Morgunblaðið - 09.03.1983, Side 13

Morgunblaðið - 09.03.1983, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MARZ 1983 45 undir skýrslu þessari. Vill nú ekki Morgunblaðið upplýsa landsmenn með því að birta myndir af alnöfn- unum báðum, Gunnari Thorodd- sen forsætisráðherra og Gunnari Thoroddsen formanni stjórn- arskrárnefndar? Börnin taka völdin Ein er sú grein sem margir láta líta svo út að sé sjálfsögð og verði að vera samþykkt fyrir þingrof í vor. Hún er um lækkun kosninga- aldurs úr 20 í 18 ár. Ég er sann- færður um, að yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem nú eru á aldrinum 18 og 19 ára telur sig ekki hafa mótað sér nógu ákveðn- ar skoðanir til þess að geta greitt atkvæði í þingkosningum. Nefndin hefur, þrátt fyrir langan starfs- feril, ekki látið gera neina könnun á þessu fremur en öðru. Hvers vegna þarf að þröngva upp á fólk réttindum sem það ekki vill? Nefndarmenn virðast því ætla að feta í óheillaspor „frændþjóða" á þessu sviði sem öðru. Ef eitthvað gildir í útlöndum, þá er sjálfsagt að apa það eftir er viðkvæðið nú sem fyrr. Og hafa menn hugleitt að í kjölfar lækkaðs kosningaald- urs kemur lækkaður áfengisaldur? Ekki að það skipti sköpum fyrir fólk á aldrinum 18—19 ára, heldur fara óðum að hægjast heimatökin hjá grunnskólaunglingum að verða sér úti um dreitil. Það hygg ég að yrðu varanlegust áhrif þess- arar vanhugsuðu breytingar á kosningaaldri, en kannski ástand- ið sé orðið svo slæmt að þetta breyti engu. Og ekki verður séð að hér vaki neitt fyrir stjórnarskrár- nefnd annað en skinhelgi ein, því kjörgengi til forseta er látið hald- ast óbreytt við 35 ár. Þannig er til dæmis enginn úr þingflokki Bandalags jafnaðarmanna kjör- gengur til forseta. Hvað er það sem gerir menn hæfa til þess að gegna embætti ráðherra, en ekki embætti forseta? Vænti ég þess að þingmenn láti ekki óþolinmóða framagosa úr flokkum sinum villa sér sýn í þessu máli. Enginn má breyta neinu nema við Hér á undan hefur verð minnzt á það, sem margir segja helztu ástæðu fyrir tillögum um breyt- ingar á stjórnarskrá nú, að menn vilji reisa sér ævarandi minnis- varða. Raunar ætti þeim sem lesið hafa tillögurnar að vera ljóst að heldur verður sá minnisvarði lítill og ómerkilegur. Ekki er þó þar með sagt, að hann sé ekki vel við almennings, að Alþingi sé svo best skipað að það sé nokkurs konar samnefnari mannfélagsins bæði hvað menntun og reynslu snertir í hinum ýmsu greinum þjóðfélags- ins. Þeir sem þessa skoðun hafa eiga ábyggilega eftir að verða fyrir vonbrigðum á næstu árum, ef svo heldur sem horfir með skip- an Alþingis. í þessu sambandi er manni ofarlega í huga, hversu hörmulega konum gengur á hinum pólitíska vettvangi hér á landi. Á því fyrirbæri kann ég enga skýr- ingu og hef enga patentlausn, þó finnst mér að sökin sé mikið þeirra og þær verði fyrst og fremst sjálfar að leysa vandamál- ið. Hin svokölluðu kvennaframboð held ég að séu hreint víxlspor, sem að sjálfsögðu leysir engan vanda. Mér finnst eðlilegt að íslenskar konur kynni sér betur starfsað- ferðir kynsystra sinna erlendis, sem náð hafa margföldum árangri á við þær á hinum pólitíska vett- vangi. En nóg um það. Það má ljóst vera að þótt þing- mannatala dreifbýliskjördæm- anna sé fallandi, þá á fólkið í þeim kjördæmum það ennþá nokkuð undir sjálfu sér, hver áhrif þess verða á Alþingi. Þrátt fyrir það finnst mér tími til kominn að fólk út um land leiti eftir meira