Morgunblaðið - 09.03.1983, Side 15

Morgunblaðið - 09.03.1983, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MARZ 1983 47 Von um sigur er bundin við að smitberum fækki — eftir Halldór Kristjánsson Umræða sú um áfengismál sem SÁÁ hefur komið af stað í Morg- unblaðinu er harla gagnleg. Þessi mál ber að ræða af alvöru. Eg mun ekki ræða hér hvort alkóhólismi sé sjúkdómur eða ekki. Karp um það getur orðið fánýtt. Hitt vitum við að það er rétt sem Þórarinn Tyrf- ingsson læknir sagði í Mbl. um daginn: „Sá sem aldrei neytir áfengis verður ekki alkóhólisti." Þess vegna er það bull að hver sem er geti orðið alkóhólisti. Það verður enginn nema hann leggi sig í þá áhættu að venja sig á neyslu áfengis. Og þess þarf enginn. Menn eru mjög á villigötum ef þeir halda að ekkert illt hljótist af áfengisneyslu annarra en alkóhól- ista. Það mun sönnu nær að drjúg- um meira sé það ólán sem hlýst af drykkju annarra. Dæmi þess ætti ekki að þurfa að nefna sérstak- lega. Menn finna til með ofdrykkju- manninum og margir þeirra eru svo brjóstumkennanlegir að mannleg eymd verður naumast átakanlegri annars staðar. En er sá ekki aumkunarverður sem á gáleysisstund ölvunar veldur óbætanlegu slysi? Þarf nokkra upptalningu hér? Hvað sem um alkóhólisma er að segja, skulu menn varast að ímynda sér að það sé ekki nema hluti mannfólksins sem hafi ástæðu til að varast áfengi, — ein- hver minnihluti, sem beri í sér meðfæddan sjúkdóm. Sérstök ástæða er til að minna á grein Skúla borgarlæknis nýlega þar sem hann ræðir um linnulaus- ar umsóknir um dvöl á meðferð- Halldór Kristjánsson „Menn eru mjög á villigöt- um ef þeir halda að ekkert illt hljótist af áfengisneyslu annarra en alkóhólista. Það mun sönnu nær að drjúgum meira sé það ólán sem hlýst af drykkju annarra.“ arstofnunum drykkjumanna. Nið- urstaða hans er sú að sennilega bætist árlega við þúsund nýir alkóhólistar hér á landi. Það má eflaust deila um tölur, en hitt er víst, að meðan óbreyttir drykkjusiðir haldast, bætast hundruð manna árlega við þann hóp sem hjálpar þarf vegna áfeng- isástríðu. Aldrei hefur biðlistinn verið lengri en nú eftir 6 ára starf SÁÁ. Hér er ekki nema eitt ráð til varnar. Það er að breyta drykkju- siðunum, drekka minna. Hætta að drekka. Þetta er augljós staðreynd sem ætti að vera öllum ljós og hafin yfir allan ágreining. En tölum ögn meira um sjúk- dóma. Við erum stolt og glöð yfir þeim sigrum sem unnir hafa verið yfir berklaveikinni. Það er til fyrirmyndar. Það voru byggð berklahæli sunnan lands og norðan. Þar fengu menn hjúkrun og aðhlynn- ingu og margir bata. En þetta þótti ekki nóg. Það var heidur ekki nóg. Hælin stóðu alltaf full og voru orðin fjögur eða fimm. Þá var farið að kanna hverjir væru smitaðir og hverjir væru smitberar. Sóknin beindist eink- um að þvf að fólk smitaðist ekki. Og þá var sigur unninn. Hvað myndu læknar álíta um árangur í baráttunni við berkla- veikina ef fólk með smitandi berkla hefði unnið í öllum skólum og á öllum barnaheimilum? Við getum líka nefnt taugaveiki. Hún gaus upp hér og þar og var hættuleg. Lengi