Morgunblaðið - 09.03.1983, Blaðsíða 6
38
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MARZ 1983
VIÐSKIPTI
VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF
Umsjón: Sighvatur Blöndahl
Eimskip fær nýjan
Bakkafoss afhentan
EIMSKIPAFÉLAG íslands mun
um miðjan marzmánuð taka við
nýju skipi, sem gefið hefur verið
nafnið Bakkafoss, og mun skipið
koma til landsins seinni hluta
mánaðarins, samkvæmt upplýsing-
um í fréttabréfi Eimskips.
Bakkafoss, sem áður hér City
of Oxford, er 1.599 brúttórúm-
lesta gámaskip og er systurskip
City of Hartlepool, sem félagið
hefur á tímaleigu.
Bakkafoss er leigður á svo-
kallaðri þurrleigu til þriggja ára
með kaupheimild, og kemur
skipið í stað Mare Garant, sem
verið hefur í Ameríkusiglingum
að undanförnu. Skipstjóri verð-
ur Þór Elísson og yfirvélstjóri
Ásgeir Sigurjónsson.
Rúmt ár er liðið síðan eldri
Bakkafoss félagsins var seldur.
Það skip var smíðað árið 1970 og
gat flutt um 130 gámaeiningar.
Eimskip keypti skipið árið 1974,
en það var orðið of lítið og
óhagkvæmt í rekstri.
Staða þjóðarbúsins út á við 1970—1982
(meðalgengi hvers árs)
f m. kr. Long crlcnd lán Stutt vöru- kaupalán o. fl ógrciddur Gjaldcyris- útflutningur staða Nettóstaða við útlönd Verg þjóðar- framlciðsla Slaða i hlutfalli við VÞF (%) Long Ncttó- crlcnd lán staóa Grciðslu- byrði 1 % af útfl - tekjum
(1) (2) (3) (4) (5) (6) (7> (8) (9)
1970 -115.1 -172 7.6 32.6 -92.0 431.8 26.6 21.3 11.2
1971 -145.0 -19.0 7.0 47.8 -109.1 549.6 26.4 19.9 10,0
1972 -172.5 -20.1 10.6 55.3 -126.7 684.2 25.2 18.5 11.4
1973 -226.1 -34.2 21.8 67.0 -171.5 966.3 23.4 17.8 9.1
1974 -337.9 - 49.8 25.7 16.2 -345.9 1 410.8 23.9 24.5 11.2
1975 -672.8 -66.4 42.6 -30.4 -727.1 1 928.2 34.9 37.7 14.2
1976 -898.5 -97.5 59.9 -3.9 -940.0 2 659.6 33.8 35.3 13.8
1977 -1 205.5 -146.1 89.2 56.7 -I 205.8 3 814.8 31.6 31.6 13.7
1978 -1 944.3 -237.5 160.4 173.2 -1 848.2 5 776.0 33.7 32.0 13.1
1979 -2 909.5 -435.9 246.2 396.0 -2 703.2 8 460.0 34.4 32.0 12.8
1980 -4 617.1 -768.9 395.0 759.0 -4 232.0 13 288.0 34.7 31.8 14.1
1981 -7 527.0 -1 065.0 627.0 1 517.0 -6 448.0 20 534.0 36.7 31.4 16.4
19*42') -14 700.0 -2 100.0 960.0 1 260.0 -14 580.0 31 000.0 47.4 47.0 24.5
I) Bráðabirgdatölur
Hcimild: Scðlabanki íslands
Erlend lán:
Greiðslubyrðin úr 16,4%
1981 í 24,5% árið 1982
Hlutfall langra erlendra lána af þjóðar-
framleiðslu úr 36,7% í
f TÖFLU þessari er stada þjóðar-
búsins á árabilinu 1970—1982 rakin
í stórum dráttum og er miðað við
meðalgengi hvers árs. Töfluna er að
finna í skýrslu um ríkisfjármálin
1982.
Eins og glöggt má sjá á töflunni
hefur staðan farið verulega versn-
andi að ýmsu leyti. Nægir þar að
nefna, að greiðslubyrði af erlend-
um lánum í hlutfalli af útflutn-
ingstekjum tók mikið stökk upp á
við á síðasta ári, eða fór úr 16,4%
í 24,5%. Hlutfall þetta var yfir-
leitt á bilinu 10—14%, ef árið 1973
47,4% á síðasta ari
er undanskilið, en þá var hlutfallið
9,1%.
Þá má nefna, löng erlend lán,
sem hlutfall af vergri þjóðar-
framleiðslu. Það hlutfall tók mikið
stökk upp á við á síðasta ári, þegar
það komst í 47,4%, en hafði verið
36,7% árið 1981. Þetta hlutfall var
framan af á bilinu 23—27%, en
tók síðan smá kipp yfir 30%
markið og fór hægt og sígandi í
36,7% á árinu 1981, en tók síðan
umræddan kipp á síðasta ári. Er
þetta hlutfall af mörgum talið
vera komið að hættumörkum.
„Tölvur og hugbúnaður“ er
yfirskrift tölvusýningar
Félags tölvunarfræðinema
FÉLAG tölvunarfræðinema við Háskóla íslands hefur ákveðið að efna til
tölvusýningar í Tónabæ helgina 18.—20. marz nk., og hefur sýningin fengið
yfirskriftina „Tölvur og hugbúnaður", að sögn Ágústs Guðmundssonar og
Snorra Guðmundssonar, sem unnið hafa að undirbúningi sýningarinnar.
