Morgunblaðið - 09.03.1983, Page 11

Morgunblaðið - 09.03.1983, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MARZ 1983 43 í grein Ingólfs Skúlasonar segir: „Alþingismenn töldu að ráðherrar, þing- menn og opinberir starfsmenn hefðu ámóta áhrif og ættu svipaðan þátt í ákvörðun. En opinberir starfsmenn töldu, að ráðherra hefði mest áhrif, en þingmenn og opinberir starfsmenn hefðu svipuð áhrif á ákvörðunina.“ greina. í þessu sambandi hefðu niðurstöður vandaðrar kostnaðar- nytjagreiningar verið athyglis- verðar. Annað dæmi um ákvörðun um fjárfestingu eru kaup Landhelg- isgæslunnar á TF-SIF. Ferill þeirra kaupa var mjög umdeildur og kaupin voru knúin fram af mik- illi snilld. Ýmsum bolabrögðum var beitt gagnvart fjárveitinga- valdinu, til að vélin yrði keypt, en þó var gerð kostnaðarnytjagrein- ing á því, hvaða vél hentaði best. Þetta er merkilegt samband óæskilegra og æskilegra vinnu- bragða. í samtali við forstöðumenn stofnana kom fram nokkur óánægja með störf alþingis við fjárveitingar. Einn þeirra nefndi sem dæmi að stofnun hans hefði nauðsynlega þurft að kaupa ákveðin tæki vegna starfsemi sinnar. Yfirmenn hans hefðu sam- þykkt kaupin, og beðið hefði verið um ákveðna upphæð í þessu skyni. Umrædd tæki kostuðu um 80.000 kr., en þegar fjárlög höfðu verið samþykkt, vr einungis veitt 60.000 kr. til tækjakaupanna. í þessu til- viki var þá ekki hægt að kaupa tækin samkvæmt fjárlögum, en hann brá á það ráð að kaupa tæk- in þrátt fyrir það og lét „senda" reikninginn. Það virðist vera talsverð til- hneiging hjá þingmönnum til að dreifa fjárveitingum á fjölda at- riða, sem þýðir oft á tíðum að framkvæmdir dragast á langinn og verða óhagkvæmari en annars. Áætlunum er breytt og fjármagni til fjárfestingar er dreift í því skyni að viðurkenna hugmyndir, gefa ákveðnum hugmyndum möguleika og til að tjá mikilvægi hugmynda, þ.e. að láta sem flesta fá eitthvað. verkið fékk góða dóma og þegar Williams tefldi fram „A street- car named desire" tveimur árum síðar, var hann orðinn heims- frægur. Það verk hefur hlotið ís- lenska þýðingu og heitir „Spor- vagninn girnd“. Fleiri urðu heimsfrægir á þessu verki, það varð einnig hinn ungi og óþekkti leikari sem fór með aðalhlut- verkið, Marlon Brando. Næstu tíu árin eða lengur leið varla það ár á Broadway að ekki væri sýnt nýtt geysivinsælt leik- rit eftir Williams, „Cat on a hot tin roof“, „The rose tatoo“ og fleiri mætti nefna og úr flestum voru gerðar kvikmyndir í Holly- wood með frægum leikurum. En eftir Sporvagninn fór strax að halla undan fæti, aldrei aftur náði Williams jafn góðri blöndu af ljóðrænum og melódramatísk- um þáttum sem jafnan skipuðu öndvegi í verkum hans. Verkin á eftir „Sporvagninum" voru mjög góð framan af, það er alltaf erf- itt að fylgja eftir meistaraverki, en svo komu verkin „Last Sum- mer“ og „Baby Doll“, og þau voru gagnrýnd harðlega fyrir klæmni. Williams gerði verkin fyrst og fremst til kvikmyndagerðar og umtalið varð einungis til að auka aðsóknina. En Williams var greinilega kominn inn á nýjar brautir. Hann var mjög frægur, skipaði háan sess í samkvæmislífinu og var iðulega í slúðurdálkunum. Leikkonur á borð við Vivian Leigh, Anna Magnani og Bette Davis vildu ólmar fá að spjara sig í kvenhlutverkum Williams sem þóttu sérstaklega mikil- fengleg. En þó Williams tæki þátt í dansinum af miklum krafti, virt- ist hann þola það illa. Þegar leikhúsin á Broadway fóru síðan smám saman að hafna verkum hans fór hann að ráða minna við sinnið. Það varð eins og verkin hans fram að því, rambaði á milli þunglyndis og gleði. Hann ritaði verkið „The milktrain doesn't stop here anymore" horfði upp á það koðna niður, endurskrifaði það án þess að breytti nokkru um viðtökurnar, fékk taugaáfall og hóf lyfja- neyslu. Hann reyndi að komast á' blað á ný með því að rita mjög opinskáar æfiminningar og tí- undaði í þeim kynvillutilhneig- ingar sínar. Ekkert gekk. Bestu verk Tennessee Willi- ams þóttu, og þykja, frábær. En hann var