vel var mönnum þetta ráðgáta og ímynduðu sér að sýkillinn lifði áratugum saman í jörðu og því var reynt að setja uppkomu veikinnar í samband við jarðrask. Svo varð mönnum ljóst að til voru sýkilberar sem aldrei kenndu sér neins af taugaveiki en sýktu aðra. Og hvað var þá gert? Smitberarnir voru gripnir hvar sem þeir fundust og einangraðir. Dæmi voru þess að þeir væru ár- um saman geymdir á sjúkrahúsi þar sem þeir biðu dauða síns. Ekki veit ég hvort einhverjum þeirra datt í hug að mögla og segj- ast vera betur gerðir en aumingj- arnir sem ekki þyldu að fá tauga- veikisýkilinn í sig. Þarna sjáum við hvernig unnið er þegar mönnum er alvara. Breyttir þjóðfélagshættir valda því að nú er hættulegra en nokkru sinni fyrr að venjast áfengi. Það er vegna þess að tilefni og tæki- færi eru miklu fleiri en áður var. Fjöldi frídaga, meiri fjárráð, auk- ið þéttbýli og greiðari samgöngur valda því. Maður fær 30 gesti, tek- ur þeim vel og veitir þeim áfengi. En gjöf skal gjaldast og þegar hann heimsækir þessa vini sína finnst þeim sómi sinn liggja við að veita eins vel og hann. Endur- gjaldið er því 30 samkvæmi með áfengi. Hér við bætist að unglingar fara fyrr en áður að temja sér hætti fullorðinna. Því heyrist oft frá þeim að þeir krefjist skemmti- staða þar sem þeir séu frjálsir að því að neyta áfengis að vild sinni. Þeir vilja veitingastaði eins og pabbi og mamma. Baráttan við áfengissýkina heldur áfram. Hælin fyllast, eins og berklahælin forðum, meðan þúsund nýir þurfa hælisvistar á hverju ári. Von um sigur er bund- in við það að smitberunum fækki. Hvenær verður það? Hér skal engu spáð um framtíð- ina. Hins vegar skal reynt að halda í þá von að þeim fjölgi sem vinna að þessum málum af fullum heilindum. Það er tvöfeldni að um samtímis því að reynt er að sýkja sem flesta. Skiljanlegt kann að vera að menn reyni að friða samvisku sína með því að styðja hæli fyrir þá sem þeir smita af alkóhólismanum, en slík vinnu- brögð eru tvöfeldni og óheilindi ef miðað er við þjónustu við heilbrigt líf. Er það ekki heilbrigt líf sem við viljum sækjast eftir og vinna fyrir? Stjórnmálafélög Önundarfjarðar: Mótmæla hugmyndum um jafnt vægi atkvæða Flateyri, 6. mars. SíTJORNIR félaga allra stjórnmála- flokka í Önundarfirði geróu eftirfar- andi ályktun 6. marz sl.: Hafna framlögðu frumvarpi til stjórnskipunarlaga, sem nú liggur fyrir Alþingi, í núverandi formi. — Mótmæla hugmyndum um jafnt vægi atkvæða, þar sem enn- fremur ber að líta á jafnt vægi byggða. — Benda á að misvægi atkvæða réttlætist m.a. af því að stefnumörk- un og undirbúningur lagasetningar fer iðulega fram utan þingsala, þar sem áhrifavald íbúanna í nágrenni Alþingis er sterkur þáttur. — Telja forsendur fyrir aukinni valddreifingu óundirbúna og ómót- aða, og aðeins setta fram til að reyna að sætta dreifbýlisfólk við réttinda- skerðingu. — Fallast á breytta reglu við út- hlutun þingsæta I kjördæmum, en telja höfuðatriði að hvert kjördæmi ráði að fullu kjöri sinna fulltrúa. — Vara við því að frekari sam- þjöppun valds á suðvesturhorninu leiði til óeiningar, sem valda mun óbætanlegum skaða. — Skora á Vestfirðinga og dreif- býlisfólk víða um land að snúast til varnar gegn frekari réttindaskerð- ingu með fundarsamþykktum og fleiri aðgerðum. — Skora á alla þingmenn að fella frumvarpið. Stöndum vörð um þjóð- ríkið ísland.