir þú manninn eða ekki og það geta ekki orðið nein mistök. Hins vegar gerðist ýmislegt þegar ég var í töfrabrögðunum, en það er nú orð- ið svo langt síðan. En auðvitað hefur margt spaugilegt komið fyrir á dáleiðslusýningunum og það er í rauninni rauði þráðurinn í gegnum allar sýningarnar. Þetta er jú fyrst og fremst skemmtun sem fólk á að hafa gaman af.“ Er eitthvert bragð (trick) sem þú heldur meira upp á en önnur, eitt- hvað sem kemur best út á sýning- um?_ „Ég vil ekki tala um „trick“ í þessu sambandi. Það var í töfra- brögðunum. En í dáleiðslunni er ekki um nein brögð að ræða. Hún er miklu merkilegra fyrirbrigði. Fólk er svo misjafnt frá einni sýningu til annarrar að maður veit aldrei fyrir- fram hvernig þetta verður eða hvaða atriði kemur best út. Ég hef stund- um látið fólk drekka glas af vatni og sagt því að uppáhaldsvínið þeirra sé í glasinu. Vín fer misjafnlega í fólk og sumir verða drukknari en aðrir. Sumir verða ofurölvi og heimta meira vín en aðrir fara að dansa og syngja. Þannig er þetta misjafnt eins og mennirnir eru margir.“ Hvað er það raunverulega sem gerist við dáleiðslu? „Ég hef oft verið spurður þess- arar spurningar en hef aldrei get- að svarað henni. Enginn getur út- skýrt hvað það raunverulega er sem gerist í hugum fólks við dá- leiðslu. Fólk sem hefur einu sinni verið dáleitt vill gjarna koma aft- ur til að reyna að komast til botns í hvað raunverulega gerðist. Menn verða oft hissa þegar þeim er sagt eftir á hvað þeir gerðu undir dá- leiðsluáhrifum og þeir spyrja sjálfa sig: Hvað gerðist? Ég veit ég gerði þetta, en hvers vegna gerði ég það? — Og svo koma þeir aftur til að fá svar við þessu en eru samt engu nær. Ég vil að það komi skýrt fram, að það er engin ástæða til að vera hræddur við að láta dáleiða sig. Þetta getur ekki skaðað neinn og enginn verður veikur af því að láta dáleiða sig.“ Við segjum nú Frisenette frá því hvernig Jody breyttist í Júlíus gamla í gamanmyndaþættinum „Löðri“ en dávaldurinn hlær bara og hristir höfuðið: „Slíkt er óhugsandi. Segjum sem svo að ég myndi dáleiða þig og segja þér að þú værir hundur og þín viðbrögð yrðu eftir því, — þú færir að gelta og hegða þér eins og hundur. Síðan dytti ég niður dauð- ur og spurningin er þá hvort þú hagir þér eins og hundur það sem eftir er ævinnar. Svarið er nei. Eftir nokkrar mínútur verður þú orðinn þú sjálfur aftur. Um leið og hugur minn hættir að vinna hef ég ekki vald yfir hinum dáleidda lengur. Það er engin hætta á að menn „festist" í dáleiðslunni og hvernig sem á það er litið er engin ástæða til að óttast það að vera dáleiddur því að það getur ekkert farið úrskeiðis. Þetta gildir að sjálfsögðu aðeins þegar fagmenn eiga í hlut. Fúskararnir eru stór- hættulegir. Við spyrjum nú Frisenette að því hvort dávaldur geti samt sem áður ekki breytt hugsunarhætti manna og jafnvel hegðan eftir að viðkomandi hefur verið vakinn úr dásvefninum: „Það er hægt að vissu marki ef viðkomandi vill það sjálfur. Ég get hjálpað fólki til að líða betur og ef við tökum minnimáttarkennd sem dæmi, get ég losað fólk við hana. Hið sama má segja um slæma siði svo sem reykingar og drykkju. Ég get hjálpað þér til að hætta að reykja ef þú vilt það sjálfur. Reyndar hef ég nú þegar hjálpað mörgum til að hætta að reykja og þar á meðal nokkrum hér á landi. En í sumum tilfellum þarf fólk að koma nokkrum sinnum ef árangur á að nást. Það var til dæmis einn náungi úti í Kaupmannahöfn sem kom sex sinnum áður en hann hætti alveg. Hann reykti þrjá pakka á dag og í hvert sinn, sem hann kom, hafði hann minnkað við sig reykingarnar þar til hann hætti alveg. Eftir að ég flutti til Danmerkur hafa læknar stundum sent til mín sjúklinga sem hafa orðið að hætta reykingum en ekki getað það af sjálfsdáðum. Mér hefur tekist að hjálpa mörgum þeirra en þó ekki öllum. Það lætur nærri að árangurinn sé um 80%.“ Á sýningum notast þú eingöngu við karlmenn. Hvers vegna kallarðu aldrei konur upp á svið? Er erfiðara að dáleiða þær? „Nei, það er alveg sama hvort um er að ræða konur eða karla. En ástæðan fyrir því að ég notast ein- göngu við karlmenn á sýningum er fyrst og fremst sú að ég vii ekki láta konur gera sig að fíflum fyrir framan fullt af fólki. Það er annað með strákana, þeim er í flestum tilfellum alveg sama. En það er hætt við að konan verði að athlægi í bænum. Auk þess eru þessi atriði fremur sniðin fyrir karlmenn en kvenfólk.“ Einhverra hluta vegna barst talið nú að stjórnmálum og trú- Ekki er annað að sjá en gestir skemmti sér vel á dáleiðslusýningum Frisenette. 0

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.