Morgunblaðið - 09.03.1983, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MARZ 1983
49
fólk kann aó meta þessa tónlist.
Þannig er þaö alltaf."
„Mér finnst rétt,“ sagöi Árni
Daníel og greiþ aðeins frammí, „að
taka þaö fram, aö viö gleypum
ekki „fjútúriö" hrátt eins og svo
margir hafa tilhneigingu til aö gera.
Tónlistin hjá okkur er ekki „köld“
og fráhrindandi. Við erum heldur
ekki aö leika þessa tónlist af ein-
hverri skyldurækni. Viö höfum ein-
faldlega gaman af þessu. Þetta eru
okkur engin trúarbrögö eins og
tónlistin vill stundum veröa hjá
hljómsveitum.“
— Hefur mannabreytingaskeiö-
iö tekiö enda i Q4U?
„Þaö er aldrei hægt aö segja
fyrir um, en viö erum mjög sátt viö
hljómsveitina í þeirri mynd, sem
hún er í í dag. Segulbandiö, er
5.—8. meðlimurinn í hljómsveit-
inni, allt eftir hvaö þurfa þykir.“
„Ég vil vera eini kvenmaöurinn í
bandinu," segir Ellý og hlær. Svip-
urinn var hins vegar þess eölis, aö
ekki er árennilegt fyrir nokkurn
kvenmann aö reyna inngöngu í
Q4U.
— Er þaö ekki oröiö talsvert
hættuspil aö gefa út hljómplötu á
þessum síöustu og verstu tímum?
„Þaö kann aö vera, en við ætt-
um ekki aö þurfa mikiö meira en
600 eintaka sölu til þess aö platan
standi undir sér. Viö hljótum aö
geta náö því marki meö einhverj-
um ráöum. Annars erufn viö fyrst
og fremst aö gera þetta fyrir
okkur. Okkur finnst ofsalega gam-
an aö þessu, en ekki sakaði þaö
aö geta hrist aöeins upp í tónllst-
arlífinu um leiö. Þaö er einhver hel-
vítis stöönun í þessu öllu saman
núna. Viö vonumst til þess, aö fólk
líti svo á, aö viö höfum eitthvaö
nýtt fram aö færa. Þaö vita allir aö
ekki gengur aö koma meö útþvælt
efni, rétt eins og enginn selur not-
aö tyggjó."
— Er Q4U þá loksins aö veröa
fræg hljómsveit?
„Þaö erum viö nú ekki, en viö
héldum um tíma, aö viö værum
orðin eitthvað meiriháttar. Viö
höföum tilhneigingu til aö vera rétt
hljómsveit á réttum staö á réttum
tíma. Viö vorum t.d. meö í Rokk í
Reykjavík og komumst þokkalega
frá því, viö áttum nokkuö sæmi-
legan þátt á Melarokkinu, en síöan
féllum viö flöt á ísafiröi.”
— ísafiröi! Hvað kom til að þiö
álpuöust þangaö?
„ísafjöröur er fínn bær og vlö
kunnum ofsalega vel viö okkur þar
og eigum þar góöa kunningja. Viö
lentum á einhverju egó-flippi í
haust og smelltum okkur vestur.
Viö vorum nefnilega orðin svo
fræg, eöa svo héldum viö a.m.k.
Annað kom á daginn fyrir vestan.
Viö biöum til miönættis eftir aö
einhverjir aörir en boösgestirnir
létu sjá sig á tónleikunum okkar,
en þegar útséö var um aö einhver
utanaökomandi mætti fórum viö
bara á fyllirí, sem stóö í tvo daga.
Þetta var yndislegur tími og vió
fengum þarna gott og ærlegt
kjaftshögg. Viö vorum nefnilega
ekkert fræg. Við höfum fengiö fullt
af kjaftshöggum á ferlinum, en viö
eigum eftir aö gefa almennilegt
högg frá okkur." __ s§v.
Mezzo sækir
enn í sig veðrið
Mezzoforte fór eíns og
mönnum er e.t.v. kunnugt til
Bretlands í síðustu viku og
tróð upp í Venue, þeim mik-
ilsvírta klúbbi, um helgina.
Vegur Mezzoforte fer æ vax-
andi og fyrir skemmstu bárust
okkur fregnir af því, aö eitt laga
þeirra væri nú notað sem
kynningarlag sérstaks þáttar í
skoska útvarpinu. Ekki sakar
aö geta þess, aö þátturinn er á
dagskrá fjóra daga vikunnar,
hálfan annan tíma t senn.
