Morgunblaðið - 06.03.1983, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 06.03.1983, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MARZ 1983 47 Við bjóöum þér þrjár mismunandi samstæður úr þessari línu, á hreint ótrúlegu verði: Frá kr. 24.800.- eða útb. kr. 6000 og afg. á 6 mán. HUOMBÆR mmw '— ÚTSÖLUSTAÐIR: Portið. Akranesi — KF Borgf Borgarnesi — Verls Inga, Hellissandi — Patróna, Patreksfiröi — Sería. Isafirði — Sig. Pálmason. Hvammstanga — Alfhóll. Siglufiröi — Cesar. Akureyri Radíóver. Húsavík — Paloma. Vopnafiröi — Ennco. Neskaupsstað — Stálbúöin. Seyöisfiröi — Skógar. Egilsstööum — Djúpiö. Djúpavogi - Hornbær. HornafirÖi — KF Rang Hvolsvelli — MM. Selfossi — Eyjabær. Vestmannaeyjum — Rafeindavirkinn, Grindavík — Fataval, Keflavík. HLJOM*HEIMILIS*SKRIFSTOFUTÆKI HVERFISGOTU 103 SIMI 25999-17244 alveg, þannig að þeir myndu ekk- ert eftir á og væri það einkum í þeim atriðum þar sem viðkomandi væru látnir gera eitthvað sem þeir myndu ekki gera undir venju- legum kringumstæðum. Það var hins vegar óþarfi í mínu tilfelli. Frisenette sneri sér síðan að reykingameðferðinni, en hún fólst í því að hann talaði til mín og benti mér á eitt og annað varðandi reykingar. Hann sagði m.a. að mér myndi þykja vont að reykja fram- vegis og jafnvel fá velgju og finn- ast ég vera eins og sjóveikur ef ég fengi mér reyk. Ég skal játa að ég hafði ekki mikla trú á að þessar fortölur myndu duga mér. Og jafnvel í miðju kafi hætti ég að einbeita mér að því sem dávaldur- inn var að segja en fór að hugsa með mér að þetta væri í rauninni það sama og ég hefði sagt við sjálfan mig í mörg ár. Það væri því óþarfi að láta einhvern útlend- ing segja sér bað sem maður vissi fyrir. Ég freistaðist til að fá mér sígarettu þegar ég kom út í bíl, en svo einkennilega vildi til að mér fannst hún vond og mér leið hálf illa á eftir. Síðan og þar til þessar línur eru skrifaðar hefur mig ekki langað í sígarett’u, en tíminn er að vísu ekki langur. En eins og Frisenette sagði er óvíst að þessi meðferð gagnist mér til lengdar. Ég væri ef til vill einn þeirra sem þyrftu að koma oftar en einu sinni og lítið mætti bregða út af til að þessi meðferð kæmi fyrir lítið. Maður verður því bara að sjá til. Skemmtiiðnaðurinn kvaddur Áður en ég kvaddi Frisenette spurði ég hann að því hvers vegna hann hefði ákveðið að koma aftur til íslands, þar sem hann hafði lýst því yfir í haust að hann væri hættur að koma fram: „Já, það er satt, ég hafði ákveðið að hætta og var hættur. En ég hafði fengið hvatningu héðan um að koma aftur og svo hitti ég Jör- und úti í Kaupmannahöfn og það varð að ráði að ég kæmi einu sinni enn og héldi nokkrar sýningar. Og það verður líka það allra síðasta sem ég geri sem skemmtikraftur. Ég mun hins vegar halda áfram að taka á móti fólki og hjálpa því ef ég get. Ég hef ákveðið að síðasta sýningin mín hér, sem verður jafnframt alfarið sú síðasta, verði haldin til styrktar fötluðum börn- um. Hver einasta króna sem kem- ur inn fyrir þá sýningu verður sett í umslag og það afhent viðkom- andi spítala hér á Islandi. Þannig vil ég kveðja skemmtiiðnaðinn og þennan bransa sem ég hef helgað alla mína starfskrafta. Ég löfaði líka konunni minni áður en ég fór, að þetta yrði allra síðasta sýn- ingarferðin." — Sv.G. arbrögðum og í framhaldi af því spyrjum við Frisenette hvort hann trúi á líf eftir þetta líf. „Það er erfitt að svara svona spurningu. Ég hef sett mér þá reglu að ræða aldrei stjórnmál eða trúarbrögð í viðtölum því ég vil forðast að særa tilfinningar ann- arra. Fólk hefur rétt til að hafa sínar skoðanir í friði án þess að aðrir séu að þröngva sínum skoð- unum upp á það. Ég kýs því að svara þessu ekki.