“ Undir þetta rita stjórn Alþýðu- bandalagsins Önundarfirði, stjórn A lþýðuflokksfélags önuodarfj arðar, stjórn Framsóknarfélags Önund- arfjarðar og stjórn Sjálfstæðisfélags Önundarfj arðar. EFG íslendingar sigur- sælir í Finnlandi Skák Karl Þorsteins í borginni Turku-Ábo í Finn- landi var haldið dagana 18.—21. febrúar sl. norrænt skólaskák- meistaramót. Keppendum var skipt niður í flokka eftir aldri og mátti hver þjóð senda tvo þátttakendur í hvern flokk. íslendingar fylltu sinn kvóta og sendu 10 þátttak- endur auk Olafs H. ólafssonar sem var fararstjóri. 10 þátttak- endur tefldu i hverjum flokki og voru tefldar 6 umferðir eftir Monrad-kerfi. Tímatakmörk voru 1% klst. á 40 leiki og hálf- tími til að klára. Er skemmst frá því að segja að íslendingarnir urðu mjög sigursælir á mótinu og hlutu sigurvegara í tveim flokkum auk þess sem þrir þeirra hrepptu annað sætið i flokkum sínum. Samanlagt hlutu íslensku keppendurnir einnig langflesta vinninga allra þjóðanna svo yfir nógu er að gleðjast. En víkjum þá að úrslit- unum: A-flokkur (17—20 ára) Karl l>orsteiii8 5 v. af 6 mögulegum Klvar (lUAmundsNon 412 v. Jan Nielsen Danmörk 3'/i v. B-flokkur (15—16 ára) llenrik Danielsen Danmörk 5 v. Ilalldór G. Einarsson 4''i v. Stefan Sanden Svíþjód 3'/2 v. (19,5 stig) Arnór Björnsson 3Vi v. (17,5) (-flokkur (13—14 ára) Kikhard Winsnes Svíþjóð 4'/2 v. (17,5) Lars Bo Hanssen Svíþjóð 4' j v. (16,5) Davíó Ólafsson 3Vi v. hröstur hórhallsson 3 v. D-flokkur (11—12 ára) Jan Snrensen Danmörk 4' 2 v. (18,0) Joni Andersson Svíþjóó 4'/2 v. (17,5) Magnús Örnólfsson 2'/2 v. Arnaldur Loftsson 2 v. K flokkur (10 ára og yngri) llannes H. Stefánsson 6 v. I'röstur Árnason 5 v. Gabriel Bakk Svíþjóó 3'/i v. í A-riðli var keppnin um efsta sætið hálfgert einvígi á milli okkar Elvars. Ég byrjaði með tapi í fyrstu umferð gegn Ohlsson frá Svíþjóð og var ætíð spölkorn á eftir Elvari uns við mættumst í næstsíðustu umferð. Þá lagði ég hann að velli og tryggði mér efsta sætið með vinningi yfir Alm (Svíþjóð) í síð- ustu umferð. Elvar mátti bíta i það súra epli að hljóta annað sætið eftir að hafa haldið forust- unni framan af. Daninn Danielsen vann B-riðil all ósannfærandi. T.d. felldi hann Arnór á tíma í dauðri jafn- teflisstöðu, auk þess sem heppn- isstimpill var yfir sigri hans gegn Halldóri. Halldór hélt uppi sóma íslands í þessum riðli með að hreppa annað sætið. Hann tapaði aðeins fyrir baunanum og gerði jafntefli við Arnór en vann aðra. í skákum hans fór yfirleitt allt í háaloft og var undarlegt að ef hann fékk verri stöðu út úr byrjuninni vann hann ætíð en náði annars aðeins jafntefli eða tapaði. Arnór lenti í 3.