Umboösskrif-
stofa SATT
SATT hefur ákveöiö aö
koma á fót umboösskrifstofu til
jsess aö annast ráöningar
hljómsveita. Er þaö von aö-
standenda SATT, aö sem flest-
ar hljómsveitir láti skrá sig hjá
skrifstofunni. Til þess aö byrja
meö veröul- skráningarsíminn
15310 og væntanlega veröur
Jóhann G. Jóhansson þar fyrir
svörum.
Þursaflokkurinn feikifríski. Hann er einn þeirra, sem lagt hefur SATT lið.
„Ég get vart annaö sagt, en
þetta só hnefahögg í andlit SATT
og þessi ákvöröun gerir þaö að
verkum, að allt er á huldu um
framtíö félagsins," sagöi Jóhann
G. Jóhannsson, er Járnsíðpan
ræddi viö hann um þá ákvöröun
fjármálaráöuneytisins aö hafna
beiöni SATT um niðurfellingu
söluskatts á skemmtunum, sem
haldnar voru í nafni félagsins um
fyrri helgi.
Hnefahögg í
andlit SATT
— söluskattur ekki felldur niöur af
skemmtunum félagsins um fyrri helgi
SATT barst á fimmtudag bréf
frá fjármálaráðuneytinu og til þess
aö gefa lesendum hugmynd um
dæmigerö kerfisvinnubrögö fer
svar þess hér á eftir:
„Ráöuneytiö vísar til bréfs yöar>~
dagsett þann 15. þessa mánaöar,
þar sem beiöst er niöurfellingar á
söluskatti af aögangseyri aö veit-
ingahúsum helgina 18.-19. febrúar
vegna tónleikahalds SATT á þess-
um stööum.
Samkvæmt 24. töluliö 14. grein-
ar reglugeröar nr. 487 1982 er
undanþága aðgangseyris af tón-
leikahaldi frá söluskatti bundin því
skilyröi, aö tónleikarnir séu ekki i
neinum tengslum viö annaö
skemmtana- eöa samkomuhald.
Hefur þetta veriö túlkaö þannig, aö
tónleikarnir eigi aö vera algerlega
sjálfstæöir.
Þó hefur veriö heimiluö undan-
þága vegna tónleikahalds í tengsl-
um viö dansleiki aö eftirtöldum
skilyröum fullnægöum:
a) Sérstakir aögöngumiöar séu
seldir, þannig aö einn varði tón-
leikana og annar dansleikinn.
b) Verö aögöngumiöa aö dans-
leiknum sé ekki lægra en tíökast á
venjulegum dansleikjum í viökom-
andi húsi.
í þessum tilvikum hefur veriö
fallist á undanþágu söluskatts á
veröi þess miöa er varöar tónleik-
ana. Eigi er fullljóst af bréfi sam-
bandsins hvernig þessum atriöum
var háttaö á framangreindum sam-
komum. Af munnlegum upplýsing-
um Jóhanns G. Jóhannssonar
viröist þó Ijóst, að framangreind-
um skilyrðum hefur ekki veriö full-
nægt. Getur ráöuneytiö því ekki
oröiö við erindinu.“
„Mér er skapi næst aö halda aö
þessir ágætu menn,. a.m.k. ráö-
herra, Ragnar Arnalds, hafi hrein-
lega ekki lesiö bréfiö, sem viö
sendum sérstakega inn meö þess-
ari beióni,“ sagöi Jóhann. „i þessu
bréfi var skýrt tekiö fram, aö líf
SATT gæti oltið á útkomum þess-
ara skemmtana. Þaö viröist því,
sem ekkert tillit hafi verið tekiö til
bréfsins, né þeirrar sérstööu, sem
viö bentum á; aó íslenskir popp-
tónlistarmenn ættu vió veruiegt at-
vinriuleysi aö etja."
Dexý's Midnight Runners — Síöari hluti:
Þrjóskan í Rowland var eftir allt
ekki til einskis. Lagiö Geno
komst í 1. sæti smáskífulistans
breska þann 3. maí 1980. I kjölfar
þessarar velgengni var fyrri
breiðskífan, Searching For The
Young Soul Rebels, gefin út í júní
þetta sama ár. Sú plata hefur af
fjöldamörgum veriö talin á meðal
bestu „fyrstu platna" til þessa.