Þeir félagarnir sögðu að liðið
væri nær eitt og hálft ár frá síð-
ustu tölvusýningu, sem var sýn-
ingin „Skrifstofa framtíðarinnar".
„Það er því fyllilega kominn tími
til að efna til annarrar sýningar,
ekki síst með hliðsjón af þeirri öru
þróun, sem á sér stað í tölvuheim-
inum. Það er í raun bráðnauðsyn-
legt til að geta fylgzt með,“ sögðu
þeir félagar.
„Á sýningunni, sem 12—13
stærstu tölvufyrirtæki landsins
munu taka þátt í, verður lögð
áherzla á að sýna hugbúnað fyrir
íslenzkan markað, þ.e. kynnt
verða sérstaklega íslenzk forrit,
en þau erlend, sem eftir á að
breyta, verða látin víkja. Það ætti
því að skapast tækifæri til að
skoða það nýjasta og áhugaverð-
asta í þessum málum á sýning-
unni,“ sögðu þeir Ágúst og Snorri.
Sýningin verður opnuð föstu-
daginn 18. marz nk. klukkan 16.00
og verður opið þann daginn til
klukkan 22.00. Síðan verður sýn-
ingin opin laugardag og sunnudag
frá 13.00-22.00.
Boeing hefur ákveðið að
hætta framleiðslu á 727
Arftakinn, 757, er mun eyðslugrennri og tæknilega fullkomnari
BOEING-flugvélaverksmiðjurnar
bandarísku, sem eru þær stærstu í
heimi, hafa ákveðið að hætta fram-
lciðslu á Boeing-727 vélunum, sem
AÐALFUNDUR Eimskipafélags fs-
lands verður haldinn í Súlnasal Hót-
el Sögu mánudaginn 21. marz nk. og
hefst klukkan 14.00 samkvæmt upp-
lýsingum í frétUbréfi Eimskips.
Á dagskrá aðalfundarins eru venj-
uleg aðalfundarstörf samkvæmt lög-
um félagsins. Þá er tillaga um út-
gáfu jöfnunarhlutabréfa, aukningu
hlutafjár og innköllun eldri hluta-
bréfa. Þá verður liður um önnur
mál.
Tillögur frá hluthöfum, sem
bera á fram á aðalfundi, skulu
eru mest seldu flugvélar fyrr og síð-
ar. „Tæknin hefur einfaldlega yfir-
bugað þessa framleiðslu," sagði tals-
maður fyrirtækisins á dögunum,
vera komnar skriflega í hendur
stjórnarinnar eigi síðar en sjö
dögum fyrir aðalfund. Aðgöngu-
miðar að aðalfundinum verða af-
hentir hluthöfum og umboðs-
mönnum þeirra á skrifstofu fé-
lagsins frá 14. marz.
Á síðasta ári varð nokkur sam-
dráttur í flutningum Eimskips,
aðallega þó í útflutningi, vegna
minnkandi útflutnings á sjávaraf-
urðum. Heildarsamdráttur flutn-
inga var um 12%.
þegar þessi ákvörðun var kynnt
blaðamönnura.
Boeing tekur ekki við fleiri
pöntunum, og síðustu vélarnar
verða afhentar nýjum eigendum í
september 1984. Þá verður vænt-
anlega búið að framleiða um 1.832
vélar og hefur ekki verið framleitt
meira af neinni farþegaþotu nú-
tímans og hafa vélarnar reynzt
frábærlega vel.
Boeing-727 vélarnar voru fyrst
kynntar árið 1963 og mest var
pantað á einu ári, 1965, þegar fé-
lagið fékk 193 pantanir. Á síðasta
ári voru pantanir svo komnar
niður í 11, enda Boeing-fyrirtækið
þá búið að kynna arftaka Boeing
727, sem hefur hlotið nafnið
Boeing-757. Talsmaður Boeing
sagði, að Boeing 757 væri mun
eyðslugrennri en Boeing 727, auk
þess sem hún væri að sjálfsögðu
öll mun fullkomnari tæknilega og
þyrftu ekki nema tveir menn að
stjórna henni í stað þriggja áður.
Talsmaður Boeing sagði að
fyrirtækismenn væru sannfærðir
um að Boeing 757 og reyndar
Boeing-767 myndu seljast mun
meira en Boeing 727, þar sem þar
færu mun fullkomnari og hlut-
fallslega ódýrari vélar.
Aukin viðskipti
Japana og Kín-
verja á árinu
JAPÖNSK stjórnvöld lýstu því
nýverið yfir, að útflutningur Jap-
ana til Kína myndi aukast á
þessu ári, en ekki væri ljóst
hversu mikið. Sömuleiðis myndu
Japanir kaupa meira af Kínverj-
um á þessu ári en því síðasta.
Gjaldþrotum
fjölgaði um
30% í Kanada
í janúarmánuði
GJALDÞROTUM fjölgaði um lið-
lega 30% í janúarmánuði sl. í
Kanada samkvæmt upplýsingum
þarlendra yfirvalda. Alls var um
3.367 gjaldþrot vitað, borið saman
við 2.601 gjaldþrot í janúarmánuði
í fyrra.
Gjaldþrot einstaklinga voru
samtals 2.539, borið saman við
1.842 á árinu 1982, eða fjölgaði
um 38% og gjaldþrot fyrirtækja
voru 828, eða hafði fjölgað úr
759, eða um 9,1%.
Aðalfundiir Eimskips
verður 21. marz nk.
Um 12% samdráttur heildarflutninga