“ sér undir dáleiðsluáhrifum eins og ég hafði gert. Hann sagði það ekki vera og færi það eftir eðli atrið- anna hversu djúpt viðkomandi væru svæfðir. í sumum tilfellum væri nauðsynlegt að svæfa menn Undir dáleiðslu- áhrifum Frisenette Okkur Morgunblaðsmönnum lék nú hugur á að kynnast nánar dá- leiðsluhæfileikum Frisenette af eigin raun. Ragnar Axelsson ljósmyndari hafði að vísu reynt hæfileika hans áður, er Frisenette læknaði hann af flughræðslu er hann var hér á ferð sl. haust. Und- irritaður hafði hins vegar áhuga á að reyna aðferð Frisenette til að hætta að reykja og var það mál auðsótt. Til að fá aðeins meira út úr þessari reynslu var ákveðið að Frisenette fengi mig til að gera eitthvað sérstakt áður en reyk- ingameðferðin hæfist, svona rétt til að sannreyna fyrirbrigðið dá- leiðslu. Frisenette lét mig fyrst horfa á ákveðinn blett í loftinu og sagði mér að einbeita mér að þeirri hugsun að ég væri að detta aftur fyrir mig. Þetta gerði hann til að prófa hversu móttækilegur ég væri. Ég stóðst prófið og Frisen- ette sagði mér nú að setjast. Hann talaði stöðugt til mín og varð tíð- rætt um einbeitingu hugans án þess þó að ég muni orðaskipti í smáatriðum. Síðan sagði hann mér að rétta út handlegginn og jafnframt endurtók hann stöðugt að handleggurinn myndi stífna meira og meira þar til svo væri komið að ég gæti ekki beygt hann. Ég var mjög vantrúaður á þetta þar sem ég var með fullri meðvit- und og í rauninni fannst mér að ég væri alls ekki dáleiddur. Ég hafði búist við að falla í „trans" og vita hvorki í þennan heim né annan en þess í stað var mér alveg ljóst hvað var að gerast. Ég taldi því að mér yrði ekki skotaskuld úr því að beygja handlegginn, en þá gerðist það ótrúlega að hann var blý- fastur. Ég skal játa að mér brá nokkuð við þetta enda kom þetta mér mjög á óvart og ég trúði því varla að ég gæti ekki beygt handlegginn. En hvernig sem ég reyndi virtist það gjörsamlega ómögulegt. Handleggurinn stóð stífur út í loftið og honum varð ekki haggað. Síðan losaði Frisenette mig úr þessum viðjum og ég gat beygt handlegginn eins og áður. Frisen- ette lét mig nú hvílast um stund því hann sá að mér var nokkuð brugðið. Síðan lét hann mig reyna að hella vatni á milli glasa sem reyndist mér ómögulegt og loks bað hann mig að opna munninn og sagði að hvernig sem ég reyndi að loka honum tækist það ekki. Þvert á móti myndi hann opnast meir og meir. Og það gekk eftir, — ég reyndi að klemma saman skoltana með öllum tiltækum ráðum en þess í stað opnaðist munnur minn meira og meira þar til Frisenette skarst í leikinn. Að láta dáleiða sig er vissulega einkennileg reynsla en þó hafði ég búist við öðru. Ég spurði því Fris- enette hvort menn vissu alltaf af flö ÞIONEER1B3 ÍÖVÉ9& Svart/gyllta X-G línan 3»aara Handleggurinn var stífur og honum varð ekki haggað.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.