Við útkomu hennar lýsti Rowland
því fjálglega yfir, aö næsta
breiðskífa yröi ekki lakari en sú
fyrsta. Menn brostu þá í kampinn,
en hið sama átti eftir aö koma á
daginn.
Aödáendur Oexy’s Midnight
Runners uröu nefnilega aö gera
sér aö góöu aö bíöa í heil tvö ár
eftir næstu breiöskífu, Too Rye
Ay. Tímann, sem leiö á milli, not-
aöi Rowland til að fikra sig áfram
og gefa út sannkallaöar gæöa-
smáskífur.
Meö allar þessar viöurkenningar
i pokahorninu viröist ekkert geta
komiö i veg fyrir ótakmarkaöan
frama Dexy’s Midnight Runners,
en þá dundi ógæfan yfir. Þegar
veriö var aö taka upp myndbands-
atriði viö lagiö „There, There My
Dear“ geröist þaö, aö Kevin lenti í
rimmu viö keppinaut sinn og hlaut
skilorösbundinn fangelsisdóm fyrir
vikiö. Er áriö var á enda haföi ekk-
ert nýtt komiö frá sveitinni.
Popppressan skýröi frá því, aö
aörir meölimir flokksins væru
orönir þreyttir á yfirgangsseminni í
Kevin og til þess aö standa nú
undir nafni lét hann gefa út lagiö
„Keep 1 Part Two (Inferiority Part
One)“ á smáskífu, þvert gegn vilja
hinna meðlimanna.
Afleiöingarnar létu ekki á sér
standa. Lagið fékk ekki náö fyrir
augum (eyrum?) hins almenna
plötukaupanda og platan seldist
sáralítiö. Þótt Rowlands sé ekki
getið á plötumiöanum er ekki
nokkur vafi á, aö lagiö er undan
hans rifjum runniö. Upp úr þessu
varö fljótt Ijóst aö breytinga væri
aö vænta í sveitinni.
Sú varö og raunin. Steve
Spooner, J.B. og Pete Williams
sögöu allir skiliö viö DMR og
gengu til liðs viö hina nýstofnuðu
Bureau. Þar með var Big Jim Patt-
erson sá eini eftir úr upprunalegu
liösskipaninni ásamt Rowland. Því
var ekki um annaö aö ræöa en aö
endurskipuleggja flokkinn og var
þaö gert í snatri. Seb Sheldon,
trommari úr Secret Affair, Mickey
Billingham/hljómborö, Steve
Wynne/bassi, Paul Speare/tenór-
saxófónn, Brian Maurice/altsaxó-
fónn og Billy Adams/gítar voru
nýju meðlimirnir og þar meö var
sveitin á ný oröin átta manna.
Uppstokkunin gekk þó ekki ai-
deilis átakalaust fyrir sig. Rowland
haföi þegar hér var komiö sögu
komiö sér úr náöinni hjá svo aö
segja hverjum einasta blaöamanni
poppressunnar með því aö neita
að veita viötöl. Hann tjáöi sig ein-
vöröungu gagnvart almenningi
meö nokkrum hálfsíöu auglýsing-
um. Oröalagiö þótti bera veru-
legan keim af ómældri sjálfs-
ánægju og upphafningu á eigin
ágæti.
Til aö bæta nú enn um betur
sneri Rowland baki viö útgefend-
um sínum hjá EMI þótt langur tími
væri enn eftir af samningi hans.
Áöur en af því varö lét Rowland sig
ekki muna um aö senda frá sér
enn eina smáskífuna, sem ekki
náöi neinum vinsældum. Sú staö-
reynd varö honum mikiö áhyggju-
efni og þá ekki siður eldheitum
stuöningsmönnum hans.
Þegar kom fram á áriö 1981 var
Kevin farinn aö huga að uppstokk-
un í tónlist sinni. Soul-tónlistin
skyldi víkja og leitaö á nýjar slóöir.
„Irnage" var hlutur sem ekki mátti
gleymast og því var gerbreytt.
Sveitin tróö nú upp í rauöum anor-
ökkum, íþróttabuxum og box-
skóm.