talandi dæmi um bylt- ingarmanninn sem skilinn er eftir af þeim sem hann hvatti til dáða á sínum tíma og dreif með sér í nýrri stefnu. Leiðtoginn sem ruddi brautina, en svo komu aðrir og sögðu: „Nú skal ég, nú get ést*1* (Byggt á NY Times, AP og fleiru.) Svo virðist sem nokkurt aðhald skorti í ákvörðunartöku, ef gæta á hagsmuna heildarinnar og stefna að hámörkun þeirra. Áðurnefnd- um lögum um opinberar fram- kvæmdir var að nokkru ætlað að gegna því hlutverki, m.a. með ákvæðum um skilamat. í skila- mati skal gerð grein fyrir því, hvernig framkvæmdir hafa tekist miðað við áætlun og hliðstæðar framkvæmdir. Talsverður mis- brestur mun vera á, að það sé gert, þó lög mæli fyrir um að það sé gert. Svo virðist sem stjórnmála- legan vilja skorti til að matið sé framkvæmt, en ekki er ljóst, hvort lögin eru sniðgengin á einhvern hátt, eða hvort um lögbrot er að ræða. Skilamat hlýtur að vera mikilvægur þáttur í traustri ákvörðunartöku stjórnmálamanna og lykill þess, að hægt sé að forð- ast endurtekningu ef mistök verða. Einnig er það grundvöllur þess, að hægt sé að kalla til ábyrgðar þá sem að óvandaðri ákvörðunartöku standa. Ábyrgð er einn sá þáttur sem hvað best tryggir vönduð vinnubrögð, og er í eðlilegu sambandi við alla ákvörð- unartöku. Annað atriði, ekki síður mikilvægt, er athugun á því, hvernig áætlanir hafi staðist og hvernig megi bæta úr í áætlana- gerðinni, sem liggur til grund- vallar ákvörðuninni. f fyrrgreindri athugun kemur fram mismunur á áliti þingmanna og opinberra starfsmanna á þýð- ingu kunningskapar í ákvarðana- töku. Það var áberandi, hversu þingmenn töldu að kunningskapur hefði mikil áhrif, og jafnframt, að opinberir starfsmenn töldu hann áhrifalítinn. Þingmenn töldu að menn leituðu jafnvel fremur til þingmanna sem þeir könnuðust við, en að flokkaskipan skipti máli, þó að algengast væri að þetta færi saman. Það er þó erfitt að greina áhrif kunningskapar frá áhrifum þrýstihópa, þar sem full- trúar þrýstihópa eru oft góðir kunningjar ákveðinna þingmanna, sem þeir hafa þá oftast samband við. Þingmenn töldu að almennt væri mjög auðvelt að komast í samband við þá, og gæti svo að segja hver sem væri náð tali af þeim, en aðilar reyndu yfirleitt að hafa samband við nokkra þing- menn, þegar reyna ætti að hafa áhrif á ákveðið mál, oft í tengslum við kunningskap. Bæði þingmenn og opinberir starfsmenn voru sammála um mikil áhrif frá afstöðu kjósenda og almenningsáliti. Þegar leitað var eftir svörum um, hvar afstaða kjósenda og almenningsálit kæmi helst fram, kom í ljós, að fjölmiðl- ar hefðu mikið að segja, en oft yrðu menn að meta slíkt sjálfir, en einnig höfðu menn nokkurt álit á þeim skoðanakönnunum sem gerð- ar hafa verið í seinni tíð. Sumir töldu að virkja mætti skoðana- kannanir frekar en gert hefur ver- ið í því skyni að meta frekar al- menningsálitið, þó fara yrði var- lega í þessu efni. Hins vegar komu í ljós efasemdir um, að þorri fólks hefði aðstöðu eða getu til að gera sér grein fyrir heildarmynd ákveðinna mála, og talið var að þröngsýni gæti gætt í einstökum málum. Ýmis stjórnmálaáróður er til þess fallinn að skapa tiltekin við- horf og jafnvel að villa fólki sýn og að móta almenningsálit sem hliðhollt er tilteknum málstað. Afstaða kjósenda er þó í öllum til- fellum mikilvæg með tilliti til stöðu stjórnmálamanna í kosning- um, og viðleitnin er því ýmist í þá átt að móta það eða að leita sam- ræmis við það. Ákvarðanataka er því gjarnan í samræmi við þetta álit og afstöðu, þótt ekki sé það einhlítt. Fleiri atriði mætti benda á sem áhrifaþætti á ákvarðanatöku í stjórnmálum, en í fyrrgreindri at- hugun komu ofangreind atriði sterkast fram. Hér er um að ræða geysilega spennandi viðfangsefni, og verður fróðlegt að fylgjast með frekari athugunum á því. RAWLPLUG Allar skrúfur, múrfestingar, draghnoð og skotnaglar fmm 'tn—iin* «. .-.- V---' pSST g SAMBANDIÐ BYGGINGAVÖRUR SUÐURLANDSBRAUT 32 - SIMI 82033

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.