valdi f sérmálum sínum. Hvort okkur verður betur stjórnað eftir jöfnun kosningaréttarins veit ég ekki, en held að það hljóti sem áður að fara eftir því, hverjir veljast til þingsetu. I.axainýri, 23. febrúar 1983. Vigfús B. Jónsson. hæfi. Attugasta og þriðja grein tillagna nefndarinnar skýtur stoð- um undur minnisvarðakenning- una. Þar er lagt til að um sér- hverja breytingu á stjórnar- skránni skuli fara fram þjóðar- atkvæðagreiðsla. Þetta á þó ekki við um tillögur núverandi nefndar, heldur einungis um þær tillögur sem seinna kunna að vera sam- þykktar. Hér er með öðrum orðum verið að gera breytingar á stjórn- arskránni í framtíðinni mun erfið- ari en nú. Ekki fæ ég séð með hvaða rétti Alþingi getur sam- þykkt slíka grein. Lítill hópur, þ.e. einfaldur meirihluti Alþingis, gæti samkvæmt þessu sett stjórn- arskrá án beins samþykkis kjós- enda, en ekki má breyta henni nema með samþykki meirihluta kjósenda. Ef slíkt fær staðizt, mætti þá ekki alveg eins ákveða að stjórnarskránni verði ekki breytt nema með samþykki allra kjós- enda? Mér virðist að þar sem lýð- ræði ríkir, sé ekki hægt að setja lög sem ekki má breyta nema með auknum meirihluta (eða í þessu tilfelli meirihluta kjósenda) nema með samþykki jafnstórs meiri- hluta (hér meirihluta kjósenda). Vilji menn endilega setja slíka grein í stjórnarskrá, verður sam- kvæmt leikregium lýðræðisins að leggja tillögurnar undir þjóðar- atkvæði. En hér virðist hugsunin vera eins og víða annars staðar ít tillögum nefndarformanns: Besta stjórnarformið er að ég ráði öllu, en þegar því sleppir er lýðræðið kannski skást. Ármann snýr aftur Ein síðasta grein tillagna 'nefndarinnar fjallar um kosningu svonefnds ármanns Alþingis. Hlutverk ármannsins á að vera að gæta réttar óbreyttra borgara gagnvart kerfinu. Heldur virðist það skjóta skökku við að vilja ein- falda mönnum viðskipti við stjórnkerfið með því að stækka það. En rökfimin virðist sízt hafa háð nefndarmönnum hér fremur en víðar. Burtséð frá því að engin þörf virðist á slíkum fulltrúa í stjórnarskrá, heldur ætti fremur að kosta kapps að einfalda stjórn- arfarið og setja varnagla til þess að gæta réttar almennings, hljóm- ar stöðuheiti fulltrúans heldur til- gerðarlega. Að vísu ber heitið ár- maður Alþingis brageyra nefnd- armanna fagurt vitni, en spurn- ingar vakna um hvaðan nafngiftin sé komin. Því er fljótsvarað. Hér mun vera vísað til Armanns á Al- þingi, tímarits Baldvins Einars- sonar. Ármann þessi var ævaforn bergþurs er ræddi við menn um landsins gagn og nauðsynjar. Skyldi þarna leynast minnisvarð- inn óbrotgjarni, listilega falinn? Sú spurning vaknar þó hvaða skyldur nútímamenn eigi við Ármann þennan. Eitt af yfirlýst- um markmiðum nefndarinnar er að færa málfar í nútímalegri bún- ing. Væri þá ekki eðlilegra að nefna þennan tengilið þjóðarinnar við kerfið Albert Alþingis? Benedikt Jóhannesson FUOT KRAFTUR m I Nýi flotteinninn frá Hampiðjunni heítir KRAFTFLOT. Fléttuð er kápa úr kraftþræðí utan um flotköggla, bæði kúlur og sívalninga. Um tvær gerðir Kraftflots er því að velja. Teinninn er lipur í notkun, hann hringast vel vegna Iögunar flotanna og þolir allt að 250 faðma dýpi. Uppdríf hans er 5-6 kg og slitstyrkur 3 tonn*. *Við hvetjum menn þó eindregið til að hlífa teininum við svo miklum átökum, því annars geta flotin aflagast og misst við það nokkuð af flothæfi sínu. HAMPIÐJAN

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.