-5. sæti og er það viðunandi árangur ef tekið er tillit til óheppni hans í skákinni við Danielsen. Sigurvegari í C-riðli varð Winsnes frá Svíþjóð. Davíð Ólafsson varð þriðji og fékk 3'/2 vinning. Þresti Þórhallssyni tókst ekki að endurtaka afrek sitt frá í fyrra er hann sigraði í D-flokki og hlaut nú 3 vinninga. íslensku keppendunum í D-riðli tókst aldrei að blanda sér í toppbaráttuna enda við ofurefli að etja. Magnús hreppti að lok- um 2% vinning en Arnaldur hlaut 2 vinninga. í E-riðli sýndi Hannes fá- dæma öryggi og vann allar skák- ir sínar sex að tölu, sá eini í öllu mótinu. Yfirspilaði hann oft andstæðinga sína eftir öllum kúnstarinnar reglum og þarfn- ast nú aðeins tækifæra til að tefla við sterkari menn. Þröstur lenti í öðru sæti vinningi á eftir Hannesi. Hann er greinilega einnig mikið efni, en full fljótfær t.d. í skák sinni við Hannes, er Karl Þorsteins hann fórnaði manni á rangan hátt og tapaði. Að lokum koma lítil sýnishorn af taflmennsku sigurvegaranna. Hvítt: Karl Þorsteins Svart: J. Hvamme Noregi Sikileyjarvörn I. e4 — c5, 2. Rf3 — e6, 3. d4 — cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3 — Bb4?! (Öruggari leikur er 5. — d6.) 6. e5 — Rd5, 7. Bd2 — Rxc3, 8. bxc3 — Be7, 9. Dg4 ( í stað peðaveikleika á drottningar- væng hefur hvítur góð sóknar- færi á kóngsvæng og verður því að tefla hvasst.) 9. — 0-0,10. Bd3 (Svartur hefur ágæt færi fyrir skiptamuninn eftir 10: Bh6 — g6, II. Bxf8 - Bxf8.) 10. - f5?! (10. - d6.) 11. exf6 — Bxf6, 12. Rf3! (Svartur má ekki fá tækifæri til að ná miðborðinu með 12. — e5 og 13. - d5.) 12. - e5,13. Rg5 - e4?? (Besti leikur svarts hefði verið 13. — h6 þó hvítur standi mun betur eftir 14. Rh7! í stað- inn misreiknar hann sig illilega.) 14. Dxe4! (Svarti varð nú ljóst að hann tapar drottningunni eða verður mát eftir 14. — He8, 15. Bc4+ — Kf8, 16. Rxg7++ eða 15. — Kh8,16. Rf7 - Kg8,17. Rxd8+ Hann reyndi því í staðinn:) 14. — g6, 15. Rh7 og svartur gafst upp. Hann verður að minnsta kosti þrem peðum undir. Hvítt: Hannes H. Stefánsson Svart: Kjeil Simonsen Noregi Phildor-vörn 1. e4 — e5, 2. Rf3 — d6, 3. d4 — cxd4, 4. Rxd4 — g6 (Leikaðferð sem Larsen hefur oft notað.) 5. Bc4 — Bg7, 6. 04) — Rf6, 7. Rc3 — 0-0, 8. f4 (8. Be3 ásamt 9. f3 kom einnig vel til greina.) 8. — c5? (Svartur tapar nú d6-peðinu að óþörfu. Traustur leikur og góður var 8. — Rc6.) 9. Rb5! — Re8, 10. e5 — a6, 11. Rxd6 — Rxd6, 12. Dxd6 — Dxd6, 13. exd6 — Bf5,14. Bd5 (Hvíta staðan er unnin, en nú fer hann að flækja taflið fyrir sér að óþörfu. 14. Rd5 — Bxc2, 15. Rb6 - Ha7,16. Be3 hefði ver- ið einfaldara.) 14. — Ha7. 15. Be4? (Hræðilegur leikur sem tapa ætti manni. Betra var t.d. 15. Be3 — b6, 16. Ra4. Svartur leikur þó betur 15. — Rd7 og ekki er alveg ljóst hvernig hvítur kemst áfram. Ástæðan fyrir af- leik þessum er væntanléga sú að Hannes hafði þegar unnið mótið hvernig sem þessi skák færi og hefur orðið helst til kærulaus). 15. — Bxc3, 16. Bxf5 — Bxb2? (Svartur geldur hvíti í sömu mynt!) Eftir 16. - Bd4+, 17. Khl — gxf5 ynni hann einfaldlega mann.) 17. Bxb2 — gxf5, 18. Hf3! — Rd7? (Svartur leikur sig nú í mát, en staðan var gjörtöpuð, t.d. 18. - Rd7, 19. Hel.) 19. Hg3 mát.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.