Samningur viö Phonogram var í
augsýn og Rowland dirföist ekki
aö taka neina áhættu. Næsta smá-
skífa innihélt lagiö Show Me, sem
náöi miklum vinsældum, enda sem
sniöiö fyrir eyru almúgans. í kjölfar
þessa uröu frekari breytingar á
liösskipan sveitarinnar. Steve
Wynne hætti og Giorgio Kilkenny
tók viö bassanum. I nóvember
1981 flutti flokkurinn The Pro-
jected Passion Review, sem mikils
haföi verið vænst af og beöið eftir,
á sviöi í Lundúnum og móttökurn-
ar uröu frábærar.
Þaö var svo snemma á árinu
1982, aö Kevin Rowland fékk þá
hugdettu aö blanda saman soul-
tónlist og írskri þjóölagatónlist.
Þessi stefnubreyting kraföist
breytinga á hljómsveitinni og nú
vantaði fiölur. Því voru þau Helen
O’Hara, Steve Brennan og Roger
MacDuff fengin til liös viö hópinn.
Þetta kallaöi á enn eina breyting-
una á „image“ og nú var gripiö til
þess klæöaburðar, sem flestir
kannast nú viö í dag. Samfest-
ingar, hálsklútar og vinnuskyrtur
voru einkennismerkið.
Fyrsta smáskífan meö þessari
síöustu liösskipan innihélt lagiö
The Celtic Soul Brothers, sem allir
töldu fullvíst aö færi rakleiöis á
toppinn. En hvaö þaö var, sem olli
því nú, varö ekkert úr þeim draum-
um. Vonbrigöi Rowlands voru slík,
aö hann hugöist um tíma hætta
fyrir fullt og allt í tónlistinni. Hann
ákvaö þó aö lokum aö Ijúka viö
gerö annarrar breiöskifu flokksins
og hefur varla séö eftir þeirri
ákvöröun.
Plötunni var fylgt úr hlaöi meö
smáskífunni Come On Eileen og
þaö lag sló svo sannarlega í gegn.
Haföi hljómsveitin ekki upplifaö
viölíka velgengni frá því Geno kom
út ... Sagan endurtók sig svo al-
gerlega þegar breiöskífan Too Rye
Ay leit dagsins Ijós. Hún fikraöi sig
upp eftir vinsældalistunum og
hætti ekki fyrr en toppnum var
náö.
Þrátt fyrir þessar miklu vinsæld-
ir létu mannabreytingar enn á sér
kræla. Hægri hönd Rowlands, ef
hægt er aö komast svo aö oröi,
Big Jim Patterson ákvaö aö hætta
í sveitinni til aö fylgja eigin sólóferli
úr hlaði. Þremur vikum síöar hættu
Brian Maurice og Paul Speare
einnig. Reyndar segja margir, aö
sjá hafi mátt þessar breytingar
fyrir strax og Rowlantí ákvaö aö
breyta nafni sveitarinnar og setja
nafn sitt framan viö: Kevin Row-
land And The Dexy’s Midnight
Runners. Því veröur á hinn bóginn
ekki mótmælt, aö þaö er óumdeil-
anlega Rowland, sem er potturinn
og pannan í öllu saman.
Frá því breiöskífan kom út hafa
vinsældir DMR aukist dag frá degi.
Unglingar hafa margir hverjir tekiö
ástfóstri viö flokkinn og veröi
Rowland ekki fyrir neinum alvar-
legum skakkaföllum á næstunni er
ekki óeölilegt aö ætla aö framhald
veröi á velgengni hans, þótt tæp-
ast veröi hún án nokkurra fórna
fremur en til þessa.
Echo And The Bunny-
men koma til íslands
Flest bendir nú til þess, aö
breska hljómsveitin Echo And
The Bunnymen heimsæki ís-
land í byrjun júlí og haldi hér
tvenna tónleika. Til stóö aö
hljómsveitin kæmi hingaö í
janúar, en af óviöráðanlegum
orsökum varö ekkert af heim-
sókninni.
Undanfarna daga og vikur
hafa staöiö yfir þreifingar og
samningaviöræður viö um-
boösmann hljómsveitarinnar og
hefur þeim miöaö vel. Fari svo aö
hljómsveitin mæti hér galvösk
veröur dagurinn að öllum líkind-
um 2. júlí.
Rætt hefur veriö um aö halda
tvenna tónleika í Austurbæjar-
bíói sama daginn, en eftir er aö
fá staöfestingu Echo And The
Bunnymen á því. Líkur eru þó á
aö svo verði.